Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 28

Morgunblaðið - 14.08.2007, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gunnar Sæ-mundsson fæddist í Reykjavík 14. desember 1951. Hann lést á krabba- meinslækninga- deild Landspítalans 6. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Svanhildur Guðmundsdóttir frá Litlu Sandvík, f. 6. janúar 1906, d. 7. apríl 1995 og Sæ- mundur Símonar- son frá Selfossi, f. 22. mars 1903, d. 11. janúar 1980. Gunnar var yngstur þriggja bræðra, bræður hans eru; 1) Guðmundur, f. 27. maí 1931, kvæntur Kristínu G. Eyjólfs- dóttur, f. 11. febrúar 1934. Börn þeirra eru; a) Bára, f. 29. júlí 1960, d. 12. nóvember 2003, og b) Sæmundur, f. 24. september 1965. 2) Þorvarður, f. 31. janúar 1947, kvæntur Ástu Láru Leós- dóttur, f. 21. júlí 1948. Börn þeirra eru a) Leó, f. 20. júlí 1968, börn hans eru Ingólfur Hannes, f. 1988, Snædís Erla, f. 1994, og Alexander, f. 1996, b) Haukur Þór, f. 3. september 1977 og c) Gunnar Snorri, f. 3. desember 1980. Dóttir Gunnars og Guðríðar Dóru Halldórsdóttur er Helga, f. 1. júlí 1975, sambýlis- maður Baldvin Esra Einarsson, f. 9. október 1979, sonur þeirra er Styrkár, f. 24. jan- úar 2007. Gunnar ólst upp í vesturbænum í Reykjavík og bjó nær alla tíð á Dunhaga 11. Hann tók stútentspróf frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1971 en starfsævi sína helgaði hann störfum að málefnum áfengis- og vímuefnasjúklinga. Að þeim mál- efnum starfaði hann hjá Líknar- félaginu Von, Fitjum, Krísuvík- ursamtökunum og síðast hjá SÁÁ, en þar starfaði hann frá 1997 og fram í apríl 2007, eða á meðan heilsa hans leyfði. Gunnar hafði hlotið löggildingu sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi. Útför Gunnars verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Gunnar mágur minn andaðist mánudaginn 6. ágúst eftir nær tveggja ára harða baráttu við krabbamein. Hann bar veikindi sín ekki utan á sér og var barátta hans aðdáunarverð. Hann tók örlögum sínum með miklum hetjuskap. Það er margt sem við sem næst honum stöndum höfum lært af þeirri reynslu að fara með honum í gegn- um þetta erfiða tímabil. Þegar ég kynntist Gunnari fyrst þá var hann liðlega tvítugur. Hann var þá búinn með menntaskólann og var að fóta sig áfram í lífinu. Svo fór að starfs- ævi sína helgaði hann málefnum áfengis- og vímuefnasjúklinga. Hann hjálpaði mörgum sem áttu við erfiðleika að stríða og hafa eflaust margir þeirra öðlast betra líf í kjöl- farið. Gunnar var víðlesinn og einnig hafði hann mikla ánægju af sígildri tónlist og naut þess að sækja tón- leika. Gunnar bjó með foreldrum sínum að Dunhaga 11 á meðan þau voru á lífi og eftir lát þeirra bjó hann þar áfram. Gunnar eignaðist eina dóttur, Helgu sem starfar sem dýralæknir á Akureyri og er hún í sambúð með Baldvini Esra Einarssyni. Hann var svo lánsamur að fá að lifa þá stund að verða afi því Helga og Baldvin eignuðust lítinn dreng, Styrkár, snemma á þessu ári. Það var Gunn- ari mjög mikils virði að eiga dóttur sem hann var ákaflega stoltur af og ekki síður að upplifa þá stund að verða afi. Gunnar hefur verið stór hluti af fjölskyldu okkar og munum við sakna hans mikið. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Þín mágkona Ásta Lára. Gunnar frændi okkar var góður maður sem vildi ávallt láta gott af sér leiða. Hann sinnti um áraraðir störfum við að hjálpa áfengis- og vímuefnasjúklingum og hjálpaði mörgum að ná fótum í lífinu á ný. Það kom oft fyrir að maður hitti fólk hvers líf Gunnar hafði snert og fór það góðum orðum um hann. Við bræðurnir kynntumst honum vel á lífsleiðinni og á mismunandi ævi- skeiði. Við minnumst hans allt frá því að foreldrar okkar bjuggu á Dunhaganum en þar bjó einmitt Gunnar með afa og ömmu. Síðar var Gunnar tíður gestur á heimili okkar, sérstaklega þó á sunnudögum þegar fjölskyldan átti