Morgunblaðið - 29.07.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.07.2007, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Oddnýju Helgadóttur oddnyh@mbl.is Gagnrýnt hefur verið að Ís-lendingar taki ekki á mótiflóttamönnum frá þeimsvæðum í Mið-Austur- löndum þar sem neyðarástand ríkir, m.a. vegna stríðsreksturs sem Ís- land studdi. Eftir ferð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra um Mið-Austurlönd virðist hugsanlegt að þessu verði breytt og farið verði að taka á móti flóttafólki frá Írak. Í viðtali við hana í Kastljósinu kom fram að hún hefur talað við framkvæmdastjóra Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna og fulltrúa Flóttamannastofnunar í Jórdaníu um möguleika þess að Ís- lendingar taki á móti íröskum flótta- mönnum frá Jórdaníu eða Sýrlandi. Hún sagði að Ísland, eins og allt al- þjóðasamfélagið, bæri ábyrgð gagn- vart þeim milljónum flóttamanna sem hafa af ýmsum ástæðum þurft að yfirgefa heimaland sitt. Að henn- ar mati bæri Ísland þó sérstaka sið- ferðilega ábyrgð gagnvart Írökum vegna stuðnings þjóðarinnar við stríðið í Írak. Því kæmi vel til greina að Íslendingar reyndu að leysa mál einstakra flóttamanna frá Írak, þótt ómögulegt væri að taka á móti stórum hópum. En hver er staða flóttamanna í heiminum og hvernig hefur verið tekið á móti flóttafólki á Íslandi hingað til? Hvað er flóttamaður? Sá sem hefur yfirgefið heimaland sitt og á ekki afturkvæmt af ótta við ofsóknir vegna kynþáttar, trúar- bragða, þjóðernis, stjórnmálaskoð- ana eða annars er, samkvæmt skil- greiningu Sameinuðu þjóðanna, flóttamaður. Fái flóttamaður hæli og viður- kenningu á stöðu sinni sem flótta- maður á hann rétt á vissum mót- tökum í griðlandi sínu. Á Íslandi fá flóttamenn m.a. dvalarleyfi til þriggja ára, fjárhagsaðstoð, tungu- málakennslu og heilsugæslu. Þá ber að veita þeim aðstoð við að verða sér úti um húsnæði, vinnu og menntun. Þegar einstaklingur sækir um hæli í einhverju landi er hann skil- greindur sem hælisleitandi á meðan stjórnvöld athuga hvort hann teljist flóttamaður. Sé komist að þeirri nið- urstöðu að hælisleitandi sé ekki flóttamaður geta yfirvöld annað- hvort sent hann úr landi eða veitt honum dvalarleyfi af mannúðar- ástæðum eða öðrum ástæðum. Þannig getur fólk fengið dvalarleyfi án þess að vera viðurkennt flótta- fólk. Munurinn er fyrst og fremst sá að flóttafólk hefur ýmis réttindi um- fram þá sem fá dvalarleyfi af mann- úðarástæðum. Flótti vegna Íraksstríðs Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki bara umsjón með málefnum flóttamanna, heldur einnig hælisleitenda, fólks sem hef- ur hrakist á milli svæði í heimalandi sínu, fólks án ríkisfangs og þeirra sem hafa snúið aftur til síns heima eftir að hafa verið á flótta. Í skýrslu Flóttamannastofnunar- innar um þróun mála árið 2006 kem- ur fram að í fyrra fjölgaði þeim sem þurftu aðstoð stofnunarinnar í fyrsta sinn í nokkur ár. Aukningin var talsvert mikil, eða um 56%. Árið 2005 hafði stofnunin umsjón með 21 milljón manna, en árið 2006 með 32,9 milljónum. Ein meginástæða þessarar aukn- ingar er Íraksstríðið. Fjöldi íraskra flóttamanna fimmfaldaðist á árinu. Um 1,2 milljónir manna flúðu þaðan til nágrannalandanna og nærri 700.000 manns hröktust á milli svæða innanlands. Flestir flótta- menn leituðu sér hælis í Pakistan, Íran, Bandaríkjunum, Sýrlandi, Þýskalandi og Jórdaníu á árinu. Þótt mest aukning hafi orðið á flóttamönnum frá Írak eru flótta- menn frá Afganistan á heildina litið flestir. Við