Morgunblaðið - 01.08.2007, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Enski boltinn
JÆJA, nú fer sá enski að rúlla og nú
er hann kominn á fornar slóðir eða á
Sýn. Ég verð að segja alveg eins og
er að Skjárinn skilaði enska boltanum
næstum fullkomlega síðustu árin og
það verður vandséð hvort Sýn getur
gert betur í þessum efnum. En ef svo
verður verð ég auðvitað mjög þakk-
látur fyrir það. Eitt er það sem Skjár-
inn gerði svo vel, var það að birta
stöðu úr öðrum leikjum um leið og
meira að segja stöðu í leikjum neðri
deildanna. Þetta var mjög gott hjá
þeim því það gerir leikinn spennandi
að fá birta á skjánum stöðu mála í
leikjum sem eru á Lengjunni. Ég
ætla að biðja Sýn að hafa sama hátt-
inn á og birta stöðu mála í öðrum
leikjum, ekki segja stöðuna í leikj-
unum því fólk nær ekki alltaf öllu sem
er sagt, sérstaklega þegar nokkrir
eru komnir saman í spjall yfir bolt-
anum. Það væri líka mjög gott ef Sýn
myndi líka gera það sama með ís-
lenska boltann en því miður eru þeir
mjög tregir til þess, allavega hingað
til. Það eru til dæmis nokkrir leikir í
gangi þegar Sýn sýnir frá
Landsbankadeildinni en afar sjaldan
birtast tölur úr öðrum leikjum og ef
það er gert eru það yfirleitt lokatölur.
Sýnarmenn, takið Skjáinn til fyrir-
myndar í þessum efnum. Og Skjár-
inn, kærar þakkir fyrir frábæra þjón-
ustu undanfarin ár. Þetta var frábært
hjá ykkur.
Fótboltaunnandi.
Spurning
ER VERIÐ að spila með lögregluna?
Er verið að spila með fréttamenn?
Eða er verið að spila með almenning?
Er nema von að spurt sé eftir það
fréttagildi sem „meint“ kynferðis-
áreitni í öllum myndum virðist hafa.
Daglega dynja á landslýð fréttir af
einhverju slíku og virðast hafa for-
gang umfram aðrar fréttir. Þó tók
steininn úr í dag þegar fréttist að
karlmaður hefði fækkað fötum fyrir
framan tvær 16 ára stelpur. Hvað er
svona voðalegt við það? Vita þær ekki
hvernig karlmaður lítur út, eða á
kannski, sem eðlilegast væri, að vor-
kenna manninum? Ég spyr bara aft-
ur í fullri alvöru, hvern er verið að
spila með?
Lesandi.
Myndavél í Laugardalnum
SONY digital-myndavél tapaðist á
eða við bílastæðið við Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn síðastliðinn föstu-
dag. Skilvís finnandi er vinsamlegast
beðinn um að hafa samband, hvort
heldur sem vélin er heil, ástigin eða
yfirkeyrð, í s. 868-3695.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ER EKKI
MORGUNHANI
EN GOTT
FYRIR
MORGUNINN
HAM-
INGJA ER
MJÚKUR
HVOLPUR
HIN MIKLA ÓGN
UNDIRDJÚPANNA,
RISAKOLKRABBINN,
SYNDIR UM HAFSBOTNINN
UM LEIÐ OG HANN SÉR
ÓVININN NÁLGAST SPÝR
HANN ÚT BLEKI OG
FORÐAR SÉR SÍÐAN
KENNARI!
VEISTU HVAÐ
ER AÐ ÞÉR?!?
ÉG DREKK OF MIKIÐ,
BORÐA OF MIKIÐ,
SLÆST OF MIKIÐ OG KEM
ALLTAF OF SEINT HEIM
RÉTT!
ÉG SPARA TÍMA EF ÉG SÉ
BARA UM ÞETTA SJÁLFUR
JÆJA, ÉG ER
FARIN. REYNIÐ
AÐ VERA GÓÐIR
NÚNA
„NÚNA“
VAR AÐ
KLÁRAST
VAR MIKIÐ AF REGL-
UM Á ÞÍNU HEIMILI?
JÁ! FORELDARAR
MÍNIR ELSKUÐU AÐ
SETJA REGLUR UM
ALLT MÖGULEGT
ÉG VISSI EKKI
AÐ ÞÚ HEFÐIR
BÚIÐ Á
SVONA STRÖNGU
HEIMILI
ÉG
GERÐI ÞAÐ
EKKI
VARSTU EKKI AÐ
SEGJA AÐ ÞAÐ
HEFÐU VERIÐ SVO
MARGAR REGLUR?
JÚ, EN ÞAU
SKÖMMUÐU
MIG ALDREI EF
ÉG BRAUT ÞÆR
FRÁBÆRT!
ÉG ER AÐ ELTAST
VIÐ MANNINN
SEM ER MEÐ
BÚNINGINN
MINN...
OG KONAN
MÍN ER ÚTI AÐ
BORÐA MEÐ
KVIKMYNDA-
STJÖRNU
HVAÐ
Í... ER ÞETTA...
JARÐSKJÁLFTI?!?
dagbók|velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÞESSA skemmtilegu mynd tók ljósmyndari af dreng í Grundarfjarðarhöfn.
Kannski var hann að athuga hvort sjórinn væri kaldur.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Hitastigið athugað
Fréttir á SMS
Vorum að fá í sölu um 400 fm einbýlishús við Rauðagerði í Reykjavík. Hús-
ið sem er á pöllum skiptist m.a. í stofu, borðstofu, eldhús, 5 herbergi, tvö
baðherbergi og fleira. Í kjallara er stórt rými (ófrágengið að hluta til) sem bíð-
ur uppá mikla möguleika. Glæsilegar stofur með mikilli lofthæð. Arinn.
Gengið út í garð úr stofum. Mjög falleg gróin lóð. Verönd til suðurs.
Eftirsótt staðsetning.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Rauðagerði - glæsileg