Morgunblaðið - 01.08.2007, Side 36
Ef hann er saxaður
koma tárin; sann-
leikurinn birtist því aðeins
að hann sé flysjaður … 41
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
EIN besta hljómsveit íslenskrar popp- og rokk-
sögu, Hinn íslenski Þursaflokkur, undirbýr nú
endurkomu sína. Sveitin ætlar að halda stórtón-
leika í Laugardalshöllinni í febrúar á næsta ári og
mun þar njóta fulltingis CAPUT-hópsins. „Undir-
búningur fyrir tónleikana er rétt að hefjast,“ segir
Egill Ólafsson, forsprakki sveitarinnar.
Rekja má upphaf Þursaflokksins til ársins 1977
þegar Egill sagði skilið við Spilverk þjóðanna og
kallaði til liðs við sig þá Tómas Tómasson bassa-
leikara, Þórð Árnason gítarleikara, Ásgeir
Óskarsson trommuleikara og Rúnar Vilbergsson
fagottleikara. Síðar slóst Karl J. Sighvatsson
hljómborðsleikari í hópinn og Hinn íslenski
Þursaflokkur hélt sína fyrstu tónleika í febrúar
árið 1978. Tónleikarnir í Laugardalshöll munu því
marka 30 ára afmæli sveitarinnar. Þursaflokkur-
inn sendi frá sér þrjár hljóðversplötur og eina tón-
leikaplötu en lagði svo upp laupana árið 1983.
Þursarnir hafa lítið komið saman síðan þá en
spiluðu þó á frægum minningartónleikum um
Karl J. Sighvatsson, sem haldnir voru í Þjóðleik-
húsinu 4. júlí árið 1991, en Karl lést í bílslysi á
Hellisheiði 2. júní það sama ár.
Á tónleikunum í febrúar verður Þursaflokkur-
inn skipaður þeim Agli, Þórði, Ásgeiri, Tómasi og
Rúnari, en ekki er komið á hreint hver leikur á
hljómborðið í stað Karls. „Við erum enn að spá í
þann mann,“ segir Egill.
Vilja nota fleiri liti
„Þessi hugmynd, að setja þessi lög í þennan
búning, hefur verið lengi í deiglunni og kom raun-
ar upp löngu áður en það varð vinsælt að popp-
hljómsveitir færu að vinna með sinfóníuhljóm-
sveitum. Þessi hugmynd kom eiginlega strax upp
árið 1985, og þá að vinna með sinfóníuhljómsveit.
Það varð hins vegar ekki, en svo kom þetta aftur
upp núna,“ útskýrir Egill. „Eftir að hafa hugsað
málið og rætt þetta okkar á milli fannst okkur
snjallt að gera þetta með aðeins öðrum hætti og
vera ekki með sinfóníska hljómsveit heldur aðeins
minna batterí. Við viljum freista þess að nota fleiri
liti og þá kom CAPUT-hópurinn strax upp,“ segir
Egill, en Guðni Franzson verður stjórnandi á tón-
leikunum. „Svo höfum við fengið til samstarfs við
okkur nokkur af höfuðtónskáldum þjóðarinnar til
að vinna að útsetningum. Eitthvað gerum við
sjálfir en það er fengur af mönnum eins og Hauki
Tómassyni og Hróðmari Inga Sigurbjörnsyni til
að útsetja,“ segir Egill og bætir við að fleiri muni
líklega bætast í þann hóp.
Hvað lagaval á tónleikunum varðar segir Egill
að farið verði yfir sögu sveitarinnar. „Við ætlum
að fara yfir ferilinn og þetta verða tveir tímar af
músík,“ segir hann, en á lagalistanum verða lög á
borð við „Grafskrift“, „Vera mátt góður“, „Stóð-
um tvö í túni“, „Gegnum holt og hæðir“ og „Bún-
aðarbálkur“. „Svo mun Ríkarður Örn Pálsson
einnig skrifa litla svítu sem CAPUT mun flytja í
upphafi tónleikanna,“ segir Egill.
Tónleikarnir verða teknir upp og ekki er úti-
lokað að Þursaflokkurinn fari einnig í hljóðver af
þessu tilefni.
Aðspurður segir Egill þá félaga til í slaginn.
