Morgunblaðið - 29.07.2007, Page 46

Morgunblaðið - 29.07.2007, Page 46
46 SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigrún Blöndalfæddist í Reykjavík hinn 16. nóvember 1908. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Sól- túni hinn 20. júlí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jónatan Þor- steinsson, hús- gagnasmíðameist- ari, kaupmaður og bæjarfulltrúi í Reykjavík, f. 14. maí 1880, d. 2. nóvember 1933 og kona hans Guðrún Sigurðardóttir, hús- freyja, f. 14. júní 1883, d. 13. nóv 1918. Sigrún giftist 10. ágúst 1932 Axel Hannessyni Blöndal lækni, f. í Winnipeg í Kanada, 31. október 1904, d. 6. ágúst 1990. Foreldrar hans voru Hannes Gunnlaugsson Stephensen Blöndal, f. 23. októ- ber 1863, d. 9. september 1932 og Soffía Jónatansdóttir, f. 2. júní 1872, d. 23. apríl 1943. Börn Sig- rúnar og Axels eru: 1) Hannes Blöndal, f. 10. janúar 1937, kvæntur Ester Kaldalóns, f. 31. janúar 1938. Börn þeirra eru Axel, sambýliskona Sóley Hjartardóttir, Hannes, sambýlis- kona Sigríður Guð- mundsdóttir og Sig- rún Erla, gift Þorkeli M. Gunnars- syni. Barnbörnin eru fimm, Jóhanna Ester, Gunnhildur Anna, Guðmundur Axel, Erla Karen og Hannes. 2) Guðrún Blöndal, f. 18. sept- ember 1939, gift Hauki Þorsteins- syni, f. 26. febrúar 1938. Börn þeirra eru: Axel, Laufey, gift Baldvini Valdimarssyni og Sig- rún, gift Baldri Þór Gunnarssyni. Barnabörnin eru fjögur Haukur, Halldóra, Guðrún Ósk og Gunnar Geir. Sigrún bjó í Reykjavík mest alla ævina utan nokkurra ára er- lendis. Hún gekk í Miðbæjarskól- ann og síðar Kvennaskólann í Reykjavík. Hún var heimavinn- andi húsmóðir alla sína tíð. Síð- ustu ár ævinnar dvaldi Sigrún á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför Sigrúnar fór fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. Tengdamóðir mín Sigrún Blöndal sem lengst af bjó í Drápuhlíð 11 er látin níutíu og átta ára að aldri eftir erfið veikindi um tíu ára skeið. Ég kynntist Sigrúnu fyrst er ég fyrir um fjörutíu og sjö árum fór að gera hosur mínar grænar fyrir dótt- ur hennar, Guðrúnu Blöndal. Óneit- anlega gætti smá kvíða hjá sveita- stráknum að hitta þau merkishjón Sigrúnu og Axel Blöndal en sá kvíði reyndist óþarfur því mér var tekið eins og besta syni frá fyrsta degi. Sigrún var glæsileg kona, vel menntuð og hafði frábært minni og minntist oft á veru sína erlendis bæði í Vínarborg og Danmörku en eiginmaður hennar Axel Blöndal var þar í framhaldsnámi í læknis- fræði um fjögurra ára skeið. Einnig minntist Sigrún þeirrar miklu reynslu sem hún varð fyrir aðeins tíu ára gömul er hún missti móður sína úr spánsku veikinni og tvö al- systkin og tvö hálfsystkini á sama árinu. Allt þetta markaði djúp spor í barnssálina. Ég vil að lokum þakka tengda- móður minni þá miklu umhyggju og ástúð sem hún sýndi börnum okkar en tvö þau eldri voru heimagangar hjá ömmu sinni og afa meðan þau voru lítil. Ég vil fyrir hönd fjölskyldunnar þakka öllu starfsfólki Hjúkrunar- heimilisins Sóltúns fyrir frábæra umönnun þau ár sem hún dvaldi þar. Blessuð sé minning Sigrúnar Blöndal. Haukur Þorsteinsson. Okkur langar í fáum orðum að minnast ömmu okkar og þakka fyrir alla þá ást og umhyggju sem hún sýndi okkur alla tíð. Á kveðjustundu koma upp í hug- ann margar minningar frá liðnum árum. Það var alltaf gott að koma í Drápuhlíðina og þau voru ófá skipt- in sem við fengum að gista hjá ömmu og afa sem alltaf áttu nægan tíma til að sinna okkur. Amma lum- aði alltaf á einhverju sem hún vissi að litlu sérvitringunum þótti gott, sama hvað var, það var alltaf til. Amma var glæsileg kona og góð fyrirmynd. Hún var dugleg að hreyfa sig og meðan heilsa leyfði voru það sennilega ekki margir dag- ar sem hún sleppti göngutúrnum. Þrátt fyrir erfiða síðustu daga gleðjumst við yfir því að nú ert þú laus úr viðjum erfiðra og langra veikinda. Við trúum því að þú hafir nú aftur hitt afa sem hefur tekið vel á móti þér. