Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Ástu Sóley Sigurðardóttur
astasoley@mbl.is
SAMBAND Afríkuríkja hefur gefið
út yfirlýsingu um að friðargæslulið,
sem senda á til Súdans, þurfi ekki á
friðargæsluliðum frá löndum utan
Afríku að halda. Það virðist hins
vegar í hreinni mótsögn við ummæli
erindreka Bandaríkjanna, Andrew
Natsios, sem sagði álfuna ekki eiga
nóg af þjálfuðum hermönnum.
Ríkisstjórn Súdans samþykkti
friðargæslu á vegum Sameinuðu
þjóðanna í Darfur-héraði eftir
margra mánaða samningaviðræður
en stjórnin hefur ekki viljað her-
menn inn í landið sem ekki eru frá
Afríkuríki. Áætlað er að um 20.000
friðargæsluliðar og um 6.000 borg-
aralegir lögregluþjónar fari til Darf-
ur-héraðs til að reyna að ná tökum á
ástandinu.
Omar al-Bashir, forseti Súdans,
hefur sagt að friðargæsla á vegum
SÞ myndi vera brot á fullveldi lands-
ins. Nú segir hann hins vegar, að að-
eins vanti fjármagn frá SÞ til að
koma afrísku friðargæsluliðunum af
stað.
Nú þegar eru í Súdan um 7.000
friðargæsluliðar á vegum Sambands
Afríkuríkja, AU, en Hafiz Mohamed
frá „Réttlæti fyrir Afríku“-hópnum,
segir Súdani hafa ráðskast með frið-
argæsluliðana og ef við bættust fleiri
afrískir hermenn, myndi ríkisstjórn
Súdans endurtaka þann leik.
Krefjast þátttöku SÞ
Uppreisnarsamtökin Frelsis-
hreyfing Súdans neituðu að senda
fulltrúa til friðarviðræðna fyrr í
mánuðinum og krafðist vopnahlés.
Yahia Bolad, talsmaður samtak-
anna, segir þau vera tilbúin í friðar-
viðræður um leið og friðargæsluliðar
á vegum SÞ séu komnir inn í landið.
Komi engir friðargæsluliðar frá
Vesturlöndum, verði ekkert úr frið-
arviðræðum af þeirra hálfu.
Stríðsglæpir í Sómalíu
Óöld ríkir einnig í nágrannaríkinu
Sómalíu og hefur stríðsástand geis-
að þar í áratugi.
Samtökin Human Rights Watch
gáfu út skýrslu um átökin í Sómalíu
fyrr á árinu og segja stríðsglæpi
framda af öllum aðilum. Í skýrslunni
segir að verstu brotin hafi verið
framin af hermönnum frá Eþíópíu
en þeir styðja núverandi stjórnvöld í
landinu. Stjórnin, sem studd var til
valda af SÞ eftir áralanga valdabar-
áttu stríðsherra í landinu, hefur ekki
náð fullum tökum á landinu eftir
áratugalanga óöld. Human Rights
Watch segir eþíópísku hermennina
hafa skotið á borgara og sprengt
upp spítala án þess að gefa viðvar-
anir.
Neita viðræðum án friðargæslu SÞ
Reuters
Friðarviðræður Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna og yfirmenn Réttlætis og
jafnréttishreyfingar Darfurs hittust í Tanzaníu hinn 5. ágúst.
Washington. AP, AFP. | Háttsettur póli-
tískur ráðgjafi og aðstoðarskrif-
stofustjóri í Hvíta húsinu, Karl Rove,
sagði í viðtali við The Wall Street
Journal í gær að hann hygðist segja
upp störfum í lok ágústmánaðar.
„Ég held bara að tíminn sé kom-
inn … ég verð að gera þetta fyrir
fjölskylduna,“ sagði Rove í viðtalinu
en hann hefur engar aðrar ástæður
gefið fyrir afsögninni.
Forsetaembættið gaf út yfirlýs-
ingu í gær um að mikill missir væri
að Rove.
