Morgunblaðið - 29.07.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 41
UMRÆÐAN
FASTEIGNASALA I ÁNANAUSTUM V/SÓLVALLAGÖTU 84 I NESEIGNIR@NESEIGNIR.IS I NESEIGNIR.IS
Sími 535 0200 Fax 535 0201
Öll húseignin að Austurstræti 3 í Reykjavík er hér með
auglýst til leigu frá og með 1. ágúst 2007. Um er að
ræða leigu á jarðhæð og kjallara sem búið er að sam-
þykkja fyrir veitingarrekstur. Á annari og þriðju hæð eru
6 mjög góðar einstaklings og tveggja herbergja íbúðir til
leigu.
Allar nánari uppl. gefur Kristinn R. Kjartansson sölu-
stjóri hjá Neseignum í síma 535-0200 og 820-0762.
Gunnar Valdimarsson
lögg. fasteignasali
og viðsk.fræðingur
gsm: 895 7838
gunnar@neseignir.is
Kristinn Kjartansson
sölustjóri
gsm: 820 0762
kristinn@neseignir.is
TIL LEIGU
Kári Kort
sölustjóri
gsm: 892 2506
kari@neseignir.is
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík,
sími 568 2444, fax 568 2446.
Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali.
Vorum að fá í einkasölu heila húseign í sérstaklega góðu
ástandi, stærð samtals 737 fm. Húsið er tvær jarðhæðir
og á neðri jarðhæð eru tvær sjálfstæðar einingar, 187 fm
og 133 fm. Efri hæðin er 320 fm að grunnfleti með þremur
um 5 metra háum innkeyrsludyrum og loftæð minnst um
6 m. Að auki er milliloft um 54 fm. Sérsnyrtingar og kaffi-
stofur eru í öllum einingunum. Þá er 43 fm steinsteypt hús
með innkeyrsludyrum á lóðinni. Lóð er aflokuð með hliði
og með steinsteyptu plani. Eignin er laus fljótlega og selst
í einu lagi. Uppl. veitir
ELDSHÖFÐI
ATVINNUHÚSNÆÐI
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Sörlaskjól – Reykjavík
Hæð og ris 190 fm ásamt 37 fm bílskúr. Á hæðinni eru tvær fal-
legar stofur. 2 svefnherbergi, baðherbergi og nýtt eldhús. Risið
skiptist í stofu, 3 herbergi, eldhús og fallega snyrtingu. Að auki
er eitt herbergi í kjallara og efra risloft. Eignin er sérlega björt og
falleg með sjávarútsýni. Hægt að nýta sem eina heild
eða sem tvær íbúðir V. 77,0 m.
Um að ræða 107,6 fm
endarými í götuhæð á
besta stað við Síðumúla í
Reykjavík. Eignin skiptist
í tvö opin rými, skrifstofu,
herbergi og snyrtingu.
Veggir eru léttir og því
auðvelt að breyta skipu-
lagi. Tveir inngangar eru
inn í rýmið. Gott aðgengi
er að húsnæðinu.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Síðumúli - Atvinnuhúsnæði
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÞETTA var allt ein svikamylla
sagði varaformaður Framsókn-
arflokksins um áhugaleysi sjálf-
stæðismanna fyrir frekara sam-
starfi. Hverjir ætli séu svo hinir
sönnu svikamalarar? Sambandið
sáluga seldi bændum allt það sem
þeir þurftu, keypti allar þeirra af-
urðir og bændastéttinni blæddi út
af þrældómi. Sambandið hljóp í
spik og veslaðist upp, það varð
aldrei gjaldþrota, stjórarnir hirtu
feitustu bitana og breyttu í hluta-
félög sem halda áfram að sjúga
merginn úr þjóðinni. Eitt af verk-
unum var að verðtryggja fjár-
skuldbindingar. Lögin um það voru
kölluð Ólafslög og voru samin á eld-
húsborði formannsins, Ólafs Jó-
hannessonar, að hans sögn. Lögin
eru svo mögnuð að rigning í Kól-
umbíu getur gert fátæka fjölskyldu
í Kópavogi gjaldþrota. Sænsk hús-
næðislán eru með 2,4% vöxtum og
ákvæði um vaxtahækkun ef verð-
bólga fer yfir ákveðin mörk. Hægt
er að fá lán með föstum vöxtum
sem eru 3,7%. Ef verðbólga í Sví-
þjóð er skoðuð seinustu 50 árin
kemur í ljós að hún er u.þ.b. 3,7%.
Sömu peningarnir hringrása og
halda verðgildi sínu.
Hvað þá með fjármagnskostn-
aðinn, hann þarf nú ekki að vera
meiri en pappírs- og prentkostn-
aður vegna nýrra seðla. Á seinni ár-
um hefir seðlanotkun lagst af og
kostnaðurinn bara leiga á hörðum
diskum í netþjónabúum í Rúmeníu.