„Við erum búnir að koma saman einu sinni, ekki
til æfinga heldur til að ræða saman. Stemningin í
hópnum er mjög fín, þetta eru allt menn sem eru
vel á sig komnir og það þarf því ekkert að örvænta
hvað það varðar. En við þurfum auðvitað að taka
til hendinni því sumt af þessu höfum við ekki spil-
að síðan 1982.“
Þursarnir snúa aftur
Þursaflokkurinn Frá vinstri: Ásgeir Óskarsson, Þórður Árnason, Karl J. Sighvatsson, Tómas Tómasson, Egill Ólafsson og Rúnar Vilbergsson.
Þursaflokkurinn og CAPUT halda stórtónleika í Laugardalshöllinni í febrúar
kvikmyndarétt-
inn að Sjálfstæðu
fólki fyrir
nokkru.
„Það var ekki
bara til að geyma
hann, heldur til
að gera mynd,“
segir Snorri, og
bætir við að
myndin hafi ver-
ið nokkuð lengi í bígerð. „Það er þó
ekkert sem ég vil ræða um núna.“
Snorri segist lengi hafa vitað af til-
vist handritsins sem Bergman
skrifaði, en myndin verði þó ekki
byggð á því handriti. „Það er til
annað handrit að bókinni. Það er á
ensku og var skrifað af Ruth Pra-
wer Jhabvala,“ segir Snorri, en
Jhabvala er tvöfaldur Óskars-
verðlaunahafi sem skrifaði meðal
annars handrit að myndum á borð
við Howards End, A Room With A
View, The Remains of the Day og
Surviving Picasso.
Sex kvikmyndir hafa verið gerð-
ar eftir sögum Halldórs Laxness:
Salka Valka, Paradísarheimt,
Kristnihald undir jökli, Ungfrúin
góða og húsið, Brekkukotsannáll
og Atómstöðin.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
EINS og fram kom í Morgunblað-
inu í gær hafði sænski kvikmynda-
gerðarmaðurinn Ingmar Bergman
skrifað handrit að kvikmynd sem
byggt er á Sjálfstæðu fólki, bók
Halldórs Laxness. Guðný Halldórs-
dóttir, kvikmyndagerðarmaður og
dóttir skáldsins, segist alltaf hafa
vitað af tilvist þessa handrits en sér
hafi þó aldrei dottið í hug að gera
mynd eftir handritinu. Öðru máli
gegnir um Snorra Þórisson kvik-
myndaframleiðanda sem leigði
Sjálfstætt fólk í bígerð
Ungfrúin góða og húsið Ghita Nørby og Ragnhildur Gísladóttir í hlutverkum
sínum í kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur sem gerð var árið 1999.
Snorri Þórisson
Heyrst hefur að þessa dagana
séu í undirbúningi heljarinnar
Tom Waits „tribute“-tónleikar
sem reiknað er með að halda í Ís-
lensku óperunni í lok ágúst.
Nokkur nöfn hafa þegar verið
nefnd í þessu sambandi en líklegt
þykir að Pétur Ben, Daníel
Ágúst, Krummi úr Mínus, Sig-
tryggur Baldursson, Ólafur Darri
Ólafsson leikari og Björn Hlynur
Haraldsson leikari muni koma
fram og túlka þennan mikla
meistara. Búast má við því að enn
bætist í þennan hóp tónlistar-
manna og því greinilega til ein-
hvers að hlakka eftir Verslunar-
mannahelgi.
Tom Waits í Íslensku
óperunni í lok ágúst
Skemmtistaðurinn Café Oliver
verður um næstu helgi undir stjórn
nýs eiganda, Ragnars Ólafs Magn-
ússonar. Töluverður titringur var
meðal starfsfólks staðarins í síðustu
viku en flestir starfsmannanna lásu
um eigendaskiptin í fjölmiðlum og
bjuggust þá eðlilega við því að eitt-
hvað yrði hrist upp í starfsliðinu.
Almenn þjónustulund starfsmanna
hefur þó ekki staðið Oliver fyrir
þrifum hingað til og því ólíklegt að
miklar breytingar verði þar á. Hins
vegar mætti alveg hugsa dansgólfið
upp á nýtt og aðgengi að snyrtingu
sem er með allra undarlegasta
móti, þótt víða væri leitað.
Með nýjum mönnum
koma nýjar áherslur
Hljómsveitin Pornopop hyggur á
endurkomu með þrennum tónleik-
um í Reykjavík; á morgun á Babalú,
fimmtudag í Kaffi Hljómalind og
föstudag á Organ ásamt Esju og
The Way Down. Tilefnið er endur-
útgáfa plötunnar … and the slow
songs about the dead calm in your
arms í Bandaríkjunum og Evrópu.
Pornopop kemur aftur
saman í Reykjavík