Morgunblaðið - 12.08.2007, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 61
kvaddi okkur sem fórum í sumarfrí
hress í bragði, eins og alltaf.
Leiðir okkar lágu saman á Matra,
Matvælarannsóknum Keldnaholti.
Hannes var forstöðumaður þessarar
sameiginlegu matvæladeildar tveggja
stofnana, Iðntæknistofnunar og
Landbúnaðarháskóla Íslands. Matra
var merkileg tilraun sem stóð fyrir
sínu þar til umfangsmeiri sameining
varð að veruleika. Hannes stóð í eld-
línunni þar sem kröfurnar voru mikl-
ar og ólíkir þættir komu saman. Þar
naut hann þess að hafa starfað fyrir
þær megingreinar atvinnulífsins sem
tengjast matvælaiðnaði, sjávarútveg
og landbúnað, og var flestum hnútum
kunnugur. Í öllum þessum störfum
gafst hann aldrei upp þótt á móti
blési.
Það er mikil eftirsjá að Hannesi,
hans var mikil þörf í matvælarann-
sóknum og við munum sakna þess að
eiga hann ekki lengur að. Við viljum
þakka fyrir vináttu, ánægjulegan og
lærdómsríkan tíma á Matra og braut-
ryðjandastarfið sem Hannes vann.
Það eru margir sem njóta þessa nú.
Gott er að eiga góðs að minnast.
Samstarfsfólk á Matra.
Hvernig á að minnast manns sem
fellur frá löngu fyrir tímann? Maður
sem er í blóma lífsins. Haustið 1971
eða fyrir 36 árum hittist tólf manna
hópur til að hefja nám í efnafræði við
Háskóla Íslands. Í þessum hóp var
Hannes. Þetta var annað árið sem
efnafræði var kennd við HÍ í sérstakri
námsbraut og var eftirvæntingin mik-
il í hópnum að takast á við nýtt nám.
Hannes átti ríkan þátt í því og lyfti
upp stemningunni ef á móti blés með
frásagnarhæfileikum sínum. Hópur-
inn var samheldinn og námið sóttist
vel. Hannes var mjög félagslyndur og
gott að hafa hann í nálægð sinni, hann
var sannkallaður félagi félaga sinna. Á
síðasta árinu í náminu við HÍ var hóp-
urinn orðinn eins og stór systkinahóp-
ur og allir voru samtaka í að gera
námið áhugavert og undirbúa hvert
annað undir lífið. Við höfðum þá tvær
kennslustofur út af fyrir okkur í nýrri
byggingu við HÍ, VR-I, og var hóp-
urinn þar öllum stundum. Þar var
margt bruggað sem tekur of langan
tíma að rifja upp en ljúft er að minnast
þessara ára með Hannesi.
Að námi loknu tvístraðist hópurinn
og margir fóru til Lundar í framhalds-
nám og var Hannes einn af þeim. Að
loknu námi þar í matvælaverkfræði
fluttist Hannes heim aftur og var eitt
af hans fyrstu verkefnum að koma að
uppbyggingu matvælafræði við Há-
skóla Íslands. Nokkru síðar fór hann
til frekara framhaldsnáms í Banda-
ríkjunum þar sem hann lauk doktors-
prófi.
Eftir að flestir okkar komu til baka
úr framhaldsnámi tók hópurinn að
hittast af og til og Hannes lét sig aldr-
ei vanta í þann félagsskap og var þar
hrókur alls fagnaðar.
Að leiðarlokum er okkur efst í huga
söknuður og þakklæti fyrir áratuga
vináttu, drengskap og samskipti sem
aldrei bar skugga á. Hannes var
traustur félagi, hreinn og beinn og frá
honum stafaði mikilli innri hlýju.
Hann kom til dyranna nákvæmlega
eins og hann var klæddur og tjáði
skoðanir sínar umbúðalaust. Það voru
mikil forréttindi að kynnast honum í
námi, starfi og félagslífi.
Við vottum Soffíu, börnum og
barnabörnum, vinum og vandamönn-
um dýpstu samúð okkar á þessari
sorgarstund. Minning okkar um góð-
an dreng mun lifa.
Útskrifaðir efnafræðingar
frá HÍ 1973-74
og fjölskyldur þeirra.
