Morgunblaðið - 14.08.2007, Side 20
tómstundir
20 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Ég kynnti sportið hér í Dan-mörku fyrir rúmum 5 ár-um en áður hafði égkynnt mér hvort íþróttin
væri stunduð hér. Ég komst að því
að það var verið að koma upp la-
crosse-liði í Stokkhólmi og svo voru
nokkur lið í Þýskalandi en ekkert í
Danmörku.
Ég hugsaði því með mér að ein-
hver yrði að kynna Dönum sportið
þannig að ég bauð 20 góðum vinum
mínum heim og spurði þá hvort þeir
væru til í að koma þessari íþrótt á
legg í Danmörku. Sextán þeirra
sögðu já og úr því varð lacrosse-
klúbburinn Copenhagen Lacrosse,“
segir Kristian Gotsch, sem nú stefn-
ir að því að kynna Íslendingum la-
crosse.
Hann segir íþróttina hafi náð
miklu flugi eftir að fyrsti klúbburinn
var stofnaður, en aðspurður um
hvers vegna hann hafi tekið verkið
að sér kveðst hann hafa búið í To-
ronto í Kanada um skeið. Þar var at-
vinnulið í lacrosse og eitt sinn fór
hann á leik og sá þá að þessi íþrótt
sameinaði allar hans uppáhalds
íþróttir í eina.
„Það skiptir ekki máli hvort mað-
ur er stór eða lítill, snöggur eða
hægur, það hafa allir sína hæfileika í
lacrosse.“ segir Kristian sem þurfti
þó að bíða í tvö ár áður en hann spil-
aði sjálfur, en það gerði hann fyrst í
Kaupmannahöfn.
Einfaldar reglur
Lacrosse krefst ekki endilega sér-
stakrar umgjarðar, miklu frekar
ákveðins búnaðar og einfaldra
reglna. Leikurinn getur farið fram
bæði úti við sem innandyra og spila
yfirleitt 6-12 manns, eftir því hvort
spilað er innandyra eða utandyra.
Leikurinn hentar því vel nánast hvar
sem er, því ekki þarf annað en væna
grasflöt.
Það er meðal annars þetta sem
Kristian telur að muni stuðla að
frekari vexti íþróttarinnar á Norð-
urlöndunum, en lacrosse hefur þeg-
ar haslað sér völl í Danmörku og
Noregi og eru þar komin fimm lið á
jafn mörgum árum.
Að sögn Kristians er lacrosse eins
konar blanda af fótbolta, handbolta,
körfubolta og íshokkíi og getur
þannig höfðað til þeirra sem vilja
leika með í liði sem og þeirra sem
vilja spila íþrótt sem krefst tölu-
verðrar nákvæmni eða færni.
„Allir geta lært að kasta boltanum
og hvernig þeir eiga að beita kylf-
unni, en lengstan tíma tekur að læra
hvar maður á að staðsetja sig á vell-
inum,“ segir Kristian og bætir við að
það komi sér þannig vel að hafa tek-
ið þátt í íþróttum þar sem spilað er í
liðum.
Leitar að „athafnafólki“
Kristian, sem er heiðursritari í
evrópska Lacrosse-sambandinu,
langar nú að finna fólk á Íslandi sem
vill hjálpa honum að koma lacrosse á
legg en til þess þarf fyrst og fremst
brennandi áhuga á meðal þeirra
karla eða kvenna sem stofna fyrsta
liðið.
„Þegar ég byrjaði á lacrosse í
Danmörku þá var þetta líka áhugi á
því að reyna að byggja upp eitthvað
nýtt. Ég reyndi því að kynna þetta á
sama hátt í Noregi og við héldum
þar helgarkynningu og nú eru þar
fimm lið starfandi,“ segir Kristian.
En yfirleitt er íþróttin kynnt þannig
að þegar búið er að staðfesta hóp
fólks sem vill læra íþróttina þá kem-
ur þjálfari frá Lacrosse-sambandinu
með allan búnað og kynnir leikinn,
t.d. yfir helgi. Kristian hefur einnig
haft þennan hátt á í Frakklandi og
mun sama aðferð verða notuð á Ís-
landi.
