Morgunblaðið - 14.08.2007, Síða 15

Morgunblaðið - 14.08.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 15 MENNING 9.00 – 11.00 – Meistaranámskeið II Christopher Herrick kennir á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju 12.00 – Tónlistarandakt Sr. Bernharður Guðmundsson. Þátttakendur í meistara- námskeiði Christopher Her- rick leika á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju 14.00-17.00 – Meistaranámskeið III Christopher Herrick kennir á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju 20.00 – Guð á hvíta tjaldinu Málþing með myndbrotum í samvinnu við rannsóknar- hópinn Deus ex cinema Þriðjudagur 14. ágúst Allir viðburðir fara fram í Hallgrímskirkju nema annað sé tekið fram. Nánari upp- lýsingar á www.kirkjulista- hatid.is KIRKJULISTAHÁTÍÐ 11.-19. ÁGÚST 2007 SUÐUR- AFRÍSKA mynd- listarkonan Mar- lene Dumas hlýt- ur Düsseldorf myndlist- arverðlaunin, Düsseldorfer Kunstpreis, þetta árið. Verðlaunin voru stofnuð í fyrra í borginni þýsku og eru ætluð myndlistarmanni sem hvað fremst þykir standa í myndlistarheiminum hverju sinni. Í fyrra hlaut Bruce Nauman verðlaunin. Dumas hlýtur 55.000 evrur í verð- laun, tæpar fimm milljónir króna, og verða verðlaunin afhent í næsta mánuði. Dumas er 54 ára og fæddist í Höfðaborg í S-Afríku. Hún þykir blanda saman expressjónisma og konseptlist í málverkum sínum, sem unnin eru ýmist með vatnslitum, ol- íulitum eða bleki. Dumas nam mynd- list við Háskólann í Höfðaborg á ár- unum 1972 til 1975. Hlutskipti kvenna í fortíð og nútíð er Dumas hugleikið og þá sér- staklega ill meðferð á konum, t.a.m. í klámi. Einnig hefur hún unnið port- rettverk af vinum, elskhugum og börnum. Sjálf segir Dumas að bestu verk hennar sýni andlega ringulreið með erótískum hætti þar sem ótengdar upplýsingar hrærist saman við eða troði sér upp á viðfangsefnið. Lista- verkasafnarinn Charles Saatchi tók Dumas upp á arma sína fyrir nokkr- um árum og jókst þá hróður hennar mikið. Dumas verðlaunuð Verk eftir Dumas HALDIÐ verður upp á útgáfu plötu Valgeirs Sigurðssonar, Ekvílibríum, í fataversluninni Liborius kl. 17 og 19 í dag. Þá verður einnig frumsýnt mynd- bandið Evolution of Waters, í sýningarrými verslunarinnar, peningaskáp sem þar er inn- múraður. Rýmið ber heitið Flösuból/Dandruff Space. Una Lorenzen gerði fyrrnefnt myndband við eitt laga Ekví- libríum. Liborius stendur við Laugaveg 7 og er opið 10.30 til 18, frá mánudegi til miðvikudags og á laugardögum, en til 21 á fimmtudögum og föstu- dögum. Tónlist/ Myndlist Útgáfuteiti og sýning í Liborius Merki verslunar- innar Liborius FIMMTUDAGINN 16. ágúst verður kvöldstund með þýska rithöfundinum Walter Lauf- enberg í Populus tremula í Listagili á Akureyri. Þar mun hann kynna sig og fjalla lít- illega um verk sín. Lesin verð- ur smásaga eftir hann í ís- lenskri þýðingu og Hjörleifur Hjartarson (og e.t.v. fleiri) syngur með gítarundirleik vin- sæla söngva við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi í þýskri þýðingu Walters. Í lokin gefst gestum kostur á að spjalla við rithöfundinn og spyrja hann spjörunum úr. Kvöldstundin hefst kl. 20:00. Bókmenntir Kvöldstund með þýskum rithöfundi Loftmynd af Akureyri. GUNNAR Kvaran sellóleikari og Elísabet Waage hörpuleik- ari halda tónleika í kvöld kl. 20.30, í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga. Tónleikarnir eru hluti af ár- legri sumartónleikaröð í lista- safninu. Gunnar og Elísabet munu frumflytja verkið Visions Fu- gitives eftir John Speight. Á efnisskránni eru einnig Sónata eftir Antonio