Morgunblaðið - 01.08.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2007 17
MENNING
ER FYRIRTÆKIÐ
ÞITT VAKTAÐ?
ER FYRIRTÆKIÐ
ÞITT VAKTAÐ?
FIRMAVÖRN SECURITAS
DAGNÝ Guðmundsdóttir opn-
ar á morgun kl. 17 myndlist-
arsýninguna Maður með
mönnum II í START ART á
Laugavegi 12b.
Sýningin er systursýning
Maður með mönnum í Edin-
borgarhúsinu á Ísafirði og sýn-
ir Dagný ljósmyndir og púða
með stæltum karlmönnum sem
takast á. Í frétt um sýninguna
spyr Dagný: „Hvað er að vera
maður með mönnum? Er það að hafa völd, áhrif
og kraft, vera fyrirferðarmikill og setja leikregl-
urnar? Og hvað gerir maður í því?“
Sýningin stendur til 30. ágúst.
Myndlist
Hvað er svona
merkilegt við það...
Maður með
mönnum
ÚT er komin hjá Bjarti bókin
Móðurlaus Brooklyn eftir
Jonathan Lethem. Eiríkur Örn
Norðdahl þýddi bókina sem
gefin er út í Neon-bókaflokkn-
um. Bókin er tilbrigði við hinn
klassíska reyfara og fékk afar
jákvæðar móttökur ytra, var
valin skáldsaga ársins af
Esquire, og unnið verðlaun
bandarískra bókmennta-
gagnrýnenda, Salon-bókmenntaverðlaunin og
Gold Dagger-verðlaunin. Edward Norton leik-
stýrir og fer með aðalhlutverk í kvikmynd byggðri
á sögunni, sem segir frá einkaspæjaranum Lionel
Essrog sem er með Tourette-heilkenni.
Bókmenntir
Lionel Essrog
spæjar á íslensku
Kápa bókarinnar
MARTEINN H. Friðriksson
hefur fengið söngkonuna Önnu
Siggu til liðs við sig á Hádeg-
istónleikum í Hallgrímskirkju
á morgun og flytja þau tvö org-
elverk og fimm sönglög. Tón-
leikarnir hefjast með „Toccata
Jubiloso“ eftir Tryggva M.
Baldursson sem Marteinn leik-
ur. Þá koma 5 sönglög. Það
fyrsta er „Festingin víða“ eftir
Alta Heimi Sveinsson, þá „Nú
legg ég augun aftur“ eftir Jón Þórarinsson,
„Schalfendes Jesuskind“ og „Gebet“ eftir Hugo
Wolf og svo „The Birds“ eftir Britten. Í lokin spil-
ar Marteinn „Kóral“ eftir César Franck.
Tónlist
Anna Sigga syngur
með Marteini
Anna Sigríður
Helgadóttir
BORGARSTJÓRN New York íhug-
ar nú að setja reglur um það að leyfi
þurfi fyrir því að ljósmynda eða
kvikmynda á götum borgarinnar.
Baráttuhópur kvikmyndagerðar-
manna og ljósmyndara, Picture New
York, hefur nú hrint af stað herferð
gegn þessum áformum borgaryfir-
valda, í formi stuttra kvikmynda og
ljósmynda, sem teknar voru í borg-
inni. Mótmælaspjöld hafa verið
útbúin sem eru nokkuð óvenjuleg í
útliti, eftirgerð af 16 mm Bolex-
kvikmyndavél, en Andy Warhol not-
aði meðal annars slíka vél við gerð
sinna kvikmynda.
Laura Hanna, sjálfstætt starfandi
heimildarmyndasmiður í New York,
segir í samtali við dagblaðið New
York Times að tíminn sé að renna út
hvað varðar mótmæli gegn þessari
fyrirhuguðu reglugerð. Enginn hafi
vitað af þessum áformum þar til fyr-
ir skömmu.
