Morgunblaðið - 14.06.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2007 9
FRÉTTIR
ÞAÐ geta ekki öll kauptún státað af
tveimur starfandi hæstaréttarlög-
mönnum sem þar búa,“ segir Jón Ís-
berg hrl. og fyrrverandi sýslumaður
Húnvetninga, sem á dögunum mætti
starfsbróður sínum, Stefáni Ólafs-
syni, nýbökuðum hrl., í dómþingi
Héraðsdóms Norðurlands vestra
sem haldið var á Blönduósi. Stefán
Ólafsson fékk málflutningsréttindi
sín sem hrl. 24. maí sl. og ekki all-
löngu síðar vildi svo til að þessir tveir
hæstaréttarlögmenn og Blöndu-
ósbúar urðu málflytjendur í einka-
máli sem tekið var fyrir hjá dóm-
stólnum 6. júní. Var þetta í fyrsta
skipti sem tveir Blönduósbúar sem
einnig eru hæstaréttarlögmenn
mætast í heimadómþingi.
Jón Ísberg er fæddur árið 1924 og
er heiðursborgari Blönduóss. Hann
var skipaður sýslumaður Húnvetn-
inga 1960 og varð fyrsti Blönduósbú-
inn sem fékk málflutningsréttindi
fyrir Hæstarétti. Nú hefur samborg-
ari hans Stefán Ólafsson hrl. skipað
sér á þann bekk en hann er fæddur
árið 1964 og hefur starfað sem hér-
aðsdómslögmaður á Blönduósi í all-
nokkur ár.
„Það barst aðeins í tal hjá okkur
Jóni þarna um daginn að það væri
ábyggilega ekki algengt hjá litlum
stöðum eins og Blönduósi að heima-
menn gætu mætt sem hæstaréttar-
lögmenn í dómsal,“ segir Stefán. „En
þetta er vissulega skemmtilegt.“
Þess skal getið hæstaréttarlög-
menn hafa áður flutt mál í dómþingi
héraðsdóms á Blönduósi en nýlund-
an að þessu sinni er að lögmennirnir
sem um ræðir eru báðir búsettir í
bænum. Flytja þarf fjögur prófmál
fyrir Hæstarétti til að verða hrl.
Jón
Ísberg hrl.
Mættust
í sama
málinu
Blönduós státar af
tveimur hæstarétt-
arlögmönnum
Stefán Ólafsson
hrl.
Brúðarkorselett
í úrvali
Tilboð
Nýtt kortatímabil
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
Tækifærið gríptu greitt
17% afsláttur af öllum vörum
www.yogaretreat.is
Hálfsdags námskeið
laugardaginn
16. júní
í Norræna húsinu, kl. 14.00 – 18.00
Leiðbeinendur eru
Swami Janakananda og Ma Sita
Upplýsingar og skráning:
Hugleiðsla, fyrirlestur, jóga og djúpslökun
KRINGLUNNI - Sími: 568 9955
www. t k . i s
OPIÐ
TIL 9
KRINGLU-
KAST
Í GANGI
Brjálað
Útskriftargjafir
Bloom skál 26cm Kr. 12.340.-
Bloom skál 34cm Kr. 14.980.-
Bloom kertastjakar 2 stk. Kr. 5.890.-
Kringlukast
fimmtudag, föstudag og laugardag
30% afsláttur af öllum vörum
Tilboðsslá: Verð aðeins 1.990
sími 568 1626
www.stasia.is
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Sumarfrakkar
Ljósir og brúnir
Str. 42-56
Nýtt kortatímabil
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
20% afsláttur
af öllum stökum jökkum