Ekki eru allir á eitt sáttir um
hvort Rove hafi verið óvæginn refur
eða einstaklega framsýnn og góður
stjórnmálamaður en víst er þó að
hann hefur haft mikil áhrif á banda-
rísk stjórnmál, hvort sem þau eru
góð eða slæm.
Rove hefur oft verið kallaður
„heili George Bush“ og hefur verið
helsti ráðgjafi hans síðan 1993, er
Bush tilkynnti fyrst þá ætlun sína að
bjóða sig fram til embættis ríkis-
stjóra í Texas. Bush gaf honum einn-
ig viðurnefnið „Arkitektinn“ og vís-
aði til þess að Rove hefði hannað
herferðina sem kom honum tvisvar
sinnum í forsetastól.
Óhreint mjöl í pokahorninu?
Rove hefur verið mjög umdeildur
frá byrjun og hefur verið sakaður
um óheilindi í stjórnmálabaráttunni
gegn demókrötum síðan hann var
unglingur. Verst lét árið 2003, en þá
var Rove sakaður um að hafa lekið
nafni CIA njósnara, Valerie Plame.
Joseph Wilson, eiginmaður Plame,
sagði Rove hafa verið að hefna sín
vegna greinar sem birtist eftir Wil-
son í New York Times. Í henni var
haldið fram að ástæður ríkisstjórn-
arinnar fyrir innrás í Írak væru ekki
þær sem upp væru gefnar.
Lewis „Scooter“ Libby, fyrrum
skrifstofustjóri Richard Cheney, var
kærður fyrir meinsæri í framhaldi af
þessu en Rove slapp með skrekkinn.
Lögmaður Libby hélt því fram að
Libby væri fórnarlamb samsæris til
að vernda Rove en það var aldrei
sannað.
Rove hefur einnig verið sakaður
um að hafa staðið á bak við uppsögn
átta ríkissaksóknara á síðasta ári.
Sagt var á götunni var að ríkissak-
sóknararnir hefðu neitað að sækja
mál er repúblikanar myndu hagnast
pólitískt á en í Hvíta húsinu hefur
þessu verið harðneitað.
Rove hættir í Hvíta húsinu
Helsti pólitíski ráðgjafi Bush yfirgefur Washington í lok ágústmánaðar
Karl Rove er umdeildur, ýmist talinn vera snillingur eða óheiðarlegur
AP
Kumpánar George Bush og Karl
Rove hafa átt samleið í tvo áratugi
TYRKNESKI stjórnarflokkurinn
AKP, sem á rætur að rekja til
hreyfingar íslamista, ákvað í gær
að hvika ekki frá því að Abdullah
Gul utanríkisráðherra yrði forseta-
efni flokksins þrátt fyrir harða and-
stöðu stjórnarandstæðinga sem ótt-
ast að flokkurinn hyggist grafa
undan veraldlega stjórnkerfinu.
Deilan varð til þess að her Tyrk-
lands hótaði að skerast í leikinn til
að vernda veraldlega stjórnkerfið
ef Gul yrði kjörinn forseti.
Vilja enn Gul í
forsetastól
Ghazni. AFP. | Talibanar í Afganistan
slepptu tveimur konum úr gíslingu í
gær og sögðust hafa gert það til að
greiða fyrir sam-
komulagi í við-
ræðum um lausn
nítján annarra
Suður-Kóreu-
manna sem voru
teknir í gíslingu
fyrir tæpum mán-
uði.
Konurnar voru
með íslamskar
höfuðslæður og
grétu þegar þær
voru látnar lausar. Þær eru fyrstu
gíslarnir sem talibanar leysa úr
haldi af þeim 23 Suður-Kóreu-
mönnum sem var rænt í Ghazni-
héraði 19. júlí. Tveir gíslanna voru
skotnir til bana. Suður-Kóreumenn-
irnir voru í Afganistan á vegum
kristinnar hjálparstofnunar.
Talibanar sögðu að konurnar
væru veikar og þeir hefðu leyst þær
úr haldi í von um að það yrði til þess
að afgönsk stjórnvöld féllust á að
láta fanga úr röðum talibana lausa.
