Morgunblaðið - 14.08.2007, Síða 1

Morgunblaðið - 14.08.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 219. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is 20 ÁRA AFMÆLI! VEISLA ALLA VIKUNA ÓLÍKT ÖLLU ÖÐRU ALEX JAMES, BASSALEIKARI BLUR, MEÐ KAFLA UM ÍSLAND Í SJÁLFSÆVISÖGU SINNI >> 36 ÍÞRÓTT Í LEIT AÐ ÞÁTTTAKENDUM LACROSSE TÓMSTUNDIR >> 20 FRÉTTASKÝRING Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is STEFÁN Eiríksson, lögreglustjóri á höfuð- borgarsvæðinu, segir að meta beri níu ára reynslu af löngum afgreiðslutíma skemmti- staða í miðborginni og breyta honum, ef matið leiði í ljós, að of langt hafi verið gengið í þessu efni. Ekki eru mörg ár síðan skemmtistöðum borgarinnar var gert að loka ekki síðar en klukkan 3 á laugardags- og sunnudags- morgnum, en í júlí 1999 var veitingastöðum í borginni heimilað í tilraunaskyni að hafa op- ið allan sólarhringinn. Tilraunin heppnaðist ekki vel að öllu leyti. Tæplega tveimur árum síðar kom fram í umsögn lögreglunnar í Reykjavík til borgarstjórnar að skyn- samlegt væri að takmarka á ný opnunartíma vínveitingastaða í borginni og miða við að þeim yrði ekki lokað síðar en klukkan 5 um helgar en gestum gefinn kostur á að yfirgefa viðkomandi stað á næstu klukkustund eftir lokun. Einnig var ítrekuð sú skoðun lögregl- unnar að mikilvægt væri að halda skemmti- stöðum fjarri íbúðabyggð. Vakin var athygli á því að verkefnum lögreglu hefði fjölgað umtalsvert á þeim stöðum sem hefðu heim- ild til rýmri opnunartíma, erfiðleikar hefðu skapast við hreinsunarstörf í miðbænum og verslunarfólk hafi orðið fyrir auknu ónæði við opnun verslana í miðbænum um helgar. Samt sem áður var bent á að tilraunin hefði að mestu leyst áberandi vandamál lögreglu fyrir hana, það er hópamyndun ölvaðra ein- staklinga og flutning fólks frá skemmtistöð- um. Vandamálin enn til staðar Opnunartíminn var styttur á ný en vanda- málin eru enn til staðar. Gera má því skóna að ástæðan sé fyrst og fremst vegna fólks- fjölgunar á höfuðborgarsvæðinu og mikillar fjölgunar skemmti- og veitingastaða í mið- borginni. Geir Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn segir að stærsta vandamálið um árabil hafi verið hópamyndun barna og unglinga í miðbænum en það sé ekki lengur fyrir hendi enda hafi verið tekið á því með skipulögðum hætti. Árni Björnsson, eigandi Players í Kópa- vogi og Thorvaldsen Bar í Austurstræti, segir að ástandið í miðbænum sé svipað og þegar hann hóf rekstur Rauða ljónsins á Sel- tjarnarnesi bjórdaginn 1. mars 1989. Lok- unartíminn er misjafn en talsmenn skemmtistaða eru sammála um að sýnileg löggæsla sé mikilvægust til að sporna við vanda miðborgarinnar um helgar. | 6 Opið of lengi? Skemmtistaðir miðborg- arinnar í brennidepli HERÆFINGAR standa yfir í dag og á morgun hérlendis und- ir nafninu Norðurvíkingur 2007. Þetta er fyrsta heræfingin sem byggist á varnarsam- komulagi Íslendinga og Banda- ríkjamanna frá síðasta hausti, en ætlunin er að halda slíkar æf- ingar á hverju ári héðan í frá. Loftvarnir Íslands verða æfðar í samvinnu ratsjármiðstöðvar og Landhelgisgæslu við áhafnir herflugvéla frá Noregi, Banda- ríkjunum og