Morgunblaðið - 30.06.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 30.06.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 43 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Félag eldri borgara í Kópavogi, ferðanefnd | 3 daga Vestmanna- eyjaferð 2.-4. júlí. Skráningarlistar og nánari ferðalýsing í Gullsmára, s. 564 5260, og Gjábakka, s. 554 3400. Gist á Hótel Þórshamri. Boðið upp á skoðunarferðir um Heimaey og á sjó umhverfis Heimaey. Brottför frá Gullsmára kl. 10 og Gjá- bakka kl. 10.15. Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9. Hana-nú ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergs | Vegna sumarleyfa starfsfólks fellur starf- semi og þjónusta niður frá mánud. 2. júní, opnað aftur þriðjud. 14. ágúst. Ef þjónustu, upplýsingar eða aðstoð vantar er bent á Þjónustumiðstöð Breiðholts, opið kl. 8.20-16.15, s. 411 1300, breidholt@reykjavik.is. Hraunbær 105 | 4. júlí. Ferð að Skóg- um, Vík í Mýrdal og Kirkjubæj- arklaustri. Hádegisverður snæddur að Skógum.Verð 4.800 kr. Skráning á skrifstofu eða í síma 587 2888. Hvassaleiti 56-58 | Miðvikudaginn 4. júlí verður farið í Borgarnes. Há- degisverður snæddur. Landnámssýn- ing og Egilssýning skoðaðar. Brottför úr Hvassaleiti kl. 11 og áætluð heim- koma kl. 16. Allir velkomnir. Skráning í síma 535 2720. Hæðargarður 31 | Gönguferðir, heitur kaffisopi á morgnanna, pútt, fé- lagsvist. Listasmiðjan opin. Tölvu- sveitin hittist reglulega, hádeg- ismatur, síðdegiskaffi, bridshópur, fótaaðgerðastofa, hárgreiðslustofa. Uppl. í s. 568 3132, asdis.skuladott- ir@reykjavik.is. 60ára afmæli. Á morgun,sunnudaginn 1. júlí, verður Jón Þ. Gíslason sex- tugur. Á þessum tímamótum tekur hann á móti ættingjum og vinum í Rafveituheimilinu í Elliðaárdal á afmælisdaginn milli kl. 16 og 18. 60ára afmæli. JúlíanaPálsdóttir (Úlla frá Ísafirði) verður sextug sunnu- daginn 1. júlí. Hún og eigin- maður hennar, Kristján Finnsson, taka á móti ætt- ingjum og vinum laugardag- inn 30. júní milli kl. 17 og 21 á heimili sínu í Ölfusborgum. dagbók Í dag er laugardagur 30. júní, 181. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Og eins og vér höfum borið mynd hins jarðneska, munum vér einnig bera mynd hins himneska. (I. Kor. 4, 16.) Orkuvíxlverkanir í atómum ogsameindum (e. FundamentalQuantum Processes in Ato-mic and Molecular Systems) er yfirskrift ráðstefnu NordForsk sem haldin verður í Nesbúð dagana 30 júní til 2. júlí, með aðkomu Háskóla Íslands og Raunvísindastofnunar. Sameindir á hreyfingu Ágúst Kvaran, prófessor í eðlisefna- fræði, er einn af skipuleggjendum ráð- stefnunnar: „NordForsk er norrænt samvinnunet vísindamanna á ýmsum sviðum, en einnig taka þátt í samstarf- inu aðilar frá Rússlandi, Írlandi og fleiri löndum,“ segir Ágúst. Ráðstefnan skoðar meðal annars leiðir til að fylgjast með ákaflega hröð- um atburðum á sameindastigi: „Vís- indin leitast við að skoða hraðari og hraðari atburði, og stefnt er að því að geta fylgst með viðburðum sem gerast á allt að einni attósekúndu, eða einum milljarðasta-milljarðasta úr sekúndu. Í dag er unnt að fylgjast með hvernig at- óm hreyfast innbyrðis í sameindum, fylgjast með efnahvörfum í smáat- riðum og jafnvel hvernig atóm færast milli sameinda. Næsta skref gæti orðið að geta fylgst með rafeindunum á sveimi kringum atómkjarnana. Eins og gefur að skilja mun þessi tækni opna dyrnar að ótrúlegum möguleikum,“ út- skýrir Ágúst. „Við slíkar rannsóknir er einkum notast við sterka ljósgeisla sem í daglegu tali eru kallaðir leysigeislar. Þar gildir að framkalla æ styttri og styttri ljósblossa, eða púlsa.