Morgunblaðið - 30.06.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.06.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is HRÖÐ atburðarás fór af stað eftir að fréttir bárust af áhuga Orkuveitu Reykjavíkur á að kaupa hluti af sveit- arfélögum í Hitaveitu Suðurnesja. Stjórnendur Geysir Green Energy gengu snarlega til verks og undirrit- uðu samninga með sjö sveitarfélögum um kaup á hlutum þeirra í HS. Heild- arkaupverðið í viðskiptunum í gær er 15 milljarðar kr. og eignaðist Geysir Green Energy þar með 28,4% hlut í HS, til viðbótar þeim hlut sem félagið kaupir af ríkinu í HS. Gengið í við- skiptunum í gær var 7,1 króna á hlut eða lítið eitt hærra en OR bauð sveit- arfélögunum, sem var á genginu 7 kr. Einu sveitarfélögin sem ekki selja Geysi eru Reykjanesbær sem á tæp 40% í HS og Hafnarfjarðarbær sem á 15,4%. Forkaupsréttur er á hlutum í félaginu og hafa aðrir eigendur því tvo mánuði til að nýta forkaupsréttinn vegna þessara viðskipta. Geysir átti hæsta boð í 15,2% eign- arhlut ríkisins í útboðinu sl. vor á genginu 6,72 kr. á hlut eða á 7.617 milljónir kr. og ákvað ríkið að ganga að því. Forkaupsréttarhafar hafa frest til næstkomandi þriðjudags til að nýta rétt sinn vegna sölunnar á hlut ríkisins en með viðskiptunum í gær falla sveitarfélögin sem seldu Geysi frá forkaupsrétti sínum. Reykjanesbær og Hafnarfjörður hafa hins vegar forkaupsrétt. Reykjanes- bær er meðal eigenda Geysis og segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis, að sveitarfélögunum hafi boðist að verða aðilar að Geysi. Þau hafi íhugað það en kosið að fá söluverðið greitt út. Fá þrefalt hærri fjárhæð en sem nemur öllum skuldum bæjarins „Stjórnendur félagsins hafa gert forsvarsmönnum Hitaveitunnar og bæjarins góða grein fyrir áformum sínum um framtíðaruppbyggingu fé- lagsins og þau áform fara mjög vel saman við okkar áætlanir um upp- byggingu þess,“ er haft eftir Árna Sigfússyni, bæjarstjóra Reykjanes- bæjar, í fréttatilkynningu í gær. Geysir kaupir af eftirtöldum sveit- arfélögum (eignarhlutur fyrir söluna er innan sviga); Vestmannaeyjabæ (6,9%), Árborg (1,4%), Kópavogi (0,18%), Vogum (2,7%), Sandgerði (5,3%), Grindavík (8,2%) og Garði (4,6%). Um er að ræða allan hlut þess- ara sveitarfélaga í HS nema hvað sveitarfélögin á Suðurnesjum halda eftir um 1,25% hlut. Með sölunni losa sveitarfélögin mikið fé. „Það er hlutverk okkar að haga fjárfestingum svo að þær nýtist sem best fyrir bæjarbúa. Í kjölfarið á þessari sölu munum við leggja áherslu á að greiða niður skuldir bæj- arsjóðs og ráðast í tímabærar fram- kvæmdir,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Var hann ánægður með söluna þegar blaðið ræddi við hann en Hannes Smárason, stjórnarformaður Geysis, var þá nýgenginn út af skrifstofu bæj- arstjóra eftir undirritun samninga sem færir Vestmannaeyjarbæ 3.640 milljónir fyrir hlutinn í HS. Grindavík losar um 4,4 milljarða með sölunni í gær og bæjarráð Sandgerðis gekk í gærmorgun frá sölu á hlut sínum í HS þar sem söluverðið nemur 2.646 millj- ónum kr. Er sú fjárhæð þrefalt hærri en samanlagðar skuldir bæjarins. „Menn mátu það svo að tímapunkt- urinn [til að selja] væri núna,“ segir Óskar Gunnarsson, forseti bæjar- stjórnar. „Það voru allir möguleikar skoðaðir en þetta var niðurstaðan,“ segir Óskar spurður hvort komið hafi til álita að selja OR. Sjö sveitarfélög seldu hluti fyrir 15 milljarða í HS í gær Morgunblaðið/G.Rúnar Sjá tækifæri Stjórnendur Geysis segja Hitaveitu Suðurnesja eiga mikla framtíðarmöguleika. FL Group, Glitnir, VGK Hönnun og Reykjanesbær eiga Geysi. Reykjanesbær og Hafnarfjörður eiga einnig beinan hlut í Hitaveitunni. Geysir Green Energy hefur nú keypt 43,6% eignarhluta í Hitaveitu Suðurnesja Fjárfestingar- bankinn Askar Capital leggur nú grunn að því að opna skrifstofu í Indlandi í haust ef leyfi fæst hjá Fjármálaeftirlit- inu. Skrifstofunni er ætlað það hlut- verk að finna fjár- festingaverkefni inn í sjóð sem bankinn er að stofna um þessar mundir, að sögn Tryggva Þórs Herbertssonar, forstjóra Aska. Mun skrifstofunni vera ætlað að veita bæði íslenskum og erlendum fjárfest- um tækifæri til að fjárfesta í Indlandi í þeim efnahagsuppgangi sem þar er. Askar Capital var stofnaður í des- ember 2006 og sérhæfir sig í þróun og sölu fjármálaafurða. Kostnaður við Indlandsútrásina mun hlaupa á milljörðum króna, að sögn Tryggva Þórs, en ávinningurinn er talinn tölu- verður. „Við vonumst til þess að hagnast verulega á þessu. Indlands- markaður er á mjög mikilli ferð núna og því er vonast til þess að ávöxtunin muni hlaupa á tveggja stafa pró- sentutölum,“ segir hann. „Þessi markaður er í gríðarlega mikilli framrás og við sjáum að það muni halda áfram um mjög mörg ókomin ár og að hér sé ekki um neina bólu að ræða.