árslok 2006 höfðu 2,1 milljónir manna flúið þaðan og leitað sér hælis í 71 landi. Tæplega 200.000 manns voru við- urkenndir flóttamenn á síðasta ári. Af þeim fóru 33.200 til Evrópu. Tæplega 38.000 til viðbótar fengu dvalarleyfi í Evrópu en voru ekki viðurkenndir flóttamenn. Um þriðj- ungi færri voru viðurkenndir flótta- menn í Evrópu árið 2005 en árið 2006. Flóttamannastofnunin rekur það helst til hertra reglna um flótta- fólk. Flóttafólk á Íslandi Hópar flóttafólks, svokallaðir kvótahópar, hafa komið til Íslands með reglulegu millibili frá árinu 1996, en fram að því höfðu hópar fólks komið hingað af og til frá árinu 1956. Á milli 1996 og 2000 kom hóp- ur á hverju ári en annað hvert ár eft- ir það. Í vor var ákveðið að fara aft- ur að taka á móti fólki á hverju ári. Auk kvótahópa geta einstaklingar leitað sér hælis á Íslandi. Það sem af er ári hafa 39 einstaklingar leitað hælis hér. Á árabilinu 1956 til 2005 fengu 451 hælisleitendur dvalarleyfi á Íslandi og voru 291 þeirra enn hér á landi árið 2005. Síðastliðin 15 ár hefur þó aðeins einn hælisleitandi fengið við- urkenningu sem flóttamaður, en aðrir dvalarleyfi af mannúðarástæð- um. Þetta samsvarar því að minna en 0,5% hælisleitenda séu viður- kenndir flóttamenn. Á heimasíðu Mannréttindaskrifstofu Íslands kemur fram að þetta hlutfall er margfalt lægra en í nágrannalönd- um okkar. Árið 2004 sóttu t.d. tæp- lega 3.000 manns um hæli í Dan- mörku, og fengu um 1.100 það. Flestir sem fengið hafa hæli hér á landi eru frá Evrópulöndum, enda flestir kvótahóparnir frá ríkjum sem áður tilheyrðu Júgóslavíu. Í ár verð- ur svo tekið á móti 30 manna hópi, konum og börnum, frá Kólumbíu. Stofnanir og reglur Dómsmálaráðuneytið og Útlend- ingastofnun, sem er undirstofnun ráðuneytisins, fara yfir umsóknir hælisleitenda á Íslandi og meta hvort hælisleitandi teljist flóttamað- ur eða ekki. Félagsmálaráðuneytið sinnir þessum málaflokki þó einnig í nokkrum mæli. Félagsmálaráðherra skipar flóttamannanefnd sem er rík- isstjórninni til ráðgjafar um kvóta- hópa flóttamanna. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar dómsmálaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis, utanríkis- ráðuneytis og Rauða krossins. Undanfarin ár hefur utanríkis- ráðuneytið í vaxandi mæli látið mál kvótaflóttamanna til sín taka. Nú orðið greiðir það kostnað vegna flóttamannaverkefna. Nokkrir alþjóðasamningar gilda um flóttamenn. Þeirra helstir eru flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna frá 1951 og viðauki sem gerður var við hann 1967. Ísland er aðili að báðum þessum samningum. Árið 2003 tók svokölluð Dyflinar- reglugerð gildi á Íslandi. Reglugerð- inni er ætlað að koma í veg fyrir að flóttafólk sæki um hæli í mörgum löndum. Í henni er kveðið á um að fyrsta umsókn um hæli gildi. Aðrar umsóknir, sem síðar eru lagðar fram, teljast því ógildar. Atli Viðar Thorstensen, verkefn- isstjóri í málefnum flóttamann og hælisleitenda hjá Rauða krossi Ís- lands, segir Dyflinar-reglugerðina gefa íslenskum stjórnvöldum kost á að senda hælisleitendur aftur til landa þar sem þeir höfðu áður lagt fram umsókn, án þess að taka hæl- isumsókn þeirra hér á landi til efnis- legrar meðferðar. Þetta dregur tals- vert úr straumi flóttamanna hingað. Leið flóttamanna liggur sjaldnast beint til Íslands frá heimalandinu enda ekki beint flug hingað frá mörgum hættusvæðum. Um 30-40% hælisleitenda á Íslandi eru því send- ir burt á grundvelli reglugerðarinn- ar. Hælisleitendur Hælisumsókn einstaklinga