Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ SKIPULAGSMÁL „Fyrirhugað er að þarna verði svo- kölluð hafnsækin starfsemi. Á mannamáli þýðir það vöruhús. Stærsta byggingin sem gert er ráð fyrir á deiliskipulagi er 12 metra há og 30.000 fermetrar,“ segir Arna og bendir á að það sé jafn stórt og 5 fót- boltavellir. „Bæjaryfirvöld hafa sagt að þarna verði byggð einingahús og skemmur sem auðvelt er að taka niður. Þar með er væntanlega verið að gefa til kynna að þeir sem fá lóðir undir atvinnu- húsnæði geti, þegar fram í sækir, tek- ið atvinnuhúsnæðið niður, skipt land- inu upp og byggt fjölda íbúða. Þetta teljum við ákaflega varhugavert, enda ætti bæjarsjóður, þ.e. Kópa- vogsbúar, en ekki einkaaðilar og fjár- festar, að hagnast á verðmæti bygg- ingarréttarins á þessum lóðum, ef til kemur.“ Arna segir að fyrirhugað sé að at- vinnusvæðið við höfnina verði þrisvar sinnum stærra en það er núna. Hún óttast að yfirvöld geti ekki tryggt að umgengni fyrirtækja á hafnarsvæðinu verði betri hér eftir en hingað til, en flestum beri saman um að hafnarsvæðið sé með eindæmum sóðalegt og niðurnítt. Tvöföldun íbúafjölda Þriðja atriðið sem samtökin beita sér gegn er mikil fjölgun íbúa á Kárs- nesi. „Íbúar á Kársnesi eru nú um 4500 og íbúafjöldinn hefur verið svipaður í 20 ár, enda töldu menn nesið full- M argir Kópavogsbúar hafa orðið fyrir mikl- um vonbrigðum með framgöngu bæjaryf- irvalda í skipulags- málum á Kársnesinu. Íbúasamtökin Betri byggð á Kársnesi voru stofnuð því okkur fannst ekki tekið tillit til sjónarmiða íbúa. Samtökin hafa orðið farvegur fyrir þessi vonbrigði íbú- anna og baráttuvilja,“ segir Arna Harðardóttir formaður samtakanna. „Tilgangur Betri byggðar er að standa vörð um lífsgæði á Kársnesi. Markmiðin eru sem stendur tvö. Ann- ars vegar að yfirvöld í Kópavogsbæ falli frá hugmyndum um stórskipa- höfn og hafnsækna starfsemi á upp- fyllingu á Kársnesi og hins vegar frá áformum um stórfellda fjölgun íbúa vestast á Kársnesinu,“ segir Arna. Athugasemdir samtakanna skiptast í fjóra meginflokka. Enga stórskipahöfn „Í fyrsta lagi teljum við höfn alls ekki eiga heima í grónu íbúahverfi. Öll umferð tengd fyrirhugðri stór- skipahöfn yst á Kársnesinu færi í gegnum þröngar götur í íbúabyggð. Að mati skipulagsfræðinga sem við höfum ráðfært okkur við eru þessi áform út í hött,“ segir Arna. „Í nú- tímalegu skipulagi er leitast við að koma höfnum burt úr íbúahverfum. Hafnarmannvirki eru mörgum sinn- um stærri en áður var og umferð til hafna er í gríðarlega stórum bílum og gámaflutningavögnum. Þess vegna er reynt að hafa hafnir fjarri íbúabyggð. Í staðinn er leitast við að leyfa íbúum að njóta þess að búa við sjávar- síðuna.