Morgunblaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007 37
ÞJÓÐVERJAR eru að gera upp
martröð Þriðja ríkisins á hvíta tjald-
inu, rýna í svartnætti seinnastríðs-
áranna úr hálfrar aldar fjarlægð.
Þeir gera það viturlega og samvisku-
samlega, það hefur komið á daginn í
fáeinum myndum á síðustu árum.
Die Fälscher tekur fyrir hálf-
gleymdan en ævintýralegan þátt úr
heimsvaldageðsýki nasista, peninga-
falsið sem þeir stóðu fyrir undir lok
stríðsins. Smalað var saman úr út-
rýmingarbúðum, kunnum hand-
verksmönnum og flinkum lista-
mönnum af gyðingaættum, til að
gera prentmót af enska pundinu.
Þegar Salomon Sorowitsch (Marko-
vics), nafntogaður peningafalsari og
listmálari bættist í hópinn, fara hjól-
in að snúast í prentsmiðjunni, sem
er vel falin í einni fangabúðanna.
Undir stjórn SS foringjans Herzogs
(Striesow), fóru pundin að flæða í
tugmilljónum og dollarinn að kom-
ast í gagnið þegar allt var um seinan.
Tilgangur peningafalsins var að
dreifa þeim yfir Bretlandseyjar og
lama hagkerfi óvinarins, en þegar til
kom var tíminn of naumur og hinn
síminnkandi, þýski flugher hafði
öðrum hnöppum að hneppa.
Myndin er byggð á endurminn-
ingum Adolfs Burger (Diehl), eins
falsaranna, og bregður leikstjórinn
og handritshöfundurinn Ruzow-
tizky, birtu á þessar lygilegu aðgerð-
ir, og lýsir ástandi í fangabúðum og
spyr siðferðilegra spurninga sem
falsararnir urðu að velta fyrir sér.
Er hægt að lifa með það á samvisk-
unni að halda tórunni á kostnað ann-
arra? Gildir hin gullvæga regla, einn
fyrir alla og allir fyrir einn undir
ægilegum kringumstæðum þar sem
þessi litli 140 fanga hópur hangir á
hálmstrái prentverksins, eða er hver
sjálfum sér næstur?
Svörin eru á gráleit og trúverð-
ugleiki hins ofurheilsteypta og siða-
vanda Burgers virkar ekki sem
skyldi. Minnumst þess að myndin er
byggð á endurminningum hans og
sjálfsagt fer fyrir Burger líkt og Al-
bert Speer og öðrum æfisagnarit-
urum, þeim hættir við að fegra sinn
hlut.
Áhrifarík og einkar forvitnileg,
vönduð mynd með þéttum leikhóp
með þá Markovics og Striesow mjög
sannfærandi báða, en ljóður á verk-
inu er sú ákvörðun Ruzowtizky, að
segja okkur frá endalokunum í upp-
hafsatriðinu.
Rýnt í sortann
KVIKMYNDIR
Regnboginn: Bíódagar Græna
ljóssins
Leikstjóri: Stefan Ruzowitzky. Aðalleik-
arar: Karl Markovics, August Diehl,
David Striesow. 99 mín. Austurríki/
Þýskaland 2007.
Die Fälscher Sæbjörn Valdimarsson
Peningar „Die Fälscher tekur fyrir hálfgleymdan en ævintýralegan þátt úr heimsvaldageðsýki nasismans [...].
KLASSART er splunkuný hljómsveit
úr Sandgerði sem samanstendur af
systkinunum Smára og Fríðu Guð-
mundsbörnum. Það er fremur sjald-
gæft að hljómsveitir á Íslandi inni-
haldi systkini og eftirtektarvert fyrir
vikið. Það er þó langt því frá það eina
sem er eftirtektarvert við Klassart
því það er enn sjaldgæfara að fá í
hendurnar frum-
raun hljómsveitar
og verða jafn hrifin
og ég varð í þetta
skipti. Klassart
hljómar nefnilega á
þessari fyrstu plötu
sinni eins og sveit sem er búin að vera
að gefa út plötur í áratug og búin að
finna, móta og meitla tónlist sína og
stíl. Lögin og textarnir eru í flestum
tilvikum samvinna systkinanna og
gengur sú samvinna í alla staði upp,
því textarnir eru í senn afslappaðir,
dularfullir og tregablandnir; eitthvað
sem á afskaplega vel við blúsaða tón-
listina. Hljóðfæraleikurinn er í hönd-
um hinna færustu og má til að mynda
nefna Guðmund Pétursson gítarleik-
ara sem á stjörnuleik hér, hvar sem
drepið er niður á diskinum.
