Morgunblaðið - 29.07.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.07.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 19 Tilboðsveisla Heimsferða í ágúst frá aðeins kr. 14.990 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Heimsferðir bjóða síðustu sætin í ágústsólina austan- og vestan- hafs, á hreint ótrúlegu verði. Tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjör- um! Nánari upplýsingar á www.heimsferdir.is. Bókaðu núna! Rhodos - síðustu sætin 4. ágúst UPPSELT 11. ágúst örfá sæti - 2 vikur frá kr. 49.990 18. ágúst örfá sæti frá kr. 49.990 25. ágúst örfá sæti frá kr. 49.990 Fuerteventura - síðustu sætin 7. ágúst 9 sæti frá kr. 44.990 14. ágúst 23 sæti frá kr. 39.990 21. ágúst örfá sæti - 2 vikur frá kr. 39.990 Montreal - Kanada - síðustu sætin 2. ágúst UPPSELT 9. ágúst 8 sæti frá kr. 29.990 16. ágúst örfá sæti frá kr. 29.990 23. ágúst örfá sæti frá kr. 29.990 30. ágúst örfá sæti frá kr. 29.990 Mallorca - síðustu sætin 3. ágúst UPPSELT 10. ágúst 6 sæti frá kr. 39.990 17. ágúst nokkur sæti frá kr. 39.990 24. ágúst nokkur sæti frá kr. 39.990 Costa del Sol - síðustu sætin 1. ágúst UPPSELT 8. ágúst 11 sæti frá kr. 23.990 15. ágúst örfá sæti - 2 vikur frá kr. 54.990 22. ágúst nokkur sæti frá kr. 39.990 Króatía - síðustu sætin 12. ágúst UPPSELT 19. ágúst örfá sæti frá kr. 39.990 26. ágúst örfá sæti frá kr. 39.990 Alicante - Benidorm - síðustu sætin 2. ágúst UPPSELT 9. ágúst 9 sæti frá kr. 14.990 16. ágúst 19 sæti frá kr. 14.990 23. ágúst nokkur sæti frá kr. 39.990 30. ágúst nokkur sæti frá kr. 39.990 Barcelona - síðustu sætin 3. ágúst 5 sæti - vikuferð frá kr. 49.990 10. ágúst 11 sæti - vikuferð frá kr. 49.990 17. ágúst 19 sæti - vikuferð frá kr. 49.990 24. ágúst örfá sæti frá kr. 34.090 Frábær sértilboð - síðustu sætin ins en sinni síðan ekki börnunum, sem sitji svipbirgðalaus við tölvuna inni í næsta herbergi og meðtaki sprengingarnar, hryllinginn og við- bjóðinn, sem gjarnan fylgi þess hátt- ar „skemmtun“. Hvetur Johnson for- eldra til að beita síðustu líkamskröftunum til að slökkva á Desperate Housewives, hefja sig upp úr stofusófanum, og rífa leikjatölvu barnanna úr sambandi. Takist ekki að stöðva öskrin í afkvæmunum beri foreldrum að taka fram hamarinn og mölva græjuna mélinu smærra. Hörmungar og tækifæri Einkalíf Johnsons hefur löngum þótt í skrautlegra lagi. Hann var árið 2004 settur af sem ráðherra lista í skuggaráðuneyti Íhaldsflokksins eftir að upplýst hafði verið um fjög- urra ára ástarsamband hans og blaðakonu einnar, sem starfaði við Spectator. Þótti sýnt að Johnson hefði verið staðinn að lygum enda hafði hann sagt fregnir af samband- inu tilhæfulausar með öllu. Johnson hefur nokkra reynslu af brottrekstrum enda var honum ung- um sagt upp hjá The Times fyrir að hafa beislað skáldafákinn í frétt einni. Um brottvikninguna árið 2004 sagði Johnson í dálki sínum í The Daily Telegraph: „Kæru vinir, líkt og ég hefi reynt á sjálfum mér eru hörmungar ekki til, heldur aðeins ný tækifæri og þar ræðir raunar um tækifæri til að kalla yfir sig nýjar hörmungar.