Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 49
Orlofshús í landi Vaðlaborga
Til sölu glæsilegt orlofshús í landi
Vaðlaborga, rétt við Akureyri (5 mín.
akstur). Byggt 2005. Húsið er 85,4 fm,
m.a. með 3 góðum svefnherb. og öllum
nútímaþægindum. Gólf eru flísalögð.
Eikarinnréttingar. Falleg hönnun og glæsi-
legt útsýni yfir Eyjafjörð. Góður pallur og
heitur pottur. Allt innbú fylgir. Möguleiki á góðum leigutekjum.
Verð 34 milljónir. Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Austurvegi 6 • 800 Selfossi
Sími 482 4800 • Fax 482 4848
arborgir@arborgir.is
www.arborgir.is
Laugavegi 170, 2. hæð
Opið virka daga kl. 8-17
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401
Sjafnargata - 101 Reykjavík
Fallegt einbýli á stórri hornlóð. Húsið er tvær hæðir og kjall-
ari ásamt bílskúr. Viðbygging er teiknuð af Sigvalda Thordar-
son. Fallegur gróinn garður og er lóðin 741 fm. Einstakt tæki-
færi til að eignast einbýlishús við þessa fallegu götu.
Óskað er eftir tilboðum í eignina. Tilvnr. 7772.
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík,
sími 568 2444, fax 568 2446.
Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali.
Vorum að fá í einkasölu heila húseign í sérstaklega góðu
ástandi, stærð samtals 737 fm. Húsið er tvær jarðhæðir
og á neðri jarðhæð eru tvær sjálfstæðar einingar, 187 fm
og 133 fm. Efri hæðin er 320 fm að grunnfleti með þremur
um 5 metra háum innkeyrsludyrum og loftæð minnst um
6 m. Að auki er milliloft um 54 fm. Sérsnyrtingar og kaffi-
stofur eru í öllum einingunum. Þá er 43 fm steinsteypt hús
með innkeyrsludyrum á lóðinni. Lóð er aflokuð með hliði
og með steinsteyptu plani. Eignin er laus fljótlega og selst
í einu lagi. Uppl. veitir
ELDSHÖFÐI
ATVINNUHÚSNÆÐI
Fallegt einbýli á tveimur hæðum. Samtals er eignin í kringum 360 fm (en
samkv. FMR 257,9 fm). Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, 5 stofur, eld-
hús, tvö baðherbergi, gestasalerni o.fl. Tveir samliggjandi bílskúrar. Garður
í kringum húsið er fallegur. Falleg eign í Fossvogi
Nánari uppl. gefur Heiðar Birnir sölumaður í síma 824 9092.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Traðarland - Fossvogi
Vel staðsett, 155,6 fm, atvinnuhúsnæði í götuhæð. Rýmið er opið og er til-
búið til innréttinga. Alls eru þrír inngangar að rýminu. Húsnæðið býður upp
á mikla möguleika.
Nánari uppl. gefur Heiðar Birnir sölumaður í síma 824 9092.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Sólvallagata - laust strax
FRÁ því er að segja, að einhvern
tíma síðsumars 1991 hringir síminn
á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Það
var Einar Oddur. Var hann staddur
út við Kúlusjó ásamt vini sínum
Guðmundi J. Guðmundssyni verka-
lýðsforingja og jeppinn hans fór
ekki í gang. Við settum auðvitað
þann lagtæka mann, Hrein bónda á
Auðkúlu, í málið. Síðan var sest í
stofu á Hrafnseyri og farið yfir
sviðið.
Það hafði komið einhver andbyr í
þjóðarsáttarseglin og þess vegna
nauðsynlegt fyrir þá Vestfirðingana
að bera saman bækurnar í einrúmi.
Höfðu þeir valið Arnarfjörðinn til
þess, en þar lágu rætur Jakans.
Þessi áðurnefnda dagstund leið
alltof fljótt og gleymist ekki. Það
var í raun háskóli að fá að hlusta á
þessa menn tala saman og fá
kannski að skjóta inn einu og einu
orði. Hvorugur var langskólageng-
inn. Þeirra skóli var skóli lífsins.
Samt hefðu þeir getað verið pró-
fessorar við hvaða háskóla sem var.
Þeir voru með báða fætur á jörð-
inni og vissu hvað þeir sungu.
Þorðu að segja meiningu sína hver
sem í hlut átti. Kenning þeirra var
að íslenska þjóðin yrði að minnka
ruglið og bruðlið, ná jafnvægi í
byggð landsins. Hætta hinni stans-
lausu eyðslu. Veita lítilmagnanum
lið. Jafnrétti og réttlæti. Samlíðan
með Ástu Sóllilju í veröldinni.
Einar Oddur var útnesjamaður
að eigin sögn, hélt því á lofti og var
stoltur af. Jakinn var einnig af
þessum sama vestfirska meiði. Slík-
um fer nú ört fækkandi. Að-
alsmerki þessara manna var kraft-
ur og áræði, að ógleymdri
hjálpseminni. Manngildið metið í
dugnaði og ósérhlífni en ekki pen-
ingum eða veraldlegum hlutum.
Einar sagði eitt sinn þegar menn
einu sinni sem oftar
vildu eyða langt um
efni fram úr tómum
ríkiskassanum:
„Það er ekkert svo
áríðandi á Íslandi að
ekki megi fresta
því.“
Ekki kunnu allir
að meta slíka hrein-
skilni, þó undir niðri
viðurkenndu flestir
að hann hefði lög að
mæla þá sem oftar.
Það var ósjaldan
hlutskipti Einars Odds að vera
rödd hrópandans í eyðimörk alls-
nægtanna. Þegar hann setti undir
sig hausinn, ef svo mætti segja, og
tók til máls, þá hlustuðu menn.
Hann varaði þráfald-
lega við eyðsluseminni
og bruðlinu, þó oft væri
hann fyrstur til að
leggja hönd á plóg til
góðra verka.
Einar Oddur Krist-
jánsson skildi eftir sig
ákveðna arfleifð. Í
henni er meðal annars
fólgið þetta sem hér
hefur verið nefnt: Gæt-
um að okkur svo landið
sporðreisist ekki.
Leggjum fyrir til
mögru áranna. Látum ekki græðg-
ina stjórna okkur. Og umfram allt:
Verum góð hvert við annað.
Einar Oddur og arfleifð hans
Þeir hefðu getað verið prófess-
orar við háskóla segir Hall-
grímur Sveinsson um Einar
Odd og Guðmund Jaka
Hallgrímur Sveinsson
»Einar Oddur Krist-jánsson varaði þrá-
faldlega við eyðslusem-
inni og bruðlinu. Það er
hluti af arfleifð hins
kraftmikla útnesja-
manns.
Höfundur er bókaútgefandi og bóndi.