Morgunblaðið - 29.07.2007, Síða 51

Morgunblaðið - 29.07.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2007 51 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Ferð um Fjalla- baksleið nyrðri og Lakagíga 10. og 11. ágúst. Gist á Hótel Klaustri, Geirlandi. Dagur 1: Landmannalaugar-Eldgjá- Skaftártunga að Geirlandi. Dagur 2: Fjaðrárgljúfur-Fagrifoss og Lakagígar. Brottför Gullsmára kl. 8, Gjábakka kl. 8.15. List- ar og nánari upplýsingar í félagsmiðstöðvunum. Hæðargarður 31 | Komdu við í morgunkaffi einhvern daginn kl. 9, kíktu í blöðin, kynntu þér dagskrána og skelltu þér í morgungöngu. Gönguferðir alla daga nema sunnudaga. Uppl. í s. 568-3132 asdis.skuladottir@reykjavik.is. Kirkjustarf Fríkirkjan Kefas | Almenn samkoma kl. 20. Helga R. Ár- mannsdóttir prédikar. Lofgjörð og fyrirbænir í lok samkomu fyrir þá sem vilja. Kaffi og samvera eftir samkomu. Allir vel- komnir. Laugarneskirkja | kl. 20. Samtalsguðsþjónusta. Sr. Bjarni Karlsson leiðir stundina. Tvær stuttar hugleiðingar verða fluttar, þar sem sr. Bjarni og Ólöf Davíðsdóttir guðfræðinemi taka til máls og bjóða svo til samtals um efnið. Aðalheiður Þorsteinsdóttir leikur á píanó. 95ára afmæli. Í dag, 29.júlí, verður frú Mar- grét Scheving níutíu og fimm ára. Að því tilefni tekur hún á móti vinum og vandamönn- unum á heimili sínu, Hring- braut 45, milli klukkan 16-18. 90ára afmæli. Í dag,sunnudaginn 29. júlí, er níræð Dóra Ottesen Jós- afatsdóttir, Ljósheimum 6 í Reykjavík. Hún heldur upp á daginn með fjölskyldu sinni. dagbók Í dag er sunnudagur 29. júlí, 210. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) FSS er félag STK stúdenta semstendur fyrir fjölbreyttustarfi allan ársins hring.Auður Halldórsdóttir er for- maður félagsins, og segir frá: „STK er skammstöfun fyrir samkynhneigða, tví- kynhneigða og kynskipta (transgender) stúdenta. Félagið hefur starfað frá árinu 1999 og er opið ungu fólki 18 til 30 ára, stúdentum og fólki sem nýlega hef- ur lokið námi,“ segir Auður. „Markmið félagsins er að skapa félagslegan vett- vang fyrir ungt STK fólk, til að gera skemmtilega hluti saman og takast á við spennandi verkefni. Við reynum einnig eftir fremsta megni að beita okk- ur í mannréttindabaráttu STK fólks, jafnt innanlands sem utan og tökum virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi.“ FSS verður að vanda með vagn í gleðigöngu samkynhneigðra í ágúst, og notar Auður tækifærið til að auglýsa eftir áhugasömu fólki sem tilbúið er að leggja hönd á plóg: „Það þarf að vinna mörg handtök til að gera skemmtilegt gönguatriði og er öll hjálp vel þegin,“ segir Auður. „Í ár mun FSS ganga und- ir yfirskriftinni „Hvað er að vera ég?“ þar sem við vörpum ljósi á og leikum okkur með hvernig við skilgreinum okkur sjálf. Fæst okkar skilgreina sig eingöngu út frá kynhneigð, heldur er- um við svo mikið meira en það: synir og dætur, vinir og vinkonur, feður og mæður, samstarfélagar og þar fram eftir götunum. Við tengjumst svo mörg- um, út um allt, og má þannig með sanni segja að samkynhneigð komi öllum við.