Reglugerðin kveður á um að vilji
tveir eða fleiri í einu kvikmynda á
götum borgarinnar, í hálftíma eða
lengur, verða þeir að fá leyfi frá
borginni og tryggingu upp á milljón
dollara. Það sama á við um hóp
manna, fimm eða fleiri, sem ætla að
nota þrífót á almenningssvæði í
meira en 10 mínútur. Þá er sá tími
talinn með sem tekur að stilla upp
þrífætinum og myndavélinni sem á
hann fer. Þessi leyfi yrðu mönnum
að kostnaðarlausu.
Embættismenn hjá borginni segj-
ast ætla að taka ákvörðun um hvað
skuli gera á föstudaginn, hvort taka
eigi upp reglurnar eins og þeim var
lýst hér að ofan eða íhuga betur
hvernig þessu skuli háttað.
Frekari upplýsingar um mótmæli
Picture New York er að finna á vef-
slóðinni www.pictureny.org.
Morgunblaðið/Einar Falur
Stóra eplið Horft austur yfir Man-
hattan og hluta Central Park.
Mótmæla
myndatöku-
reglum
Leyfi gæti þurft til
að mynda New York
TÖKUR standa
nú yfir á næstu
kvikmynd banda-
ríska leikstjórans
Woody Allen í
katalónsku borg-
inni Barcelona og
þykir Allen hafa
fengið fullhöfð-
inglegar mót-
tökur þar í borg.
Borgarstjórnin veitti verkefni Allen
milljón evrur í styrk. Katalónsk
dagblöð gagnrýna þennan fjár-
austur og spyrja hvers vegna borg-
arstjóri kjósi að verja almannafé í
kvikmynd Allen. Upphæðin nemur
um 10% framleiðslukostnaðar
myndarinnar. Við það bætist styrk-
ur frá Katalóníustjórn upp á um
hálfa milljón evra. Hluti göngugöt-
unnar frægu, Las Ramblas, hefur
verið stúkaður af fyrir tökuliðið,
leikstjórann og kvikmyndastjörn-
urnar Penélope Cruz, Javier Bar-
dem og Scarlett Johansson, á þeim
tíma árs þegar hvað flestir heim-
sækja borgina. Borgarstjóri Barce-
lona, segir myndina góða auglýs-
ingu.
Allen fær 1,5
milljón evra
Woody Allen
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Gallerí Ágúst, nýtt faglegtmyndlistagallerí í miðbæReykjavíkur, verður opn-að 11. ágúst næstkom-
andi. Það er Sigrún Sandra Ólafs-
dóttir sem stendur að rekstri
gallerísins sem mun leggja áherslu
á samtímamyndlist.
„Sýningarnar eiga að vera metn-
aðarfullar og fókusinn verður á það
sem er nýtt og ferskt. Aldur lista-
mannsins skiptir ekki máli en það
sem skiptir mig máli er að það sem
hann er að gera sé nýtt og maður
finni ástríðuna fyrir sköpuninni. Ég
mun ekki halda mig við ákveðinn
stíl enda finnst mér hættulegt að
ramma mig of þröngt inn til að
byrja með,“ segir Sigrún sem sér
pláss fyrir fleiri fagleg gallerí á Ís-
landi.
„I8 ruddi brautina í þessum efn-
um hér á landi og hefur unnið gott
og mikilvægt starf, en það þarf fleiri
slík gallerí á fleiri sviðum. Ég trúi
ekki öðru en að markaðurinn hérna,
þó hann sé lítill, þoli nokkur gallerí
sem eru pínulítið sérhæfð.“
Ekki búð
Sigrún fékk áhuga á galleríis-
rekstri þegar hún stundaði innan-
hússhönnunarnám á Ítalíu.
„Á Ítalíu bjó ég með stelpu sem á
frænda sem rekur mikilvægt gallerí
í Mexíkóborg, Galeria Enrique
Guerrero. Ég fór á listamessu í Tór-
ínó með henni og kynntist fleiri
galleríeigendum og þarna sá ég
hvernig þessi alþjóðlegi gallerí-
heimur virkar og fannst það mjög
áhugavert. Síðan þá hef ég haldið
tengslum við galleríið í Mexíkó og
verið dugleg við að fara út á stóru
listamessurnar og meðal annars
fengið að vinna við galleríið á þeim.
