Morgunblaðið - 14.08.2007, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ GERÐIST
EKKERT Í HEIMINUM
Í DAG...
ALLIR VORU HEIMA AÐ HORFA Á
SJÓNVARPIÐ
FLEIRI
FRÉTTIR
KLUKKAN
ELLEFU
ÉG ELSKA
KALDHÆÐNIS-
STÖÐINA
ÉG HELD
AÐ VIÐ SÉUM
AÐ VERÐA
NÁNARI...
ÞETTA VAR
EFTIR
BRAHMS!
ÞEGAR ÞÚ SPILAÐIR ÞETTA
LAG EFTIR BEETHOVEN ÞÁ
HUGSAÐI ÉG, „EN FALLEGT“
ÞÁ HUGSAÐI ÉG HVAÐ
ÞAÐ ER FRÁBÆRT AÐ VIÐ
GETUM NOTIÐ SVONA
STUNDAR SAMAN
ÉG ELSKA
ÞESSA KÖLDU
OG GRÁU
VETRARDAGA
ÞÁ GETUR
MAÐUR HALDIÐ Í
VONDA SKAPIÐ
ALLAN DAGINN
NÚNA ÆTLA ÉG AÐ
ATHUGA VIÐBRÖGÐIN
HJÁ ÞÉR...
ÞÚ SKULDAR MÉR
NÝJAN HAMAR!
Á KÖLDUM NÓTTUM
HLEYPTU LAND-
KÖNNUÐIRNIR Í ALASKA
HUNDUNUM SÍNUM INN
Í TJALDIÐ SITT
ÞEGAR ÞAÐ VAR
SÉRSTAKLEGA KALT
HLEYPTU ÞEIR
ÞREMUR HUNDUM INN
ÞAÐ VANTAR
TVO HUNDA
Í VIÐBÓT
SPILAR HÚN
PÓKER?
JÁ, HÚN ER
MEIRA AÐ SEGJA
MJÖG GÓÐ!
ÉG ER HISSA! ÉG VISSI EKKI
AÐ MAMMA VÆRI GÓÐ Í
PÓKER. ÉG VISSI AÐ HÚN VÆRI
GÓÐ Í TENNIS, KLETTAKLIFRI,
SUNDI, SKÁK...
ÞETTA KEMUR
KANNSKI EKKI
MIKIÐ Á ÓVART
ÞÚ GETUR
EKKI PLATAÐ
MIG! ÉG HÆKKA
UM 100.000 kr.!
KÓNGULÓAR-
MAÐUR! ÞAÐ ER
FÓLK FAST
ÞARNA INNI!
HÚN HELDUR
AÐ ÉG SÉ
OFURHETJA
EN ÉG ER ENGIN
HETJA! ÉG ER
HRÆDDUR VIÐ ELD!
EN ÉG ÆTLA
EKKI AÐ SÓA EINA
TÆKIFÆRINU
MÍNU TIL ÞESS AÐ
GERA GAGN
dagbók|velvakandi
Íslenskan að breytast?
MÉR finnst með ólíkindum hvað vel
menntað fólk notar oft enskuslettur
þegar til eru góð og gild íslensk orð.
Til dæmis orðið að „funkera“.
Í Morgunblaðinu 12. ágúst sl. er
viðtal við hjúkrunarforstjóra heilsu-
gæslunnar um skort á menntuðum
hjúkrunarfræðingum. Og segir orð-
rétt: „Það getur tekið alveg tvö til
þrjú ár að átta sig á því hvernig skól-
inn fúnkerar og hvaða möguleikar
eru til þess að vinna vel.“
Í sama blaði er grein um þekkta
leikkonu og þar er orðið smart not-
að. Þar segir: „Túlkun hennar á
hinni smörtu og sætu, en siðblindu
og yfirborðslegu, Diane í Darling
vakti verðskuldaða athygli“ o.s.frv.
Ég hef aldrei fyrr séð orðið smart
beygt eins og í þessari umfjöllun. En
allt breytist og kannske er þetta það
sem koma skal, hver veit?
Lesandi.
Íslendingar í Kanada,
hver á heiðurinn?
Í ALLRI umræðunni um Íslend-
ingahátíð í Kanada og tengsl Íslands
og Kanada finnst mér leiðinlegt að
aldrei skuli verið talað um þann sem
byrjaði með ferðir til Kanada.
Agnar Guðnason, landbúnaðar-
ráðanautur hjá Bændaferðum, hóf
ferðir til Kanada árið 1978. Þá fór
hann með tvo hópa, annars vegar í
Klettafjöllin í júní og hins vegar á Ís-
lendingahátíðina í ágúst.
Síðar fjölgaði ferðunum og
Canada air hóf áætlunarflug milli
eyju og lands. Agnar fór einnig með
kóra og sá um ýmis atriði í Gimli.
Í dag er búið að selja Bændaferðir
og vakin er athygli á sterku sam-
bandi þjóðanna tveggja í fjölmiðlum
ár hvert. En aldrei hef ég séð nefnst
á þann mæta mann, Agnar Guðna-
son, sem á heiðurinn af þessu sam-
bandi.
Fyrrverandi ferðafélagi
í Bændaferðum.
Týndur páfagaukur
AFRICAN Gray
Congo páfagauk-
ur, 25-30 cm á
hæð, slapp út um
glugga frá heimili
sínu í Sólheimum
í Reykjavík sunnudagskvöldið 12.
ágúst. Fuglinn er grár að lit með
eldrautt stél og hringi á báðum fót-
um.
Ef einhver hefur orðið gauksins
var er sá hinn sami beðinn um að
hafa samband í síma 692-6816 eða
699-6216 eða hafa samband við lög-
regluna í Reykjavík.
Seðlaveski týndist
SEÐLAVESKI úr ljósbrúnu sná-
kaskinni týndist laugardaginn 11.
ágúst í Reykjavík. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í síma 895 0085.
Fundarlaun.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
VEGFARANDI naut kyrrðarinnar á Gróttu meðan sólin gægðist gegnum
þungbúinn skýin. Búist er við ríkjandi norðanátt fram á helgi með vætu
öðru hverju norðan- og austanlands en björtu veðri að mestu í öðrum lands-
hlutum. Snýst sennilega til sunnanáttar á sunnudag með hækkandi hitastigi.
Morgunblaðið/Kristinn
Veðurguð og vegfarandi
FRÉTTIR
SÍÐASTA garðaganga sumarsins á
vegum Garðyrkjufélags Íslands
verður á miðvikudaginn 15. ágúst.
Að þessu sinni verður gengið um
Hafnarfjörð. Fá bæjarfélög geta
státað af jafn mörgum og fallegum
náttúrulegum görðum, sem eru
ræktaðir í sínu upprunalega um-
hverfi að hluta til eða að öllu leyti
og Hafnarfjörður.
Leiðsögumaður er Steinar Björg-
vinsson garðyrkjufræðingur.
Mæting er í Hellisgerði, Reykja-
víkurvegarmegin, kl. 20.
Gengið um garða í Hafnarfirði