Klassart hefur leikinn á fyrri hluta
skífunnar með léttari lögum eins og
Bottle of Blues og Mrs. Jones en
þessi lög eru líklega mest grípandi til
að byrja með. Það eru þó þyngri lög
síðari hluta plötunnar sem gefa henni
þungamiðju og aukið vægi og gera
það að verkum að platan á eflaust eft-
ir að lifa. Lögin Painkillers & Beer,
January Sun, The Hounds of Bark-
ingville og Light Up eru vægast sagt
stórkostleg og vinna á í hvert skipti
sem diskurinn fær að rúlla. Eftir að
hlustandinn er aðeins kominn inn í
lögin, ef svo mætti að orði komast, er
engu líkara en verið sé að hlusta á
einn af diskum Led Zeppelin eða alla-
vega einhvern disk sem kemur út á
áttunda áratugnum með þessu mjúka
„seventies“-sándi. Rödd Fríðu Dísar
Guðmundsdóttur er þó það sérkenni
sem Klassart þarfnast til að hverfa
ekki bara í hóp hljómsveita sem
hljóma vel en eru ekki eftirminnileg-
ar eftir nokkrar hlustanir. Hún á
margar raddir og leikur sér með þær
á þessari plötu. Hún kann líka listina
að tæla með röddu sinni, sem er eitt-
hvað sem söngkona Mazzy Star,
Hope Sandoval, masteraði á sínum
tíma. Blús-, djass- og kántrískotið
poppið á vel við rödd Fríðu, og hún
hreinlega springur út á þessari fyrstu
plötu sem hún syngur inn á. Það er
yndislegt þegar jafn-hæfileikaríkt
fólk og hér er á ferð stimplar sig inn í
meistaraflokk með svona góðri plötu.
Klassart í
meistaraflokk
Ragnheiður Eiríksdóttir
TÓNLIST
Klassart – Klassart
LENGI hef ég verið mikill aðdá-
andi safnplatna og hef ákveðnar
skoðanir á því hvernig slíkar plöt-
ur skyldu framreiddar. Á plötunni
með tónlistinni úr Astrópíu koma
fram tónlistarmenn úr ýmsum átt-
um, bæði vel þekktir listamenn og
byrjendur. Undarlega samsett
lagaval gerir það þó að verkum að
platan nær aldrei neinu sérstöku
flæði sem heildarverk, heldur
verður aldrei neitt meira en sam-
ansafn misgóðra laga.
Sum laganna eru mjög vönduð
og fín. Þar á meðal má nefna
,,Verum í sambandi“ með
Sprengjuhöllinni og ,,Synthia“
þeirra í FM Belfast. ,,Hold me
Closer“ með
Motion Boys er
mjög skemmtilegt
og vandað diskó-
popp sem hressir
upp á plötuna og
einnig má bæta
við Ultra Mega Techno-bandið
Stefán en þeir flytja lagið ,,Story
of a Star“.
Það eru hinsvegar lög eins og
,,Sumarást“ í flutningi Helga
Björns og Ragnhildar Steinunnar
sem ég skil ekki að skuli hafa ver-
ið tekin upp. Ég vona að lagið hafi
gríðarlegan tilgang í kvikmynd-
inni vegna þess að flutningur
þeirra Helga og Ragnhildar er
bæði sálarlaus og tilgangslítill
miðað við þann unað sem lag Lee
Hazelwoods ,,Summerwine“ er.
Eins eru lög Þorvalds Bjarna flutt
af Birgittu Haukdal og Stefáni
Hilmarssyni svo ófrumleg og inn-
antóm.
Flest hin lögin liggja einhvers
staðar á miðjunni. Sum betri en
önnur en engin meistaraverk.