“ Skrifstofan á að vera í Mumbai og Pav Bakshi mun stjórna henni. Eigið fé Aska var við stofnun um 11 milljarðar króna og fjöldi starfs- manna um 40. Við stofnun var gert ráð fyrir því að við árslok 2007 myndu Askar hafa í umsýslu sinni eignir að verðmæti um 200 milljarðar króna. Höfuðstöðvar Aska eru í Reykja- vík og eru skrifstofur bankans nú starfandi í Lúxemborg, Rúmeníu og Hong Kong. Askar sjá hagnaðarvon á vaxandi Indlandsmarkaði Stefna að opnun skrifstofu bankans í Mumbai nú í haust Í HNOTSKURN »Fjárfestingabankinn Ask-ar Capital var stofnaður í árslok 2006 og var kjölfestu- fjárfestir Milestone. Aðrir stofnendur og hluthafar voru fjárfestingarfélagið Aquila Venture Partners og Ráðgjöf og efnahagsspár. »Síðastliðið vor var stofnaðráðgjafaráð bankans með þátttöku Nóbelsverðlaunahaf- ans Edmund S. Phelps, pró- fessors í hagfræði við Col- umbia-háskóla. Tryggvi Þór Herbertsson GREINT var frá því í janúar á þessu ári að 15,2% hlutur ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja yrði seldur. Þá sagði Baldur Guðlaugsson, for- maður framkvæmdanefndar um einkavæðingu, að óljóst væri hvert verðmæti hlutarins væri, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var það talið nema 2,5-3 milljörðum króna. Eignarhluturinn var auglýstur til sölu í mars og þeim sem hefðu hug á að bjóða gefinn frestur til að gefa sig fram til 2. apríl. Tíu félög lýstu áhuga á að bjóða í eignarhlutinn fyrir tilgreindan tíma. Frestur til að skila inn bindandi verðtilboði rann út 30. apríl og bárust fjögur tilboð. Þau voru frá Eignarhaldsfélaginu HS ehf., sem Landsbankinn og fleiri stóðu að, Geysi Green Energy ehf., Saxbygg ehf. og Suð- urnesjamönnum ehf., nýstofnuðu félagi heimamanna. Tilboð Geysis var langhæst, eða 7.617 milljónir. Suðurnesjamenn buðu 4.705 milljónir, Eignarhaldsfélagið HS bauð 4.655 milljónir og Saxbygg 2.760 millj- ónir. Þá kom fram að miðað við það verð sem sett yrði í kaupsamningi ríkisins við Geysi Green Energy væri heildarverðmæti HS um 49 millj- arðar króna. Ekki væri líklegt að fyrirtækið sjálft eða aðrir hluthafar gengju inn í kaupin. Í fréttatilkynningu vegna tilhögunar sölunnar frá framkvæmdanefnd um einkavæðingu, sem og í auglýsingu vegna sölunnar, kom fram að íslensk orkufyrirtæki í opinberri eigu mættu ekki bjóða í hlut ríkisins. Orðrétt sagði: „Loks mega íslensk orkufyrirtæki í opinberri eigu, þ.e. þau félög sem stunda starfsemi sem fellur undir raforkulög nr. 65/ 2003, ekki bjóða í eignarhlut íslenska ríkisins. Sama gildir um dótt- urfélög framangreindra fyrirtækja og önnur félög þar sem þau fara með yfirráð í skilningi samkeppnislaga.“ Opinber orkufyrirtæki máttu ekki bjóða í hlut ríkisins VINSTRI grænir krefjast þess að ríkið falli frá sölu á hlut sínum í Hita- veitu Suðurnesja, að því er segir í fréttatilkynningu frá þingflokknum. Ríkisvaldið hafi með aðgerðum sín- um valdið óvissu í rekstri Hitaveit- unnar og komið samstarfi sveitarfé- laga í uppnám, enda hafi nú komið í ljós að sala á hlut ríkisins til einka- aðila sé þvert á vilja margra sveita- félaga, sem eru helstu hluthafar í fyrirtækinu. Í fréttatilkynningunni segir að það, að fjárfestar hafi metið fyrir- tækið á margfalt hærra verði en op- inberir aðilar, bendi til að fjárfestar vonist til að hafa arð út úr markaðs- væddum orkugeira. Það muni bitna á neytendum með hækkuðu raforku- verði og því beri ríkisstjórninni að tryggja að Hitaveita Suðurnesja verði áfram í samfélagslegri eigu. Innrás fjár- festa verði stöðvuð Einkavæðing leiði til hærra raforkuverðs BILUN kom fram í „Jöklastúlk- unni“ í fyrradag en næsti viðkomu- staður hennar á eftir Grænlandi var Ísland. Vélinni var snúið aftur til Goose Bay á Labrador og för hennar frestað en flugvélarnar sem voru í fylgd með henni héldu för- inni áfram með viðkomu hér á landi. Í hópnum var þessi flugvél af Mustang gerð. „Jöklastúlkan“ er gömul her- flugvél af gerðinni Lockheed P-38F „Lightning.“ Hún hélt af stað á ný sl. föstudag í leiðangur, sem hófst árið 1942. Vélin var þá í hópi átta flugvéla, sem allar nauðlentu á Grænlandsjökli, en hún náðist úr ísnum árið 1992 og hefur nú verið gerð upp. Morgunblaðið/Eyþór „Jöklastúlk- an“ biluð Flug Þessi Mustang-flugvél lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.