Ef ein milljón er sett í núverandi
húsnæðislánakerfi verður hún orðin
að sjö milljónum eftir fjörutíu ár.
Bara einfalt dæmi að reikna út hve-
nær bankarnir eiga allt. Vextir hafa
verið réttlættir með því að fjár-
magn sé aflvaki í atvinnurekstri og
beri því umbun eins og t.d. vinnu-
aflinu.
Þetta er alveg rétt, ef verk-
smiðjueigandi getur aukið fram-
leiðsluna með því að kaupa nýtt
verkfæri og á ekki fyrir því og tek-
ur lán þá verður lánveitandinn
tímabundið meðeigandi í verksmiðj-
unni og fær arðinn af sínu framlagi
greiddan út í formi vaxta. Ekki
gengur alltaf allt sem skyldi í at-
vinnulífinu, skip stranda, flugvélar
farast, ekki eru fjármunir til staðar
þegar þeirra er þörf. Alvöru banka-
menn bjuggu þá til nokkuð sem
kallað er yfirdráttur, sjálftökulán
sem hægt er að fá í skamman tíma
með háum vöxtum gegn öruggri
tryggingu. Nú um stundir heim-
sækja bankastarfsmenn framhalds-
skóla og bjóða ringluðum ungling-
um yfirdráttarlán með 25% vöxtum
sem er bara bætt við höfuðstólinn
öðru hvoru. Nú þurfa allir skjól fyr-
ir veðri og vindi, fyrir löngu var það
ákveðið að heppilegast væri að hver
og einn kæmi sér upp sínu húsnæði.
Ef þetta hefði ekki verið gert væri
fjöldi Íslendinga að veslast upp í
ónýtum húsum í eigu einhverra
leiguokrara. Okur virðist vera eins-
konar fíkn eða geðsjúkdómur og því
spurningin hvort þetta heyrir undir
viðskipta- eða heilbrigðisráðuneyti.
Það skiptir engu máli því við er-
um svo heppin að eiga mann sem
hefir vit og getu til að vinda ofan af
vitleysunni.
Þessi maður er Geir H. Haarde.
GESTUR GUNNARSSON,
Flókagötu 8, Reykjavík.
Þrælahald
Frá Gesti Gunnarssyni
STJÓRN Spalar breytti sl. vor
gjaldskrá vegna ferða um Hvalfjarð-
argöng. Mikið sanngirnismál þótt ef-
laust megi færa rök fyrir því að fella
ætti gjaldið niður þar sem göngin
eru hluti af þjóðvegi 1. Ég óska
stjórn Spalar, sérstaklega stjórn-
arformanni, til hamingju með þetta
réttlætisskref.
Mig langar, hins vegar, að spyrja
nýjan samgönguráðherra, Kristján
Möller, hvert gjaldið eigi að vera í ný
jarðgöng á Íslandi, t.d. Héðinsfjarð-
argöng og Vaðlaheiðargöng? Vaðla-
heiðargöng verða auðvitað hluti af
þjóðvegi 1, en varla verður hægt að
setja Héðinsfjarðargöng í þann
flokk.
Jarðgöng eru fyrir löngu búin að
sanna gildi sitt sem samgöngubót,
ekki síst sem slysaforvörn eins og
dæmið um Hvalfjarðargöng sýnir.
Ein meginrök byggingar Hvalfjarð-
arganga á sínum tíma, fyrir utan
styttingu leiðar, var að Hvalfjarð-
arvegur getur verið hættulegur
enda skilst mér að ekki hafi orðið
þar banaslys síðan göngin voru
byggð. Þá má benda á nýju jarð-
göngin á Austfjörðum, sem gerð
voru af öryggisástæðum, en þau eru
hluti af þjóðvegi 1 og eru gjaldfrjáls
á sama hátt og jarðgöngin miklu á
Vestfjörðum eru.
Ég skal viðurkenna að ég á svolít-
ið erfitt með að skilja forgangsröð-
unina að gera Héðinsfjarðargöng á
undan öðrum jarðgöngum, sem
sannarlega er mikil þörf fyrir, t.d.
Vaðlaheiðargöng, en vetrarferðir yf-
ir Vaðlaheiðina hafa því miður
reynst mörgum afdrifaríkar.
Allar opinberar framkvæmdir
verða að eiga sér efnahagslegar for-
sendur – um það hljóta allir að vera
sammála. Einkaframkvæmd við
gerð jarðganga á þjóðvegi 1 á hins
vegar ekki að réttlæta gjaldtöku
vegna ferða um þau. Öryggisþættir
og styttri og hagkvæmari leiðir eiga
að vera forgangsmál.
Ég endurtek því spurningu mína
til samgönguráðherra: Hvert verður
gjaldið í nýju jarðgöngin?
ELLEN INGVADÓTTIR
er áhugamaður um
umferðaröryggi
Gjaldfrjáls jarðgöng?
Frá Ellen Ingvadóttur
smáauglýsingar
mbl.is
Fréttir á SMS