er oft- ast lögð fram hjá lögregluembætti. Umsækjandi þarf að gera grein fyr- ir ferðalagi sínu til landsins og ástæðu þess að hann leitar hælis. Hælisleitandi þarf að sanna að hann sé flóttamaður. Það getur reynst erfitt því framburður hans er það eina sem við er að styðjast. Bannað er að hafa samband við yfirvöld í heimalandi hælisleitanda til að ganga úr skugga um að vitnisburður hans eigi við rök að styðjast því það getur stefnt fjölskyldu hans og vin- um í voða. Ef hælisleitandi hefur ekki sótt um hæli í öðru aðildarríki Dyflinar- reglugerðarinnar og Útlendinga- stofnun telur umsókn hans vel rök- studda er hún tekin til meðferðar. Umsækjandi er þá kallaður í við- tal hjá Útlendingastofnun til að gera betur grein fyrir því hvers vegna hann varð landflótta. Á grundvelli þeirra upplýsinga ákveður Útlend- ingastofnun næsta skref. Hópar flóttamanna Áður en ákveðið er hvaðan kvóta- hópar koma veitir Flóttamanna- stofnun Sameinuðu þjóðanna flótta- mannanefnd upplýsingar um hvar neyðin sé stærst í heiminum og hvaðan flóttamannahópar gætu komið til Íslands. Yfirleitt hefur flóttamannanefnd úr nokkrum kost- um að velja í þeim efnum, en helst er mælt með einum hverju sinni. Flóttamannanefnd hefur hingað til alltaf farið að tillögu Flóttamanna- stofnunarinnar. Flóttamenn sem koma til Íslands taka þátt í tólf mánaða aðlögunar- verkefni. Ríki, sveitarfélag og Rauði krossinn sjá sameiginlega um verk- efni til að gera flóttamönnum kleift að laga sig að íslenskum aðstæðum. Flóttafólk fær húsnæði sem það greiðir leigu af og framan af fær það fjárhagsaðstoð. Rauði krossinn út- vegar húsgögn og annað nauðsyn- legt innbú sem sjálfboðaliðar hjálpa til við að koma fyrir. Sjálfboðaliðar Rauða krossins aðstoða fólkið svo við að fóta sig í íslensku samfélagi og kynnast siðum og hefðum hér. Þessir sjálfboðaliðar eru kallaðir stuðningsaðilar og þeir gera samn- ing við Rauða krossinn um að vera vissum einstaklingi innan handar í a.m.k. eitt ár. Stuðningskerfi Rauða krossins hér á landi hefur vakið at- hygli Flóttamannastofnunar fyrir góð störf. Athyglisvert verður að fylgjast með þróun þessara mála á næstunni. Brotabrot hælisleitenda viður- kenndir flóttamenn á Íslandi Reuters Landflótta Írakar bíða skráningar hjá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Myndin er tekin í Damaskus á Sýrlandi fyrir nokkrum dögum. Þangað hafa margir Írakar flúið. Neyð Fleiri en milljón Írakar hafa flúið land frá innrásinni í landið árið 2003. Á síðasta ári fimmfaldaðist fjöldi flóttamanna þaðan. Í HNOTSKURN »Ingibjörg Sólrún Gísla-dóttir ræddi möguleika þess að taka á móti flóttafólki frá Írak í heimsókn sinni til Mið-Austurlanda. »Frá árinu 1991 hefur Ís-land aðeins veitt einum hælisleitanda stöðu flótta- manns. » Íslendingar hafa hingað tilhelst tekið á móti hópum flóttamanna frá Evrópu, eink- um frá ríkjum sem tilheyrðu áður Júgóslavíu. »Einstein, Chagall, Freud,Marlene Dietrich, Dalai Lama og Isabella Allende voru öll flóttamenn. Utanríkismál | Á árinu hafa 39 einstaklingar leitað hælis á Íslandi. Erlent | Furðufuglinn Boris Johnson ætlar að fá íbúa London til að brosa á ný ef hann verður borgarstjóri. Föst í fréttaneti | Auði og Þórarin grunar að Spánverjar séu ekki ánægðir með skopmyndir af krónprinsparinu. Erlent | Eva Perón er ennþá dýrlingur í huga margra í Argentínu. UTANRÍKISMÁL» Flóttamönnum fjölgaði mikið á síðasta ári, einkum vegna Íraksstríðsins VIKUSPEGILL»
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.