Eins og áður sagði er uppröðun
laganna þess eðlis að platan nýtur
sín ekki alveg nógu vel í hlustun.
Platan er ágætis minnisvarði um
eðli íslenskrar tónlistarsenu um
þessar mundir. Sumir hlutar
hennar eru mjög ferskir og
skemmtilegir á meðan aðrir eru
úreltir og algerlega tilgangslausir.
Minnisvarði
um sumarið
2007
TÓNLIST
Ýmsir – Tónlistin úr kvikmyndinni
Astrópía
Helga Þórey Jónsdóttir
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is
Miðapantanir í síma: 437-1600
2007–2008
Óvitar!
Frábær fjölskyldusýning. Forsala hafin!
Frumsýning 15. september kl. 20. UPPSELT
Áskriftarkortasala hafin!
Vertu með!
Sunnud. 16/9 kl. 20
Fimmtud. 20/9 kl. 20
Föstud. 21/9 kl. 20
Laugard. 22/9 kl. 20
Fimmtud. 27/9 kl. 20
Föstud. 28/9 kl. 20
Laugard. 29/9 kl. 20
4 600 200
leikfelag.is
LÍK Í ÓSKILUM
Lau 1/9 kl. 20 FRUMSÝNING upps.
Mið 5/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20 upps.
LADDI 6-TUGUR
Sun 2/9 kl. 20 upps. Fim 6/9 kl. 20
Fös 7/9 kl. 20
SÖNGLEIKURINN ÁST
Í samstarfi við Vesturport
Fös 31/8 kl. 20 Lau 1/9 kl. 20
Fös 7/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Mið 12/9 kl. 20 Mið 19/9 kl. 20
Mið 26/9 kl. 20
SÖNGLEIKURINN GRETTIR
Fim 30/8 kl. 20 upps. Lau 8/9 kl. 20
Sun 9/9 kl. 20 Lau 15/9 kl. 20
KILLER JOE
Í samstarfi við Skámána
Fim 6/9 kl. 20 Fim 13/9 kl. 20
DAGUR VONAR
Fim 13/9 kl. 20 Fös 14/9 kl. 20
Fös 21/9 kl. 20 Lau 29/9 kl. 20
Miðasala 568 8000 - www.borgarleikhús.is
Söngmenn óskast!
KARLAKÓRINN FÓSTBRÆÐUR
Karlakórinn Fóstbræður getur bætt við sig
efnilegum söngmönnum.
Upplýsingar veita Smári S. Sigurðsson formaður í síma 8633247
og Þráinn Sigurðsson varaformaður í síma 8202151.
Á PLÖTUNNI Elvis kemur ljóð-
skáldið Didda fram ásamt nokkrum
vinum og kalla þau sig Minä
rakastan sinua. Platan nefnist Elvis
sökum þess að á henni eru flutt lög
sem Elvis Presley flutti á ferli sín-
um. Ásamt Diddu koma fram bræð-
urnir Þór og Ari Eldon, Kormákur
Geirharðsson og Riina Finnsdóttir.
Söngrödd Diddu
er mjög sérstök.
Hún hljómar ekki
æfð heldur frekar
eins og rödd sem
hefur þroskast
með lífi og sál þess
sem hana ber. Didda gefur þessum
þekktu lögum skemmtilega kven-
legan blæ með flutningi sínum, án
þess þó að gerast sek um væmni.
Hrár persónuleiki skín í gegn og
leikgleði hennar verður ljós. Út-
setningarnar eru ágætar, þær eru
ekki of úthugsaðar, frekar eins og
þær kæmu fyrir sæi hlustandinn
sveitina spila á tónleikum.
Hráslagaleiki plötunnar bæði
vinnur með henni og gegn; ég er
sannfærð um að Minä rakastan
sinua er hljómsveit sem skilar
góðri stemningu á tónleikum en á
erfiðara með að skila töfrunum á
plötu. Engu að síður býður platan
upp á skemmtilegt sjónarhorn á
feril Presleys á nokkuð frumlega
vegu.
Ég elska þig,
Elvis
TÓNLIST
Minä rakastan sinua – Elvis
Helga Þórey Jónsdóttir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111