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku amma, Við þökkum þér fyrir allt. Það voru forréttindi að hafa átt þig sem ömmu. Guð blessi minningu þína. Axel, Laufey og Sigrún. Sigrún Blöndal Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919 ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, HELGU SIGTRYGGSDÓTTUR, Engihjalla 11, Kópavogi, sem lést miðvikudaginn 11. júlí. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki St. Jósefs- spítala í Hafnarfirði fyrir góða umönnun og vingjarnlegt viðmót. Ólöf Stefánsdóttir, Sigtryggur Stefánsson, María Markúsdóttir, Sævar Stefánsson, Margrét Gunnarsdóttir, Valborg Stefánsdóttir, Þórólfur Kristjánsson, Kolbrún Stefánsdóttir, Jóhannes Reynisson, Sigurður Stefánsson, Svava Guðmannsdóttir, Haukur Sigtryggsson, Unnur Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem með hlýhug, nærveru og samúðarkveðjum minntust okkar ástkæra eiginmanns, föður, sonar, bróður, mágs, barnabarns og tengdasonar, HAFÞÓRS SVEINJÓNSSONAR, Burwell, Cambridge, Englandi, sem lést föstudaginn 22. júní. Guð blessi ykkur öll. Elsa Jensdóttir, Kristján Hafþórsson, Tinna María Hafþórsdóttir, Alexandra Hafþórsdóttir, Hrefna Pétursdóttir, Sveinjón Björnsson, Jóhanna Sveinjónsdóttir, Ásdís Sveinjónsdóttir, Erla Guðmundsdóttir, Jóhann Tómasson, Pétur Hafliði Ólafsson Kristín María Eggertsdóttir, Jens Gíslason og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar, GUÐMUNDAR ÞORGRÍMSSONAR, Snorrabraut 34. Guðrún Guðmundsdóttir, Bjarni Þórðarson, Þorgrímur Guðmundsson, Rannveig S. Guðmundsdóttir, Dagný Guðmundsdóttir, Hjörtur Þór Hauksson, Ásdís Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Við þökkum kærlega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og stuðning við andlát og útför og heiðruðu minningu elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÞORVALDS SÆMUNDSSONAR kennara, Brúnavegi 9, Reykjavík. Hlýhugur ykkar hefur verið okkur mikils virði. Jakobína Jónsdóttir, Jón Þorvaldsson, Guðbjörg Jónsdóttir, Baldur Þór Þorvaldsson, Katrín Þorvaldsdóttir, Ingibjörg Rósa Þorvaldsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra. „Ég á tvær ömmur, tvo afa og eina Eddu,“ sagði sú yngsta okkar í barnæsku sem sýnir vel hin sterku tengsl Eddu frænku við okkur systur. Edda frænka var ávallt í miklu uppáhaldi hjá okkur enda ekki skrýtið því hún var sér- staklega barngóð og sýndi öllu því sem við vorum að gera áhuga. Yfir henni var ævintýraljómi, alltaf svo flott og fín. Perlufestar, snyrtidót og falleg föt, allt heillaði þetta okkur og í heimsóknum okkar í Gnoðarvog- inn gleymdist tíminn á meðan grams- að var í herlegheitunum. Þegar við horfum til baka höfum við átt margar ánægjustundir með Eddu og hefur hún á margan hátt haft áhrif á okkur. Hún horfði á það jákvæða, átti auðvelt með að sam- gleðjast öðrum og vildi öllum vel. Þó styttist dagur, daprist ljós og dimmi meir og meir, ég þekki ljós, sem logar skært, það ljós, er aldrei deyr. (M. Joch.) Takk fyrir allt, elsku Edda. Hugheilar samúðarkveðjur send- um við frændum okkar Guðjóni og Jóhannesi og fjölskyldum þeirra. Kristín, Björg, Rakel og Bryndís Steinarsdætur. Við Edda kynntumst í ágúst 1999 sem herbergisfélagar á Reykjalundi. Edda Guðjónsdóttir ✝ Edda Guðjóns-dóttir fæddist í Reykjavík 7. nóv- ember 1935. Hún lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi 16. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Grensáskirkju 24. júlí. Ég hefði ekki getað verið heppnari með herbergisfélaga því strax tókst með okkur vinátta og traust. Edda var afar glæsi- leg kona, alltaf vel til höfð og fallega klædd. Hún var yndislegur ljósgeisli sem vildi öll- um vel og var ávallt tilbúin að rétta öðrum hjálparhönd. Við Edda ræddum mikið saman um lífið og tilveruna og í þeim samtölum kom fram hve stolt hún var af sonum sín- um Guðjóni og Jóhannesi og þeirra fjölskyldum. Við Edda gátum hlegið mikið sam- an og við gátum líka grátið saman. Ég eignaðist í henni dýrmætan vin. Eitt sinn sem oftar fékk ég blóm ásamt korti frá Eddu. Í kortinu voru rituð þessi fallegu orð úr Spámann- inum eftir Kahlil Gibran: Og ungmenni nokkurt sagði: Ræddu við okkur um vináttuna. Og hann svaraði og sagði: Vinur þinn er þér allt. Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín upp- skorin. Hann er brauð þitt og arineldur. Þú kemur til hans svangur og í leit að friði. Ég vil þakka Eddu allan kærleik- ann sem hún sýndi mér í gegnum ár- in. Heimsóknirnar á flottu heimilin hennar eru ógleymanlegar. Hún hafði komið sér svo vel fyrir í fallegu íbúðinni sinni á Sléttuvegi. Ég minn- ist hennar með mikilli hlýju og veit að nú er hún komin í fangið á Sigurði sínum sem hún saknaði svo mikið. Sól, stattu kyrr! þó að kalli þig sær til hvílu – ég elska þig heitar. Þú blindar mín augu, en þú ert mér svo kær, og eins hvort þú skín, eða bæn minni neitar. Ég sæki þér nær, þótt þú færir þig fjær- þótt þú fallir í djúpið, mitt hjarta til geislanna leitar! (Sigurður Sigurðsson) Ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa þekkt Eddu. Syrgjendum votta ég innilega samúð. Blessuð sé minning Eddu Guð- jónsdóttur. Halla Snorradóttir. Við systkinin viljum kveðja Eddu frænku okkar með nokkrum orðum. Margs er að minnast frá æsku- heimili okkar í Nökkvavoginum. Þar var Edda tíður gestur, alltaf jafn glæsileg og með góða skapið og létt- leikann. Við vorum eins og systkin, enda bræðra- og systrabörn, svo ná- skyld vorum við. Já, það var mikill samgangur milli fjölskyldnanna í þá daga, og oft glatt á hjalla. Við fjölskyldan í Nökkvavoginum gættum oft á tíðum sona Eddu og Sigurðar, þeirra Guðjóns og Jóhann- esar, sem þau voru afar stolt af, og kölluðu þá oft „demantana sína“. Edda var alltaf boðin og búin að liðsinna öðrum meðan heilsan leyfði. Við minnumst þess hvað Edda var góð og hjálpleg móður okkar Sigur- laugu sem nú er háöldruð, þegar hún gekk í gegnum alvarleg veikindi fyrir 40 árum. Þegar Edda missti heilsuna fyrir nokkrum árum kom til kasta sonanna eftir lát Sigurðar að annast hana, og voru þeir henni afar góðir og um- hyggjusamir. Við minnumst 70 ára afmælisveislu hennar fyrir tveimur árum þar sem fjölskyldurnar voru saman komnar á heimili Jóhannesar og áttu þar góða og ánægjulega kvöldstund saman. Við vottum Guðjóni, Jóhannesi og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Elsku Edda, við þökkum þér góða vináttu í gegnum árin. Hvíl í friði. Systkinin úr Nökkvavoginum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.