Eins og þruma úr heiðskíru lofti
bárust þær fréttir að kær vinur okkar
Hannes Hafsteinsson væri látinn.
Þessi harmafregn barst okkur þegar
ég var á ársþingi matvælafræðinga í
Bandaríkjunum. Þetta var þingið okk-
ar Hannesar og hann hefði átt að vera
staddur þarna með mér. Við Hannes
höfum verið starfsfélagar í um 30 ár
og þó við höfum aldrei starfað fyrir
sama aðila þá tengdumst við faglega
og í gegnum mörg verkefni sem við
höfum unnið saman. Vináttan var þó
langt út fyrir þessi faglegu tengsl en
fjölskyldurnar okkar tengdust sterk-
um böndum strax við fyrstu kynni.
Hugurinn leitar ósjálfrátt til
Bandaríkjanna þar sem við vorum
samtímis við framhaldsnám og þó að
við stunduðum ekki nám við sama
skóla né á sama stað þá tengdumst
við og fjölskyldur okkar órjúfanleg-
um böndum á þessum tíma. Margar
voru ferðirnar sem við komum til
Íþöku og dvöldum hjá ykkur Soffíu,
slegið var upp veislu þar sem allir Ís-
lendingarnir komu saman og glatt var
á hjalla. Farið var í stuttar ferðir í ná-
grenninu og enn eigum við steina með
steingervinga sem við tíndum í einni
slíkri ferð. Eins komuð þið til okkar
þar sem við bjuggum í New Jersey,
stundum voru Kalli og Gussa með í
för og ekki dró það úr fjörinu. Það
sem batt okkur saman voru sameig-
inleg áhugamál, svipaður starfsvett-
vangur og lífsskoðanir. Einhvern veg-
inn var lífið áhyggjuminna og virtist
óendanlegt, við vorum enn í skóla, þó
það héti framhaldsnám og alvara lífs-
ins ekki tekin við. Þessi ár liðu ótrú-
lega hratt.
Eftir að við fluttum heim aftur
héldust vináttuböndin og mikill sam-
gangur var á milli fjölskyldnanna
fyrstu árin og var ýmislegt brallað,
staðið í sláturgerð og öðru slíku.
Ávallt var Hannes hrókur alls fagn-
aðar en hann var mikill húmoristi og
hafði lag á að sjá björtu hliðarnar á
flestum málum. Hannes hafði sér-
stakan hlátur sem smitaði hratt út frá
sér. Þó að samgangurinn hafi minnk-
að á síðustu árum vegna mikilla anna
hjá okkur öllum þá hafa vináttubönd-
in aldrei dofnað. Undanfarin ár hafa
samskiptin oftar en ekki verið í gegn-
um síma og oftast hafa það verið mjög
löng símtöl. Alltaf stóð til að taka upp
þráðinn aftur þegar aðeins hægði á en
til stóð að gera svo ótalmargt saman.
Einhvern veginn hvarflaði það ekki
að okkur að tíminn yrði tekinn frá
okkur svo skyndilega.
Við eru forsjóninni afar þakklát
fyrir að hafa fengið að eiga Hannes að
vini. Elsku Soffía, Nína, Maggi, Krist-
ín, Hafsteinn og Sigga, megi guð gefa
ykkur styrk á þessum erfiða tíma.
Kristberg og Guðrún.
Elsku afi okkar, við söknum þín
rosalega mikið, við hlökkum til að
hitta þig aftur. Við vitum að þú ert hjá
okkur núna og við erum glöð að þú
kvaldist ekki. Takk fyrir að vera besti
afi í heimi, takk fyrir að leyfa okkur
alltaf að gista hjá þér, takk fyrir að
vera fyndinn og skemmtilegur og
reyna alltaf að fá okkur til að hlæja og
brosa. Vildum að þú værir með
gemsann á þig eða með netfangið
hannes@himnariki.is en við notum
bænina í staðinn til að hafa samband
við þig.
Guð gefi okkur æðruleysi
til að sætta okkur við það
sem við fáum ekki breytt,
kjark til að breyta því
sem við getum breytt
og vit til að greina þar á milli.
Við skulum alltaf reyna að vera
dugleg og góð hvert við annað og við
munum alltaf muna það hversu góður
afi þú varst. Passaðu pláss í himnaríki
fyrir okkur.
