Morgunblaðið - 29.07.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 205. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SUNNUDAGUR
GENGIÐ UM
PERLURNAR
LANGISJÓR OG
ÞJÓRSÁRVER
FERÐAHELGI FRAMUNDAN >> 30
ERIC
STEEL
AFSKIPTALEYSIÐ
ERFIÐAST
BRÚIN >> 56
AFRÍSKAR
SÖGUR
VELKOMIN TIL
NOLLYWOOD
ÓLÍKT HOLLYWOOD >> 20
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
UPPBYGGING olíuhagkerfisins hafði mikil
áhrif víða um heim á síðustu öld og engin til-
viljun að hugtakið „svarta gullið“ varð til í um-
ræðum um hina miklu verslunarvöru sem olían
hefur verið.
Líkt og ferskvatnið er olían takmörkuð auð-
lind og í ljósi þeirrar spár Sameinuðu þjóðanna
að árið 2025 muni þrír milljarðar manna búa á
svæðum þar sem vatnsframboðið er ótryggt má
færa rök fyrir því að eitt helsta verkefni mann-
kyns á þessari öld verði að tryggja öllum jarð-
arbúum nægan aðgang að hreinu vatni. Gæti
það gríðarlega verkefni orðið jafnmikið að um-
fangi og uppsetning innviða olíuhagkerfisins á
20. öld.
Hundraðfalt meira magn hér en í Afríku
Íslendingar eru einkar vel settir hvað varðar
aðgang að „bláa gullinu“ enda er ferskvatns-
auðlind þjóðarinnar um 670.000 rúmmetrar á
mann á ári, eða yfir hundraðfalt meiri en
margra Afríkuríkja.
Vatnsskortur er svæðisbundinn vandi sem á
sér flóknar og margþættar orsakir. Víða verður
hægt að vinna gegn honum með háþróaðri
vatnshreinsun, tækni sem fjárfestar kunna að
sýna aukinn áhuga á næstu áratugum. Slík
hreinsun er enn sem komið er fremur dýr og er
ljóst að hún verður ekki á færi allra sem hennar
þurfa nema til komi stórkostleg uppbygging í
hinum ört vaxandi stórborgum þróunarríkjanna.
Fjallað er um ýmsar hliðar vandans í Morg-
unblaðinu í dag og hann settur í samhengi við
getgátur um að baráttan um yfirráð yfir vatns-
lindum verði einhver helsta ástæða átaka á öld-
inni sem nú er að hefjast. | 10
Öld bláa gullsins runnin upp
Innan tveggja áratuga er áætlað að þrír milljarðar jarðarbúa muni búa við ótryggt vatnsframboð
Baráttan um yfirráð yfir vatnslindum kann að verða helsta ástæða átaka á þessari öld
Takmörkuð auðlind
VEFVARP mbl.is
Gagnrýnt hefur verið að Íslend-
ingar taki ekki á móti flóttamönn-
um frá þeim svæðum í Mið-
Austurlöndum þar sem neyðar-
ástand ríkir.
Íslenskar reglur
um flóttamenn
Verði Boris Johnson útnefndur
frambjóðandi Íhaldsflokksins í
borgarstjórakosningunum í Lond-
on er næsta víst að baráttan verður
hörð og áhugaverð.
Orðheppinn
sérvitringur
Enn í dag, fimmtíu og fimm árum
eftir andlát Evu Perón, skiptast
Argentínubúar í tvær fylkingar; þá
sem elska hana og þá sem fyrirlíta
hana.
Ennþá grætur
Argentína
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í fyrradag tillögu Krist-
jáns L. Möller samgönguráðherra
þess efnis að framkvæmdum við Ak-
ureyrarflugvöll skuli flýtt um eitt ár
og verði þeim lokið haustið 2008.
Kristján sagði í samtali við Morg-
unblaðið að framkvæmdirnar fælust
í því að flugbrautin yrði lengd um
500 metra og öll brautin malbikuð að
nýju. Þá verði útbúin öryggissvæði
við enda flugbrautarinnar og ný að-
flugstæki af bestu gerð keypt.
