Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Laugavegi 170, 2. hæð Opið virka daga kl. 8-17 Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401 Hlíðarhjalli 41e - Kópavogi Opið hús í dag frá kl. 15-17 Falleg, 131,5 fm, eign með góðu útsýni. Þrjú rúmgóð svefnherbergi þar af hjónaherbergi með fataskáp og útgengt á austursvalir. Fallegur arinn í stofu, útgengt á suðursvalir. Eldhús með sérsmíðuðum innréttingum, granít í borðplötu. Stæði í lokaðri bílgeymslu. Verð 39,9 millj. 7594 Hjörtur og Svanhildur taka á móti gestum. Stórglæsilegt 206,3 fm endaraðhús þ.m.t. 19,4 fm bílskúr. Húsið stendur neðan götu. Húsið er allt hið glæsilegasta og var allt endurnýjað að innan fyrir u.þ.b. þremur árum og eru m.a. sérsmíðaðar innréttingar, Miele tæki, fjarstýrðar innbyggðar lýsingar, mustang flísar og olíuborið eikarparket á gólfum. U.þ.b. 100 fermetra suðurverönd með rásuðum harðvið. Eign í algjörum sérflokki. Verð 75 millj. Nánari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali í síma 861 8511. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. Fossvogur - stórglæsilegt endaraðhús SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. Nýlegt einlyft einbýlishús 144 fm með bílskúr sem breytt hefur verið í hesthús f/6 hesta með sérgerði. Einbýlishúsið er: Forstofa, 3 svefnherb., stofa/borðstofa, eldhús, baðherb., þvottahús. Húsið stendur á 1.930 fm fallegri lóð sem gefur mikla og skemmtilega möguleika s.s stækkun íbúðarhúss, nýtingu undir hesta o.fl. ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐI Í EIGN. Sveinn Eyland sölumaður Fasteign.is s: 6-900-820, veitir uppl. um eign. GRUNDARHVARF – HESTAÁHUGAMENN STÓR LÓÐ MEÐ MÖGULEIKA Fallegt einbýlishús á einni hæð með grónum garði og ca 300 fm verönd kringum hús. Á verönd er t.d heitur pottur góðir skjólveggir á nokkrum stöðum ásamt markísu. Húsið er 212,6 fm m/ bílskúr sem búið að innrétta sem herbergi með sérinngangi, góðum fataskápum og baðherbergi innaf með sturtu. Húsið er: Forstofa, gestabaðherb., herb.gangur, 5 svefnher- bergi (eitt sem áður var bílskúr), eldhús með góðu skápaplássi, stofa, borðstofa, sjónvarpsstofa, aðalbaðherbergi m/hornbaðkari og sturtuklefa, þvottahús og 2 geymslur. Hitalagnir í bílaplani og tröppum að inngangi. Verð: 110 millj. Sveinn Eyland sölumaður Fasteign.is s: 6-900-820, veitir uppl. um eign. GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á SELTJARNARNESI Til Leigu Lágmúli – Skrifstofur • Þriðja hæð 346 fm, sem er efsta hæð, vandaðar skrifstofur ásamt fundaraðstöðu og opnu rými. Hæðin er inndregin með góðum svölum. • Jarðhæð annarsvegar 250 fm og hinsvegar 162 fm. Skrifstofur og opið rými. • Sameiginlegt eldhús ásamt mötuneyti. Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Upplýsingar veita Bárður 588-4477 / 896-5221 og Heiðar 588-4477 / 693-3356 Glæsilegt húsnæði, mjög góð staðsetning. Óskað er eftir tilboði í leigu ÞAÐ hefur svo sannarlega vakið at- hygli mína, að þegar umræðan er sem háværust um áfengismál og þá hvað oftast um hátt áfengsverð hér á landi, að þá er sjaldan eða aldrei minnst á hinar óhjákvæmilegu afleiðingar sem ofneyzla áfengis hefur í för með, þær hræðilegu mannfórnir sem af henni leiða. Það er stundum eins og einhverjir óvitar skrifi hér um eða þá þeir hinir sömu séu haldnir slíkri áfengisást, að öll vitræn sjónarmið séu víðsfjarri. Mér þykir þetta miklu miður, því ég hef þá trú á fjölmiðlafólki