Atlantshafs- bandalaginu og danska varð- skipið Triton. Annar hluti æfingarinnar miðast við varnir gegn hermdar- og hryðjuverk- um. Í þeim hluta taka 15 íslensk- ir sérsveitarmenn þátt, ásamt 50 öðrum sérsveitarmönnum frá Danmörku, Noregi og Lett- landi. Yfirmaður flughers Banda- ríkjanna í Evrópu segir hið ís- lenska ratsjáreftirlit mikilvægt fyrir Atlantshafsbandalagið og vill rækja skyldur sínar sam- kvæmt varnarsamningnum frá árinu 1951. | Miðopna Norðurvíkingur 2007 fer fram í lofti, á láði og legi Morgunblaðið/ÞÖK Þotur Um þrjú hundruð manns, þrettán flugvélar og þyrlur og eitt varðskip taka þátt í heræfingunni sem fram fer nú á Íslandi. Sýnilegar landvarnir á nýjum forsendum Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is SKRÁÐ atvinnuleysi í júlí sl. var 0,9% og lækk- aði úr 1% í júní og 1,1% í maí. Er þetta minnsta atvinnuleysi í einstökum mánuði síðan í október árið 2000. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar. Þrátt fyrir að atvinnuleysi mælist í sögulegu lágmarki eru atvinnurekendur býsna bjartsýnir á að takast muni að manna lausar stöður með haustinu. Samkvæmt upplýsingum blaðamanns er mikil hreyfing á vinnumarkaði, sem skýrist annars vegar af árstímanum, en margir hugsa sér til hreyfings með haustinu, og hins vegar af þenslunni á vinnumarkaði. Að sögn Kolbeins Pálssonar, framkvæmda- stjóra Job.is, má ljóst vera að mikil spurn verði eftir starfskröftum í tiltekin störf á næstu vik- um. Segir hann þannig sárlega vanta starfsfólk í ýmiss konar þjónustu- og umönnunarstörf, hvort heldur er á spítölum eða skólum. Einnig vanti talsvert af starfsfólki í verslanir, á veit- ingastaði og hótel. Svanur Valgeirsson, starfs- mannastjóri Bónuss, segir laus störf hjá fyr- irtækinu nú teljandi á fingrum annarrar handar, en alls eru um 400 stöðugildi hjá fyr- irtækinu. Að sögn Svans skýrist þessi bætta staða milli ára fyrst og fremst af því að fyrir ári hafi verið tekin sú stefnubreyting að ráða fleiri erlenda starfsmenn í laus störf hjá fyrirtækinu. „Hefði þessi stefnubreyting ekki verið tekin upp væri töluverður skortur á starfsfólki. Það eru því útlendingarnir sem bjarga okkur fyrst og fremst,“ segir Svanur. Starfsmannastjórar þurfa að hafa hraðar hendur finni þeir starfskraft sem þeim líst vel á. Að sögn Guðnýjar Harðardóttur, framkvæmda- stjóra STRÁ MRÍ, hafa hugbúnaðarfyrirtæki, verkfræðistofur og bankarnir verið að bæta við sig starfsfólki að undanförnu og segir hún það að nokkru skýra þann aukna skort á starfs- mönnum með verkfræði-, tölvunarfræði-, við- skiptafræði- og lögfræðimenntun.  Hánnatími | 4 Hreyfing á vinnumarkaði  Minnsta atvinnuleysi hérlendis í tæp 7 ár  Mældist aðeins 0,9% í júlí sl.  Skýrist fyrst og fremst af færri atvinnulausum konum á landsbyggðinni Morgunblaðið/Þorkell Umönnun Starfsfólk vantar til umönn- unarstarfa nú þegar atvinnuleysi er lítið. Í HNOTSKURN »Að jafnaði voru 1.578 manns á at-vinnuleysisskrá í júlí. »Minnkandi atvinnuleysi skýrist eink-um af því að atvinnulausum konum á landsbyggðinni hefur fækkað töluvert, en atvinnuleysi annarra stendur að mestu í stað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.