S-kóreskir embættismenn hafa
rætt við fulltrúa talibana síðustu
daga. Stjórn Hamids Karzais, for-
seta Afganistans, hefur sagt að ekki
komi til greina að verða við kröfu
mannræningjanna. Héraðsstjóri
Ghazni skoraði í gær á talibana að
láta gíslana lausa skilyrðislaust.
Létu tvo
gísla lausa
Konurnar sem
voru látnar lausar.
♦♦♦
Sydney. AFP. | 56 ára sauðfjárbóndi
úr afskekktri sveit í Ástralíu hefur
varað við hættunni sem getur staf-
að af því að leita ástarinnar á Net-
inu, eftir að slík ástarleit kostaði
hann næstum lífið.
Bóndinn Desmond Gregor
komst til Ástralíu í fyrrakvöld eft-
ir að hafa ferðast til Malí í þeim
tilgangi að kvænast konu sem
hafði lofað honum gulli að and-
virði 6,5 milljóna króna í heiman-
fylgju. Þetta reyndist þó vera
blekking og bóndanum var rænt
við komuna til Malí. Mannræningj-
arnir börðu hann með sveðju og
hótuðu að aflima hann ef þeir
fengju ekki lausnargjald að and-
virði 6,5 milljóna króna.
Gregor var haldið í íbúð í Bam-
ako, höfuðborg Malí, í tólf daga.
Ættingjar mannsins fengu grun-
samlega tölvupósta frá manninum
sem grátbað þá um peninga. Þeir
höfðu samband við áströlsku lög-
regluna sem bjargaði honum í
samstarfi við yfirvöld í Malí.
Viðsjál ástar-
leit á Netinu
STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu
sögðu í gær að óttast væri að
hundruð manna hefðu farist af
völdum flóða og aftakarigninga frá
7. þessa mánaðar. Um 30.000 hús
hafa eyðilagst og yfir 63.300 fjöl-
skyldur misst heimili sín af völdum
úrhellisins, að sögn norður-kóresku
fréttastofunnar KCNA.
Sjaldgæft er að kommúnista-
stjórnin í Pyongyang viðurkenni
slík vandamál í landinu.
Mikið manntjón
í Norður-Kóreu
SKIPULEGGJENDUR fjölda-
samkomu í Búdapest, þar sem 7.451
par kysstist á sama tíma, sögðu í
gær atburðinn eiga heima í heims-
metabók Guinness. Ungverjaland
og Filippseyjar hafa barist um titil-
inn undanfarin ár.
Heimsmet í
kossaflensi
KONUR í Pakistan sýna hendur sínar skreyttar pakist-
anska fánanum. Pakistan heldur upp á 60 ára sjálfstæði
landsins í dag og í tilefni þess var 134 indverskum föng-
um sleppt úr haldi í gær. Flestir fanganna sem sleppt
var voru fiskimenn eða fólk sem villtist yfir landamær-
in og var strax tekið höndum. Einn af þeim sem sleppt
var sagðist hafa villst yfir landamærin er hann var
drukkinn og hafði hann setið í fangelsi í sjö ár.
Pakistan og Indlandi voru sameinuð í breskri ný-
lendu þar til 1947 og var þá skipt upp í núverandi
mynd. Hafa löndin átt í stöðugum deilum eftir það og
hafa þau háð þrjú stríð síðan þá. Í tveimur stríðum hef-
ur deilan snúist um Kasmír-héraðið, en það hefur verið
bitbein beggja síðan 1947. Þá var meirihluti íbúanna
múslimar og gerðu þeir uppreisn gegn hindúastjórn-
inni sem þá var við völd. Nú er Kasmír undir stjórn
þriggja landa, Pakistan, Indlands og Kína.
Indland heldur sjálfstæðisdaginn hátíðlegan á morg-
un, degi á eftir Pakistan. Ríkisstjórn Indlands segist
munu sleppa rúmlega 100 pakistönskum föngum í dag
og verða þannig fangaskiptin liður í hátíðahöldum
beggja landa.
Reuters
Haldið upp á 60 ára sjálfstæðisafmæli