Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÁBYRG framganga F-listans í
borgarstjórn varðandi varðveislu
eldri húsa í borginni síðastliðin ár
hefur vakið jákvæða athygli.
Frá upphafi hefur
það verið á okkar
stefnuskrá að 19. aldar
götumynd Laugaveg-
arins verði varðveitt.
Við höfum því margoft
mótmælt stórtækum
áformum um niðurrif
gamalla húsa við
Laugaveg. Ekki
heyrðist þá rödd í
borgarstjórn nema hjá
okkar fólki um að fara
bæri varlega í að rífa
gömul hús eða hús sem
hafa mikla þýðingu
fyrir menningarsögu borgarinnar.
Gröndalshús og Alliance-húsið
Við höfum lagst gegn því að hús
séu rifin upp með rótum og flutt á
safn ef unnt er að finna þeim veg-
legan sess í borginni. Það á m.a. við
um hús skáldsins Benedikts Grön-
dal – Gröndalshús, sem við viljum
að verði fundinn staður í Vesturbæ
eða miðborginni þar sem það getur
verið lifandi tákn um liðna tíma.
Einnig stóðum við vörð um Alli-
ance-húsið við Tryggvagötu, en því
máli lyktaði farsællega þannig að
það hús verður áfram verðugur
minnisvarði um atvinnusögu borg-
arinnar. Það verður jafnframt lif-
andi miðstöð nýrrar starfsemi í
borginni, því húsinu fylgir sú kvöð
að þar verði lista- og menning-
artengd starfsemi.
Aðrar byggingar
Við höfum líka barist
fyrir varðveislu ann-
arra bygginga sem
hafa menningar-
sögulegt gildi, þótt
ekki séu þær gamlar.
Þannig börðumst við
ein gegn fyrirhuguðu
niðurrifi Austurbæj-
arbíós og höfðum sigur
í því máli og einnig
lögðumst við ein gegn
sölu Heilsuvernd-
arstöðvarinnar í
stjórnartíð R-listans.
Við höfum ávallt varað við því að
of geyst væri farið í að heimila nið-
urrif húsa sem hafa ríkt menningar-
sögulegt gildi og birta okkur sögu
íslenskrar byggingalistar á ýmsum
tímaskeiðum. Við höfum einnig lagt
til að borgin styðji eigendur gamalla
húsa með einhverjum hætti til að
gera þeim betur kleift að halda
þeim við, enda viðhald eldri húsa oft
dýrt, en þau geta verið sannkallaðar
perlur í borginni sé þeim vel við
haldið.
Þá höfum við bent á mikilvægi
þess að viðhalda götumynd þar sem
hún er heildstæð og í því sambandi
lýst sérstökum áhyggjum af elstu
húsum við Laugaveg.
Húsin verða aldrei endurheimt
Nú hefur lokaákvörðun verið tek-
in um að húsin við Laugaveg 4-6
verði rifin og í stað þeirra byggt
steinsteypt hótel á lóðunum.
Þessi hús eiga sér merka sögu.
Húsið að Laugavegi 4 var byggt ár-
ið 1890 og var fyrsta húsið við
Laugaveg sem byggt var sem at-
vinnuhúsnæði. Húsið að Laugavegi
6 er ennþá eldra, frá árinu 1871, og
þar var Litla kaffihúsið lengi til
húsa, en mörg skáld voru fastagest-
ir á þeim stað.
Við hörmum þessa niðurstöðu.
Það er með ólíkindum að Reykjavík-
urborg skuli ekki sjá sóma sinn í að
þyrma þessum merku húsum heldur
ganga þvert gegn vilja Húsafrið-
unarnefndar og Borgarminjavernd-
ar. En þessu verður víst ekki breytt
héðan af. Því er óskandi að við
hönnun og byggingu nýja hússins
verði þó að minnsta kosti tekið tillit
til álitsgerðar sem rýnihópur vann
varðandi ytra útlit þess, svo það falli
betur að götumynd en mörg önnur
nýrri hús við Laugaveg gera.
Og að lokum: Það er vissulega
fagnaðarefni ef héðan í frá má
reikna með stuðningi Vinstri
grænna gegn niðurrifsáformum á
eldri húsum við Laugaveg – en það
er líka miður að í tilfelli húsanna við
Laugaveg 4-6 skuli sá stuðningur
fyrst koma fram þegar það er um
seinan.
Því verður ekki bjargað sem búið
er að farga.
Eyðilegging við Laugaveg
Því verður ekki bjargað sem
búið er að farga segir
Margrét Sverrisdóttir um nið-
urrif húsa við Laugaveginn
» Það er með ólík-indum að Reykjavík-
urborg skuli ekki sjá
sóma sinn í að þyrma
þessum merku húsum.
Margrét Sverrisdóttir
Höfundur er starfandi
oddviti F-listans í borgarstjórn.
TIL LEIGU
Laugavegur 101
185 fm
Upplysingar
í síma 861 2319
Berist til Stína
MELABRAUT 15 - 170 SELTJ.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-17
Virkilega falleg og mikið endur-
nýjuð, 90 fm, 4ra herbergja mið-
hæð í þríbýlishúsi á sunnanverðu
Seltjarnarnesi. Eldhús með
fallegri innréttingu og borðkrók.
Stofan er björt með gluggum í
suður og austur. Borðstofan er
rúmgóð og opin inn í stofu
(auðvelt að breyta í svefnher-
bergi). Nýlega standsett baðher-
bergi. Gólfefni: Fallegt parket á
öllum gólfum nema baði, eldhúsi
og holi en þar eru flísar. Lóð er stór og nýleg hellulögn að framan. Að
sögn eiganda fylgir eigninni bílskúrsréttur. Verð 26,9 millj.
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali
Kristnibraut - 113 Reykjavík. Laus við
kaupsamning. Falleg 4ra herbergja, 110,3
fm, íbúð á efstu hæð með miklu útsýni. Sér-
merkt stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúð-
inni. Verð 29,3 millj.
Vildís tekur á móti þér og þínum.
Sími 695 1469.
OPIÐ HÚS FRÁ 14.00-15.00
KRISTNIBRAUT 31 - 113 RVK.
ÍBÚÐ 302
KIRKJUBREKKA
22 glæsileg raðhús og parhús á einni til tveim hæðum á Álftanesi
Bæjarhrauni 10 Hafnarfirði • sími 520 7500 • Fax 520 7501 • hraunhamar@hraunhamar.is • www.hraunhamar.is
Magnús Emilsson lögg. fasteignasali
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Stekkjarhvammur - Hf. - bílskúr
Nýkomin í einkasölu á þess-
um frábæra stað, skemmtileg
hæð og ris, samtals 156 fm,
auk bílskúrs. Fjögur góð
svefnherbergi, rúmgóð stofa,
nýlega standsett baðherbergi.
Snyrtileg og vel umgengin
eign á þessum vinsæla stað.
Verð 32 millj. no.120511-1
Um er að ræða fallega 3ja
herbergja 87 fm íbúð á 4.
hæð á þessum vinsæla stað
miðsvæðis í borginni. Góðar
suðursvalir. Úr íbúðinni er
fallegt útsýni. Verð 21,5
millj.
Gerið svo vel að líta við.
Sigurgeir og Rakel taka vel á móti ykkur.
FELLSMÚLI 18. 4. H.
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG
Á MILLI KL. 15 OG 18
Fréttir
í tölvupósti