“ Arna segir að Kópavogshöfn hafi árum saman verið rekin með tapi og telur fátt benda til þess að það breyt- ist við stækkun. Miklum fjármunum sem verja þyrfti í uppbygginu væri því kastað á glæ. „Á kynningarfundi fyrir íbúa í des- ember var sagt að íbúar þyrftu ekki að hafa áhyggjur af miklum umsvif- um við höfnina því skipakomur yrðu takmarkaðar við 3-4 ferðir á mánuði. Við fáum ekki séð að það skapi full- nægjandi tekjugrundvöll fyrir höfn- ina og veltum því auk þess fyrir okk- ur hvernig bæjaryfirvöld ætla að tak- marka skipakomur. Hljóta þau ekki að reyna að fullnýta höfn sem hefur kostað offjár? Auk þess hafa hafnir móttökuskyldu samkvæmt hafnalög- um. Ætla bæjaryfirvöld að fara á svig við þau lög til að takmarka skipakom- ur?“ Arna fullyrðir að ekki sé þörf fyrir höfn í Kópavogi þar sem mjög góð hafnaraðstaða sé hjá nágrannasveit- arfélögum. „Höfn í Kópavogi gæti ekki staðist samanburð við hafnir í Hafnarfirði og hjá Faxaflóahöfnum,“ segir hún. „Og er þá ekki betur heima setið en af stað farið?“ Ekkert atvinnuhúsnæði Í annan stað eru samtökin andvíg því að atvinnusvæði verði byggt upp á landfyllingum á Kársnesinu. byggt. Á undanförnum árum hafa 2 reitir verið skipulagðir, annars vegar Kópavogstúnið, sem Ríkisspítalarnir áttu undir eigin starfsemi, og hins vegar var lóð undir bryggjuhverfi á norðanverðu nesinu búin til með landfyllingum. Við uppbyggingu þessara reita mun íbúum fjölga um 2500. Rammaskipulagi á hafnarsvæð- inu sem bærinn kynnti í desember myndu fylgja 2000 íbúar í ofanálag. Samtals yrðu íbúar á nesinu þá 9000 talsins, eða tvisvar sinnum fleiri en þeir eru nú. Það er jafnmikið og allir íbúar Garðabæjar,“ segir Arna. Hún segir að þetta myndi leiða til þess að álag á innviði bæjarins, t.d. leikskóla og grunnskóla, yrði mjög mikið. „Gert er ráð fyrir að bæta tveimur deildum við leikskóla sem fyrir er og byggja einn nýjan. Nem- endur á grunnskólaaldri sem við bæt- ast á að senda í Kársnesskóla. Nem- endur þar eru nú um 500, og eftir fyrirhugaða stækkun má gera ráð fyrir að þeir yrðu um 1000 talsins. Þar með yrði Kársnesskóli lang- stærsti skóli landsins. Þetta finnst okkur ekki boðlegt,“ útskýrir Arna. Hún segir að auk þessa fái hún og aðrir íbúar ekki séð að gert sé ráð fyrir verslun og þjónustu við íbúa í skipulagstillögum. „Okkur er sagt að landfyllingarnar séu gerðar til að hverfið verði sjálfbærara. Ef alla þjónustu skortir verða íbúar að keyra inn og út úr hverfinu til að sækja sér hana og þar með er öll sjálfbærni fyr- ir bí.“ Morgunblaðið/ÞÖK MISKLÍÐ Á KÁRSNESI Undanfarið hafa íbúar á Kársnesi í Kópavogi hver á fætur öðrum hengt upp mótmæla- borða við hús sín. Tilefni þessara mótmæla eru landfyllingar og áform um breytt skipulag á ysta hluta Kársnessins. Bæjaryfirvöld hafa kynnt rammaskipulag þar sem gert er ráð fyrir því að með landfylling- um verði búið til mikið nýtt land. Fyrirhugað er að byggja þar 845 íbúðir, stækka höfnina og byggja upp atvinnu- svæði. Talsmenn íbúa óttast að þessu fylgi grundvallarbreyting á lífsgæðum á Kársnesinu, en bæjaryfirvöld full- yrða að svo verði ekki. Eftir Oddnýju Helgadóttur oddnyh@mbl.is Ekki hugsað um íbúa sem fyrir eru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.