Morgunblaðið - 29.07.2007, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Skrúðás – Garðabær
Glæsilegt einbýlishús á einni hæð. Eignin skiptist í þrjú rúmgóð
svefnherbergi, arinstofu og fallegt eldhús. Rúmgóð stofa og
tvær snyrtingar. Tvöfaldur flísalagður bílskúr og mjög fallegur
garður með stórum veröndum. Einstaklega vönduð og falleg
eign með frábæra staðsetningu. V. 115,0 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Arnarás - Garðabæ
Hraunhamar kynnir sérlega fallega
íbúð á þessum vinsæla stað í Ása-
hverfinu í Garðabæ. Íbúðin er 2ja-3ja
herbergja, 75,5 fm, með geymslu.
Eignin er með sérinngangi og skipt-
ist í forstofu, hol, eldhús, stofu,
borðstofu, þvottahús, gang, vinnu-
herbergi (gluggalaust), baðherbergi,
herbergi og geymslu. Fallegar inn-
rétingar og gólfefni. Góð séreignar-
lóð sem snýr út á grænt svæði. Góð verönd. Frábær staðsetning. Verð
22,65 millj. Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi sölumaður í síma 896 0058.
Njálsgata - Reykjavík
Í einkasölu mjög góð, 75,8 fm, íbúð
á 2. hæð í góð húsi, vel staðsettu í
hjarta Reykjavíkur. Íbúðin er á 2
hæðum mjög skemmtilega skipu-
lögð, aðeins 2 íbúðir eru í þessu
húsi. Eignin skiptist í forstofu, gang,
eldhús, snyrtingu, herbergi, stofu og
borðstofu. Á neðri hæð er herbergi,
baðherbergi og geymsla. Sérút-
gangur er út í bakgarð. Gólfefni eru
að mestu parket og flísar. Geymsla í
sameign. Frábær staðsetning.
Kelduhvammur - Hafnarfirði
Hraunhamar fasteignasala hefur
fengið í einkasölu mjög glæsilega,
mikið endurnýjaða, 164,9 fm, efri
hæð í tvíbýli, þar af er bílskúr 27,4
fm. Eignin er vel staðsett á Holtinu í
Hafnarfirði og er öll endurnýjuð á
sérlega smekklegan hátt. Eignin
skiptist í forstofu, stiga, pall, gang,
sjónvarpshol, stofu, borðstofu, eld-
hús, þrjú barnaherbergi, hjónaher-
bergi, baðherbergi, herbergi í kjallara, bílskúr og sameiginlegt þvottahús.
Glæsilegar innréttingar og gólfefni eru parket og flísar Eign í sérflokki.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi sölumaður í síma 896 0058.
Selvogsgata - Hafnarfirði
Hraunhamar fasteignasala hefur
fengið í einkasölu glæsilega, mikið
endurnýjaða, 43,5 fm, efri hæð í tví-
býli. Eignin er á frábærum stað í suð-
urbæ Hafnarfjarðar og hefur öll verið
endurnýjuð á mjög smekklegan hátt.
Eignin er með sérinngangi og skipt-
ist í forstofu, hol, stofu, eldhús, bað-
herbergi, herbergi, geymslurými og
þvottahús í kjallara. Fallegar innrétt-
ingar og gólfefni. Gólfhiti. Frábær staðsetning. Verð 17 millj. Upplýsingar
veitir Þorbjörn Helgi sölumaður í síma 896 0058.
Berjavellir - Hafnarfirði
Hraunhamar fasteignasala var að fá í
einkasölu mjög glæsilega íbúð. 4ra
herbergja íbúð í nýlegu, góðu, lyftu-
húsi, vel staðsett á völlunum í Hafn-
arfirði. Íbúðin er 103 fm á þriðju hæð
og henni fylgir gott stæði í bíla-
geymslu. Eignin er með sérinngangi
og skiptist í forstofu, gang, tvö
barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvotta-
hús, búr, geymslu og stæði í bílageymslu. Glæsilegar innréttingar og gólf-
efni eru parket og flísar. Skóli og leikskóli í göngufæri. Verð 25,5 millj.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi sölumaður í síma 896 0058.
Mjög falleg 82 fm íbúð á efstu hæð (6.
hæð) í lyftuhúsi við Miðleiti. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Stór-
glæsilegt útsýni. Stórar svalir sem eru yfirbyggðar að hluta til. Mikil
sameign í húsinu. Húsvörður. Íbúðin er laus nú þegar. Verð 34,5 m.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Miðleiti - Gimli
Á LIÐNUM misserum hefur
mikið verið rætt og skrifað um
samgöngumál á Vestfjörðum og er
það hreint ekki skrít-
ið. Samgöngur á
svæðinu og við það
eru með þeim verstu
í hinum vestræna
heimi og ein meg-
inástæða þess að
fólki á svæðinu hefur
hríðfækkað á síðustu
tuttugu árum.
Með þessari grein
er ætlunin að kynna
einn valkostinn í
þeirri umræðu og þó
svo að hann virðist
fráleitur við fyrstu sýn er hreint
ekki allt sem sýnist.
Hálendisleið
Tenging norður- og suðursvæða
Vestfjarða jafnframt því að stytta
leiðina til annarra landshluta um-
talsvert er möguleg með eftirfar-
andi hætti.
