Morgunblaðið - 14.08.2007, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 17
LANDIÐ
Dalvík | Fiskidagurinn mikli hefur
frá upphafi heiðrað einstaklinga eða
hópa fólks sem hefur tekið þátt í
sjávarútvegi á Dalvík. Fiskidag-
urinn mikli 2007 heiðraði fisk-
vinnslukonuna Ernu Hallgríms-
dóttur fyrir langan starfsaldur við
fiskvinnslu en jafnframt kom fram
að hún væri fulltrúi hinna fjölmörgu
fiskvinnslukvenna sem á síðustu öld
unnu við misjafnar aðstæður.
Við þetta tækifæri benti Svan-
fríður Jónasdóttir, bæjarstjóri í Dal-
víkurbyggð, m.a. á að Dalvík væri
fyrst og fremst fiskvinnslubær,
mjög hátt hlutfall fólks starfaði við
fiskvinnslu og meirihluti þess væru
konur. Margar konur á Íslandi hafa
unnið tímabundið í fiskvinnslu. En
býsna margar, einkum úti um land-
ið, á stöðum eins og Dalvík, hafa líka
haft fiskvinnslu sem aðalstarf,
gjarnan með barnauppeldi og hús-
móðurstörfum. Sú sem Fiskidag-
urinn mikli heiðraði í ár er einmitt
ein slík, en Erna starfaði utan heim-
ilis við fiskvinnslu auk þess að sinna
stóru heimili með óvenjustórum
barnahópi.
Svanfríður gat þess líka í ræðu
sinni að konur hefðu alltaf verið
virkir þátttakendur í atvinnulífi
þjóðarinnar, bæði til sjávar og
sveita. Framan af síðustu öld voru
konur t.d. mikilvægur vinnukraftur
við verkun á saltfiski. Við síld-
arsöltun, sem varð mikilvæg at-
vinnugrein snemma á síðustu öld,
voru konur líka ómissandi vinnu-
kraftur. Fiskidagurinn mikli hefur
þegar heiðrað þau sem gerðu Dalvík
á sínum tíma að einum helsta síld-
arsöltunarstað á landinu. Í vitund
þjóðarinnar er fiskvinnslukonan þó
líklega helst sú sem vinnur í frysti-
húsi eða við það, sem stundum er
kallað hefðbundin fiskvinnsla eins
og algengast er hér í dag. Strax og
frystihúsin tóku að ryðja sér til
rúms á fyrra hluta síðustu aldar
urðu þau stórir kvennavinnustaðir
þar sem konur sáu um snyrtingu og
pökkun afurðanna. Snyrtingin er
enn í dag mannfrekasta starfið. Hún
er hjartað í fiskvinnslunni og þar
eru konurnar. Þess vegna heiðrar
Fiskidagurinn mikli fiskvinnslu-
konu.
Fiskidagurinn mikli 2007
heiðrar fiskvinnslukonu
Fiskverkun Erna Hallgrímsdóttur tekur við viðurkenningu Fiskidagsins
mikla sem Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkur, afhendir.
Bolungarvík | Ástarvikan er nú
hafin í Bolungarvík en við setningu
hennar var um 300 hjartalaga
blöðrum sleppt. Ýmislegt er á döf-
inni þessa viku. Má þar nefna faðm-
laganámskeið, nestisferð, ferð fjöl-
skyldunnar, bílabíó, ljóðakvöld og
gleðihláturskvöld. Soffía Vagns-
dóttir er einn af forsprökkum ást-
arvikunnar og hér er hún ásamt
fleirum að sleppa ástarblöðrunum
lausum.
Ljósmynd/Ylfa Mist
Ástarvikan hafin
Vestfirðir | Vegagerð í Þorskafirði
verður boðin út í haust en ekkert bólar
á þverun Þorskafjarðar. Gísli Eiríks-
son, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar,
segir í samtali við fréttavefinn bb.is að
þverun fjarðarins sé ekki komin á
fjögurra ára vegaáætlun og því verði
einhver bið á framkvæmdum við hana.
Í haust verða framkvæmdir við bundið
slitlag boðnar út. Um er að ræða kafla
í austanverðum Þorskafirði, frá Kinn-
arstöðum inn að afleggjaranum upp á
Þorskafjarðarheiði. Vegurinn er upp-
byggður að mestu leyti og því ekki dýr
framkvæmd að leggja á hann slitlag.
Þverun fjarðarins er hins vegar fram-
kvæmd af allt annarri stærðargráðu.
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis,
lét hafa eftir sér í Svæðisútvarpinu að
fjörðurinn yrði þveraður og það væri
ekkert vafamál. Sveitarstjórnir í
Barðastrandarsýslu sendu í sumar
frá sér mótmæli þar sem talið var að
fjörðurinn yrði ekki þveraður og vís-
uðu í samþykktir fyrri samgönguráð-
herra. Þingmenn Norðvesturkjör-
dæmis funduðu í síðustu viku þar sem
fjallað var um framkvæmdir á sviði
vegagerðar í kjördæminu. Þingmenn
kjördæmisins eru einhuga um þá
stefnu að við endurbyggingu Vest-
fjarðavegar númer 60 eigi að miða við
að unnið verði í samræmi við tillögu
Vegagerðarinnar um þverun Þorska-
fjarðar án þess að nefna neinar tíma-
setningar í því sambandi.
Bundið slitlag í Þorskafirði
HVER AÐ
ÐASTUR
SIG!
Glitnis lýk
ur kl. 20.0
0 fimmtud
aginn
lengdir; 1
, 3, 10, 2
1 og 42 k
m. Bolir
Laugardal
shöllinni f
östudagin
n
00.
auptu til g
óðs.
T!
1
m
42
km
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-0
5
8
1