Ég hef sogað í mig þennan heim og
fyrir tveimur árum hóf ég síðan
nám í listfræði við Háskóla Ís-
lands.“
Fyrir ári fann Sigrún húsnæði
undir galleríið á horni Baldursgötu
og Nönnugötu sem hún hefur síðan
verið að gera upp. „Staðsetning
slíks gallerís þarf að vera góð en ég
hef hins vegar enga þörf fyrir að
vera á Laugaveginum því mínir við-
skiptavinir munu ekki mikið koma
inn af götunni, þetta er ekki búð.“
Með listrænt frelsi
Sigrún stefnir að því að hafa um
fimm til tíu listamenn á sínum
snærum til að byrja með.
„Ég ætla að vera með minn hóp
af listamönnum, lítinn en sterkan.
Sýningartímabilið hjá mér verður
sex vikur, það gerir ekki nema sjö
sýningar á ári, sem er mjög mátu-
legt fyrir svona gallerí,“ segir Sig-
rún sem stendur ein að galleríis-
rekstrinum. „Ég er ekki með fjár-
festa á bak við mig og mér finnst
gríðarlega mikilvægt að vera með
algjört listrænt frelsi.“
Stefna Sigrúnar er að vinna bæði
með innlendum og erlendum lista-
mönnum. „Ég ætla að vinna alþjóð-
lega. Ég verð ekki í því að flytja út
íslenska list, heldur er ég að byggja
brú þannig að það verði flæði í báð-
ar áttir. Ég á líka í umræðum við
erlend gallerí um samstarf og er
þegar komin í samband við gallerí í
Mexíkó, Kanada og Bretlandi og er
meðal annars að skipuleggja sam-
sýningu með einu þeirra og skipt-
isýningar með öðrum. Svo stefni ég
tvímælalaust að því að komast á
listamessur erlendis. Þetta gerist
samt ekki á einni nóttu.“
Spurð út í listræna stjórn gall-
erísins segir Sigrún að hún komi til
með að fara eftir sýningum. „Ég vel
listamennina, annars verður sam-
komulag í hvert skipti hvort sýning-
arstjóri komi hingað inn og setji
upp sýningu.“
Fyrsta sýningin í Galleríi Ágúst
nefnist Fenómena. Þar sýna lista-
konurnar Ásdís Sif Gunnarsdóttir
og Rakel Bernie. „Á eftir opnunar-
sýningunni verður Hulda Stefáns-
dóttir með ný verk sem hafa ekki
verið sýnd hér á landi áður. Sýning-
ardagskráin er bókuð fram á vor og
þar koma við sögu erlendir sem inn-
lendir listamenn. Gallerí Ágúst
verður síðan með dagskrá með
myndbandsverkum á Sequences-
listahátíðinni í október.“
Sigrún Sandra Ólafsdóttir opnar Gallerí Ágúst hinn 11. ágúst
Áhersla á samtímamyndlist
Morgunblaðið/ÞÖK
Í rýminu Sigrún Sandra Ólafsdóttir galleríseigandi fékk arkitekt til að hanna innviði Gallerís Ágústs og segist
vera einkar stolt af lýsingunni sem bjóði upp á marga möguleika. Galleríið er á horni Baldursgötu og Nönnugötu.
Faglegt mynd-
listargallerí
Í HNOTSKURN
» Gallerí Ágúst er nýtt mynd-listargallerí með áherslu á
samtímamyndlist.
» Fyrsta sýningin í GalleríiÁgúst verður opnuð 11.
ágúst. Þar sýna tvær listakonur
teikningar, ljósmyndir, mynd-
bandsverk og þrívíð verk.
» Afi Sigrúnar var KristjánFriðriksson í klæðagerðinni
Últímu, hann var mikill listunn-
andi og gaf meðal annars út
fyrstu listasögubókina á Íslandi,
Íslenzk myndlist, árið 1943.
♦♦♦