Morgunblaðið - 01.08.2007, Side 40

Morgunblaðið - 01.08.2007, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á NANCY DREW kl. 3:40 - 5:50 - 8 -10:10 B.i.7.ára GEORGIA RULE kl. 5:30 - 8 -10:30 B.i.7.ára HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 - 10:10 B.i.10.ára HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 B.i.10.ára DIGITAL HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 LÚXUS VIP EVAN ALMIGHTY kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ BLIND DATING kl. 8 B.i.10.ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ OCEAN'S 13 kl. 10:10 B.i.7.ára / ÁLFABAKKA NANCY DREW kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 7 ára GEORGIA RULE kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára HARRY POTTER 5 kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 10 ára DIGITAL SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Evan hjálpi okkur WWW.SAMBIO.IS NANCY DREW YNGSTI OG KLÁRASTI EINKASPÆJARI HEIMS ER NÚ MÆTT Á HVÍTA TJALDIÐ BYGGT Á HINUM FRÁBÆRU NANCY DREW BÓKUM ÓVÆNTASTA STELPUMYND ÁRSINS! LITLIKRIKI 33 - MOSFELLSBÆ - 2 ÍBÚÐIR Opið hús í dag kl. 17-19 Stórglæsilegt og vandað, samtals 341,9 fm, tvílyft einbýlishús með tveimur samþykktum íbúðum í nýjast hverfi Mosfellsbæjar. Kjörið fyrir stórfjölskylduna. Tvær íbúðir - tvö veð - meiri fjármögnunarmöguleikar. Stórar svalir, mikið útsýni. Fullbúð að utan og vel rúmlega fokhelt að innan. Stærri íbúð: 247 fm. Minni íbúð: 60 fm. Bílskúr: 60 fm. Afhending: 15. ágúst. Sölumaður: Þórhallur, sími 896 8232. Verð 54,8 millj. Verið velkomin. ÞAÐ ER skammt stórra högga á milli í kvikmyndaheiminum. Eitt af stórmennum kvikmyndasögunnar, Ingmar Bergman, lést í fyrradag og tæpum sólarhring síðar lést ann- ar og ekki minni spámaður, Ítalinn Michaelangelo Antonioni. Antonioni lést á heimili sínu í Róm í hárri elli, 94 ára gamall. Antonioni fæddist í Ferrara á Ítalíu 1912 og gerði sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd 38 ára, Sögu af ástarsambandi(Cronaca di un amore). Hann hlaut þó ekki al- þjóðlega viðurkenningu fyrir verk sín fyrr en 1960, með kvikmyndinni L’Avventura, eða Ævintýrið. Antonioni var einn þeirra ítölsku leikstjóra sem sögðu skilið við ný- raunsæið sem einkennt hafði ítalska kvikmyndalist eftir lok seinni heimsstyrjaldar. Kvikmyndir hans þóttu „svalar“ og stílfærðar, sögupersónur oft utanveltu í sam- félaginu eða firrtar. Meðal þess sem einkenndi þær voru langar tökur og hægar, oft endurteknar, gjarnan með stuttum og hnitmið- uðum samræðum. Þekktasta, eða í það minnsta vin- sælasta, verk Antonioni, er líklega Blow-Up, spennumynd sem hann tók í Lundúnum árið 1966. Sú mynd var jafnframt hans fyrsta á ensku, en hann hafði fram að því aðeins gert ítalskar myndir. Í Blow-Up fóru Vanessa Redgrave og David Hemmings með aðal- hlutverk og segir sagan af ungum og kærulausum ljósmyndara sem uppgötvar einn daginn að hann virðist óafvitandi hafa tekið ljós- myndir af morði í almenningsgarði. Árið 1974 leikstýrði Antonioni Jack Nicholson í kvikmyndinni The Pas- senger, sem hét á ítölsku Profess- ione: Reporter, sem þykir einnig eitt af hans bestu verkum. Antonioni fékk heilablóðfall 1985 og leikstýrði sinni seinustu kvik- mynd úr hjólastól árið 1995. Sú hét Beyond the Clouds og naut hann aðstoðar leikstjórans Wim Wenders við gerð hennar. Ári síðar hlaut Antonioni viðurkenningu við af- hendingu Óskarsverðlaunanna fyrir framúrskarandi framlag til kvik- myndalistarinnar. Antonioni hlaut fjölda kvikmyndaverðlauna um æv- ina. Má þar nefna Gullpálmann í Cannes 1967 fyrir Blow-Up, Gull- björninn á kvikmyndahátíðinni í Berlín 1961 fyrir La Notte. Listinn yfir verðlaunin er of langur til að hægt sé að birta hann hér en þess má geta að Antonioni var til- nefndur fimm sinnum til verðlauna á Cannes-hátíðinni á árunum 1960 til 1982. Breski kvikmyndagagnrýnandinn Kim Newman sagði í samtali við breska ríkisútvarpið BBC í gær að bestu verk Antonioni hefðu fjallað um „hversu skelfilegt ítalskt sam- félag varð eftir seinni heimsstyrj- öldina,“ yfirborðsmennsku og ómerkilegheit nútímamannsins. Kvikmyndir hans væru afar fal- legar líkt og fólkið í þeim, leik- ararnir svo fagrir að áhorfendur vildu gjarnan hafa það jafnskítt og sögupersónurnar. Antonioni látinn Meistari Michelangelo Antonioni með Jack Nicholson í Los Angeles 1975. Nicholson lék í kvikmynd Antonioni, The Passenger. AP ÁSGRÍMUR Sverrisson kvik- myndagerðarmaður telur Anton- ioni hafa haft beinni áhrif á marga þekktustu kvikmyndagerð- armenn heims en Ingmar Berg- man, þótt báðir séu þeir risar evr- ópskrar kvikmyndagerðar. Áhrifa Antonioni gæti greinilega í verk- um bandarískra leikstjóra upp úr 1970, t.d. Francis Ford Coppola, Brian De Palma, Bob Rafaelson og á yngri leikstjóra á borð við Ste- ven Soderbergh. Ásgrímur segir stíl Antonioni hafa verið kaldhamraðan, fágaðan og seiðandi, og áhersla lögð á órætt andrúmsloft umfram skýra frásögn. Firring, tengslaleysi fólks og tómleiki hafi verið viðfangsefni mynda hans. „Fólk féll alveg í stafi yfir þessum stíl hans á sínum tíma,“ segir Ásgrímur. Hans uppá- halds Antonioni-mynd sé The Pas- senger frá 1975. Tómleiki og tengslaleysi UPP úr og í kringum heimstyrjöldina síðari kom upp ein merkilegasta kyn- slóð kvikmyndasögunnar á Ítalíu. Auk Antonioni má nefna Federico Fellini, guðföðurinn sjálfan, Vittorio de Sica sem gerði hina víðfrægu mynd um Reiðhjólaþjófinn (Ladri di biciclette), Roberto Rosselini (sem var öfundaður af flestum karl- mönnum þegar hann krækti í Ingrid Bergman), Luchino Visconti, Pier Paolo Pasolini og Sergio Leone, spa- gettíleikstjórann góða sem kom Clint Eastwood á kortið. Antonioni var síð- astur eftir af þessari merku kynslóð, en í kjölfarið voru líklega þeir Bern- ardo Bertolucci og Franco Zefirelli þekktastir ítalskra leikstjóra. Langlífasti leikstjórinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.