“ Starfsemi FSS er hvað virkust yfir vetrartímann, enda stúdentafélag: „Við vinnum nú að skipulagningu á starfi fé- lagsins á komandi vetri, leggjum drög að margskonar uppákomum og kynn- ingu,“ segir Auður. „Í haust ætlum við m.a. að kynna félagið vandlega í háskól- um landsins. Við stefnum líka á að halda málþing á haustönn, þar sem samkynhneigð málefni verða krufin til mergjar.“ Einn af föstum liðum í starfi félags- ins eru gleðikvöldin Gay day. „Í vetur munum við halda Gay day á tveggja vikna fresti, og verður fyrsta kvöldið haldið í ágústlok, þegar skólar byrja á ný.“ Þeir sem hafa áhuga á að aðstoða við eða taka þátt í atriði FSS í Gay pride göngunni geta sent línu í tölvupósti á gay@hi.is. Sjá einnig www.gaystudent- .is. Ungmenni | Félagið FSS stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum í vetur Líf í tuskunum hjá FSS  Auður Halldórs- dóttir fæddist á Akureyri 1982. Hún lauk stúdents- prófi frá MH 2002 og BA-námi í bók- menntafræði og frönsku frá HÍ 2007. Auður var kosin ritari FSS – félags STK-stúdenta 2006 og formað- ur 2007. Foreldrar Auðar eru Margrét Snorradóttir og Halldór Baldursson. Tónlist Akureyrarkirkja | Björg Þórhallsdóttir, sópran- söngkona og Elísabet Waage, hörpuleikari flytja íslensk og erlend sönglög, aríur og skemmti- legar útsetningar af negrasálmum. Ókeypis að- gangur. Akureyrarkirkja | Sumartónleikar. Björg Þór- hallsdóttir, sópran og Elísabet Waage, harpa. Aðgangur ókeypis. Hallgrímskirkja | Philip Crozier, organisti frá Montreal í Kanada, leikur á kvöldtónleikum, 29. júlí kl. 20. Á efnisskránni eru verk eftir William Boyce, Zoltan Kodály, Jean Langlais, Piet Post, Buxtehude, Denis Bédard og Joseph Jongen. Langholtskirkja | Skeppsholmens fredkör (Frið- arkór Skipahólma) frá Stokkólmi heldur tónleika í Langholtskirkju kl. 20. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Þóra Einars- dóttir sópran, Björn Jónsson tenór og Anna Ás- laug Ragnarsdóttir píanóleikari flytja tónverk eftir Robert Schumann, Richard Strauss og Edward Grieg. Skálholtskirkja | Sumartónleikar í Skálholts- kirkju kl. 15: Tónleikar með verkum eftir J.C. Bach, J.S. Bach, W.F. Bach og C.P.E. Bach. Flytj- endur: Bachsveitin í Skálholti, Guðrún Hrund Harðardóttir víóla, Marta Hrafnsdóttir, alt. Skútustaðakirkja | Laufey Sigurðardóttir, fiðla og Elísabet Waage, harpa, flytja franska og rússneska tónlist ásamt útsetningum á íslensk- um sönglögum. Aðgangur ókeypis. Myndlist Malarrif | Ljósmyndir tengdar lífi Þórðar Hall- dórssonar frá Dagverðará. M.a. myndir sem komu út á heimsalmanaki KODAK árið 1973. Ás- dís Arnardóttir sýnir vatnslitamyndir málaðar á hríspappír og sækir hún myndefnið í rýr gæði ljósmynda frá 8. áratugnum. Helgina 28.–29. júlí mun Ásdís spjalla við gesti vitans. Ráðhús Reykjavíkur | Reynir Þorgrímsson opn- ar sýninguna „Skartgripir fjallkonunnar“ kl. 14. Hún stendur til 12. ágúst. Útivist og íþróttir Viðey | Felix Bergsson leikari stýrir ævintýra- legri barnaleiðsögn í Viðey. Viðey er mikið ævin- týraland fyrir börn og er siglingin á milli lands og eyjar mikil upplifun fyrir þau. Eins er fjara Viðeyjar fjársjóður leiks og skemmtunar. Eftir leiðsögn verður barnamessa í Viðeyjarkirkju. TÍBETSKAR konur sýna hefðbundna tíbetska búninga á menningarhátíð í Júsjú í Qinghæ-héraði sem er í vesturhluta