Morgunblaðið - 30.06.2007, Page 46

Morgunblaðið - 30.06.2007, Page 46
Við vorum báðir búnir undir heims- endi en þegar hann lét ekki á sér kræla hertum við á drykkjunni … 49 » reykjavíkreykjavík Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is TÍMARITIÐ Sagan, sögurit um helstu atburði veraldarsögunnar, kom út í fyrsta sinn í vik- unni. Tímaritið er, eins og nafnið gefur til kynna, helgað alþýðlegri sagnfræði, en útgef- endur þess eru sömu aðilar og standa að Lifandi vísindum. Heldur meira er lagt í þetta fyrsta hefti af Sögunni en gengur og gerist með tímarit, í það minnsta hér á landi, og aðstandendur útgáf- unnar, Hilmar Sigurðsson ritstjóri og Axel Jón Birgisson framkvæmdastjóri, segja að eins verði með önnur hefti ritsins, það sé þeirra metnaður að það verði veglegra en tímarit, enda kalla þeir það sögurit og benda á að ekki sé bara að meira sé lagt í frágang heldur sé það líka efnismeira, „tvö og hálft tímarit“ segja þeir. Ritið er gefið út í samvinnu við sænska fyr- irtækið Bonnier, sem þeir félagar segja gera kleift að hafa það svo efnismikið sem raun beri vitni. „Bonnier er með á sínum snærum fjölda af færum sagn- og fornleifafræðingum og við höfum því aðgang að meira og betra efni en hægt væri ef við ætluðum að safna öllu efni sjálfir,“ segja þeir, en þeir velja efnið í hvert blað. Í þessu fyrsta hefti af Sögunni er efni úr ýms- um áttum, sagt frá Júlíusi Sesar, heimsins stærstu stíflu, musterisriddurunum, valdabrölti ráðgjafa faraós í Egyptalandi, sjóræningjum og svo má telja. Þeir félagar segja að reynt verði að fara sem víðast í sögunni til að tryggja að blaðið verði sem fjölbreyttast og til standi að hafa íslenskt efni í því eftir því sem verkast vill. „Við ræddum það sérstaklega við Bonnier að taka fyrir íslenska sögu og því var vel tekið. Þannig verður grein um víkingana í ritinu fyrir jól og svo er í bígerð grein um vesturfarana.“ Ekki er bara að mikið er lagt í útlit og frá- gang á Sögunni en gengur og gerist, heldur er verð tímaritsins heldur hærra; 2.990 kr. kostar þetta fyrsta eintak. Hilmar segir það verð þó ekki vera hátt miðað við gæði ritsins. „Það er svo mál sem brydda má upp á að tímarit á Ís- landi eru almennt of ódýr og það kemur niður á gæðunum eins og sjá má á þeim mörgum. Ég spái því að tímarit eigi eftir að hækka almennt fljótlega, enda er markaðurinn lítill og menn geta ekki gefið út almennilegt tímarit nema kosta einhverju til,“ segir hann, en bendir svo á að áskrifendur muni fá blaðið mun lægra verði. Sagan kemur næst út í ágúst næstkomandi, en að sögn þeirra Hilmars og Axels verður ritið gefið út tíu sinnum á ári. Þeir óttast ekki við- tökurnar, áhugi almennings á sagnfræði hafi aukist gríðarlega undanfarin ár, meðal annars í kjölfar Da Vinci lykils Dans Browns, og þeir séu bara að svara eftispurn. Alþýðlegt sögurit Morgunblaðið/Ásdís Sögurit Axel Jón Birgisson framkvæmdastjóri og Hilmar Sigurðsson, ritstjóri Sögunnar. Svar við auknum áhuga almennings á sagnfræði að sögn útgefanda sem þeir voru að losa. Nöfn mann- anna hafa enn ekki verið gefin upp en vitað er að rúmlega helm- ingur starfsmannanna sem unnu við sviðsmyndina var enskumæl- andi og í fastri vinnu hjá Rolling Stones. Tónleikarnir í Madríd eru hluti af tónleikaferðalagi sveitarinnar sem hófst árið 2005 þegar Stones gáfu út plötuna A Bigger Bang. Síðan hefur sveitin leikið á rúm- lega 50 tónleikum víðsvegar um heiminn og er sem komið er tekju- hæsta tónleikaferð hljómsveitar. Í nóvember 2006 hafði túrinn skilað um 437 milljónum dala í kassann. TVEIR starfsmenn sem unnu að því að taka sundur sviðsmynd hljómsveitarinnar Rolling Stones í Madríd létust er stór hluti úr sviðsmyndinni féll og dró þá með sér. Fallið var 10 metra hátt. Dag- blaðið El Pais skýrði frá því í gær að tveir aðrir starfsmenn hefðu einnig slasast alvarlega. Tónleikar Rolling Stones voru haldnir á Vincente Calderon- fótboltaleikvanginum í Madríd í fyrrakvöld. Að sögn El Pais voru mennirnir tveir sem létust og einn hinna slös- uðu í sigbeltum og öryggislínum er þeir fóru niður með stálbita Tveir starfsmenn Stones láta lífið Reuters Stones Jagger og Richards á tón- leikunum í Madríd á fimmtudag. Reuters Stórvirki Sviðsmynd tónleikaferðar Rolling Stones er engin smásmíði eins og sést af þessari mynd frá því á fimmtudag.  Bjarkartúrinn er nú kominn á fulla ferð um Evrópu en hann hófst með Glastonbury-hátíðinni um síð- ustu helgi. Á Bjarkarblogginu má lesa um það að hópurinn hafi komið við í hljóðveri í London og tekið upp tvö lög. Um var að ræða tón- leikaútgáfur af lögunum „Juvenile“ og „Vertebrae By Vertebrae“ sem ætluð eru til útvarpsspilunar. Björk tekur upp tvö lög í hljóðveri í London  Töluverða umræðu má nú finna í netheimum um framtíð fréttastofu Stöðvar 2. Pétur Gunnarsson á Eyj- unni veltir því fyrir sér hvort lítil viðskipti með hlutabréf 365 að und- anförnu og lækkun á þeim um nokkur prósent gefi vísbendingar um að fyrir liggi ákvörðun um að leggja fréttastofuna niður, eða draga enn úr útgjöldum við rekstur hennar. Öllu langsóttari röksemda- færslu má hins vegar finna á vef Mannlífs en þar segir að frétta- menn séu svo hugsi yfir framtíð stofunnar að Sölvi Tryggvason, einn fréttamanna Stöðvar 2, hafi í þungum þönkum keyrt aftan á bíl í Borgartúni. Það var og! Langsóttar mannlífs- kenningar í netheimum  Ný plata er væntanleg frá indí- rokksveitinni Lödu Sport um næstu helgi. Time and Time Again nefnist sú plata og er fyrsta breiðskífa sveitarinnar. Önnur smáskífa plöt- unnar, „The World is a Place For Kids“, situr nú í 3. sæti Coke Zero- lista útvarpsstöðvarinnar Reykja- vík FM og ef fer sem horfir liggur leiðin inn á íslenska lagalistann. Ný plata væntanleg frá Lödu Sport

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.