Morgunblaðið - 01.08.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2007 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað, kl. 13.30-16.30 handa-
vinna. Kl. 9-16.30 smíði/útskurður, kl. 9-10.30 sund-
ferð. Kl. 10-11.30 heilsugæsla. Kl. 10-16 púttvöllurinn.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðslustofa, almenn
handavinna, fótaaðgerðir, morgunkaffi og dagblöð,
hádegisverður, spiladagur, brids/vist, kaffi. Upplýs-
ingar í s. 535 2760.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gull-
smára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10-
11.30, s. 554 1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er
opin á miðvikudögum kl. 12-14, s. 554 3438. Fé-
lagsvist er spiluð í Gullsmára á mánudögum kl.
20.30, en í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og á
föstudögum kl. 20.30.
Félag eldri borgara í Kópavogi, ferðanefnd | Ferð
um Fjallabaksleið nyrðri og Lakagíga 10. og 11.
ágúst. Gist á Hótel Klaustri, Geirlandi. Dagur 1:
Landmannalaugar, Eldgjá, Skaftártunga að Geir-
landi. Dagur 2: Fjaðrárgljúfur, Fagrifoss og Lakagíg-
ar. Brottför frá Gullsmára kl. 8, frá Gjábakka kl. 8.15.
Listar og nánari upplýsingar í félagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-hrólfar
ganga frá Grasagarðinum í Laugardal kl. 10. Skrif-
Kl. 9-12 aðstoð við böðun. Kl. 10-12 sund. Kl. 11.45-
12.45 hádegisverður. Kl. 12.15-14 verslunarferð í
Bónus, Holtagörðum. Kl. 13-14 videó/spurt og spjall-
að. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Hallgrímskirkja | Morgunmessa alla miðvikudaga
kl. 8 árdegis. Íhugun, altarisganga. Einfaldur morg-
unverður í safnaðarsal eftir messuna.
Háteigskirkja |Sóknarnefnd Háteigskirkju boðar til
aukaaðalsafnaðarfundar þriðjudaginn 7. ágúst kl.
20. Sjá nánar á heimasíðu Háteigskirkju,
www.kirkja.is/hateigskirkja.
Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bænastund er á
miðvikudögum kl. 12. Matur í lok stundarinnar. Allir
eru velkomnir.
Kristniboðssalurinn | Kl. 20. „Fögnuður og gleði
skal fylgja þeim“. Ræðumaður er Benedikt Jason-
arson. Baldvin Steindórsson með „Mínar hugsanir“.
Kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir velkomnir.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr.
Örn Bárður Jónsson. Beðið er fyrir sjúkum og bág-
stöddum. Messan tekur um 20 mínútur. Hægt er að
koma fyrirbænarefnum til prestanna með tölvu-
pósti eða símtali.
stofa félagsins er lokuð til 7. ágúst vegna sumar-
leyfa.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin.
Hádegisverður kl. 11.40. Félagsvist kl. 13. Heitt á
könnunni og heimabakað til kl. 16. Bobb kl. 17.
Félagsheimilið í Gullsmára 13 | Kl. 10 vefnaður og
ganga. Kl. 11.40 hádegisverður. Kl. 13 brids, konur.
Munið púttmótið kl. 14.
Félagsstarfið í Lönguhlíð 3 | Handverks- og bóka-
stofa opin. Kl. 10 hjúkrunarfræðingur. Kl. 12 versl-
unarferð í Bónus. Kl. 14.30 kaffiveitingar.
Hittingur | Hópur fyrir ungmenni á aldrinum 16-30
ára. Hópurinn er fyrir þá sem eiga fáa vini og vilja
bæta úr því. Upplýsingar gefur Ingibjörg í síma
694 6281. Heimasíða: www.blog.central.is/
hittingur16-30. Netfang: hittingur@gmail.com.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er opið öllum. Kíktu
við í morgunkaffi og kynntu þér sumarstarfsemina.
Skráning í hópa, námskeið og frjálst starf hefst um
miðjan ágúst. Hugmyndabankinn opinn alla daga kl.
9-16. S. 568 3132, asdis.skuladottir@reykjavik.is.
Norðurbrún 1 | Í félagsmiðstöðinni á Norðurbrún 1
er spiluð félagsvist alla miðvikudaga kl. 14. Allir vel-
komnir.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir.
Gullbrúðkaup | Hjónin María Ein-
arsdóttir og Sölvi Ragnar Sigurðs-
son eiga 50 ára brúðkaupsafmæli
laugardaginn 4. ágúst nk. Af því til-
efni taka þau á móti gestum í sal
Þjóðdansafélags Reykjavíkur,
Álfabakka 14, föstudaginn 3. ágúst
frá kl. 17-20. Allir ættingjar og vin-
ir sem vilja gleðjast með þeim og
fjölskyldum þeirra af þessu tilefni
eru hjartanlega velkomnir.
