Morgunblaðið - 12.08.2007, Page 33

Morgunblaðið - 12.08.2007, Page 33
Sumaropnun: Opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-15. Síðumúla 3, sími 553 7355 Útsala 30-60% afsláttur sýni nálægt norðurskautinu. Ísinn, ef hann finnst, getur gefið mjög miklar og mikilvægar upplýsingar. Í fyrsta lagi um hvort þarna sé góður sýna- tökustaður og í öðru lagi hvort að bakteríur eða ummerki eftir bakt- eríur sé að finna í ísnum.“ - Hvað myndi það þýða ef það finn- ast bakteríur? „Þá væri heill heimur framundan í vísindarannsóknum því líkt og grjótið þá myndu sömu víddirnar opnast hér. Möguleikarnir á að skoða og bera saman upphaf lífs, þróun og endalok á þessum tveimur plánetum með meiri nákvæmni en hingað til hefur verið hægt myndu aukast gífurlega. Við gætum fengið innsýn í þróun lífs í annarri plánetu í alheiminum.“ Geta gefið vitneskju um loftslagsbreytingar - Geta rannsóknir sem þessar hjálpað okkur að fá vitneskju um loftslagsbreytingar á jörðinni? „Þær geta það, já. Vísindamenn og veðurfræðingar nota líkön af lofthjúpi jarðar í rannsóknum sínum og áætl- unum af loftlagsbreytingum. Það eru fjölmargt sem hefur áhrif á hegðun lofthjúpsins og veðurfarslegar breyt- ingar. Það geta verið þúsundir atriða og því miður höfum við takmarkaða vitneskju um hvað skiptir nákvæm- lega meginmáli. Þegar vitneskjan er ófullkomin verða líkönin það líka. Ef við getum nálgast upplýsingar um það sem gerst hefur í fortíðinni, hvort sem það er fyrir eða á jarðsögulegum tíma, hjálpar það okkur að sannprófa þau líkön sem við höfum smíðað af veðurfarslegum ferlum og loftslags- breytingum nú. Vitað er að á norður- hveli Mars er ís í yfirborðslaginu, síf- reri, og ætlunin er að lenda á svæði þar sem vitað er að upp undir helm- ingurinn af jarðveginum er ís. Þess mun verða freistað að láta vélmenni, sem stýrt er frá jörðu, grafa niður á þennan ís og með hátæknigeimvísind- um fara rannsóknir á sýnunum fram í geimfarinu Phoenix á Mars. Sýnin munu aldrei koma til jarðarinnar. Markmiðið er að greina lagskiptingu jarðvegsins, tímasetja jarðlögin og þar með tímasögu Mars auk ýmissa annarra kemískra rannsókna.“ Mælir vindinn á Mars Haraldur hefur sérstakan áhuga á hversu vindasamt er á Mars enda hefur hann lagt dag við nótt að hanna ásamt teymi sínu við Háskólann í Ár- ósum sérstakan vindmæli á Phoenix- farið, sem nú er í loftinu. Hann á að fanga hvert einasta vindstig á Mars. „Hópurinn sem stendur að Phoe- nix-geimfarinu er að miklu leyti sá hópur sem ég starfaði með að Path- finder-geimfarinu, og þegar þá vant- aði mann sem gæti tekið yfir vind- mælingarnar á Phoenix leituðu þeir til mín. Ég fékk sem sagt það verk- efni.“ Það tók Harald og um 10 hönn- uði, vísindamenn og smiði tvö ár að búa til hinn einfalda vindhraðamæli. „Já, þetta lítur út fyrir að vera ein- falt en er það auðvitað ekki. Að- stæður á yfirborði Mars eru auðvitað allt aðrar en á yfirborði jarðar. Á jörðinni er loftþrýstingur um 1000 mb en á Mars er hann 7 mb. Háskól- inn í Árósum hafði smíðað vindgöng, þar sem líkt var eftir aðstæðunum á Mars og þannig gátum við prófað okkur áfram.“ - Hverjar voru helstu hindr- anirnar? „Aðalvandamálið var skortur á loftatómum, til að fá virka hlutann á vindmælinum til að hreyfast undir kringumstæðum á Mars. Þegar við fengum verkefnið á sínum tíma, hóf- umst við handa við að prófa okkur áfram í vindgöngunum á Árósum. Á þessum tíma gekk vinnan mest út á að föndra, prófa eitthvað og verða ör- lítið vitrari. Nota það svo til að bæta eitthvað við föndrið eða föndra eitt- hvað nýtt og prófa aftur.“ Vindmælirinn var tilbúinn að mati teymisins vorið 2006 og NASA hafði samþykkt hönnunina. ,,Þá fóru fram prófanir í Kanada þar sem líkt var eftir hristingnum sem geimfarið þurfti að þola við geimskotið. Hér kom í ljós að tækið þoldi engan veg- inn hristinginn sem leiddi til þess að endurhanna þurfti alla hluta þess. Þetta var mjög lærdómsrík prófun, hristingurinn í geimskotinu og reynd- ar lendingunni er óhugnanlegur. Maður gerir sér ekki grein fyrir þeim kröftum sem eiga sér stað fyrr en maður sér þá.“ Kraftmikið geimskot Vísindamennirnir unnu að endur- hönnuninni í kappi við tímann „Nið- urstaðan varð sú að málmhlutar tæk- isins eru úr títan sem er nokkuð sterkara og léttara en stál en áskor- unin fólst í því að gera hreyfanlega hlutann á vindmælinum, pendúlinn, eins léttan og mögulegt er en hann vegur ekki nema 1/100 úr grammi. Þræðirnir eru úr sterku efni sem heitir Kevlar og eru m.a. notuð í skot- held vesti og neðst í þá er hengt rör sem er gert úr mjög þunnu plastefni sem heitir Kapton og er minna en hundraðasti hluti úr millimetra að stærð. Þetta hafðist að lokum og tæk- ið stóðst endurteknar prófanir í des- ember 2006 og situr núna á geim- farinu sem er í loftinu og lendir vonandi á Mars í maímánuði 2008 ef allt gengur að óskum.“ - Ætlarðu að halda upp á það þegar uppfinningin lendir á Mars? „Það verða engin meiriháttar veisluhöld. Veislan var núna í ágúst þegar geimfarinu var skotið af stað. Um leið og lendum byrjar vinnan, að sjá til þess að fá eins mikið út úr til- rauninni og mögulegt er. Þar má ekk- ert fara úrskeiðis. Um leið og fyrstu gögn berast þarf að finna leiðir til að fá sem mest út úr mælingunum. Við viljum gefa eins fljótt og auðið er upp- lýsingar um hinn daglega vindstraum við lendingarfarið til að finna megi réttan tíma dags til að grafa eftir sýn- um og setja þau í tilraunirnar á borð í farinu,“ segir Haraldur sem segja má að sé einn af fáum jarðarbúum sem vinni á Mars. Vinna sem honum þykir svo sannarlega ekki leiðinleg. www.marslab.dk phoneix.lpl.ari- zona.edu/ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 33 STÓRÚTSALA Laugavegi 63 • S: 551 4422 skoðið sýnishornin á www.laxdal.is Kvenlegar dragtir í úrvali i • : Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.