Morgunblaðið - 12.08.2007, Side 54
54 SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
SÓLEYJARIMI 7, 5. HÆÐ - GLÆSILEG ÍBÚÐ
LANGHOLTSVEGUR HÆÐ+RIS
Falleg 154,9 fm(þ.a. er bílskúr 31,1 fm) hæð
+ ris. Eignin skiptist í 3 svefnh. 3 stofur, bað-
herb.,gestasnyrtingu, geymslur ofl. Bílskúr
er fullbúinn.Mjög falleg og vel skipulögð eign
í grónu og fallegu hvefi. V. 43,0 m. 6915
BÁRUGRANDI - LAUS STRAX
Mjög falleg og vel skipulögð 3ja herbergja
72,0 fm(þ.a. er óskráð ca 6 fm sér geymsla,
en íbúðin er skr. 66 fm hjá FMR) íbúð á jarð-
hæð í Vesturbænum í Reykjavík. Eignin
skiptist í forstofuhol, tvö svefnherbergi, eld-
hús og stofu.Mjög góð og falleg eign. V.
21,5 m. 6816
HRAUNBÆR-GOTT SKIPULAG
Mjög góð og vel skipulögð 2ja herb. 54,2
fm íbúð í kjallara. Eignin skiptist í hol, bað-
herbergi, stofu, eldhús, svefnherbergi, eld-
hús og sér geymslu.Stutt í alla þjónustu. V.
14,5 m. 6911
HAFNARBERG-ÞORLÁKSHÖFN
Mjög fallegt og vel skipulagt 114,2m2 par-
hús ásamt 36m2 bílskúr. Eignin skiptist í for-
stofu, tvö svefnherbergi, sjónvarpsstofu,
stofu og eldhús.Bílskúr er fullbúinn og inn-
byggður. Garðurinn í kringum húsið er fal-
legur.Falleg eign. Stutt í alla þjónustu. V.
23,6 m. 6912
HEILSÁRSHÚS Í SKORRADAL
Fallegur og nettur 43 fm bústaður á frábærum stað í landi Vatnsenda í Skorradal. Bú-
staðurinn er í Vatnsendahlíð og er neðan vegar. Ákaflega mikill og hávaxinn gróður er í
landinu og hefur bústaðnum við komið haganlega fyrir með miklu útsýni yfir vatnið. Bú-
staðurinn er með tvö svefnherbergi, svefnloft, wc, stofa, eldhús og mikill pallur er hring-
inn um húsið. Rennandi kalt vatn og gashitari fyrir heitt vatn. Lítill geymsluskúr fylgir á lóð-
inni. V. 11,9 m. 6884
ÖNDVERÐARNES - GLÆSILEG EIGN
Um 100 fm glæsilegt heilsárs sumarhús á frábærum stað hvar stutt er í alla þjónustu. Á
svæðinu er glæsilegur golfvöllur, sundlaug, fótboltavöllur ofl.Byggingu við húsið lauk
2005.Mikill íburður er í innréttingum, gólfefnum ofl.Glæsileg eign 40 mín frá Reykjavík.
6906
LAXAKVÍSL - ÚTSÝNI
Mjög góð 131,7 fm 5 herbergja íbúð á 2. hæð auk 25,7 fm bílskúrs. Íbúðin skiptist í 3 góð
svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, risloft og gott vinnuherbergi. Þvottahús innan
íbúðar. Mikið útsýni og tvennar svalir.Verð 36,9 millj.
STRANDVEGUR - M/ BÍLSKÝLI.
Glæsileg 118 fm íbúð á frábærum stað við Strandveg í Garðabæ. Bílastæði í bíla-
geymslu. Óhindrað sjávarútsýni yfir hraunið sem er friðað í dag. Um er að ræða lyftuhús.
Eignin skiptist m.a. í rúmgott hol, stofu, borðstofu og 2-3 herbergi. Þvottahús í íbúð.
Íbúðin er öll hin vandaðasta með fallegum gólfefnum, stórum gluggum og vönduðum
innréttingum. V. 44,9 m. 6784
RAUÐAGERÐI - MEÐ AUKAÍBÚÐ
Fallegt og vel staðsett einbýlishús með innréttaðri aukaíbúð á neðri hæð. Húsið skiptist í
forstofu og stigahol, forstofuherbergi, þvottaherbergi, eldhús, stofur, sjónvarpshol, fjögur
herbergi, baðherbergi og sólstofu. Á neðri hæðinni er bílskúr og innréttuð aukaíbúð með
sérinngangi, anddyri, stofu, eldhúsi, baðherbergi og svefnherbergi. Innangengt er í dag milli
íbúða. Falleg fasteign. Verð 89,5 millj.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Falleg og velskipulögð 3-4ra herbergja 105 fm íbúð í nýlegu lyftuhúsi ásamt stæði í bíla-
geymslu í húsi fyrir fyrir 50 ára og eldri. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, þvotta-
hús, baðherbergi, eldhús og stóra stofu. Stórar og skjólgóðar suðursvalir eru út af stofu.
