Morgunblaðið - 28.08.2007, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Tengdamóðir mín
Bjarnveig Jensey, allt-
af kölluð Veiga, var
mjög sérstök kona.
Hún var alla tíð mjög vinnusöm og
rak stórt heimili. Hún eignaðist 7
börn og eru barnabörnin og barna-
barnabörnin orðin mörg. Hún opnaði
hárgreiðslustofu í Keflavík árið 1946
en eftir að börnunum fjölgaði hætti
hún og sinnti heimilinu. Á þessum ár-
um urðu allir að vinna mikið til að
hafa í sig og á og unnu báðir tengda-
foreldrar mínir a.m.k. tvær vinnur.
Hún lærði að búa til snið og saumaði
mikið fyrir fólk. Hún fór oft í langar
hárgreiðsluferðir út á land. Það gerði
hún til að draga björg í bú. Hún var
Bjarnveig Jensey
Guðmundsdóttir
✝ Bjarnveig Jen-sey Guðmunds-
dóttir fæddist í
Neðri-Miðvík í Aðal-
vík 16. júní 1926.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Suðurnesja 23. júlí
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Keflavíkurkirkju
31. júlí.
hannyrðakona fram í
fingurgóma og eru ófá
sængurverasettin sem
hún hefur saumað,
merkt og heklað milli-
stykkin í. Einnig hafa
margir notið þess að
fá stórkostlega falleg-
ar peysur eftir hana.
Allt sem hún gerði
varð að vera vel gert
og hef ég til vitnis um
það brúðarkjólinn
minn og skírnarkjól-
inn sem börnin mín
voru skírð í.
Hún elskaði söng og fórum við
tvær saman nokkrum sinnum í Ís-
lensku óperuna og þekkti hún allar
óperurnar. Eftir að hafa sinnt ýms-
um störfum, þ. á m. á sjúkrahúsinu í
Keflavík, ákvað hún þegar hún varð
fimmtug að opna hárgreiðslustofu í
Kópavogi. Ekki voru allir vissir um
að hún væri að gera rétt en hún viss
um það og var hvergi bangin þó hún
þyrfti að keyra á milli Keflavíkur og
Kópavogs á hverjum degi. Hún
missti húsnæðið þar 1988 en var ekki
alveg tilbúin að hætta, enda ekki
nema 62 ára, svo hún keypti húsnæði
í Keflavík og opnaði stofu þar sem
hún starfrækti í átta ár eða þar til
hún varð sjötug. Hún hætti aldrei al-
veg að sinna hárgreiðslunni því í litlu
herbergi heima hjá henni hafði hún
smá aðstöðu sem hún notaði til
dauðadags.
Hún var lærdómsmanneskja, elsk-
aði að lesa bækur og var ótrúlega
fróð um hin ýmsu málefni. Sem dæmi
um það er þegar ég var að læra jarð-
fræði í leiðsögumannanámi mínu fyr-
ir nokkru, þá komst ég að því að hún
vissi allt um Reykjanesskagann. Hún
gaf mér fræðirit sem hún átti í fórum
sínum um eldstöðvar á Reykjanesi.
Þetta lýsir henni vel. Hún hafði
sterkar skoðanir á öllu og var mjög
trúuð og hin síðari ár sinnti hún því
með því að hjálpa fjölda manns. Hún
var með bænahring staðsettan heima
hjá sér, einnig var hún með fyrirbæn-
ir og nutu margir góðs af því. Einnig
lærði hún heilun og hjálpaði mörg-
um. Veiga var þessi dulræna týpa,
var oft meira þarna hinum megin, að
mér fannst, og er ég því viss um að
hún er í góðum höndum í dag. Ég veit
að tengdapabbi á eftir að sakna
Veigu sinnar mikið því þau voru svo
samrýmd.
Elsku Agnar, ég veit að Guð verð-
ur með þér og hjálpar þér í þínum
söknuði. Einnig sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur til allra af-
komenda Veigu og Agnars og fjöl-
skyldna þeirra.
Jóhanna.
✝
Innilegar kveðjur og þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
SIGFÚSAR A. JÓHANNSSONAR
bónda,
Gunnarsstöðum,
Þistilfirði.
Lifið heil.
Sigríður Jóhannesdóttir,
Kristín Sigfúsdóttir, Ólafur H. Oddsson,
Jóhannes Sigfússon, Fjóla Runólfsdóttir,
Steingrímur J. Sigfússon, Bergný Marvinsdóttir,
Árni Sigfússon, Hanne Matre,
Ragnar Már Sigfússon, Ásta Laufey Þórarinsdóttir,
Aðalbjörg Þuríður Sigfúsdóttir, Jón Hallur Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför,
MAGDALENU JÓRUNNAR BÚADÓTTUR
hjúkrunarfræðings,
Hvassaleiti 129.
Þökkum starfsfólki Landspítalans í Fossvogi og
Landakoti fyrir afbragðsgóða og alúðlega
umönnun og hjúkrun og þá sérstaklega starfsfólki
á deild K-1 Landakoti.
