Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 8
Í HNOTSKURN »Barónsreitur afmarkast afLaugavegi, Vitastíg, Skúlagötu og Barónsstíg. »Fasteignafélagið SamsonProperties kynnti sl. mið- vikudag hugmyndir sínar um uppbyggingu nýs miðborg- arkjarna og íbúðarhúsa á Bar- ónsreitnum. »Samkvæmt hugmyndumfyrirtækisins er ráðgert að gera húsin við Vitastíg upp með það að markmiði að götu- myndin fái að halda sér. »Stefnt er að því að nýrmiðborgarkjarni á Bar- ónsreit verði tilbúinn undir lok árs 2010. FRÉTTASKÝRING Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is EIGI hugmyndir fasteignafélagsins Samson Properties um uppbygg- ingu miðborgarkjarna og íbúðahúsa á Barónsreitnum að ganga eftir er ljóst að a.m.k. sextán hús á reitnum þurfa að víkja, þ.e. annaðhvort þarf að rífa þau eða færa þau annað. Þar er um að ræða húsin við Skúlagötu 26 (þar sem Kassagerðin var til húsa), 28 (sem hýsir kexverksmiðju Fróns), 30, 32 og 34, Vitastíg 3 (fyrrum lakkrísverksmiðja), Lauga- veg 67, 67A og 69 og Hverfisgötu 88A, 88B, 90, 92, 92A, 92B og 92C. Í deiliskipulagi fyrir svæðið er gert ráð fyrir að öll fyrrnefnd hús við Hverfisgötuna víki, auk þess sem ráðgert er að húsið á Hverfisgötu 88C verði fjarlægt og lóðin sam- einuð Laugavegi 69. Óljóst hvort húsin við Skúlagötu 32-34 víki Samkvæmt upplýsingum frá Samson Properties á félagið nú þegar öll húsin við Vitastíg milli Laugavegar og Hverfisgötu, þ.e. Hverfisgötu 84, Vitastíg 7, 9 og 9A og Laugaveg 65 (P. Eyfeld-hlutann) og Laugaveg 67A. Félagið hyggst gera fimm fyrstnefndu húsin upp eftir þörfum þannig að götumynd Vitastígs fái að halda sér. Hins veg- ar er ráðgert að húsið við Laugaveg 67A víki og ráðgert er að húsið á Vitastíg 3, sem félagið á einnig, en um er að ræða gamalt iðnaðarhús- næði sem breytt hefur verið í íbúð- ir, verði rifið. Félagið á auk þess húsin við Hverfisgötu 88A, 88B, 90, 92, 92A, 92B og 92C sem og húsið við Laugaveg 69. Húsin við Skúla- götu 32-34 eru hins vegar í eigu ein- staklinga og fyrirtækja og því er það, samkvæmt upplýsingum frá Samson Properties, háð því að sam- komulag náist við íbúa í húsunum hvort þau víki fyrir nýju íbúðar- húsnæði í samræmi við hugmyndir fyrirtækisins. Skipulagssjóður vill stuðla að heildstæðri uppbyggingu Hjá Kristínu Einarsdóttur, fram- kvæmdastjóra Skipulagssjóðs Reykjavíkurborgar, á Skipulags- sjóður húsin við Skúlagötu 26, 28 og 30, auða lóð að Vitastíg 5, en húsið á lóðinni var rifið í fyrra, allar auðar lóðir milli Barónsfjóssins og Bjarnaborgar sem og baklóðirnar milli Hverfisgötu og Skúlagötu. Skipulagssjóður á einnig húsið á Hverfisgötu 88C og meirihlutann í húsinu við Laugaveg 67, en sjóð- urinn á 237 fermetra í því húsi og 87,5 fermetrar eru í eigu ein- staklings. Segir Kristín ár síðan samþykkt var að Skipulagssjóður færi í við- ræður við Samson Properties um kaup fyrirtækisins á þeim lóðum og húsum á reitnum sem nú eru í eigu sjóðsins. Aðspurð segir Kristín sjóðinn afar opinn fyrir því að selja Samson Properties eignir sínar á reitnum megi það verða til þess að stuðla að heildstæðri uppbyggingu á Barónsreitnum, enda tilgangurinn með Skipulagssjóði að stuðla að