Silfurbrúðkaup | Hinn 1. ágúst
1982 gengu þau Torfi G. Jónsson
og Bjarney E. Sigvaldadóttir í
hjónaband og nú eru liðin 25 ár og
viljum við óska þeim innilega til
hamingju með silfurbrúðkaupið.
Kveðjur frá börnum ykkar; Ás-
laugu, Jóhönnu, Önnu Maríu,
Ólöfu og Jóni Halldóri og barna-
börnum ykkar Agnesi Rut og
Emilíu Rós.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum
sínum að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og
mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í síma
569-1100, senda tilkynn-
ingu og mynd á netfangið
ritstjorn@mbl.is, eða
senda tilkynningu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja lið-
inn Senda inn efni". Einn-
ig er hægt að senda vél-
ritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 1. ágúst, 213. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Því að ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, að eigi verði það kunnugt og komi í ljós. (Lk.. 8, 17.)
Myndlist
Ráðhús Reykjavíkur | Reynir
Þorgrímsson opnar sýninguna
„Skartgripir fjallkonunnar“ kl. 14.
Sýningin stendur til 12. ágúst.
Fréttir og tilkynningar
GA-fundir (Gamblers Anonymo-
us) | Hrjáir spilafíkn eða aðstand-
endur þína? Fáðu hjálp. Hringdu í
síma 698-3888.
JEMENSK stúlka sýnir hefðbundinn búning á tískusýningu í hinni fornu höfuðborg Jem-
ens, Sanaa, en borgin sú þykir ein mesta perla Mið-Austurlanda og er talin hafa verið í
byggð í ein 2.500 ár. Borgin er í rúmlega 2.000 metra hæð, umlukin fjöllum.
Líf og fjör í Sanaa, höfuðborg Jemen
Jemensk stúlka klæðir sig upp
Reuters
FRÉTTIR
LANDSBANKINN hefur
hleypt af stokkunum nýrri fríð-
indasöfnun fyrir viðskiptavini
bankans. Markmiðið er að auka
ávinning viðskiptavina af notkun
kreditkorta og umbuna þeim
sem best fyrir viðskiptin, segir í
frétt frá bankanum.
Nýja fríðindasöfnunin byggist
á því að korthöfum er umbunað
með peningum eða svokölluðum
Aukakrónum. Hver Aukakróna
jafngildir krónu og því er einfalt
að átta sig á virði hennar. Við-
skiptavinir safna Aukakrónum
af innlendri veltu kreditkorts, af
viðskiptum við stóran hóp sam-
starfsaðila auk þess sem þeir fá
Aukakrónur fyrir að vera í virk-
um viðskiptum við bankann.
Hægt er að nota fjármunina hve-
nær sem er í viðskiptum við sam-
starfsaðila bankans að eigin vali.
Sem dæmi um söfnun Auka-
króna má nefna að viðskipta-
vinur með Gull Vörðuþjónustu
sem hefur um 150.000 kr. kred-
itkortaveltu á mánuði, þar af
þriðjung hjá samstarfsaðilum,
og nýtir sér ýmsa þjónustu
bankans að auki, safnar um
35.000 Aukakrónum á ári. Hægt
er að fylgjast með söfnun Auka-
króna í Einkabankanum og á
greiðslukortayfirliti hvers mán-
aðar.
Korthafar Landsbankans sem
skrá sig í Aukakrónusöfnun fá
sérstakt Aukakrónukort sem
virkar eins og rafrænt gjafakort
hjá öllum samstarfsaðilum.
Aukakrónur eru færðar inn á
kortið eftir þörfum með einfaldri
aðgerð í Einkabankanum eða
með símtali í þjónustuver
Landsbankans.
Ný fríðindasöfnun hjá
Landsbankanum
BOÐIÐ verður upp á skipulagða
dagskrá á Flúðum um verslunar-
mannahelgina.
Á laugardag veður traktors-
torfæra í Litlu-Laxá kl. 14 og græn-
metiskynning og markaður verður
við Félagsheimilið. Kl. 21 verða þar
tónleikar með Magga Eiríks og KK.
Dagskrá laugardags endar á varð-
eldi og söng í Torfdal kl. 23.15.
Á sunnudag kl. 14 sýnir leik-
félagið Lotta leikritið Dýrin í
Hálsaskógi á íþróttavellinum. Mið-
ar eru seldir á staðnum. Kl. 16 verð-
ur furðubátakeppnin í Litlu-Laxá.
Kl. 20 verður baðstofustemning í
Golfskálanum Snússu í Ásatúni.
Bjarni Harðarson, blaðamaður og
þingmaður, flytur þjóðlegan fróð-
leik og sögur. Kvæðamenn mæta á
svæðið og Druslukórinn tekur
nokkur lög.
Skipulögð dag-
skrá á Flúðum
Í VATNASKÓGI verður fjölbreytt dagskrá á Sæludögum um versl-
unarmannahelgina.