„Þetta er brýnt hagsmunamál fyr-
ir Norðlendinga og augljóst hagræði
er í því að klára allar framkvæmdir á
næsta ári,“ sagði Kristján. „Þetta
stóreykur nýtingu flugvallarins og
er til mikilla bóta fyrir ferðaþjón-
ustuna á Akureyri og reyndar Norð-
urlandi öllu. Þetta kemur einnig fisk-
útflutningi með flugi til góða. Þetta
er viðbót við þær mótvægisaðgerðir
sem áður hafa verið kynntar vegna
niðurskurðar á þorskveiðiheimild-
um.“
Styrkja atvinnulífið
Kristján segir að þessar fram-
kvæmdir séu liður í þeim áformum
stjórnvalda að skjóta styrkari stoð-
um undir þróun atvinnulífs á lands-
byggðinni. Hann bendir á að at-
vinnusvæðið við Eyjafjörð stækki
mjög þegar Héðinsfjarðargöngin
verða tekin í notkun árið 2009. Þá líði
væntanlega ekki mörg ár þar til
Vaðlaheiðargöngin verði orðin að
veruleika og þá verði svæðið á milli
Húsavíkur og Siglufjarðar ein sam-
tengd þjónustuheild. Menn hljóti því
að gera meiri kröfur til þeirrar þjón-
ustu sem hægt er að veita um Ak-
ureyrarflugvöll en hlutverk hans í
frekari þróun þessa landsvæðis sé
afar mikilvægt.
Gagnrýni byggð
á misskilningi
Samgönguráðherra segir að sú
gagnrýni sem hefur komið fram á
mótvægisaðgerðinar sé byggð á mis-
skilningi. „Þessum samgöngubótum
er fyrst og fremst ætlað að styrkja
innviði sveitarfélaganna. Við vitum
mætavel að það fá ekki allir, sem
missa vinnuna við veiðar eða vinnslu
sjávarafurða, störf við vegagerð,
enda var það alls ekki ætlunin. Þess-
ar aðgerðir, sem verður hrint í fram-
kvæmd á næstu tveimur árum, hefðu
þurft að vera komnar til skjalanna
fyrir 30-40 árum. Þá væri ástandið
ekki jafnslæmt og raun bæri vitni.
Það verður betra að búa á þeim
svæðum á landinu þar sem sam-
göngubæturnar koma. Þar aukum
við öryggi vegfarenda, sameinum at-
vinnusvæði og tryggjum aðgang að
allri lykilþjónustu.“
Ný tækifæri til sóknar
Kristján segir að þrátt fyrir að
ákvörðun um niðurskurð aflaheim-
ilda hafi verið erfið sé ekki hægt að
mæla á móti því að hún gefi mönnum
ástæðu til þess að ráðast til atlögu
gegn því ástandi sem ríkir á lands-
byggðinni. Hann telur einnig að bætt
GSM-samband og háhraðatenging-
ar, sem boðaðar hafa verið, muni
mjög styrkja stöðu ferðaþjónustunn-
ar og ýta undir hvers kyns fjar-
vinnslu.
Ráðherra kvaðst álíta heppilegt að
Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í
Vatnsmýrinni enda mæltu ýmis rök
með því.
Þá taldi hann líklegt að stofnað
yrði opinbert hlutafélag um Kefla-
víkurflugvöll þegar málefni hans
flytjast undir samgönguráðuneytið
um næstu áramót.| 22
Samgönguráðherra telur greiðar samgöngur lykil að nýsköpun atvinnuveganna
Morgunblaðið/G.Rúnar
Kristján L. Möller „Við megum ekki leggja árar í bát heldur leita nýrra
tækifæra. Þau felast í bættum samgöngum og nýrri tækni um allt land.“
Framkvæmd-
um verði flýtt
um eitt ár
Flugvöllurinn á Akureyri endur-
nýjaður og lengdur um 500 metra
Eftir Arnþór Helgason
arnthorh@mbl.is
VIKUSPEGILL