framgangi skipulags í borginni. Samkvæmt upplýsingum frá Guð- nýju Gerði Gunnarsdóttur borg- arminjaverði, eru aðeins þrjú hús á Barónsreitnum öllum friðuð. Það eru húsin á Hverfisgötu 86, Bjarna- borg á Hverfisgötu 83 og Bar- ónsfjós á Barónsstíg 4. Samkvæmt tillögu Samson Properties fer mið- borgarkjarninn yfir húsið við Hverfisgötu 86. Eftir því sem blaða- maður kemst næst er verið að skoða hvort hægt sé að flytja húsið innan reitsins, en húsið hefur einu sinni verið flutt til eftir að það var friðað þannig að fordæmi er komið fyrir því að það hús verði flutt. Eins og kunnugt er þarf leyfi bygginganefndar, eigi að rífa eða færa hús sem byggt er fyrir 1918, en nefndin kallar eftir umsögn frá Húsafriðunarnefnd og Árbæj- arsafni. Eftir því sem blaðamaður kemst næst er húsið á Hverfisgötu 90 byggt á árunum 1902-1912 og húsið á Hverfisgötu 92 byggt 1904. Hin húsin við Hverfisgötu sem ráð- gert er að víki eru byggð á ára- bilinu 1919-1927. Miklar breytingar framundan                               !     "#  A.m.k. 16 hús þurfa að víkja fyrir nýj- um miðborgarkjarna og íbúðarhúsum 8 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „SEM frum- hugmynd lofar hún góðu en það á náttúrlega eftir að vinna úr henni. Þetta er aðeins hugmynd um staðsetningu, byggingarmagn, eðli bygginga og hvernig þær tengjast um- hverfinu, en byggingin sem slík er ekki farin að taka á sig mynd ennþá. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa lýst því yfir að þeir vilji gjarn- an hafa gott samráð við íbúa og húsverndarfólk og það vekur með mér bjartsýni á að þetta geti tekist vel,“ segir Pétur H. Ármannsson arkitekt, varaformaður húsafrið- unarnefndar og stjórnarmaður í Torfusamtökunum, um nýkynntan miðborgarkjarna á Barónsreit. Að mati Péturs er mjög virðing- arvert af Samson Properties að leggja hugmyndir sína um upp- byggingu svona snemma fram. „Oft er hugmyndum haldið leyndum þar til orðið er of seint að setja fram neinar skoðanir um þær. Þarna hafa þeir valið að kynna hugmynd- ina á þessu frumstigi og fá fram umræður og skoðanaskipti og þá er svigrúm til að bregðast við því við hönnun tillögunnar, sem hefði ekki verið ef búið væri að teikna þetta allt í smáatriðum,“ segir Pétur. Tekur hann fram að sér finnist virð- ingarverð sú viðleitni Samson Pro- perties að virða þær sögulegu byggingar sem fyrir eru á reitnum sem og núverandi götumynd Vita- stígs. Að sögn Péturs er afar mikilvægt hvernig miðborgarkjarninn nýi muni líta út frá sjónarhorni hins gangandi vegfaranda. „Við fyrstu sýn virðast þessar byggingar vera mjög mikið bákn en það eru ýmsar leiðir til að draga úr áhrifum slíkra bygginga. Það hefur verið gert með góðum árangri víða erlendis,“ segir Pétur og bendir á að stórar bygg- ingar hafi þá verið faldar bak við eldri hús. „Það er leið sem er alveg fær og hefur verið gert með góðum árangri. En auðvitað kallar það á vandaða hönnun og góða úr- vinnslu,“ segir Pétur og tekur fram að það verði væntanlega líka vanda- verk að hanna brúarhugmyndina yfir Hverfisgötuna svo vel takist til. Hugmyndin lofar góðu Pétur H. Ármannsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.