Morgunblaðið - 29.07.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 45
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% ✝
Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir og
elsku amma,
BRYNHILDUR ÞORSTEINSDÓTTIR,
var bráðkvödd á Arnarstapa, aðfaranótt
föstudagsins 20. júlí.
Jarðarförin verður í Bústaðakirkju, þriðjudaginn
31. júlí kl. 13.00.
Ríkharð Kristjánsson,
Gerður Ríkharðsdóttir, Óskar Örn Jónsson,
Svandís Ríkharðsdóttir, Valdimar Örn Júlíusson,
Telma Dögg Óskarsdóttir,
Jón Andri Óskarsson,
Harpa Eik Óskarsdóttir,
Ísak Örn Valdimarsson,
Brynjar Bogi Valdimarsson.
✝
Elskulegur bróðir minn, móðurbróðir og vinur,
Axel Svan Kortsson
vélstjóri
frá Akri,
Sandgerði,
verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju, miðviku-
daginn 1. ágúst kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Hvalsneskirkju.
Laufey Svala Kortsdóttir,
John E. K. Hill, Þórunn Kristín Guðmundsdóttir,
Guðný Hafdís Hill,
Sigrún Erla Hill, Ævar Örn Jónsson,
Laufey Svala Hill
og börn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
BJARNVEIG JENSEY GUÐMUNDSDÓTTIR
hárgreiðslumeistari,
Sóltúni 9,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn
31. júlí kl. 14.00.
Agnar Áskelsson,
Hörður Þór Benediktsson, Sigrún Berg Sigurðardóttir,
Áskell Agnarsson, Jóhanna Þórarinsdóttir
Guðmundur Grétar Agnarsson, Justa Agnarsson,
Hildur Jórunn Agnarsdóttir,
Agnar Ari Agnarsson,
Halldór Heiðar Agnarsson, Bjarnhildur Helga Árnadóttir,
Finnbjörn Vignir Agnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
um lífið öll þessi ár. Það er því enginn
skortur á minningum sem við, sem
eftir erum, getum yljað okkur við.
Það hefur varla liðið sá dagur síðast-
liðin sex ár að myndbrot frá þessum
tíma renni ekki fyrir hugskotssjón-
um. Svo mun áfram vera.
Elsku vinkona, það verður vel tekið
á móti þér, þú ert þannig kona.
Við kveðjum þig með söknuði.
Megi góður Guð styrkja Svenna,
móður þína, börnin, tengdabörn,
barnabörn, systkini og aðra ættingja.
Örn, Hrafnhildur og fjölskylda.
Það er sárt að þurfa nú að kveðja
elskulega mágkonu – við sem höfðum
vonað að hún fengi heilsuna aftur, og
mætti njóta góðra stunda með fjöl-
skyldu sinni og vinum. Svo varð þó
ekki; Agnes barðist af æðruleysi við
erfiðan sjúkdóm – hún tapaði barátt-
unni. Hún lést á heimili sínu – þar
sem hún hafði verið umvafin fjöl-
skyldu sinni allan sinn sjúkdómsferil.
Agnes giftist Bergþóri (Bóbó) bróður
okkar – þau áttu sitt heimili í Fífu-
hvammi, þar eignuðust þau sína þrjá
syni og Agnesi. Það voru góðir dagar.
Fjölskyldan stækkaði – synirnir eign-
uðust sínar góðu konur – og svo komu
barnabörnin. Það var einstaklega
samheldin fjölskylda – að viðbættri
ástríkri móður Agnesar, svo og systk-
inum hennar. Vinahópur þeirra var
stór, enda bæði gestrisin heim að
sækja.
Agnes var glæsileg kona og mynd-
arleg húsmóðir – það var oft margt
um manninn í Fífuhvammi. Það voru
góðir dagar. En sagt er „að sorgin
gleymi engum“. Og svo var það líka
þegar hún kvaddi dyra hjá þeim.
Bóbó veiktist – og lést fyrir 6 árum.
Það var mikill harmur kveðinn að fjöl-
skyldunni – okkur öllum sem þótti svo
vænt um hann. En lífið heldur áfram.
Agnes var svo lánsöm að eignast góð-
an vin – Sveinjón – þau áttu góðan
tíma saman – og reyndist hann henni
afar vel. Hann ásamt hennar ástríku
fjölskyldu, umvöfðu Agnesi kærleika,
til hinstu stundar.
Er við nú kveðjum Agnesi hinstu
kveðju – biðjum við ástvinum hennar
blessunar Guðs, á þessum sorgar-
stundum.
Elsku Agnes – við biðjum. Dreymi
þig ljósið – sofðu rótt.
Dóra og Halla Bergþórsdætur.
