Morgunblaðið - 01.08.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2007 9
LAGERSÖLU
LÝKUR 3. ÁGÚST
MEIRI AFSLÁTTUR
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Algjört
verðhrun
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
www.stilling.is // stilling@stilling.is
sýnum stillingu í umferðinni
Laugavegi 54
Sími 552 5201
* Allir sumarkjólar 1.000 kr.
* Öll sumarpils 1.000 kr.
* Allir sumartoppar 1.000 kr.
* Allir jakkar 1.000 kr.
og margt fleira
1.000 kr. dagar
miðvikudag og
fimmtudag
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„ÞAÐ var svolítil upplifun að verða
vitni að þessu,“ segir Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra um
opna hjartaaðgerð sem hann fylgdist
með á Landspítala – háskólasjúkra-
húsi í fyrradag. „Ekki það að ég hafi
verið óöruggur með íslenska heil-
brigðisþjónustu en að sjá þetta með
eigin augum gerir það að verkum að
maður fyllist enn meiri öryggistil-
finningu þegar um svona flókna hluti
er að ræða. Þarna er augljóslega
mjög hæft fólk á ferðinni sem kann
sitt fag.“
Guðlaugur Þór Þórðarson fór í
kynnisferð á deildir Landspítala –
háskólasjúkrahúss í Fossvogi, á
Grensási og við Hringbraut. Hann
segir að heimsóknin hafi verið mjög
ánægjuleg og gaman hafi verið að
hitta starfsfólk og sjúklinga.
Heilbrigðisráðherra segir að þeg-
ar komi að þjónustu sé það eilífðar-
verkefni að bæta hana og sjá til þess
að framboðið mæti eftirspurninni.
Verið sé að skoða heilbrigðismálin
heildstætt í þeim tilgangi að sjá
hvernig best verði að málum staðið.
Mikil eftirspurn sé eftir heilbrigðis-
þjónustu, hún muni aukast og sé í
raun endalaus. „Sem betur fer höf-
um við náð mjög góðum árangri á
mörgum sviðum en við eigum alltaf
að setja markið hærra,“ segir Guð-
laugur Þór Þórðarson. „Við höfum
sett okkur það markmið að vera með
heilbrigðisþjónustu eins og hún ger-
ist best í heiminum og það er raun-
hæft markmið en einstaka hluti
verður að skoða í stærra samhengi.“
Mörg tækifæri
Guðlaugur Þór Þórðarson bendir
á að meðal annars vegna tæknifram-
fara og framfara í lyfjum verði úr-
ræði stöðugt fjölbreyttari og miklu
máli skipti að fá sem mest fyrir þá
fjármuni sem lagðir séu í málaflokk-
inn. Hafa beri í huga að LSH sé ekki
aðeins spítali, heldur líka háskóla-
stofnun sem að stórum hluta sé
ábyrg fyrir því að mennta fólk til að
sinna þessari þjónustu í landinu í
framtíðinni. Auk þess hafi hún
merkilegu rannsóknarhlutverki að
gegna og mörg tækifæri séu fyrir Ís-
lendinga á sviði rannsókna.
Eilífðarverkefni
að bæta þjónustuna
Aðgerð Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fyrir miðri mynd er hann fylgdist með opinni hjartaað-
gerð, sem gerð var á skurðstofu Landspítala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
GUÐLAUGUR
Þór Þórðarson,
heilbrigðis- og
tryggingamála-
ráðherra, hefur
skipað fimm
manna stjórn
Tryggingastofn-
unar ríkisins.
Í stjórninni eru
Benedikt Jóhann-
esson, formaður,
Karl V. Matthíasson, varaformaður,
Margrét S. Einarsdóttir, Sigríður
Jóhannesdóttir og Sigursteinn Más-
son. Varamenn eru Bryndís Frið-
geirsdóttir, Svala Árnadóttir, Elsa
Ingjaldsdóttir, Signý Jóhannesdóttir
og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir.
Hlutverk stjórnarinnar er að hafa
eftirlit með starfsemi TR og gæta
þess að rekstur hennar sé innan
ramma fjárlaga. Stjórnin staðfestir
sömuleiðis skipulag stofnunarinnar,
starfs- og fjárhagsáætlun hvers árs
og markar henni stefnu. Stjórn TR
tilnefnir sömuleiðis fulltrúa Trygg-
ingastofnunar í samninganefnd sam-
kvæmt lögum um heilbrigðisþjón-
ustu.
Benedikt
Jóhannesson
Benedikt formaður TR
FORMAÐUR Vinstri grænna,
Steingrímur J. Sigfússon, sem
einnig er fulltrúi VG í utanrík-
ismálanefnd, hefur sent formanni
nefndarinnar bréf þar sem hann
fer fram á fund í henni svo fljótt
sem auðið er. Í bréfinu er þess
krafist að utanríkisráðherra og
helstu sérfræðingar utanríkisráðu-
neytisins verði á fundinum.
Steingrímur óskar þess að á
fundinum verði tekin fyrir staða
öryggismála á Íslandi og þá sér-
staklega nýtt hlutverk NATO í
loftvörnum landsins. Auk þess
verði ræddur framtíðarrekstur
ratsjárstöðvakerfisins, skuldbind-
ingar Íslands og líklegur kostn-
aður þeim tengdur. Á fundinum
verði einnig rædd tilhögun fyrir-
hugaðra heræfinga nú í ágúst,
þ.m.t. umsókn um lágflugsheimild-
ir, auk þess sem gerð verði grein
fyrir þeim kostnaði sem stjórnvöld
hafi gengist undir fyrir Íslands
hönd vegna heræfinganna.
Í bréfinu óskar Steingrímur
þess ennfremur, að þær fjárheim-
ildir, sem til stendur að nýta
vegna ofangreindra útgjalda, verði
útlistaðar og skýrt frá því hvernig
öllu undirbúnings- og ákvarðana-
tökuferli verði háttað í utanrík-
ismálanefnd.
Framtíð ör-
yggismála
verði rædd