Við vatnið munu bátar af ýmsum gerðum standa öllum til boða
og þar fer vatnasportið fram. Kassabílar eru á staðnum ásamt
hoppkastala og leiktækjum. Á íþróttavellinum verður leikinn
knattspyrna og Sæludagaleikarnir fara fram með ýmsum hefð-
bundnum og óhefðbundnum íþróttum.
Í íþróttahúsinu fer fram söng- og hæfileikasýning barnanna, fjöl-
skylduguðsþjónusta með léttu sniði, unglingadansleikur og tón-
leikar með Pétri Ben og hljómsveit, Sigga Ingimars úr X-factor og
Góðu fréttunum. Þá verður risabingó í íþróttahúsinu og kvöldvök-
ur þar sem Björgvin Franz Gíslason og Jón Víðis töframaður koma
fram auk annarra.
Að venju verður líka margt í boði til að auðga andann. Bæna-
stundir verða í kapellu, lofgjörðarstund á sunnudagskvöldinu, fjöl-
skylduguðsþjónusta, gospelnámskeið undir stjórn Keith Reed og
fræðsluerindi á kaffihúsinu.
Góð tjaldstæði eru í Vatnaskógi og verslun, matsala og kaffihús
eru á staðnum.
Sæludagar í Vatnaskógi 2007
SKARPHÉÐINN Þórisson mun halda fyrirlestur um lifnaðarhætti
íslenskra hreindýra á Minjasafni Austurlands á Egilsstöðum í dag
kl. 17. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis.
Fyrirlestur um hreindýr
Söfn Reykjavíkurborgar hafa áfimmtudögum í sumar boðiðupp á fræðandi ferðir með leið-sögn um miðborg Reykjavík-
ur, undir yfirskriftinni Kvöldgöngur úr
Kvosinni.
Gangan annað kvöld er í boði Viðeyj-
arsafns í samstarfi við Draugagönguna
í Reykjavík: Drauga og hamfarasigling.
Jónas Fr. Þorsteinsson verður leið-
sögumaður í ferðinni: „Margt drauga-
legt hefur gerst undan ströndum
Reykjavíkur og rifjum við á siglingunni
upp þessa sögu Við siglum umhverfis
Viðey og rifjum upp frásagnir af kan-
adískum draugum sem sést hefur til
þar,“ segir Jónas. „Við viljum þó ekki
hræða gesti um of og er ferðin hugsuð
sem blanda af tónlist, fróðleik og
skemmtun.“
Draugagangan í Reykjavík hóf starf-
semi síðasta sumar og hefur notið mik-
illa vinsælda, en hófst sem tilraun lítils
hóps efahyggjumanna: „Við fengum
fjóra miðla; tvo erlendis frá og tvo ís-
lenska, til að leggja mat á draugagang í
borginni hvern í sínu lagi. Vildi þannig
til að miðlarnir voru að miklu leyti sam-
hljóma um það sem þeir urðu áskynja í
borginni, jafnvel niður í ítarleg smá-
atriði,“ segir Jónas. „Gönguna höfum
við byggt á rannsóknum á uppgötvun-
um miðlanna, með aðstoð Óla Kára
Ólafssonar sagnfræðings.“
Sigling fimmtudagsins byggist að
hluta á þessum rannsóknum: „Það var
einkum við fjöruborðið sem vart varð
við undarlega strauma, en fjöldinn allur
af íslenskum sjómönnum fyrr á tímum
fann hinstu hvílu í hinni votu gröf, við
höfum meðal annars rakið draugaginn á
sundunum til íslenskra, franskra,
kanadískra og færeyskra sjómanna,“
segir Jónas.
Hópurinn hittist kl. 20 fyrir framan
Borgarbókasafnið og verður þaðan
gengið út að báti. Áætlað er að siglingin
taki um hálfa aðra klukkustund. Ferju-
tollur er 1000 kr fyrir fullorðna en 500
fyrir börn.
Finna má nánari upplýsingar um
Kvosargöngudagskrá sumarsins á
heimasíðu Borgarbókasafnsins,
www.borgarbokasafn.is. Heimasíða
Draugagöngunnar í Reykjavík er
www.hauntediceland.com.
Saga | Draugasigling um Reykjavíkurhöfn og nágrenni á morgun kl. 20
Draugar á sundunum
Jónas Fr. Þor-
steinsson fæddist í
Höfnum á Reykja-
nesi 1965. Hann
lauk sveinsprófi í
málaraiðn frá IR,
sérmenntun í for-
vörslu gamalla
húsa í Danmörku
og lagði stund á
nám í heimspeki við Háskólann í
Ottawa. Jónas starfrækti í 13 ár ferða-
þjónustu og markaðsfyrirtækið In
Travel Scandinavia, og var yfirmaður
Travel Marketing Center í Kanada í 5
ár. Hann stofnaði Draugaferðir árið
2005. Eiginkona Jónasar er Helga
Bertelsen og eiga þau tvö börn.