Höskuldur Baldursson
og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns, föður, tengdaföður og afa,
FRIÐFINNS ANNÓS B. ÁGÚSTSSONAR,
Mávahlíð 24.
Helga Hafberg,
Engilbert Ólafur Friðfinnsson, Guðbjörg Gísladóttir,
Hafsteinn Ágúst Friðfinnsson, Kolbrún Birna Halldórsdóttir,
Ari Friðfinnsson, Þuríður Kristín Sigurðardóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
ROLF JOHANSEN
stórkaupmaður,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtu-
daginn 30. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er góðfúslega bent á
að láta Krabbameinsfélag Íslands eða Krabba-
meinsfélagið Framför njóta þess.
Kristín Ásgeirsdóttir Johansen,
Agnes Johansen,
Thulin Johansen, Guðrún Þorleifsdóttir,
Svava Johansen, Björn Sveinbjörnsson,
Berglind Johansen, Pétur A. Haraldsson,
Ásgeir Johansen, Aki Isishe Johansen,
Kristín Johansen, Halldór Harðarson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín,
ELÍSABET HINRIKSDÓTTIR,
verður jarðsungin fimmtudaginn 30. ágúst kl. 15.00
í Garðakirkju.
Sveinn Torfi Sveinsson.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna
andláts og útfarar
RUTH HÖLLU SIGURGEIRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir eru sendar starfsfólki B 6 Land-
spítala Fossvogi og starfsfólki Grensásdeildar fyrir
góða umönnun.
Ólafur Axelsson,
Jón Axel Ólafsson,
Ólafur Ragnar Ólafsson,
Jóhann Garðar Ólafsson, Hulda Dögg Proppé,
Kristín Ruth, Ólafur Ásgeir, Óttarr Daði, Róbert Aron,
Elísa G. Jónsdóttir, Jón Hannesson.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
allan vegna andláts og útfarar
HARÐAR HARALDSSONAR
húsasmíðameistara,
Langholtsvegi 165.
Sérstakar þakkir til öldrunardeildar LSH, B-4 fyrir
ómetanlega alúð og umönnun.
Anna Dóra Harðardóttir, Hjörleifur Einarsson,
Kristín Huld Harðardóttir,
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Jón Stefánsson,
Haraldur Harðarson,
Björk Lind Harðardóttir,
Harpa Harðardóttir, Brynjar Freyr Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn
✝
Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
SIGURDÓR HERMUNDARSON,
Berjavöllum 2,
Hafnarfirði,
andaðist á Landspítala Hringbraut mánudaginn
27. ágúst.
Sigrún Helga Ólafsdóttir,
Hlíf S. Arndal, Jón Sigurðsson,
Sigrún Arndal, Sveinn Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri,
ÞORGRÍMUR EINARSSON
offsetprentari,
sem andaðist þriðjudaginn 21. ágúst, verður jarð-
settur frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. ágúst
kl. 15.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og bróðir.
Við Jón Ásgeir unnum saman sem
blaðamenn á Þjóðviljanum og síðar á
Ríkisútvarpinu. Við vorum góðir vin-
ir. Feður okkar voru gamlir vinir og
höfðu sem ungir menn verið við
verslunarnám í sama skóla á 3. ár-
artugnum. Ég átti ljósmynd af þeim
við breiðstræti í Lundúnum og gaf
honum afrit af henni. Þessi litli at-
burður færði okkur enn nær hvorum
öðrum. Ég er einnig mikill vinur
Margrétar systur hans. Við vorum
öll af 68-kynslóðinni og höfðum
sömu lífsáherslur og skopskyn.
Jón Ásgeir var maður jafnréttis,
sanngirni og frelsis. Sýn okkar á
þjóðlíf og stjórnmál fóru alltaf sam-
an; við vorum frjálslyndir jafnaðar-
menn.
Jón Ásgeir var nákvæmur blaða-
maður, vel að sér og vann í anda
upplýsinga og fræðslu. Honum var
lítið gefið um uppslætti og hasar-
fréttir. Þess vegna var hann ekki
blaðamaður sem stundaði sprett-
hlaup með látum og honum var sama
um slúður og hneykslan. Hann sat í
rólegheitum við sína tölvu og aflaði
upplýsinga, helst úr hinum stóra
heimi og bar á borð fyrir blaðales-
endur sem útvarpsáheyrendur.
Hann hafði meiri áhuga á upplýs-
ingu en upphlaupum. Ég bar alltaf
virðingu fyrir þessum kostum hans.
Hann var sterkur í félagsmálum
blaðamanna en fór hægt og hljótt í
blaðamennsku sinni. Líkt og hann
gerði þegar hann kvaddi. Ég mun
sjá eftir vini og góðum dreng.
Ingólfur Margeirsson.
Jón Ásgeir
Sigurðsson
✝ Jón Ásgeir Sigurðsson fædd-ist í Reykjavík 13. september
1942. Hann lést á heimili sínu 14.
ágúst sl.
Útför Jóns var gerð frá Hall-
grímskirkju í Reykjavík 23. ágúst
sl.