Morgunblaðið - 12.08.2007, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 12.08.2007, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 41 hæstaréttardómarans, sem að öðru leyti hefur skynsamlega afstöðu til þeirra mála sem hér eru til umræðu, ekki hyggileg. Stóra spurningin hlýtur að vera sú, hvort Alþingi sjálft eigi að koma hér við sögu eða sú þingnefnd, sem fjallar um málefni dómstólanna. Bandaríska fyrirkomulagið, þar sem tilnefndur dómari verður að svara spurningum þingnefndar er að mörgu leyti æskilegt. Á Alþingi Íslendinga sitja kjörnir fulltrúar þjóð- arinnar. Eitt af þeirra hlutverkum er að veita fram- kvæmdavaldinu aðhald enda sækir framkvæmda- valdið umboð sitt til Alþingis. Í þessu tilviki er um það að tefla að framkvæmdavaldið, í þessu tilviki dómsmálaráðherra, fái aðhald við skipan manna í æðsta dómstól landsins. Í okkar kerfi yrði tæpast um það að ræða, að dómsmálaráðherra skipaði einn umsækjanda, sem síðan yrði að fá staðfestingu þingnefndar. Líklegra er að umsækjendur allir mundu koma fyrir þingnefnd, sem síðan veitti um- sögn um þá. Með því fyrirkomulagi er umsagn- arhefðin til staðar en það eru ekki þeir, sem sjálfir eiga beinna hagsmuna að gæta, sem hafa umsagn- arréttinn. Ókosturinn við þetta kerfi er hins vegar sá, að það er hugsanlegt að meiri pólitík kæmist í spilið en ella. En á móti kemur að það er meira en hæpið, að ráðherra kæmist upp með beina misnotkun á skip- unarvaldi sínu. Það er t.d. erfitt að sjá fyrir sér að fulltrúar núverandi stjórnarflokka í viðkomandi þingnefnd mundu ná saman um einhverja þá um- sögn, sem mundi auðvelda ráðherra að fara að geð- þótta sínum. Breytinga er þörf Þ að er engin ein leið sem er augljós- lega bezta leiðin í þessum efnum en það er nokkuð ljóst að núverandi kerfi verður að breyta. Það gengur ekki lengur upp og Hæstiréttur sjálfur á sennilega mestan þátt í að opna augu manna fyrir því. Það gengur einfaldlega ekki að þeir dómarar sem fyrir eru hafi mikið um það að segja hver tekur við af þeim, í þeirra hópi, sem er að láta af störfum. Það má segja, að slíkt fyrirkomulagi tryggi ákveðna einsleitni í réttinum en er það æskilegt fyrir æðsta dómstól landsins? Við munum aldrei finna upp kerfi sem allir verða sáttir við. Við munum aldrei finna upp kerfi sem útilokar að deilur verði um skipan hæstaréttardómara. En við hljótum að leita að kerfi sem er heilbrigðara en það sem nú er til staðar. Nú er tímabært að taka þessi mál upp til umræðu að fenginni reynslu. Og væntanleg skipan dómara við Hæstarétt nú gefur tilefni til þess. Hið æskilega er að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra beiti sér fyrir lagabreytingu á þinginu í haust. Tillögur af hans hálfu mundu leiða til víðtækra umræðna á Al- þingi um þessi mál og þá kemur í ljós hvaða skoð- anir eru uppi á Alþingi og t.d. hvort þingmönnum hugnist það, að þingið sjálft verði það aðhald sem allir hljóta að vera sammála um að ráðherra verði að hafa í sambandi við skipan dómara í Hæstarétt. Eitt af því sem þingnefnd, sem kallaði umsækj- endur um stöðu dómara við Hæstarétt á sinn fund, mundi áreiðanlega spyrja um er grundvallaraf- staða umsækjanda til starfa dómarans. Túlkun meirihluta Hæstaréttar á núverandi ákvæði um umsagnarrétt dómaranna um nýja umsækjendur kallar á slíkar spurningar. Í lögunum frá 1998 segir að það eigi að leita umsagnar Hæstaréttar um hæfi og hæfni umsækjenda. Það stendur ekki að Hæsti- réttur eigi að segja hver sé hæfastur og af hverju. Þannig hefur meirihluti Hæstaréttar túlkað lög- in og augljóst, að það er ómögulegt að túlka þau á þann veg vegna þess að það stendur ekki í lögunum að þannig eigi Hæstiréttur að fara með umsagn- arvald sitt. Þingmenn mundu áreiðanlega spyrja umsækj- endur þessarar spurningar og margra fleiri, sem varða grundvallaratriði í störfum dómara við Hæstarétt Íslands. Það er kominn tími á þessar umræður og vonandi taka sem flestir þátt í þeim, bæði lögfræðingar og leikmenn. »En eftir stendur spurningin um það hvort Hæstiréttur eigiyfirleitt að hafa slíkan umsagnarrétt eða hvort það laga- ákvæði sé úrelt í þjóðfélagi samtímans. Morgunblaðið hallast að því að svo sé. Það er erfitt að finna nokkur rök fyrir því að Hæstiréttur hafi þennan umsagnarrétt. En rökin gegn þessu ákvæði blasa við. Hvaða vit er í því að einhver hópur manna geti ráðið miklu um það hvaða nýr aðili kemur inn í þann hópi? rbréf Morgunblaðið/Ómar Faxaflóasundið Fjórir sundmenn í boðsundinu frá Reykjavík til Akraness stinga sér til sunds frá Miðbakka í Reykjavíkurhöfn í blíðviðrinu í gærmorgun alls óhræddir við kaldan sjóinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.