Kína. Um er að ræða fimm daga hátíð þar sem þjóðlagahópar skemmta, fólk sprangar um í þjóðbúningum sem og héraðsbúningum og stundar kappreiðar. Tíbetar hafa lengi reynt að fá sjálfstæði frá Kína með litlum árangri. Tenzin Gyatso, fjórtándi maðurinn sem ber titilinn Dalai Lama, hefur verið í útlegð frá árinu 1959 en hefur þó borið hróður Tíbets víða um Vesturlönd og fékk meðal annars friðarverðlaun Nóbels árið 1989. Konur frá Tíbet sýna Kínverjum þjóðbúninginn sinn Litríkir þjóðbúningar þjóðarinnar frá þaki heimsins Reuters FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Lands- sambandi slökkviliðs- og sjúkra- flutningamanna: „Vegna yfirlýsingar stjórnar Brunavarna á Austurlandi (BA) frá 25. þessa mánaðar um kjör slökkvi- liðsmanna á Egilsstöðum þykir Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) nauð- synlegt að eftirfarandi komi fram: Slökkviliðsmenn á Egilsstöðum eiga ekki í kjaradeilu við stjórn BA. Deilan er um bakvaktir skipu- lagðar af stjórnendum slökkvilið- anna þar sem slökkviliðsmenn á Egilsstöðum eru bundnir á bak- vöktum tvær vikur í mánuði án greiðslu bakvaktarlauna. LSS og slökkviliðsmenn á Aust- urlandi hafa fagnað fram komnum hugmyndum um stofnun atvinnu- slökkviliðs og telja slíkt mikið framfaraskref. Til að flýta þeirri þróun sem verið hefur í mörgum sveitarfélögum undanfarin ár þar sem einn eða fleiri hafa verið ráðn- ir í fullt starf í slökkviliðunum voru slökkviliðsmenn á Egilsstöðum til- búnir að taka að sér bakvaktir fyr- ir brot af þeim bakvaktarlaunum sem þeim bæri og yrði það þá kall- að þóknun fyrir að vera ávallt til taks. Það er ekki rétt sem kemur fram í máli formanns stjórnar að hvergi tíðkist að greiða slökkviliðsmönn- um í hlutastarfi fyrir bakvaktir eða þóknun fyrir að vera ávallt til taks. Mörg sveitarfélög skipuleggja bak- vaktir yfir sumartímann til að tryggja viðbragðsgetu og er greitt fyrir samkvæmt samningum. Það er hins vegar rétt hjá for- manni stjórnar að BA er eini að- ilinn sem skipuleggur bakvaktir sinna slökkviliðsmanna með kröfu um fasta viðveru í mánuði án þess að greiða fyrir það nema að mjög litlu leyti. Hægt er að lesa um skipulag þessara vakta á Egilsstöð- um á heimasíðu Fljótsdalshéraðs þar sem skýrt kemur fram að 14 slökkviliðsmenn í hlutastarfi á Eg- ilsstöðum gangi bakvaktir. LSS fyrir hönd slökkviliðsmanna á Egilsstöðum var tilbúið að miðla málum með mikilli eftirgjöf frá ákvæðum kjarasamnings til að stíga mikilvægt skref í þróun brunamála á svæðinu. Stjórn BA hafnaði því hins vegar og fullyrð- ing um að slökkviliðsmenn hafi gengið gegn ráðleggingum for- manns LSS á ekki við rök að styðj- ast,“ segir í yfirlýsingunni. Slökkviliðs- menn mót- mæla full- yrðingum Bikarinn önnur umferð Dregið hefur verið í aðra umferð í bikarkeppni BSÍ og spila eftirtaldar sveitir saman: Gylfi Baldursson – Norðvestan Anton Hartmannsson – Skeljungur Klofningur – Eykt undirfot.is – Breki jarðverk ehf. Sigfús Ö. Árnason/Birkir Jónss. – Málning Ríkharður Jónasson – Malarvinnslan Grant Thornton – Sparisjóður Keflavíkur Úlfurinn – Villi jr. Frestur til að ljúka 2. umferð er til 18. ágúst. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.