Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 47 Námskei› fyrir ungbörn og foreldra. Mi›a› er vi› börn frá 3ja mána›a til eins árs. Námskei›i› ver›ur sex skipti á fimmtudögum kl. 11 á Engjateigi 1 og hefst 4. október. Vi› syngjum, leikum, dönsum og njótum samveru. Kennari Diljá Sigursveinsdóttir. Skráning í síma 568 5828 Engjateigur 1 , 105 Reykjavík - sími: 568 5828 - http://tsdk.ismennt.is „Ungur nemur“ Engjateigur 1 , 105 Reykjavík - sími: 568 5828 - http://tsdk.ismennt.is Innritun stendur yfir á átta kvölda söngnámskeið í raddbeitingu og öndun sem hefst 1. október. Kennarar Au›ur Gunnarsdóttir og John Speight. Skráning í síma 568 5828 „Söngurinn göfgar“ Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is NÝR skemmtistaður, Rúbín, verð- ur opnaður við Keiluhöllina í Öskjuhlíð um næstu mánaðamót. „Rúbín er hrein viðbót við aðra afþreyingu sem við bjóðum upp á í húsinu. Hérna tökum við á móti mörgum hópum, fólki sem er að koma í keilu og aðra afþreyingu, og fer síðan niður í bæ að skemmta sér. En nú ætlum við að bjóða upp á heildarpakkann svo fólk þarf ekki að fara neitt heldur tekur skemmtunina hérna frá A til Ö,“ segir Rúnar Fjeldsted, eigandi staðarins og framkvæmdastjóri Keiluhallarinnar. „Staðurinn stílar inn á fótboltaáhorf þegar leikir eru, við verðum með böll á föstu- dags- og laugardagskvöldum og einnig erum við með ráðstefnusal á virkum dögum, svo verður hægt að leigja salinn fyrir einka- samkvæmi.“ Rúnar segist ekki óttast fjar- lægðina frá miðbænum. „Ég held að staðsetning Rúbíns sé jákvæð- ur punktur. Við erum ekki að stíla staðinn inn á unglinga heldur fyrir 25 ára og eldri. Nú er lög- reglustjórinn að reyna að breyta afgreiðslutíma í miðbænum, loka öllu fyrr og færa staði með lengri afgreiðslutíma í útjaðra bæjarins og þá held ég að þessi staður sé á kærkomnum stað, við endamörk 101.“ Perlan og Rúbín Rúbín verður opnaður formlega um næstu mánaðamót og geta skemmtanaglaðir Íslendingar stól- að á gott ball þar um hverja helgi. „Hér er stórt og gott dansgólf og nóg af sætum svo fólk ætti að geta notið sín. Staðurinn verður sambærilegur við Players í tónlist- arvali, hér munu bönd eins og Paparnir, Stuðmenn og Spútnik halda uppi stuðinu um helgar.“ Spurður út í nafnið á staðnum segir Rúnar það ekki svo langsótt. „Perlan er steinn júnímánaðar og rúbín er steinn júlímánaðar þann- ig að það lá beint við að hafa Perl- una og Rúbín í Öskjuhlíðinni.“ Innréttingar skemmtistaðarins hannaði Guðni Pálsson arkitekt. „Allt inni á staðnum er nánast sérsmíðað, innréttingarnar koma víða að. Ljósin eru líka sérstök, við getum verið með allt ljósalit- rófið og þannig breytt staðnum í takt við stemningu og stuð,“ segir Rúnar að lokum. Við endamörk 101 Nýr skemmtistaður fyrir 25 ára og eldri verður opnaður í Öskjuhlíðinni um mánaðamótin næstkomandi Morgunblaðið/G.Rúnar Rúbín Rúnar ætlar að vera með böll um hverja helgi á hinum nýja stað. www.keiluhollin.is Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „VIÐ erum svakalegir diskó-karlar, og reyndar sérstaklega hann Gísli. Hann er náttúrulega að spila með Trabant og það er smá diskó hjá þeim,“ segir Ásmundur Sveinsson, eða Ási Disco, sem í kvöld ætlar að standa fyrir diskókvöldi á Barnum ásamt Gísla Galdri Þorgeirssyni. „Það eru alls konar kvöld haldin, en engin diskókvöld. Það er svolítið leiðinlegt því það myndast alltaf svo góð stemning á þessum kvöldum. Við ætlum að reyna að koma smá költi í gang,“ segir Ási sem stefnir að því að halda stærra diskókvöld eftir um það bil tvo mánuði. Sápukúluvél Eins og margir eflaust muna stóð plötusnúðurinn Margeir lengi vel fyrir árlegum diskókvöldum, en hætti því fyrir nokkru. Að sögn Ása eru þeir félagar að reyna að fylla upp í tómarúmið sem þá myndaðist. Þegar diskó er nefnt á nafn hugsa eflaust margir um Y.M.C.A., John Travolta og Bee Gees. Ási segir stemninguna í kvöld þó verða á að- eins öðrum nótum. „Þetta er ekki svona popp-diskó, þetta er meira Chic og Gwen McCrae, meira fönk og meira grúv eins og var á diskó- kvöldunum hjá Margeiri,“ segir hann. „Svo ætlum við að reyna að vera með sápukúluvél og skapa svo- lítið skemmtilega stemningu.“ Flestir tónlistaráhugamenn þekkja eflaust Gísla Galdur, enda hefur kappinn komið víða við, en trú- lega þekkja færri til Ása. „Ég er eig- inlega nýr af nálinni. Ég hef verið að spila heima hjá mér frá því ég man eftir mér. Svo uppgötvaði ég það eig- inlega í sumar hvað mér finnst gam- an að spila fyrir fólk,“ segir Ási sem hefur meðal annars spilað á Barn- um, Q-Bar, Rúbín og B5. Ekkert Y.M.C.A. Diskóið heiðrað á Barnum í kvöld Diskó friskó Það verður án efa fjör á Barnum í kvöld og mörg diskósporin stigin af dansglöðum gestum. Þeir félagar hefja leik á neðri hæð Barsins á miðnætti í kvöld. Að- gangur er ókeypis. www.myspace.com/discokvold ÞÝSKI dreifingaraðilinn MDC.INT hefur tryggt sé alheimsréttinn á kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur Veðramótum. Hér er um að ræða rótgróinn og virtan dreifingaraðila gæðakvikmynda frá öllum heims- hornum. Útlit er fyrir að Veðramót verði valin á kvikmyndahátíðina í Berlín 2008, en útsendarar hátíðarinnar sáu myndina á lokaðri sýningu í Noregi fyrir skömmu. Kvik- myndahátíðin í Berlín telst til svo- kallaðra A-hátíða ásamt fimm öðrum hátíðum, sem þýðir að hún er talin vera ein af sex sterkustu kvik- myndahátíðum veraldar og má segja að hún sé öflugasti vettvangur heims til að koma á framfæri nýjum evr- ópskum kvikmyndum. Kvikmyndahátíðin í Berlín fer fram í febrúar á næsta ári og haldi fram sem horfir verða Veðramót ekki sýnd á erlendri grundu fyrr en þá, þrátt fyrir að myndin fái boð frá erlendum hátíðum svo til daglega um þessar mundir segir í frétta- tilkynningu frá Senu. Veðramót Tæplega 10.000 manns hafa séð myndina hér á landi. Veðramót til Berlínar? Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.