Fallegt útsýni er úr íbúðinni. Íbúðin verður til sýnis í dag sunnudag frá 16-19 (Anna sýnir
íbúðina). V. 29,5 m. 6845
OPIÐ HÚS
Á ÞESSU ári á al-
þjóðamálið esperanto
120 ára afmæli. Esper-
anto fór af stað með
leiftursókn árið 1887 og
á millistríðsárunum eft-
ir 1918 leit út fyrir að
því myndi hlotnast við-
urkenning Þjóðabanda-
lagsins gamla, sem þá
var á hátindi ferils síns.
Þar var helstur bar-
áttumaður málsins yf-
irtúlkur Þjóðabanda-
lagsins,
Svisslendingurinn Ed-
mond Privat.
Neitunarvald Frakka
kom þá í veg fyrir fram-
gang málsins á þeim
vettvangi. Esperanto
hélt þó áfram sína leið,
enda hafa margir lagt
því lið og eflt það sem
hlutlaust samskiptamál á öllum svið-
um mannlegs lífs og hugsunar.
Fullyrða má, að málið hafi þróast
svo vel, að nú er það talið af þeim sem
best þekkja til jafnoki evrópsku þjóð-
tungnanna hvað varðar tjáning-
arhæfni.. Ekki er nákvæmlega vitað
um fjölda þeirra sem nú nota esper-
anto, þó má fullyrða að þeir séu ná-
lægt einni milljón, dreifðir um allan
heim.
Hérlendis kannast vissulega marg-
ir við nafnið „Esperanto“ og má það
að verulegu leyti rekja til skeleggrar
kynningarbaráttu Þórbergs Þórð-
arsonar á fyrri hluta síðustu aldar. Sú
þekking er þó sjaldan meiri en nafnið
eitt. Samt ætti það ekki að vera of-
vaxið nokkrum að kynna sér málið að
marki þar sem það er fljótlærðara en
önnur tungumál sökum einfaldrar og
skýrrar málfræði.
Orðstofnar eru að verulegu leyti
rómanskrar ættar og orðmyndun frjó
með viðskeytum og forskeytum. Fyr-
ir nokkrum áratugum var áhugi hér-
lendis þó allverulegur á esperanto. Sá
áhugi hefur dofnað svo mjög hin síð-
ari ár, að engu er líkara en reynt sé að
þegja málið niður. Þó ætti smáþjóð
eins og Íslendingum að vera það vel
ljóst, að samstaða um hlutlaust al-
þjóðlegt samskiptamál hlýtur sér-
staklega að vera í þágu þeirra sem
verða að búa við það að vera í minni-
máttarstöðu gagnvart þjóðtungum
stórþjóða.
Í meira en eina öld hafa jafnan
nokkrir virkir rithöfundar starfað að
bókmenntasköpun á esperanto. Af-
raksturinn er verulegur og ár hvert
birtast eftir þá tugir nýrra bóka á al-
þjóðamálinu víðs vegar um heim.
Meðal höfunda á esperanto má nefna
Íslendinginn Baldur Ragnarsson sem
í meira en hálfa öld hefur sent frá sér
bækur, bæði á esperanto og íslensku.
Meðal bóka hans á íslensku má nefna
uppflettiritið „Tungumál veraldar“
sem Háskólaútgáfan gaf út 1999. Þar
er getið og nokkuð lýst í stafrófsröð
95 málaflokkum og málaættum og
280 einstökum tungumálum, þar á
meðal esperanto. Síðasta bók Baldurs
á íslensku er kynningar- og fræðslu-
rit um esperanto: „Esperanto – al-
þjóðlegt samskiptamál“. Þar er ýt-
arlega fjallað um málið sjálft, sögu
þess og bókmenntir. Þá mun á þessu
ári koma út á Ítalíu heildarútgáfa á
ritverkum Baldurs frumsömdum á
esperanto, bæði ljóð og ritgerðir um
margvísleg efni. Baldur hefur líka
verið mikilvirkur þýðandi íslenskra
bókmennta á esperanto, má þar t.d.
nefna þýðingu hans á Njáls sögu sem
kom út fyrir fimm árum.
Um aldir var latína helsta sam-
skiptamál lærðra manna í Evrópu.
Esperanto hefur stundum verið nefnt
„latína lýðræðisins“. Segja má með
nokkrum rétti, að slík nafngift sé ekki
fjarri sanni. Esperanto hefur að
stofni til latneskan eða rómanskan
svip. Málið er hlutlaust, engrar þjóð-
ar eign. Og jafnframt er það vel á færi
hvers og eins að læra það fljótt og vel,
í þeim skilningi má líta á esperanto
sem lýðræðislegan arftaka latínunnar
á fyrri tíð.
Esperanto – latína lýðræðisins
Magnús Ásmunds-
son skrifar um
esperanto í tilefni af
120 ára afmæli
tungumálsins
»Esperanto hefurstundum verið nefnt
„latína lýðræðisins“.
Segja má með nokkrum
rétti, að slík nafngift sé
ekki fjarri sanni.
Magnús Ásmundsson
Höfundur er læknir.
mbl.is
smáauglýsingar