Morgunblaðið - 01.08.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2007 15
ÚR VERINU
Við erum leiðandi í
framleiðslu stjórn- og
gæslubúnaðar fyrir kæli-
og frystikerfi
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf
<J
'(()
'((*
'((+
'((,
'((-
.
&''
() *
&''
+" '
- *
.
+
/0
&''
% 1$
$# %2%
34 544
3% 5%5
5 53
+6768+
70
6(89 +8:/+;<6 +;9=6 688+>
'+(
'((
/+(
/((
+(
(
0 1
/22- /222 '((/ '(() '((+ '((-
" &'&' /((
+(
(
0 1
/22- /222 '((/ '(() '((+ '((-
() * &'&' /+(
/((
+(
(
0 1
/22- /222 '((/ '(() '((+ '((-
+" '>
/+(
/((
+(
(
0 1
/22- /222 '((/ '(() '((+ '((-
? - * )
'((
/+(
/((
+(
(
0 1
/22- /222 '((/ '(() '((+ '((-
0 &'&' /((
+(
(
0 1
/22- /222 '((/ '(() '((+ '((-
? +
)
/+(
/((
+(
(
0 1
/22- /222 '((/ '(() '((+ '((-
6
" ! 0,"
"0
)
@A ' 1B
C #$$4D#$$%E
F
+ "
+
+0
G0
H !
;
8'
+0
I
+&
G*
J
)
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
SJÓSÓKN er nú með minnsta móti. Í
gær voru innan við 200 skip og bátar á
sjó. Ákveðinn fjöldi stærri skipa, tog-
arar og uppsjávarveiðiskip, er alltaf á
sjó, 50 til 60 skip. Uppsjávarskipin
eru núna að veiða norsk-íslenzka síld
og ísfisktogarar og frystitogar á hefð-
bundnum veiðum.
Í góðu veðri er algengt að milli 400
og 500 skip og bátar séu á sjó en með-
alsjósókn er í kringum 300 skip og
bátar.
Mesta sjósókn um
800 skip og bátar
Mesta sjósókn undanfarin ár hefur
verið um 800 skip og bátar við fisk-
veiðar í einu. Það vekur athygli að í
gær var nánast engin sjósókn frá
Snæfellsnesi og Vestmannaeyjum.
Þessi staða er reyndar nokkuð árs-
tíðarbundin. Mjög langt er gengið á
kvóta og fiskvinnslan nánast alls stað-
ar í sumarfríi á þessum tíma. Það,
sem dregur í sjósókninni núna um-
fram undanfarin ár, er hin mikla
kvótaskerðing í þorski á næsta ári.
Hún leiðir meðal annars til þess að
menn munu flytja eins mikið af þorsk-
veiðiheimildum og unnt er af þessu
ári yfir á hið næsta til að draga úr hin-
um neikvæðu áhrifum skerðingarinn-
ar. Heimilt er að færa 20% aflaheim-
ilda í þorski yfir á næsta fiskveiðiár.
11% óveidd af þorskinum
Sé litið á stöðuna í helztu fiskiteg-
undunum eru 11% óveidd af þorsk-
kvótanum og um 24% eru eftir af ýs-
unni. Enn meira er eftir af
ufsakvótanum, en aðeins 13% af karf-
anum. Heimildir í löngu, keilu, stein-
bít, þykkvalúru, sumargotssíld og
humri hafa allar eða nánast allar verið
nýttar. Aðeins ríflega helmingur
veiðiheimilda í grálúðu hefur verið
nýttur og mjög lítið verið veitt af
sandkola og skrápflúru.
Þótt töluvert sé óveitt af ýsu og
ufsa má gera ráð fyrir að engar veiði-
heimildir þar falli niður ónýttar um
fiskveiðiáramótin fyrsta september
vegna heimilda til að færa kvóta milli
ára. Hins vegar er líklegt að grálúðu-
heimildir falli ónýttar niður.
Mjög fáir á sjó og
fiskvinnslan í fríi
Stykkishólmur | „Það hefur verið
mjög mikið að gera hjá okkur í sum-
ar við viðhald á skipum,“ segir Sæv-
ar Harðarson, framkvæmdastjóri
Skipavíkur. Við Skipavíkurbryggju
liggja 4 skip og í slipp eru 2 skip til
viðbótar sem eru í „klössun“ fyrir
komandi fiskveiðiár sem hefst eftir
um mánuð.
„Við tökum upp 35 skip á ári og
flest koma þau í maí, júní og júlí.
Þau koma um leið og kvóti þeirra er
búinn og áhafnirnar fara í frí. Við
sjáum um að mála skipin og einnig
fylgir þeim þó nokkur járnavinna,“
segir Sævar. Um 15–20 manns vinna
við dráttarbrautina yfir sumartím-
ann við málningarstörf og járna-
vinnu og hefur mannskapurinn nóg
að gera .
„Það er sameiginlegt með útgerð-
armönnum á Snæfellsnesi að þeir
hugsa vel um skip sín. Þeir koma
með skip sín til okkar árlega til við-
halds. Það er greinilegt metnaðar-
mál hjá þeim að skipin líti vel út og
að þau fái gott viðhald. Þetta eru öfl-
ugar útgerðir á Nesinu sem eru í
viðskiptum við okkur, sem gaman er
að þjóna. Þeir sem koma til okkar
með skipin sín hafa verið velviljaðir í
okkar garð alla tíð og leggja með því
sitt af mörkum til að við getum hald-
ið þessari þjónustu úti,“ segir Sæv-
ar.
„Stærstu verkefnin hjá slippdeild-
inni á þessu ári eru að lengja tvo
stálbáta, annar báturinn er búinn og
hinn er í breytingum og það verk
klárast fljótlega. Þá byggðum við
mikinn andveltitank í ferjuna Bald-
ur sem mér er sagt að hafi reynst
vel í siglingum ferjunnar yfir
Breiðafjörðinn,“ segir Sævar Harð-
arson að lokum.
Þeir hugsa vel um skipin
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Viðhald Nóg að gera í slippnum. Við bryggju liggja 4 skip sem verið er að gera fín fyrir veiðar á næsta kvótaári:
Helgi SH-135 úr Grundarfirði, Egill SH-195 úr Ólafsvík, Sveinbjörn Jakobsson SH 10 úr Ólafsvík og fjær er Sóley
SH-124 úr Grundarfirði