Það eru glaðlegar og skemmtilegar
minningar sem koma í hug okkar
systkinanna þegar við hugsum um
hana Öggu okkar. Agnes eða Agga
eins og hún var alltaf kölluð var glað-
lynd, ástrík og góðhjörtuð. Hún
reyndist móður okkar mikil stoð þeg-
ar hún lá í veikindum sínum fyrir 12
árum. Þær voru miklar vinkonur frá
barnæsku og var aldrei leiðinlegt í
kringum þær. Það reyndist henni
Öggu erfitt þegar vinkona hennar féll
frá og einnig þegar Bóbó hennar lést
fyrir fáeinum árum. Fjölskyldan var
henni allt og hélt hún vel utan um
hana eftir fráfall Bóbós. Nú eru þau
öll komin á betri stað og eflaust ríkir
mikil gleði, hlátur og bros.
Ekki kom maður að tómum kofun-
um þegar mann vantaði aðstoð til að
halda veislur en frú Agnes var alltaf
með góð ráð fyrir alla en það hafa ver-
ið haldnar ófáar veislur á Fífu-
hvammsveginum fram á morgun.
Undanfarin ár höfum við heimsótt
Öggu á aðfangadagsmorgun og verð-
ur nú lát á því en minningin lifir í
hjörtum okkar um góða vinkonu,
móður og ömmu.
Fjölskyldunni sendum við okkar
innilegustu samúðarkveðjur og megi
guð vera með ykkur á erfiðum tíma.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
(Valdimar Briem)
Guð þerri tregatárin stríð.
Margrét Björg og
Einar Gunnar.
✝ Helga Ingi-bergsdóttir
fæddist á Álafossi í
Mosfellssveit 12.
desember 1925. Hún
lést á líknardeild
Landakots hinn 20.
júlí síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Sigríður Olga Krist-
jánsdóttir frá Ísa-
firði, f. 22.12. 1896,
d. 18.12. 1967, og
Ingibergur Runólfs-
son úr Vestur-Land-
eyjum, f. 30.5. 1896,
d. 20.10. 1981. Systkini Helgu eru
Kristín hjúkrunarkona, f. 1917,
Ragnhildur læknir, f. 1923, Þórdís
bókasafnsfræðingur, f. 1924, Ás-
geir guðfræðingur og bókasafns-
fræðingur, f. 1928, og Gunnar hús-
gagna- og innanhússarkitekt, f.
1933.
Helga giftist 3. desember 1959,
Snorra G. Guðmundssyni, f. 26.7.
1922, d. 25.7. 2004.
Börn þeirra eru
Þórunn efnaverk-
fræðingur, f. 10.9.
1960, og Snorri hag-
fræðingur, f. 2.12.
1961, kvæntur Sig-
rúnu Hannesdóttur
f. 28.9. 1961. Börn
þeirra eru Hannes
Reynir, f. 1994,
Helga Rut, f. 1991,
Snorri, f. 1985 og
Hildur Rakel, f.
1980.
Helga hóf störf á
tannlæknastofu Björns Bjarnason-
ar, að loknu gagnfræðaprófi. Jafn-
framt stundaði Helga vinnu meðal
annars hjá Hans Petersen. Árið
1945 hélt Helga til Bandaríkjanna
og hóf nám í verslunarfræðum. Að
loknu verslunarprófi nam hún
tannsmíði í Boston.
Helgu var sungin sálumessa í
Kristskirkju í Landakoti 26. júlí.
Elsku mamma, þegar ég var strák-
ur, þá varst þú miðpunktur lífs míns.
Ég og þú, mamma. Ég gat sigrast á
öllu, með þér. Við gátum allt saman
og hvað þú gast hlustað á mig, þegar
ég sagði þér frá fyrirætlunum mín-
um. Ferðalögin sem ég ætlaði í. Bæk-
urnar sem ég ætlaði að skrifa. Stór-
virkin sem ég ætlaði að framkvæma.
Allar mínar hugmyndir.
Og þegar erfiðleikar steðjuðu að,
þá straukstu mér um vangann og öll
lífsins vandamál hurfu.
Besta mamma í heimi.
Það hefur ekkert breyst. Ég er
enn strákur. Drengurinn þinn.
Þegar ég fór yfir bréfin í tölvunni
minni, þá voru þau mörg sendibréfin,
sem ég hafði sent þér, en nú skrifa ég
mitt síðasta til þín og það tekur mig
sárt. Það er sárt, mamma, það er sárt
að missa.
Eftir að þú fórst mamma, þá gekk
ég um vesturbæinn, að Hringbraut.