“ Svitafýla og sósíalískar samgöngur Johnson hefur boðað að hann muni leggja fram ítarlega stefnuskrá í næsta mánuði. Hann hefur þegar lýst yfir því að hann vilji bæta stöðu þeirra, sem kjósa að fara um London á hjólhesti og sagt að koma þurfi í veg fyrir að „strætisvagnar sósíal- ista“ ógni lífi og limum hjólreiða- manna. Hann boðar einnig að jarð- lestir verði gerðar þægilegri samgöngumáti enda sé ótækt að heilsu manna sé ógnað með því að gera þeim að anda að sér svitafýlu úr handarkrika þess sem næst þeim stendur. Þörf sé á nýjum hugmynd- um við stjórn borgarinnar; Ken Li- vingstone hafi verið úr hófi fram af- skiptasamur borgarstjóri og hann hafi einbeitt sér að því að koma hugð- arefnum sínum í framkvæmd í stað þess að beina kröftum sínum að því að gera líf borgarbúa þægilegra. „Ég mun fá íbúa London til að brosa á ný,“ sagði Johnson er hann skýrði frá því að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér. Ken Livingstone, sem verið hefur borgarstjóri síðustu átta ár, brást við tíðindum þessum með því að lýsa yfir því, að íbúar London mundu hljóta mikinn og varanlegan skaða af því að kjósa Boris Johnson borgarstjóra. Batnandi staða íhaldsmanna Íhaldsmenn hafa verið í sókn í London á síðustu árum og innvígðir telja sigurlíkur flokksins í kosning- unum á næsta ári nokkrar. Líklegt er að umdeildur skattur, sem Li- vingstone hefur lagt á alla þá sem um miðborgina aka, verði helsta kosn- ingamálið. „Rauði Ken“ er líkt og Boris Johnson í miklu uppáhaldi meðal fjölmiðlafólks enda litríkur og með afbrigðum málglaður eins og keppinauturinn. Má því gera ráð fyr- ir harðri baráttu og hugvitsamlegum uppákomum þegar þessir óhefð- bundnu stjórnmálamenn taka að slást um athyglina. Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson audur@jonsdottir.com | totil@totil.com H eldurðu að norska prinsessan sé í alvöru skyggn? kjamsaði Auður yfir frétt á news.bbc.co um engla- skóla sem hin konunglega Märtha Louise hafði nýver- ið auglýst; fréttin var sú mest lesna á forsíðu breska netmiðilsins frá klukkan 16-20 miðvikudaginn 25. júlí, samkvæmt Aftenposten.no Þórarinn leit ekki upp úr tölvuskjánum þegar hann sagði að kannski mætti spyrja prinsessuna hvort eitthvað væri hæft í að Nostradamus hefði séð Ingibjörgu Sólrúnu sem friðarleiðtoga úr norðrinu. Og hvort bráðum yrði eldgos fyrir norðan Vatnajökul. Já, eða hreinlega hvort raf- magnið í Barcelona kæmist einn daginn endanlega í lag því hann væri orðinn leiður á blikkandi ljósum. Hvað þá borgarbúar sem höfðu verið rafmagnslausir í þrjá daga! Kannski eru englar að fikta við rafmagnið, giskaði Auður. Og þá eru Katalónar að mótmæla englum, botnaði Þórarinn. Svo benti hann á frétt um mótmælin á 20minutos.es og spurði hvort henni þætti ekki skondið að Katalónar mótmæltu skorti á rafmagni en Íslendingar of- framleiðslu á því. Hún kveinkaði sér undan kaldhæðn- inni. Tuldraði að orkufyrirtæki væru ekki í tísku þessa dagana, hvorki einkarekin né ríkisrekin, enda nyti hugarorka meiri vinsælda í heimi þar sem prinsessur auglýstu englaskóla í sömu viku og milljónir barna gleyptu í sig sögu um nornastrák í galdraskóla. Örsnöggt leit Þórarinn upp frá tölvunni. Kannski býr spænska kon- ungsfjölskyldan líka