Morgunblaðið - 12.08.2007, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Stórglæsilegt, 167,2 fm, endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Húsið skipt-
ist m.a. í stofu, borðstofu og fjögur rúmgóð herbergi. Mikil lofthæð á efri
hæð hússins. Stórar flísalagðar svalir út af stofu. Húisð hefur allt verið
innréttað á vandaðan og smekklegan hátt. Innanhússarkitekt er Berglind
Berndsen. Verð 55,0 millj.
Nánari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir
fasteignasali í síma 861 8511.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Hólavað - Norðlingaholti
Jón Sigfús Sigurjónsson hdl. & löggiltur FFS
Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • Sími 566 8800
vidskiptahusid@vidskiptahusid.is • www.vidskiptahusid.is
Skrauthólar
116 Reykjavík
Vorum að fá í einkasölu fallegt einbýlishús
ásamt 16.312,5 fm gróinni eignarlóð við rætur
Esjunnar. Eignin skiptist í 3 svefnherbergi, 2
stofur auk borðstofu, tvö baðherbergi, vinnu-
herbergi, eldhús og geymslu í lofti. Flestar inn-
réttingar og gólfefni eru ný og mikið hefur ver-
ið lagt í að gera húsið upp. Útsýnið er stórkost-
legt. Verð 53,9 millj.
Heiðargerði
190 Vogar
Vorum að fá í einkasölu fallegt einbýlishús í
Vogum á Vatnsleysuströnd. Eignin skiptist í 2
svefnherbergi, stofu auk borðstofu, eldhús, bað-
herbergi, þvottahús, geymslu, sólstofu og bíl-
skúr innréttaðan sem vinnustofu. Garðurinn er í
algjörum sérflokki. Verð 34,8 millj.
Borgarhraun
810 Hveragerði
Höfum í einkasölu fallegt og mikið endurnýjað
einbýlishús í Hveragerði. Eignin skiptist í 3
svefnherbergi, stofu auk borðstofu, 2 baðher-
bergi, eldhús, þvottahús og tvöfaldan bílskúr.
Þetta er glæsileg eign sem mikið er búið að
gera fyrir. Verð 34,8 millj.
Vættaborgir
112 Grafarvogur
Höfum í einkasölu rúmgóða 4 herbergja íbúð á
rólegum og barnvænum stað í Grafarvogi. Eign-
in skiptist í 3 svefnherbergi, stofu, baðherbergi,
þvottahús og geymslu. Garður með einka-
afnotarétt fylgir íbúðinni. Stutt er í alla þjónustu
og bæði skóli og leikskóli eru í stuttu göngufæri
við íbúðina. Verð 27,7 millj.
Allar nánari upplýsingar veitir sölumaður fasteignasviðs Viðskiptahússins
Jón S. Sigurðsson í síma 566 8897/891 8803.
Hagaland - 270 Mosfellsbæ
Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Pétur Pétursson lögg. fasteignasali
Gullfalleg, 122 fm, efri sérhæð auk 31 fm bílskúrs í mjög fallegu
húsi á góðum stað í Mosfellsbæ. Í íbúð eru þrjú góð svefnher-
bergi, björt stofa með mikilli lofthæð. Stórar svalir með fallegu út-
sýni. Eldhús með hvítri U-laga innréttingu. Þvottahús með innrétt-
ingu. Fallegt baðherbergi. Góður garður. Verð 35,8 millj. 7797
,
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
Glæsileg, 117 fm, neðri hæð í virðulegu steinhúsi í miðbæ Reykjavíkur,
auk sérherbergis og geymslu í kjallara, alls 145,3 fm að stærð. Hæðin,
sem mikið hefur verið endurnýjuð skiptist í hol/gang, eldhús, stofur, þrjú
svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er sérherbergi, geymsla, sameig-
inlegt þvottahús og þurrkherbergi. Mikil lofthæð er í íbúðinni. V. 46,5 millj.
Opið hús í dag milli kl. 16:00 og 17:00.
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! –
Ránargata 22 – opið hús
www.heimili.is - Síðumúla 13
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Óska eftir einbýlishúsi í Fossvogi
Opið mán.-fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Mér hefur verið falið að leita fyrir fjársterkan aðila eftir
einbýlishúsi í Fossvogi. Húsið þarf að vera 240fm eða
stærra. Verðhugmynd frá 80-130milljónum fyrir réttu eign-
ina. Skipti á minna, fallegu raðhúsi í Fossvoginum eða bein
sala. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður á
skrifstofu Heimilis fasteignarsölu.
Ragnar Ingvarsson
Sölufulltrúi
Sími 530 6500
Gsm 699 0070
ragnar@heimili.is
ÉG ritaði grein í
Morgunblaðið 1. júní
2007 á afmælisdegi
Hafnarfjarðar-bæjar.