yfirleitt að skrifum þeirra og máli öllu eigi að fylgja ákveðin ábyrgðartilfinning. Morgunblaðið má eiga hrós mitt fyrir marga góða umfjöllun og bein skrif og víðar má finna vitrænan sam- hljóm í allri umræðunni og jafnvel rætt við þá sem fást daglega við hinar hrika- legu afleiðingar eða þá einhverja þá sem þekkja grannt til þeirra og hafa kynnt sér hver reynsla annarra þjóða er í þess- um efnum. Hávær um- ræða um óheyrilegt áfengisgjald hljóðnaði reyndar þegar annars vegar voru sýndar bein- ar tölur sem afsönnuðu þetta og svo hins vegar tölur um ofurháa álagn- ingu veitingamanna sem sárast höfðu kvakað og kvartað yfir áfengisgjaldinu, enda hljóðnuðu rama- kvein þeirra eftir að þessar stað- reyndir voru í ljós leiddar, hagsmunir þeirra raunar augljósir öllum. Það er ekki nýtt að síkvartarar gráti hátt áfengisverð og beri þá gjarnan fyrir sig útlenda ferða- menn eins og það sé nú aðalkeppikefli þeirra að komast í ódýrara áfengi og þá eflaust sem allra mest af því. Ég segi nú bara: Þvílík endaleysa, eins og allir viti ekki að það er allt annað sem landið hefur upp á að bjóða sem þessir er- lendu gestir okkar eru að sækjast eftir. En af því að þessir síkvartarar eru gjarnan vitnandi í útlönd þá vildi svo illa til fyrir þá að beint í kjölfar kveinstafanna um áfengisverðið komu sláandi fregnir af frændum okkar Finnum. Og hvað skyldi svo vera að fregna af finnskum? Jú, þeir lækkuðu áfengisgjald fyrir nokkrum árum til að reyna að stemma stigu við áfeng- iskaupum landa sinna í nágrannaríkj- um. Og hvað gerðist? Áfengisneyzla stórjókst, áfengisvandamál hrönn- uðust upp sem aldrei fyrr og hvað gera Finnar nú? Jú, þeir ætla að stórhækka áfengisgjaldið til að reyna að sporna hér á móti. Og meira er að fregna af Finnlands- grund, enn skelfilegra og mættu áfengispostular hér gjarnan kynna sér, ef þeir þá eru ekki svo vímuháðir að ekkert slíkt hreyfi við samvizku þeirra. Það er nefnilega þannig að helzta dánarorsök hjá körlum þar í landi er af völdum ofneyzlu áfengis, hvorki meira né minna en um 10%, of- ar krabbameini og hjartasjúkdómum. Og því miður er það svo að ofneyzla áfengis er önnur helzta dánarorsök kvenna í Finnlandi. Þessar hræðilegu staðreyndir eiga að vera með í allri umræðu svo og að- vörunarorð þeirra sem fást við afleið- ingarnar svo sem glögglega kom fram í grein Ara Matthíassonar þegar síkv- artarar höfðu sem hæst. Og jafnframt eigum við að hafa í heiðri álit Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar sem segir að í allri áfengislöggjöf eigi menn að huga að aðgengi og áfengisverði sem helztu baráttutækjum opinberra aðila til að sporna við ofneyzlu áfengis. Við eigum ævinlega að horfa til heild- armyndarinnar, fólk á ekki að láta blindast af ofdýrkun á glansmyndinni eða hlusta á hagsmunaaðila sérdrægn- innar, heldur líta til allra átta, ekki sízt til afleiðinganna dýrkeyptu, þar sem mannfórnir blasa því miður hvarvetna við. Og lítum nú um stund til frænd- þjóðar okkar Finna þegar síkvartarar hafa hæst og drögum þar af nokkurn lærdóm, því reynslan er nú einu sinni ólygnust. Horft til heildarmyndar Helgi Seljan skrifar um áfeng- ismál og reynslu Finna af lækk- un áfengisgjalds » Það er ekki nýtt aðsíkvartarar gráti hátt áfengisverð og beri þá gjarnan fyrir sig út- lenda ferðamenn. Helgi Seljan Höfundur er formaður fjölmiðlanefndar IOGT. smáauglýsingar mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.