“ Jónir, geislar og víxlverkanir Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru þrír: „Andrey Kazansky frá Rússlandi fjallar um áhrif mjög sterkra röntgen- geisla og innrauðrar geislunar á efni, og hvernig þau sundrast í jónir. Dereck Richards frá Englandi fjallar um víxl- verkanir í atómum og sameindum og André Bandrauk frá Kanada flytur framtíðarspá um þróun rannsókna á örtíma-viðburðum,“ segir Ágúst. Finna má nánari upplýsingar um NordForsk ráðstefnuna á hlekk á heimasíðu Raunvísindastofnunar Há- skóla Íslands á slóðinni http:// raunvis.hi.is. Vísindi | Ráðstefna NordForsk haldin í Nesbúð dagana 30. júní til 2. júlí Atburðir á attósekúndum  Ágúst Kvaran fæddist á Húsavík 1952. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1972, B.S. í efnafræði frá Há- skóla Íslands 1975 og doktorsgráðu í eðlisefnafræði frá Edinborgarhá- skóla 1980. Ágúst starfaði við rann- sóknir í Bandaríkjunum áður en hann hóf störf hjá Raunvísindastofnun HÍ. Hann hefur frá árinu 1991 verið pró- fessor við Háskóla Íslands. Sambýlis- kona Ágústs er Ólöf Þorsteinsdóttir skrifstofustjóri en hann á tvær dætur og barnabarn af fyrra hjónabandi. Tónlist Borgarleikhúsið | Útgáfutónleikar Ljótu hálf- vitanna verða haldnir í Borgarleikhúsinu kl. 21. Miðasala á borgarleikhus.is og midi.is. Gaukur á Stöng | Sniglabandið kl. 22. Hallgrímskirkja | Harri Viitanen, dómorganisti Helsinki, leikur á hádegistónleikum kl. 12 tón- list eftir Johann Sebastian Bach, Pál Ísólfsson, Théodore Dubois og hann sjálfan. Myndlist Deiglan | Opnun málverkasýningar Jóhönnu Friðfinnsdóttur í Deiglunni kl. 14. Sýningin stendur til 8. júlí. Uppákomur Austurvöllur | Amnesty International efnir til uppákomu á Austurvelli 30. júní kl. 13 til að vekja athygli á pyntingum sem hafa verið end- urskilgreindar sem yfirheyrsluaðferðir og eru því löglegar í ýmsum löndum. Áhorfendur geta fylgst með aðförunum, sett sig í spor fórn- arlambanna og gripið til aðgerða. SPEGILMYND indversks karlmanns sem bíður eftir rakstri á rakarastofu í Nýju Delí í dag. Nýja Delí er í norðurhluta Indlands og hefur verið höfuðborg landsins frá því árið 1911 en áður var Kalkútta höfuðborg landsins. Í Nýju Delí sjálfri búa aðeins um 300 þúsund manns en hún er hins vegar hluti af borgarflæminu Delí sem telur um 14 milljónir íbúa. Beðið eftir rakaranum Reuters FRÉTTIR EINAR Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sótti sumarfund matvælaráðherra Norðurlanda sem haldinn var í Björneborg (Pori) í Finnlandi. Á fundinum var m.a. rætt um alvarlegt ástand þorskstofnsins í Eystrasalti og þá fóru einnig fram almennar umræður um fiskveiði- stjórnun, kosti hennar og galla. Sérstaklega var rætt um brottkast og þá ógn sem lífríki Eystrasalts stafar af mengun sjávar, segir í frétt um fundinn. Ráðherrarnir urðu sammála um að Norðurlöndin skuli beita sér öt- ullega í að bæta heilsu og lífsgæði íbúa þeirra með sérstakri áherslu á betra mataræði barna áður en í verulegt óefni verði komið. Bæði þurfi að stuðla að heilbrigðara lífernir með hollara mataræði og aukinni hreyfingu. Rætt var um þróun byggðar, landbúnaðar og skógræktar. Tals- verðar umræður urðu um byggðamál og þann vanda sem víða er uppi í sjávarútvegs- og landbúnaðarbyggðum Norðurlandanna. Hvernig unnt er að bregðast við t.d. með nýsköpun í atvinnulífi og hvert hlut- verk stjórnvalda er á því sviði. Einar Kristinn fagnaði því starfi sem að þessu lýtur og fram hefur farið frá sumarfundinum á Akureyri 2004, sérstaklega með hliðsjón af yfirlýsingunni sem þar var samþykkt. Fjallað