Tekin væru 1,5 km göng frá
Mjólká upp á Afréttisdal. Þaðan
myndi vegurinn liggja að Stóra
Eyjavatni og þar væru vegamót.
Sem vegtenging suður, lægi
vegurinn þaðan sem leið liggur í
svipaðri hæð austur á Klettsháls.
Sem vegtenging milli
norður- og suð-
ursvæðis Vestfjarða
lægi vegurinn áfram
niður í Trostansfjörð
og niður í Vatnsfjörð.
Í dag er leiðin úr
Mjólká í Kollafjörð
102 km. En yrði með
hálendisleiðinni 40
km.
Leiðin Bíldudalur-
Kollafjörður er í dag
110 km. Sú leið yrði
nálægt 89 km.
Og leiðin Patreksfjörður-
Kollafjörður er í dag 126 km en
gæti orðið 106 km.
Þessi útfærsla ein og sér styttir
leiðina til höfuðborgarinnar yfir 60
km, fyrir norðursvæðið og nálægt
20 km fyrir suðursvæðið. Einnig
er stytting á milli norður- og suð-
ursvæðanna einhverjir kílómetrar
sem felst aðallega í því að leggja
veginn beinni en sá gamli er í dag.
Meðaltalsstytting á árs-
grundvelli á leiðinni Ísafjörður-
Reykjavík er upp á 150 km miðað
við veginn eins og hann er í dag.
Það gefur sparnað upp á
10.137.000 km á ári. Sem gefur
700 milljónir í sparnað á ári.
Tóm vitleysa?
Það er nú ansi mikil einföldun
að halda það að þessar hugmyndir
séu þvert á allar aðrar. Mikið hef-
ur undanfarið verið rætt um há-
lendisveg milli Norður- og Suður-
lands, og eru margir mjög
spenntir fyrir þeirri framkvæmd.
Sá hálendisvegur yrði hinsvegar
ca 100 km lengri en sá sem hér
um ræðir. Og sú leið styttir leið-
ina Reykjavík-Akureyri um 47 km,
eða umtalsvert minna en hér um
ræðir. En berum þessa hálend-
isleið saman við nokkra fjallvegi
sem fyrir eru á svæðinu.
Leiðin úr Mjólká að Fjarð-
arhorni í Kollafirði, frá sjó að sjó,
gæti verið réttir 40 km.
Vegurinn um Steingrímsfjarð-
arheiði, frá sjó að sjó er 37 km.
Þorskafjarðarheiði úr Ísafirði,
frá sjó að sjó er 42 km.
Dynjandisheiði, frá sjó að sjó er
rétt um 30 km.
Hugmyndasmiðjan
Það er rétt að það komi skýrt
fram að það er ekki ætlun mín að
eigna mér þessar hugmyndir.
Áhugahópur hefur verið að skoða
þessi mál undanfarin misseri og
meðal annars leitað í smiðju Norð-
manna. Þar eru hálendisvegir af
þessu tagi nokkuð algengir. Þá
eru lögð göng upp úr þessum
djúpu norsku fjörðum og upp á
hálendið. Þar eru svo lagðir beinir
og breiðir vegir. Á vetrum eru
þeir þjónustaðir með öflugum
snjóblásurum en á þeim afmörk-
uðu svæðum sem snjósöfnun er
vandamál er byggt yfir vegina. Og
þá er ekki verið að tala um stein-
steypta skála eins og t.d. á Óshlíð-
inni, heldur er um að ræða rör eða
„tunnel“ sem raðað er saman úr
einingum úr trefjaplasti.
Og einmitt það að geta byggt
yfir vegina eftir á, er ákveðin bak-
tryggingin í þessu dæmi.
Kostnaður
Göngin gætu kostað nálægt 800
milljónum. 67 km af hefðbundnum
vegi, gætu kostað nálægt 2 millj-
örðum. Samtals slagar þetta því í
þrjá milljarða.
Til að tengja saman norður- og
suðursvæðin og jafnframt því að
ná fram sambærilegri styttingu á
leiðinni suður, hvort heldur frá
norður- eða suðursvæði Vest-
fjarða, hefur verið bent á jarðgöng
og enn frekari þveranir fjarða í
Breiðafirði. Í heildina geta það
verið framkvæmdir sem væru ca
15 sinnum dýrari en sú sem hér er
nefnd. Að auki er þar gert ráð
fyrir talsverðu raski á umdeildum
svæðum. Ber þar að nefna perlur
eins og Dynjanda, Geirþjófsfjörð,
Trostansfjörð og nokkra firði við
Breiðafjörð. Þessi tillaga um há-
lendisleið er því ekki aðeins mun
ódýrari, heldur má að sama skapi
telja hana vera í meiri sátt við
umhverfið en aðrar.
Þið megið kalla það brjálæði að
leggja þetta til en það er enn
meira brjálæði að horfa framhjá
þeim mikla ávinningi sem þessi
leið getur gefið, umfram aðrar.
Hugsum hærra í vegamálum
Sigurður Jón Hreinsson skrifar
um vegamál á Vestfjörðum » Tenging norður- ogsuðursvæða Vest-
fjarða jafnframt því að
stytta leiðina til Reykja-
víkur yfir 60 km fyrir
norðursvæðið og 20 km
fyrir suðursvæðið.
Sigurður Jón Hreinsson
Höfundur er áhugamaður
um bættar samgöngur.
Fréttir á SMS
smáauglýsingar mbl.is