Guð geymi þig.
Barnabörnin,
Jakob Ingi, Melkorka María,
Katrín, Victor Kári, Kristófer
Tómas, Þórey Sesselja.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐBJARGAR ÓSKAR GUNNARSDÓTTUR,
Stararima 55,
Reykjavík.
Hafsteinn Bergmann Sigurðsson,
Gunnar Ragnar Hjartarson, Þorbjörg Guðmundsdóttir,
Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir, Jón Emil Svanbergsson,
Þorsteinn Óskar Þorsteinsson, María Kuzmenko,
Hafþór Hafsteinsson, Hjördís Líney Pétursdóttir,
Íris Mjöll Hafsteinsdóttir, Ríkarður Sigmundsson
og barnabörn.
✝
Eilífðarþakkir til þeirra fjölmörgu sem studdu mig og son minn,
TÓMAS BJÖRNSSON,
í veikindum hans.
Einnig þakka ég fjölskyldu fyrir stuðning eftir andlát hans.
Guð blessi ykkur kæru vinir,
Sigríður Björnsdóttir,
Guðrún Pétursdóttir,
Dagný, Pétur, Helga og Björn Björnsbörn,
makar og aðrir ættingjar.
✝
Innilegar þakkir færum við þeim fjölmörgu sem
hafa sýnt okkur samúð, hlýhug og stuðning við
fráfall og jarðarför okkar hjartkæra,
EINARS ODDS KRISTJÁNSSONAR
alþingismanns,
Sólbakka, Flateyri,
og heiðrað minningu hans á margvíslegan hátt.
Sigrún Gerða Gísladóttir,
Brynhildur Einarsdóttir, Illugi Gunnarsson,
Kristján Torfi Einarsson, Dagný Arnalds,
Einar Arnalds Kristjánsson,
Teitur Björn Einarsson,
Jóhanna G. Kristjánsdóttir,
Kristján Erlingsson,
Vigdís Erlingsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við
fráfall,
SIGURÐAR GUÐNA BJÖRNSSONAR
frá Viðey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 13E á
Landspítalanum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Randíður Vigfúsdóttir.
✝
Innilegar þakkir færum þeim fjölmörgu sem sýnt
hafa okkur samúð, hlýhug og stuðning við fráfall
og útför okkar ástkæra,
BJÖRNS GUÐMUNDSSONAR
og hafa heiðrað minningu hans á margvíslegan
hátt.
Hjördís Þorgeirsdóttir,
Ásbjörn Björnsson, Kristín Guðnadóttir,
Guðmundur Björnsson, Helga Ólafsdóttir,
Hulda Björnsdóttir, Helmut Maier
og afabörn.
✝
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
SKÍRNIS JÓNSSONAR
bónda á Skarði,
er andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri,
mánudaginn 23. júli.
Hjördís Sigurbjörnsdóttir,
Sigurbjörn Ingi Skírnisson, Kristín Tryggvadóttir,
Jón Bragi Skírnisson, Sigurbjörg Helga Pétursdóttir,
Jóhann Skírnisson, Freydís Ágústa Halldórsdóttir,
Bessi Skírnisson, Eiríksína Þorsteinsdóttir,
Hannes Trausti Skírnisson, Katrín Eymundsdóttir,
Skafti Skírnisson, Kristbjörg Lilja Jóhannesdóttir,
Sigrún Skírnisdóttir
Sigurlaug Skírnisdóttir, Víðir Ársælsson,
Guðrún Elfa Skírnisdóttir, Kjartan Guðmundsson,
Hjördís Sunna Skírnisdóttir, Magnús Þór Helgason,
Brynjólfur Gunnarsson, Anna Birna Sæmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar
og móður,
MATTHILDAR ÞORKELS MATTHÍASDÓTTUR.
Guðmundur Guðmundsson (Muggur),
Guðlaugur Guðmundsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma
GUÐRÚN ALBERTSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 1 a,
verður jarðsungin frá
Digraneskirkju mánudaginn 13. ágúst kl. 15:00.
Anna Rögnvaldsdóttir
Þórdís Rögnvaldsdóttir , Páll Níels Þorsteinsson,
Gunnar Albert Rögnvaldsson, Sigrún Þormar Guttormsdóttir,
og fjöldkyldur.