Vivaldi, Arpeggione, Sónata eftir Franz Schubert og Vocalise eftir Sergei Rachm- aninoff. Gunnar leikur á selló en Elísabet hörpu. Aðgangseyrir er 1.500 krónur. Tónleikar Frumflytja verk eftir John Speight Gunnar og Elísabet við hörpu Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is MELKORKA Ólafsdóttir flautuleik- ari hlaut í gær styrk að upphæð 600.000 krónur úr Minningarsjóði Jean Pierre Jaquillat, sem veittur er tónlistarfólki til framhaldsnáms er- lendis á ári hverju. Styrkurinn var veittur sextánda sinni í gær við há- tíðlega athöfn í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga. Ja- quillat var fastráðinn aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá 1978 til 1986. Hann lést í bílslysi í Frakklandi 11. ágúst 1986. Melkorka fæddist 1981 en er þó mikill reynslubolti í flautuleik. Hún hlaut verðlaun Halldórs Hansens fyrir frammistöðu sína á útskrift- artónleikum frá Listaháskóla Ís- lands 2004. Frá hausti þess árs hef- ur Melkorka sótt tíma hjá Emily Beynon við Konunglega kons- ervatoríið í Haag, Harrie Starreveld í Konservatoríinu í Amsterdam og hjá Patrick Gallois í París, en hann er einn virtasti flautuleikari heims. Þarf ekki að vinna á kaffihúsi Í fyrrahaust hóf hún árs meist- aranám við Guildhall School of Mu- sic and Drama í Lundúnum, með sérhæfingu í hljómsveitar- og kammertónlist. Þar hlaut hún James Galway-verðlaunin sem veitt eru einum flautuleikara skólans ár hvert. Að auki hefur Melkorka hlotið námsstyrki frá Landsbankanum og Glitni og nú úr fyrrnefndum minn- ingarsjóði. Framtíð Melkorku ætti því aldeilis að vera björt, hún lýkur brátt námi og er í fullu starfi í sumar sem tónlistarmaður. „Ég spila með kammersveitinni Ísafold, Caput og Sinfó. Þetta er fyrsta sumarið sem ég er eingöngu að vinna sem tónlistarmaður, þarf ekki að vinna á kaffihúsi,“ segir Mel- korka og hlær. Hún hafi mjög mikið að gera og það sé hið besta mál. Eru margir flautuleikarar hér á landi með svona langt nám að baki? „Ég er kannski svolítið öfgakennd í þessum gráðum mínum, búin að læra mikið. Nú er komið gott, núna þarf maður að læra á lífið,“ svarar Melkorka, sem lýkur brátt námi sínu í París og Lundúnum. Hún flakkar borganna á milli til að sækja námið. Langar að spila barrokk „Þetta er síbreytileg vinna, erfitt að verða leiður á henni,“ segir Mel- korka um flautuleikarastarfið. Hún er að fara taka upp plötu með tríóinu sínu, Trio Lurra, þar sem leikin verður nútímatónlist. „Ég er mjög hrifin af 20. aldar tónlist og svo lang- ar mig að spila meira af gamalli tón- list, barrokk-tónlist. Ég er minna fyrir rómantíkina en það er líka minna til af rómantískri tónlist fyrir flautu.“ En hvað tekur nú við? „Ég er að fara út til Englands, verð aðstoð- armaður flautuleikara sem heitir Paul Edmund-Davis […] hjálpa hon- um að kenna á sumarnámskeiði. Ég var valin til þess starfs úr hópi fram- haldsnema,“ svarar Melkorka. Síðan tekur við spilamennska með Caput á tvennum tónleikum í Danmörku og að því loknu leikur Melkorka með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún leikur með Ísafold í Langholtskirkju á miðvikudagskvöld kl. 20.30. London, París, Reykjavík  Melkorka Ólafsdóttir nemur flautuleik í tveimur borgum  Hún hlaut í gær námsstyrk úr Minningarsjóði Jean Pierre Jaquillat Morgunblaðið/Kristinn Sposk Örn Jóhannson veitir Melkorku Ólafsdóttur flautuleikara náms- styrk að verðmæti 600.000 króna í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í gær. Í HNOTSKURN » Melkorka stundaði tónlist-arnám í Tónskóla Sig- ursveins og við Tónlistarskólann í Reykjavík. » Melkorka lék konsert eftirJaques Ibert með Sinfón- íuhljómsveit Íslands á tónleikum í Háskólabíói í febrúar 2004. Hún er með tvær BA-gráður og tvær MA-gráður í flautuleik, auk tor- skilinnar, franskrar gráðu, eins og hún orðar það í ferilsskrá. » Í Lundúnum hefur hún unniðmeð hljóðfæraleikurum úr Philharmonia Orchestra og London Symphony Orchestra. Tríó Melkorku, Trio Lurra, var valið í tónleikaröðina „Young professionals in Holland“ 2007. Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju fagnar 25 ára afmæli sínu um næstu mánaðamót. Hörður Áskelsson, stofnandi kórsins, organisti og kant- or Hallgrímskirkju undanfarinn ald- arfjórðung, segir kórnum hafa vaxið fiskur um hrygg frá stofnun, bæði sé hann fjölmennari og starfið um- svifameira. Blaðamaður kemur upp um fáfræði sína og spyr: Hvað er mótetta? „Þetta er oft skrifað vitlaust, „mó- detta“, af því menn eru svo linmæltir hér sunnan heiða,“ segir Hörður. Ekki sé skrítið að menn viti ekki al- mennt hvað mótetta sé. „Mótetta er tónlistarform sem var algengt og er enn í tónlistarsögunni, það er kór- stykki, verk skrifað fyrir kór án und- irleiks.“ Mótettukór helgi sig sem sagt flutningi á kirkjulegri tónlist án undirleiks. Ungur og fullur metnaðar „Þegar ég stofnaði kórinn á sínum tíma, hann er mitt barn, var ég að koma frá námi og hefja starf við Hallgrímskirkju. Það var mikill byrjenda- og frumbýlingsbragur á öllu í Hallgrímskirkju þá, kirkjan var ekki fullsmíðuð,“ segir Hörður. Hefðbundinn kirkjukór hafi þá starfað við kirkjuna. „Ég var ungur maður og langaði að starfa með ungu fólki sérstaklega. Það varð til þess að ég byrjaði á því að stofna þennan kór um leið og ég hóf störf, metnaðarfullur strax. Það þótti sum- um þetta dálítið bratt farið af stað.“ Auglýst var eftir fólki í byrjun sept- ember 1982 og haldin áheyrnarpróf, sem voru ekki algeng þá að sögn Harðar. „Við settum skilyrði, fólk mætti ekki vera eldra en 40 ára og ekki undir tvítugu. Það þyrfti helst að geta lesið nótur.“ Hvað varðar aldurstakmörk í dag segir Hörður hlæjandi að efri mörk- in hafi breyst með hækkandi aldri stofnanda. Elstu félagar eru nú rúm- lega fimmtugir en mikil endurnýjun er í kórnum, flestir hinna nýju kór- félaga milli tvítugs og þrítugs. Kórinn syngur ekki aðeins án undirleiks nú til dags heldur með hljómsveitum einnig. H-moll messan eftir J.S. Bach var t.a.m. flutt síð- ustu helgi á Kirkjulistahátíð og í gærkvöldi í Skálholti með hljóm- sveit. Fyrstu árin skipuðu 20-40 manns kórinn en á síðustu árum hafa um og yfir 50 manns verið í honum. Tónleikar kórsins á Kirkju- listahátíð eru að hluta til haldnir vegna afmælisins. Hörður segir mörg verkefni framundan, án þess að fara nánar út í þau að þessu sinni. Til hamingju með afmælið. Barnið hefur vaxið vel og dafnað Morgunblaðið/Brynjar Gauti Stofnandinn Hörður Áskelsson. ♦♦♦ VEFVERSL- UNIN Amazon segir sölu á bók- um um trúar- brögð hafa aukist um meira en 50% á síðustu þremur árum. Það er mun meiri aukning en í flokki sagn- fræðirita eða stjórnmála, sem sala hefur þó einnig aukist á. Hinir heittrúuðu munu þó vart fagna því að mest selda bókin í flokki trúarbragða er The God Delu- sion (Guðsblekkingin) eftir breska þróunarfræðinginn Richard Dawk- ins. Í öðru sæti er bókin God is Not Great: How Religion Poisons Eve- rything. Benedikt páfi á þó bókina í 3. sæti, Jesús frá Nasaret, þannig að trúleysið er ekki allsráðandi hjá við- skiptavinum Amazon. Trúin flytur bókafjöll Richard Dawkins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.