Morgunblaðið - 29.07.2007, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 29.07.2007, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á NANCY DREW FORSÝND kl. 8 B.i.7.ára GEORGIA RULE kl. 3 - 5:30 - 8 -10:30 B.i.7.ára HARRY POTTER 5 kl. 1 - 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 B.i.10.ára HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 B.i.10.ára DIGITAL HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 LÚXUS VIP EVAN ALMIGHTY kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ BLIND DATING kl. 8 B.i.10.ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 1 - 2 - 4 - 6 LEYFÐ SHREK 3 m/ensku tali kl. 10:30 LEYFÐ OCEAN'S 13 kl.10:10 B.i.7.ára / ÁLFABAKKA GEORGIA RULE kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára HARRY POTTER 5 kl. 2:30 - 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 10 ára DIGITAL SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 10 B.i. 10 ára WWW.SAMBIO.IS Evan hjálpi okkur eee L.I.B. TOPP5.IS eee S.V. MBL. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Frá leikstjóra „Pretty Woman“ og „Princess Diaries“ Setningin sem prýðir fyrirsögnina er oftnotuð af aðdáendum útbrunninna eldrilistamanna til að breiða yfir þá stað-reynd að þeir hafa aldrei verið verri. Það er magnað hvað fortíðarþráin getur verið sterk, hún getur gert menn bæði blinda og heyrnarlausa auk þess sem hún á það til að kasta dómgreind og smekkvísi harkalega til hliðanna. Eftir að hafa lesið nokkra dóma um nýjustu plötu Suzanne Vega, Beauty & Crime, poppaði þessi blessaða setning upp í hausnum, en þá í sinni raunverulegu merkingu. Gagnrýnandi eft- ir gagnrýnanda staðhæfir nefnilega að … já … Suzanne Vega, sem er ábyggilega þekktust fyr- ir hina harmrænu ádeilu „Luka“, sé raunveru- lega að skila inn sinni bestu plötu þetta árið, tuttugu og tveimur árum eftir að fyrst kvað að henni. Vírað Beauty & Crime kom út um miðjan þennan mánuð í heimalandi Vega, Bandaríkjunum, en annars staðar kom hún út í byrjun júní. Hinn lærði Thom Jurek hjá Allmusic.com vefsíðunni, en dómalengd hans þarf oftast að mæla í metr- um, segir að Beauty & Crime sé toppurinn á ferli Vega fram til þessa og Billboard lýsir því að í þær 34 mínútur sem platan endist fari ekki nóta til spillis og platan sé því líkast til besta hljóðversplata Vega til þessa. Í sama streng taka New York Times og Rolling Stone. Beauty & Crime er fyrsta plata Suzanne Vega síðan Songs in Red & Gray kom út árið 2001 og hennar fyrsta fyrir hina virtu djass- útgáfu Blue Note. Vega notar heimaborg sína, New York, sem sögusvið og lögin ellefu eru einslags smásögur. Persónuleg plata þar sem umfjöllunarefnin eru til að mynda samræður við gamla vini, endurminningar frá æskustöðvum, minningar um látinn bróður, áfengissýki og óhjákvæmilegt uppgjör við stríðsreksturinn í Írak og 11. september. Forsaga plötunnar er sú að fyrrum útgáfu- fyrirtæki hennar, risinn A&M, lét Vega róa eftir tvær plötur sem þóttu vera flopp, Nine Objects of Desire (1996) og áðurnefnd Songs in Red & Gray. A&M hafði verið útgefandi söngkonunnar frá upphafi og þeirra síðasta verk var að gefa út safnplötuna Retrospective: The Best of Suz- anne Vega árið 2003. Eftir það útspil lagðist Vega í umfangsmikið tónleikaferðalag og sum lögin sem prýða plöt- una nýju voru fyrst viðruð á því. Platan var svo tekin upp síðasta haust og dóttir Vega, Ruby Froom, gestasyngur í nokkrum laganna og einnig kemur söngkonan KT Tunshall við sögu. Þá er athyglisvert að Lee Ranaldo, gítarleikari Sonic Youth, á einnig þátt í plötunni, en hann er New York búi líkt og Vega. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem Vega, sem flestir álíta kannski viðkvæmnislegan söngfugl, nuddar sér upp við víraðri tónlistarmenn. Hún lék til dæmis með utangarðsdjassaranum Bill Frisell árið 2003 og hefur einnig unnið með John Cale. Áhrif Þetta allt var fremur illfyrirsjáanlegt þegar hún steig fyrst fram árið 1985 með laginu „Mar- lene on the Wall“. Melódískt, þjóðlagaskotið popprokk sem var óðar sett á bás með hinu svo- kallaða gáfumannapoppi enda voru textar Vega vel yfir meðallagi, skáldgáfa hennar kallaði fram sjálfan Cohen er best lét. Nefnt lag varð reyndar nokkuð vinsælt og fyrstu plötu hennar, samnefndri henni, var vel tekið af kaupendum sem gagnrýnendum, náði meira að segja plat- ínusölu í Bretlandi. Næsta plata á eftir, Solitude Standing (1987), varð hins vegar enn vinsælli, þökk sé lögunum „Luka“ og „Tom’s Diner“ en hið fyrrnefnda varð að bona fide útvarpssmelli. Frægðarsól Vega hafði hnigið nokkuð þegar Days of Open Hand (1990) kom út og ekki hjálp- aði til, vinsældalega a.m.k., að Vega steig vísvit- andi út úr þekkilega kassagítarramannum og leyfði sér meiri tilraunamennsku en áður. Hún fór enn lengra með þær pælingar á 99,9 F° (1992) þar sem hún duflaði við teknó og „ind- ustrial“ tónlist og Nine Objects of Desire bjó yf- ir svipuðum blæ, öllu aðgengilegri þó. Hún fór hins vegar aftur inn á „eðlilegri“ mið á Songs in Red & Gray en sú plata fékk glimr- andi dóma þótt hún hafi ekki farið hátt. Suzanne Vega reyndist einkar áhrifarík er hún kom fram á sínum tíma. Vinsældir fyrstu plötu hennar hrundu af stað bylgju af svipað þenkjandi listamönnum eins og Michelle Shocked, Tracy Chapman, Indigo Girls og jafnvel má nefna Tanitu Tikaram í þessu samhengi. Ómögulegt er að spá um hversu áhrifarík þessi nýjasta plata mun reyn- ast en ef eitthvað er að marka hina háu gagn- rýnendur (þann vinsæla starfshóp) þá eru sumir aldrei betri en þegar ævikvöldið fer að nálgast (eitthvað sem Johnny Cash gæti að minnsta kosti vitnað til um væri hann enn á meðal vor). Aldrei verið betri … Smásögur Vega notar heimaborg sína, New York, sem sögusvið og lögin ellefu eru einslags smásögur. Meðal umfjöllunarefna er óhjákvæmilegt uppgjör við 11. september. TÓNLIST Á SUNNUDEGI Arnar Eggert Thoroddsen » Billboard lýsir því að í þær34 mínútur sem platan end- ist fari ekki nóta til spillis og platan sé því líkast til besta hljóðversplata Vega til þessa. arnart@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.