Í greininni fjallaði ég
um íbúakosningu í
Hafnarfirði um stækk-
un Álversins í
Straumsvík og það
hentistefnulýðræði sem þá var við-
haft. Grein mín fékk góðar og já-
kvæðar viðtökur. En sérstaka at-
hygli vakti hringing manns úr
Þjórsárdal. Hann var einn af þeim
stóra hópi sem dreifi-
bréfsfólkið taldi sig
vera að verja og hann
var að biðja mig um
ljósrit af bréfinu. Ég
lét í ljósi nokkur tor-
merki á því. Ég bið
þennan ágæta mann
afsökunar og nú hef
ég fengið nokkur ljós-
rit fyrir hann og fleiri
sem áhuga hafa á mál-
inu.
Við nánari athugun
er hér um merkilegt
skjal að ræða. Hvers vegna fékk
fólk sem verið var að vinna fyrir í
heimabyggð ekki ljósrit af dreifi-
bréfinu?
Ég fékk bréfið að austan í póst-
kassann minn með ávarpsorðunum:
„Kæri Hafnfirðingur.“ Ég sá ekki
merki þess að það hefði verið með-
höndlað í pósti, en yfirskriftin var:
„Bréf af bökkum Þjórsár.“
Þegar ég fékk dreifibréf þeirra
Þjórsárdalsmanna fannst mér sem
þar væri um að ræða gróft inngrip
og kosningamisferli sem ógilti með
öllu frjálsar kosningar í lýðræð-
isríki. Ég bjóst við miklum tíð-
indum en ekkert gerðist. Getur
hugsast að fólk hafi verið svo við-
utan að það hafi haft samvinnu um
að nota meint kosningamisferli til
að ná ásættanlegri niðurstöðu sem
er því svo mikils virði að það sé
fúst til að greiða Hafnfirðingum
það milljarðatjón sem þeir verða
fyrir og axla jafnframt ábyrgð á at-
vinnumissi og tekjuskerðingu fjölda
Hafnfirðinga?
Bæjarstjóri ætti nú þegar að
ganga frá milljarðakröfum bæj-
arins svo að hann glati ekki vöxtum
eða öðrum réttindum því bærinn
hefur enga heimild til að styrkja
önnur sveitarfélög með fjármunum
bæjarbúa.
Það hlýtur að vera til fólk jafnvel
í báðum þessum byggðarlögum
sem veit sannleikann. Því er skylt
að skýra satt og rétt frá og verja
þannig heiður byggðarlaganna sem
er í veði.
Mér sýnist að hindrun á stækkun
álversins sé stærri efnahags-
ákvörðun en samdráttur fiskikvót-
ans. En fólk áttar sig ekki á því
fyrr tekjumissir gerir vart við sig
og fasteignir í Hafnarfirði falla svo
í verði að þær standa ekki undir
áhvílandi skuldum. Þá munu tekjur
bæjarsjóðs dragast svo saman að
eðlileg og lögbundin þjónusta og
uppbygging verður í uppnámi.
Er það ásættanlegt að stjórn-
valdsaðgerðir í heimabyggð ógni
afkomuöryggi íbúanna?
Fólk vænti stækkunar álversins í
Straumsvík. Dýrt húsnæði var
byggt og bærinn rakaði saman
miklu fé vegna lóðamála. Þegar það
er búið er hætt við stækkunina og
íbúðaverð með því lækkað til fram-
búðar. Þetta er einsdæmi í hundrað
ára sögu Hafnarfjarðar. Einhver
mundi tala um fjármálablekkingar.
Mikill fjöldi Hafnfirðinga situr
uppi með háar skuldir og varanlega
verðlækkaðar fasteignir. Það er
meira en flestir þola.
Bærinn, sem á illhreyfanlegan
skuldabagga langt aftur í tímann
miðað við hin stærri sveitarfélög,
hafnar glæsilegasta atvinnutæki-
færi í 100 ár til fullnægja þeirri
löngun sinni að dæma stóran hluta
bæjarbúa útlægan úr sínu eigin
sveitarfélagi. Trúlega hafa þeir ver-
ið með afrekaglýju og undir áhrif-
um útlegðar Gunnars á Hlíðarenda.
Komi sannleikurinn ekki í ljós
varðandi framangreindar vanga-
veltur eru ekki aðrir kostir í stöð-
unni en að víkja málinu til kjör-
stjórnar er bar ábyrgð á
íbúakosningunni.
Útlegðardómur
Páll V. Daníelsson
skrifar um afleið-
ingar álverskosn-
inganna í Hafn-
arfirði
»Dýrt húsnæði varbyggt og bærinn
rakaði saman miklu fé
vegna lóðamála. Þegar
það er búið er hætt við
stækkunina og íbúða-
verð með því lækkað til
frambúðar.
Páll V. Daníelsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
smáauglýsingar
mbl.is