var um vel heppnaða samvinnu Norðurlandanna um varð- veislu erfðaauðlinda og samþykkt ný áætlun um heildarsamstarf á þessu sviði frá og með næstu áramótum. Á vef Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar, norden- .org, má finna samþykktir og ályktanir sem gerðar voru á fundinum í Björneborg. Næsti sumarfundur matvælaráðherra Norðurlandanna verður haldinn í Svíþjóð að ári, segir í fréttatilkynningu. Fundað Einar Kristinn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra með Sirkka-Liisa Anttila landbúnaðarráðherra Finnlands. Sumarfundur matvæla- ráðherra Norðurlanda NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK Íslands telja að frummatsskýrsla Norðuráls um álver í Helguvík standist ekki þær kröfur sem gerðar eru til framkvæmdaraðila samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrif- um framkvæmda. Náttúruverndarsamtök Íslands benda einkum á tvennt: 1) Meta verður tengdar framkvæmdir (orkuver og raflínulagnir) sameiginlega með álverinu. Að öðrum kosti fæst ekki heildarmynd af umhverfisáhrifum þess og framkvæmda sem óhjákvæmilega tengjast. Ekki liggur enn fyrir mat á sumum þeirra framkvæmda. 2) Umfjöllun Norðuráls um útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá ál- verinu er ófullnægjandi og á köflum villandi. Gera verður kröfu um betri og nákvæmari upplýsingar um hvort framkvæmdin standist lagalegar skuldbindingar Íslands samkvæmt Kyoto-bókuninni. Enn fremur verður að vera ljóst að bygging álversins standist þær pólitísku skuldbindingar sem Ísland hefur gengist undir. Sjá nánar: www.natturuverndarsamtok.is Athugasemdir við frummatsskýrslu VEITINGASTAÐURINN Bistro Atlantic var opnaður þann 15. júní á nýjum stað á brottfararsvæði flugstöðvarinnar. Í fréttatilkynningu segir að fjölbreytt úrval veitinga tryggi að allir farþegar finni eitthvað við sitt hæfi og að á Bistro Atlantic sé áhersla lögð á fljóta og góða þjónustu. Einnig hefur verið opnaður nýr bar í flugstöðinni sem ber heitið Panorama Bar. Barinn er staðsettur á brottfararsvæði flugstöðv- arinnar. Gott útsýni er af barnum yfir flugbrautirnar. Nýr veitingastaður og bar í Leifsstöð RAFTÆKJAVERSLUNIN Glóey ehf. í Ármúla 19 flutti nýlega í nýtt pláss í húsinu og hefur verið opnuð aftur formlega eftir að hafa fengið nýtt útlit. Í fréttatilkynningu segir að boðið sé upp á sama úrvalið af per- um, lömpum, raftækjum og rafmagnsvörum. Verslunin er búin að vera í eigu sömu fjölskyldunnar í 20 ár eða síðan 1987. Hún var stofnuð árið 1973 og var kominn tími á útlits- breytingu. Af þessu tilefni verður 20% afsláttur af öllum lömpum í verslun- inni allan júlímánuð. Glóey flyst til og fær nýtt útlit UMFERÐARSTOFA hefur hrundið af stað nýrri auglýsingaherferð sem heitir „Hraðinn drepur – í alvörunni“. Sjónvarpsauglýsingin er að stærstum hluta teiknuð hreyfimynd sem telst nýbreytni við gerð auglýsingaherferða Umferðarstofu, segir í fréttatilkynningu. Einn- ig voru gerðar blaða- og útvarpsauglýsingar. Herferðinni er ætlað að vekja ökumenn til umhugsunar um ábyrgð sína í umferðinni þannig að þeir geri sér grein fyrir því að í raunveruleikanum er ekki hægt að hverfa frá misgjörðum sínum með því að ýta á „enter“ eða velja „ replay“ til að byrja leikinn aftur, fullfrískur og fjörugur. Í umferðinni deyr fólk og slasast í alvörunni. Auglýsingin er unnin eftir hugmyndum Hvíta hússins og gerð teiknimyndarinnar var í höndum „I love Dust“-fyrirtækisins í Bret- landi. Teiknuð hreyfimynd í nýrri auglýs- ingaherferð á vegum Umferðarstofu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.