„Ef ég finn einhvern sem telur sig
geta hjálpað okkur að koma þessu á
legg þá koma tveir þjálfarar frá okk-
ur, með búnað og taka sér 1-2 daga í
að kenna liðinu leikinn.“ Hér er til
mikils að vinna því venjan er sú, enn
sem komið er, að fyrsta lið hvers
lands fái allan nauðsynlega búnað
gefins af Lacrosse-samböndum,
annaðhvort af Evrópu- eða heims-
sambandinu.
ingvarorn@mbl.is
Lacrosse-leikmenn óskast
Spennandi Lacrosse hefur verið stundað í núverandi mynd allt frá
miðri nítjándu öld en íþróttin er upprunin á meðal ættbálka indjána
Norður-Ameríku og virðist afar grípandi ef marka má hraða út-
breiðslu í Evrópu eftir að íþróttin náði fótfestu fyrir nokkrum árum.
Lacrosse-íþróttin hefur
sótt verulega í sig veðrið
að undanförnu í Evrópu –
og Ísland er næst á dag-
skrá. Ingvar Örn Ingv-
arsson spjallaði við Kristi-
an Gotsch, sem hefur
brennandi áhuga á íþrótt-
inni og starfar fyrir Lac-
rosse-samband Evrópu.
Lacrosse Kristian Gotsch leitar nú
að áhugasömum konum eða körlum
til að koma Lacrosse íþróttinni á
legg á Íslandi.
Í HNOTSKURN
»Það voru meðal annarraCherokee- og Mohawk-
indíánar sem lögðu stund á
lacrosse-íþróttina en heiti
leiksins sem notað er í dag er
upprunnið í frönsku en talið er
að lacrosse hafi verið stundað
allt frá 16. öld.
»Sem stendur er lacrossespilað í 18 Evrópulöndum
og fara vinsældirnar vaxandi.
Á heimasíðu Evrópusambands
lacrosse-íþróttarinnar kemur
fram að Lacrosse sé ört vax-
andi og jafnvel hraðasta
íþróttin sem stunduð er á
tveimur jafnfljótum.
www.europeanlacrosse.org
www.intlaxfed.org/
www.copenhagenlacrosse.com/
ÞAÐ eru ekki aðeins Íslendingar
sem leggja hart að sér í vinnunni
því ef marka má frétt á vef The
Economist þá eru Bandaríkjamenn
einnig með eindæmum vinnu-
samir. Þetta þýðir þó ekki að af-
köstin séu í samræmi við vinnu-
framlagið því í fréttinni kemur
fram að þjóðarframleiðsla miðað
við vinnustundir er hæst í Noregi.
Reyndar eru Belgía, Holland og
Frakkland öll með hærri þjóð-
arframleiðslu á vinnustund en
Bandaríkin.
Líkur eru leiddar að því að
mögulega sé vænlegra að vinna
styttri vinnutíma og eiga meira frí
en að vinna daginn út og inn og
skila þrátt fyrir allt minni vinnu
en margur annar.
Meira er ekki
alltaf betra
H% #3
6#
/%
0
6
SR
&
F
$
6
2
!
(!
B2
9
#
"
!!
" # $ %
&
'(
&
2
Auglýsing um próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa
Með vísan til laga nr. 18/1997, um endurskoðendur, verða próf til löggildingar til endurskoðunarstar-
fa haldin í nóvember 2007 sem hér segir:
Próf í endurskoðun föstudaginn 9. nóvember
Próf í reikningsskilafræðum mánudaginn 12. nóvember
Próf í skattskilum miðvikudaginn 14. nóvember
Próf í gerð reikningsskila föstudaginn 16. nóvember
Prófin verða haldin í Háskólanum í Reykjavík og hefjast kl. 9 hvern prófdag.
Væntanlegir prófmenn skulu fyrir 10. október nk. tilkynna prófnefnd hvaða próf þeir hyggjast þreyta.
Tilkynningar sendist formanni prófnefndar, Árna Tómassyni, Hraunbraut 20, 200 Kópavogi.
Tilkynningu skal fylgja nafn prófmanns, heimilisfang, tölvupóstfang og staðfesting um að fullnægt sé
skilyrðum 4. og 5. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga um endurskoðendur, ásamt kvittun fyrir greiðslu prófg-
jalds að fjárhæð kr. 35.000, fyrir hvert próf sbr. 4. mgr. 3. gr. laga nr. 18/1997, um endurskoðendur.
Greiða skal prófgjald hjá Fjársýslu ríkisins, Sölvhólsgötu 7.
Prófnefndin mun boða til fundar með prófmönnum í október nk.
Reykjavík, 9. ágúst 2007
Prófnefnd löggiltra endurskoðenda