Morgunblaðið - 14.08.2007, Side 16

Morgunblaðið - 14.08.2007, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI NÚ FER H VERÐA SÍÐ AÐ SKRÁ Netskránin gu í Reykj avíkurmar aþon 16. ágúst . Það á við um allar vega og skránin gargögn v erða afhen t í L 17. ágúst milli kl. 1 2.00 og 2 1.0 Skráðu þi g á www.g litnir.is og hla ALLIR SIG RA 18. ÁG ÚST 3 km1km 10 km 21 km „MÉR finnst mjög spennandi að fá tækifæri til að skipuleggja þetta starf og móta stefnu í samráði við sveitarfélögin og menningarráðið,“ segir Ragnheiður Jóna Ingimars- dóttir, nýráðinn menningarfulltrúi Eyþings. Starf hennar er nýtt og í því felst dagleg umsýsla fyrir Menningarráð Eyþings, þróunarstarf í menningar- málum og menningartengdri ferða- þjónustu á Norðurlandi eystra, fag- leg ráðgjöf, kynning og verkefnastjórnun og efling sam- starfs í menningarlífi á svæðinu. Starfið byggist á samningi mennta- mála- og samgönguráðuneytanna við Eyþing en samningurinn kveður einnig á um árlegar styrkveitingar sem Menningarráðið annast. Búið er að setja úthlutunarreglur fyrir árið 2007, og í haust verður auglýst eftir styrkjum. Verkefni sem leggja áherslur á vetrartímann, samstarf milli byggðarlaga, nýsköpun á sviði lista eða skapandi starf fyrir börn og unglinga munu hafa forgang. Mikið um ferðalög á næstunni „Ég reikna með að fyrstu mán- uðirnir fari í að heimsækja alla að- ilana og ég hlakka mikið til þess. Ég ætla að heimsækja öll sveitarfélögin til að kynna mér hvað þar að gerast; hvaða væntingar er þar að finna og hvaða möguleika.“ Segja má að það eitt og sér sé ær- inn starfi fyrir Ragnheiði Jónu, enda verður hún menningarfulltrúi fyrir ein 16 sveitarfélög á Norðaust- urlandi. Þjónustusvæðið nær frá Fjallabyggð í vestri að Langanes- byggð í austri, að meðtöldum báðum sveitarfélögum. Samanlagður íbúa- fjöldi er um 28.500 manns. Vinnur með grasrótinni Ragnheiður Jóna telur grunninn að starfinu vera þann að kortleggja svæðið, eins og hún kemst að orði og vinna út frá því. Hún muni samt kappkosta að efla menningar- starfsemi Eyþings útfrá umræddum samstarfssamningi með því að „vinna með grasrótinni og fólkinu á staðnum“ og þannig nýta styrkleika hvers sveitarfélags. „Ég sé fyrir mér að fólkið á svæð- inu eigi að geta leitað til menningar- fulltrúans um faglegar ráðlegg- ingar,“ segir Ragnheiður Jóna. „Mikilvægt að nýta styrk- leika hvers sveitarfélags“ Ljósmynd/Ragnhildur Aðalsteinsdóttir Spennandi starf „Fólkið á svæðinu á að geta leitað til fulltrúans um fag- legar ráðleggingar,“ segir Ragnheiður Jóna menningarfulltrúi Eyþings. Í HNOTSKURN »Ragnheiður Jóna varvalin úr hópi 22 umsækj- enda. »Hún fæddist á Hvann-eyri í Borgarfirði árið 1966, en hefur búið á Ak- ureyri sl. 18 ár. Hún lauk námi í nútímafræði frá Há- skólanum á Akureyri árið 2005 og hefur að und- anförnu verið verkefnastjóri hjá Impru nýsköpunarmið- stöð auk þess að stunda meistaranám í menningar- stjórnun við Háskólann á Bifröst. ENGAN sakaði í hörðum árekstri á mótum Krossanesbrautar og Óseyr- ar á þriðja tímanum í gær. Jeppling- ur og fólksbifreið skullu saman eftir að annar ökumaðurinn virti ekki bið- skyldu. Ökumennirnir voru einir í bílunum og sluppu án alvarlegra meiðsla, þó að annar hafi verið flutt- ur á slysadeild þar sem hann fann til eymsla eftir öryggisbeltið. Bílarnir skemmdust mikið í árekstrinum og er fólksbíllinn talinn ónýtur. Flytja þurfti báða bílana af vettvangi með kranabíl. Ljósmynd/Þorgeir Baldur Ónýtir Flytja þurfti báða bílana með kranabíl. Harður árekstur við Krossanesbraut LANDBÚNAÐARSÝNINGIN Sveitasæla verður opnuð á Sauð- árkróki næsta föstudag og stendur til sunnudags. Sýningin er haldin innan- og utandyra við Reiðhöllina Svaðastaði. Stór vélasýning mun ná yfir fjög- ur þúsund fermetra útisvæði og í reiðhöllinni verða kynntar ýmsar vörur og margvísleg þjónusta fyrir landbúnaðinn. Kálfa- og hrútasýn- ingar eru meðal dagskrárliða og landnámshænur og smalahundar munu koma talsvert við sögu. Að sama skapi verður talsvert um mat á sjálfri sýningunni. T.d. verða Mat- arkistan Skagafjörður og verkefnið Beint frá býli með bragðgóðar kynningar fyrir gesti og gangandi. Sveitaböll verða á Sauðárkróki bæði föstudags- og laugardags- kvöld og Umhverfisverðlaun Skagafjarðar verða einnig veitt á laugardaginn. Sveitasæla á Króknum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.