Ég fór síðan í gönguferð um Laug-
arnesið, gekk Rauðalæk. Ég fór líka í
gönguferð frá Traðarlandi um Foss-
vogsdalinn, sem við gengum svo oft
saman. Mér fannst þú vera hjá mér.
Ég get aldrei þakkað þér nóg, fyrir
að vera heima. Fyrir ástina, um-
hyggjuna og alúðina.
Elsku, elsku mamma
Þakka þér fyrir
Að vera alltaf til staðar
Að hlusta
Að annast
Að hugga
Að eiga mig
Nú hefur hluti af mér dáið,
en ég mun aftur heill verða,
er við hittumst á ný.
Elsku, elsku mamma mín.
Þinn sonur,
Snorri Snorrason.
Elskuleg systir mín, Helga Ingi-
bergsdóttir, er látin.
Helga var dóttir hjónanna Ingi-
bergs Runólfssonar bifreiðastjóra og
Sigríðar Olgu Kristjánsdóttur.
Helga fæddist að Álafossi í Mosfells-
sveit og ólst upp í stórum hópi systk-
ina, þar sem hún var yngsta telpan.
Helga var fríð sýnum og bauð af sér
einstaklega góðan þokka. Hún var
ljúf í lund og fór lítið fyrir henni,
þannig að hún undi sér ein með
sjálfri sér, en hún var ávallt ánægð.
Frá Álafossi fluttum við í sveitina til
afa okkar, Runólfs Ingvarssonar, f.
31.10. 1866, d. 6.11. 1957, austur í
Rangárvallasýslu að Hallstúni í
Holtum.
Á Álafossi hafði pabbi lært að aka
bíl og var bifreiðaakstur að verða
arðsöm atvinnugrein. Því var haldið
suður er árið var liðið og fluttum við í
kjallaraíbúð á Laugarbrekku, sem
var býli, efst á Laugaveginum. Það-
an fluttum við í sumarbústað í Álf-
heima, en Álfheimar voru fiskverk-
unarstöð, sem fóstri hennar mömmu
rak.
Á þessum árum eignuðumst við
góðar vinkonur, sem voru systurnar
í Austurhlíð og hélst sú vinátta ævi-
langt. Þaðan fluttumst við í verka-
mannabústaðina að Hringbraut. Fá-
ir geta ímyndað sér, hvílíkur léttir
var að þurfa ekki að flytja oftar, enda
var þá styttra í skóla og framboðið
meira á allri fræðslu.
Helga giftist Snorra Grími Guð-
mundssyni og eignuðust þau tvö
börn, Þórunni verkfræðing og
Snorra viðskiptafræðing.
Elsku systir mín. Nú er komið að
kveðjustund og margs að minnast.
Megi góður Guð líkna þeim, sem
syrgja þig og veita þeim styrk.
Ragna systir.
Helga Ingibergsdóttir
✝ Anders Guð-mundsson fædd-
ist 23. janúar 1928.
Hann lést á heimili
sínu sunnudaginn 1.
júlí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðmundur Guð-
mundsson, útvegs-
bóndi á Kleifum á
Selströnd, og Guð-
rún Guðmunds-
dóttir. Bræður And-
ers eru Hilmar,
látinn, Hafsteinn og
Hreinn.
Árið 1955 kvæntist Anders
Guðrúnu Sigurlaugu Þórodds-
dóttur, f. 23. mars 1929. Börn
þeirra eru: 1) Kolbrún Svala, f. 15.
maí 1955, d. 11. mars 1992. 2)
Bára, f. 10. ágúst
1956, gift Borgari
Jónsyni, þau eiga
þrjú börn. 3) Oddur
Sævar, f. 24. sept-
ember 1957, kvænt-
ur Freyju Jóhanns-
dóttur, þau eiga
þrjá syni. 4) Anna
Guðrún, f. 4. desem-
ber 1960, hún á eina
dóttur. 5) Guð-
mundur, f. 18. nóv-
ember 1963, hann á
þrjú börn. Áður átti
Anders dótturina
Hólmfríði, f. 4. mars 1955, gift
Úlfari Hauksyni, þau eiga tvö
börn. Þau eru búsett á Akureyri.
Anders var jarðsunginn í kyrr-
þey.
Hinsta kveðja til afa.
Þegar storminn hefur lægt,
reiði loftsins og hafsins,
gæla öldurnar við fjörugrjótið
og hrafnarnir hefja flugleiki sína á ný við
klettinn,
mávarnir ofar og hverfa í himingrámann,
að baki fjallið þungt og kyrrt.
(Einar Ólafsson)
Hvíl þú í friði, elsku afi.
Sigurður Rúnar, Sævar Örn
og Sigmar Þór.
Anders Guðmundsson