yfir dulrænum hæfileikum, skríkti hann. Kannski hefur hún myrkvað Barcelona til að vara Katalóna við að sýna of mikið sjálfstæði. Getur það verið? Sítrónusúr ansaði Auður að spænska konungsfjölskyldan hefði um nóg annað að hugsa, nú þegar Spánverjar væru að díla við sitt Múham- eðsmyndamál eftir að myndasögublaðið El Jueves fékk á sig lögbann fyrir forsíðu með myndskreytingu af krónprinsparinu í samfarastellingu kenndri við hunda. Á myndinni virtist Prins Felipe stynja að kynlíf væri næst því sem hann kæmist að vinna; þannig var vísað í tilkynningu ríkisstjórnarinnar þess efnis að framvegis fengju pör 2.500 evrur fyrir hvert nýfætt barn. Auðvitað hafði lögbannið orðið til þess að myndin og fréttin fóru á ljós- hraða um netmiðla heimsins, líka þá íslensku. Víðs vegar furðaði fólk sig á heilagleika kóngafólksins og áleit lögbannið tímaskekkju; sumir höfðu gengið svo langt að muldra eitthvað í barminn um Franco-arfleifð. Þennan frasa um spænskt Múhameðsmyndamál hefurðu étið beint upp úr Politiken.dk, gall í Þórarni. Alveg eftir Dönum að kenna þetta mál við skopmyndamálið sitt. Reyndar fékk El Jueves á sig lögbann árið 1977 fyrir að hafa Guð á forsíðunni – og þeir hafa reynt að krækja í ann- að allar götur síðan. En ég bara spyr: Ætli dönsku blöðin hafi einhvern tímann birt svona … rekkjumyndir af Margréti drottningu? Að þessu mæltu grúfði hann höfuðið ofan í tölvuna og gúglaði: Tegninger+konge- familien. Fátt annað hafðist upp úr krafsinu en gömul frétt sem sagði frá því að útvarpsstöð í Indónesíu hefði efnt til samkeppni um skopmyndir af dönsku konungsfjölskyldunni þegar lætin voru sem mest út af Múham- eðsmyndunum. Hugsi leit Þórarinn aftur upp úr tölvunni og stakk upp á að hann teiknaði rekkjumynd af Ólafi og Dorrit. Þegar Auður stirðnaði flýtti hann sér að bæta við: Í anda Lennon og Yoko, meina ég. Ekki neitt dónalegt eins og … spænska krónprinsparið. Til hvers að teikna þau? spurði hún hvekkt. Nú, þau þekkja vel til í Jerúsalem. Hver veit nema Ólafur geti stillt til friðar milli Ísraelsmanna og Palestínumanna. Að hann sé norræni frið- arleiðtoginn hans Nostradamusar frekar en Ingibjörg Sólrún! Kannski að norska prinsessan geti svarað því. Hún bað hann að hætta þessu bulli. Hann væri bara að krafsa eftir tylliástæðu til að teikna rekkjumynd af forsetahjónunum. Og það væri líka dónalegt að teikna þau eins og gamla, nakta hippa. Teiknarinn ruddi burt öllum góðum englum þegar hann jarmaði: Er það? FÖST Í FRÉTTANETI» Leiðtogar og spámenn undir sömu sæng Víðs vegar furðaði fólk sig á heilagleika kóngafólksins og áleit lögbannið tímaskekkju Höfundar eru heimavinnandi hjón í Barcelona Gunnar Bachmann , framkvæmdastjóri Atlantsskipa, um boðaða gjald- skrárhækkun Eimskips á milli Íslands og Norður-Ameríku. Flutningsgjöld munu hækka um 10% frá og með næstu mán- aðamótum. » Þjóðarleiðtogar átta sig sí-fellt betur á því að það er ódýrara og hagkvæmara að koma í veg fyrir veðurfarsbreyt- ingar en að lifa við afleiðingar þeirra. Halldór Þorgeirsson , forstöðumaður hjá Lofslagsstofnun Sameinuðu þjóðanna, í viðtali við Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.