saman góða stund yfir kvöldmatnum. Þar fóru fram áhugaverðar umræður sem enduðu oft þegar komið var að fréttum, en helst vildi Gunnar frændi ekki missa af þeim. En það einkenndi hann hversu vel hann vildi fylgjast með því hvað væri á seyði, bæði hér heima og á alþjóðlegum vettvangi. Einnig hafði hann mikinn áhuga á bókum og minnumst við hans oft á tíðum á aðfangadagskvöldum við bóklestur. Hann var vanafastur, og hélt fast við hið gamla og gróna en var samt gefinn fyrir hóflega ný- breytni. Hann hafði ákveðnar skoð- anir og var oft tilbúinn að ræða um hlutina í víðu samhengi sem leiddi oft til áhugaverðra samræðna, en hann stóð líka ávallt fast á skoðun- um sínum. Gunnar var skemmtileg- ur og með sérstaka kímnigáfu. Gunnar var einn sá hógværasti mað- ur sem við höfum nokkurn tímann kynnst. Maður sem var víðlesinn. Hann vissi mikið en lét þó ekki oft bera á skoðunum sínum, innst inni vildi hann segja okkur eitthvað en hann var á móti því sem hann taldi vera hégóma og sjálfselsku. Við telj- um að við getum lært mikið af frænda okkar, manni sem var auð- mjúkur, orðfár og fábrotinn en sem skildi að fjölskyldan og samheldnin væru mikilvæg í lífinu. Við kveðjum þig með söknuði, kæri frændi. Megi Guð varðveita þig og veita þér miskunn sína. Þínir frændur Leó, Haukur Þór og Gunnar Snorri. Fallinn er nú frá á miðjum starfs- aldri frændi minn Gunnar Sæ- mundsson, og sér þar á bak góðum dreng. Hann ólst upp í Reykjavík en dvaldist strax á hverju sumri á æskuheimili móður sinnar, Svan- hildar. Þau Sæmundur, maður henn- ar, áttu veiðijörðina Kotferju og komu þau hjón á hverju sumri aust- ur að Litlu-Sandvík að fylgjast með veiðiskapnum. Þar af leiddi að þeir bræður Guðmundur, Þorvarður og Gunnar voru okkur mjög hand- gengnir. Tóku þeir bræður þátt í bú- skapnum vel fram á unglingsár, sinntu heyskap og öðru sem laut að fjárgæslu og kúaumsjón að sumri. Gunnar varð mikill fyrir sér í vinnu er hann óx upp, hraðvirkur og fylgdi verkum sínum vel eftir. Slæp- ingur var honum ekki gefinn; hann réð við allar heyvinnuvélar og drátt- arvélar. Hann umgekkst slíkar vélar af kappi frekar en varúð, og brakaði þá oft í gírum. En mér er í fersku minni harðfylgi hans við heimflutn- ing á lausu heyi og var honum þá sama þótt pollar og hvörf væri í veg- inum. Hann öslaði yfir það allt. Um fimmtán ára aldur hóf Gunnar sumarstörf í Reykjavík. Hann gerð- ist góður námsmaður og stundaði menntaskólanám sem lauk með stúdentsprófi. Ekki hefi ég hér á takteinum hvaða nám hann tók sér þá fyrir hendur en víst var að nú tóku við „stúdentsárin æskuglöð“, sem runnu „burtu helst til hröð“. En snemma stakk Gunnar við fótum, eins og segir í afburðaþýðingu Jóns Helgasonar á Bellmann: „Svo endar hver sitt ævistarf og yfirgefur skál og kút.“ Það sem á eftir fór varð stanslaus sigurganga fyrir Gunnar frænda minn. Hann tók sjálfur vel til í sínum ranni, en sneri svo öllu upp í verðuga gagnsókn. Á þessum víg- velli ætlaði hann að bjarga öðrum. Hann sérhæfði sig í hvers kyns með- ferðarvinnu á vímuefnaneytendum. Hann varð bjargvætturinn sem var fámáll um störf sín. Gunnar var að störfum fram undir það síðasta og jafnvel er hann vissi að hverju dró. En meðan hann var í landi lifenda, vildi hann bjarga öðrum frá bráðum háska – jafnvel dauða. Gunnar frændi minn kvæntist ekki en dótturina Helgu Gunnars- dóttur dýralækni eignaðist hann. Hann lét sér mjög annt um hana, fylgdist af stolti með námi hennar, sagði mér hreykinn frá námsafrek- um hennar í Þýskalandi, og fylgdist með starfsframa hennar hér heima. Hann var orðinn afi og þessi lífsfyll- ing hans varð honum hamingjuefni hin síðustu ár. Gunnar hélt miklum tengslum við frændfólk sitt hér í Sandvík. Kom oft hingað, leit þá upp að Ölfusá og kom við á Kotferju. Hann sleppti aldrei tengslum sínum við búskapinn og fylgdist með sinni ættarjörð til hins síðasta. Fyrir fáeinum árum tjáði Gunnar mér að læknar hefðu greint hann með krabbamein. Það var snörp bar- átta sem nú hófst og Gunnar hlífði sér hvergi. Framundir vor vann hann í sínu starfi en dauðinn átti síð- asta leikinn nú í byrjun þessa mán- aðar. Gunnar Sæmundsson hvarf frá þessu fagra sumri inn í æðri lendur og lætur eftir sig einstakt lífsstarf sem aðrir dæma betur um. Við hér í Litlu-Sandvík vottum dóttur hans, dóttursyni og bræðrum einlæga samúð okkar og biðjum Guð að varðveita frænda okkar. Páll Lýðsson. Stundum er skammt milli lífs og dauða. Ég minnist hér ágæts vinar, sem féll fyrir sigð dauðans 6. ágúst sl. Hann var aðeins 55 ára að aldri, fæddur 14. desember 1951 í Reykja- vík. Hann gekk menntaveginn, og lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1971, 19 ára, með ágætum vitnisburði. Stundaði því næst nám um skeið við Háskóla Ís- lands, en lauk ekki prófi. Hann gerð- ist ráðgjafi þeirra, er leita sér lækn- inga á Vogi gegn áfengisneyslu. Vann hann þar allt til þess tíma, að hann kenndi sér meins þess, sem leiddi hann til dauða, eftir stutta legu á Landspítalanum við Hring- braut. Hann var heima um tíma í júlí, og þá ók hann mér til lyfjabúðar hér í borg, og virtist hress. Sagðist vinna á ný þriðjudaginn 7. ágúst. Hann dó, eins og fyrr sagði, 6. ágúst. Gunnar Sæmundsson gerði mér margan greiða. Hann ók með mig iðulega og var ætíð reiðubúinn til að- stoðar. Eitt sinn ók hann með mig og vinkonu mína til Þingvalla um sum- ar, bauðst til þess. Séra Heimir og frú Dóra buðu okkur inn í Þingval- labæinn og veittu okkur vel. Gunnari mun hafa þótt vænt um þetta, þó að hann væri ekki neinn kirkjunnar Gunnar Sæmundsson Legsteinar og fylgihlutir MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk sími 587 1960 www.mosaik.is • Mikið úrval • Yfir 40 ára reynsla • Sendum myndalista ✝ Ástkær móðir okkar og amma, ÁSDÍS JÓHANNESDÓTTIR, Kaplaskjólsvegi 27, Reykjavík, lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi, föstudaginn 10. ágúst. Viðar H. Jónsson, Magnea Sveinsdóttir, Ingunn Björk Jónsdóttir, Sæmundur Freyr Árnason, Agnar H. Kolbeinsson, Lóa Hallsdóttir, Bjarki Þór Haraldsson, Ástrós Björk Viðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, BERGA G. ÓLAFSDÓTTIR frá Kiðafelli í Kjós, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli, mánudaginn 13. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Börn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Magnea Kristín Hjartardóttir, Ægisíðu 125, Reykjavík, andaðist á Vífilsstöðum, þriðjudaginn 7. ágúst. Jarðarförin fer fram þriðjudaginn 21. ágúst kl. 13:00 í Fossvogskirkju. Jónína Hólmfríður Björgvinsdóttir, Haraldur Björgvinsson, Sonja Gestsdóttir, Ólafur Björgvinsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Logi Björgvinsson, Margrét Gústafsdóttir. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, NIKÓLÍNA KARLSDÓTTIR, Blómsturvöllum 39, Neskaupstað, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað, mánudaginn 13. ágúst. Karl Birgir Júlíusson, Gerður María Gunnarsdóttir, Stefanía María Júlíusdóttir, Þórleifur Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, systir og mágkona, SIGRÚN BÁRÐARDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, sunnudaginn 12. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Björgvin Þorleifsson, Jón Gestur Björgvinsson, Natalía Ósk Ríkarðsdóttir, Bernharð Máni Snædal, Óðinn Rafn Jónsson Snædal, Katrín Bárðardóttir, Magnús Einarsson. ✝ Kveðjuathöfn verður um elskulega móður okkar, GUÐRÚNU JÓNSDÓTTUR frá Möðruvöllum 1, Kjós, í Fossvogskirkju, fimmtudaginn 16. ágúst kl. 13.00. Jarðsett verður í kyrrþey í Reynivallakirkjugarði í Kjós. Sigrún Guðmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson og aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.