Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 21
SUÐURNES
Grindavík | „Það
er ekkert hlustað
á okkur í þessu
frekar en öðru,“
segir Sigmar
Eðvarðsson, for-
maður bæjarráðs
Grindavíkur.
Bæjarráð hefur
mótmælt harð-
lega uppsetningu
Flugstoða á fjar-
skiptasendum í
möstrum hersins á varnarsvæðinu í
heiðinni við Grindavík, í trássi við
vilja bæjaryfirvalda.
Þegar Bandaríkjaher fór og lok-
aði varnarstöðinni á Keflavíkur-
flugvelli fékk hann leyfi til að halda
svæðinu við Grindavík þar sem eru
mikil fjarskiptamöstur. Grindvík-
ingar líta á þetta sem framtíðar
byggingarland og vilja möstrin í
burtu og að landinu verði skilað. Í
bókun bæjarráðs kemur fram að
það sé þegar farið að hamla upp-
byggingu bæjarins.
Sigmar segir að forsvarsmenn
bæjarins hafi lagt á það áherslu við
utanríkisráðherra að starfsemin í
heiðinni yrði lögð niður og nýrri
starfsemi ekki hleypt þangað inn.
„En það er ekkert hlustað á okkur í
þessu frekar en öðru,“ segir Sig-
mar. Vísar hann til þess að ekkert
tillit hafi verið tekið til Grindavíkur
við ákvörðun mótvægisaðgerða
ríkisstjórnarinnar vegna þorsk-
kvótaskerðingar nú á dögunum og
að ekkert sé hlustað á þá þegar þeir
hafa krafist úrbóta í löggæslu og
heilsugæslu. Segir hann að bæði
hæilsugæsla og löggæsla sé í ólestri
á staðnum.
„Ekkert
hlustað
á okkur“
Eftir Reyni Sveinsson
Sandgerði | Steindeplarnir voru
svolítið ráðvilltir yfir nýfengnu frelsi
þegar þeim var sleppt utan við
Fræðasetrið í Sandgerði í fyrradag.
Þeir hafa verið viðfangsefni við at-
ferlisrannsóknir svissnesks fugla-
fræðings, Ivans Maggini, frá því í
vor.
Ivan kom til landsins í júní og
byrjaði á því að fara til Eyjafjarðar
til að sækja 24 unga úr hreiðrum.
Hann hefur haft aðstöðu í Fræða-
setrinu í Sandgerði.
Fyrstu vikurnar þurftu Ivan og
aðstoðarmaður hans að mata hvern
unga á klukkustundar fresti, allan
sólarhringinn. Þegar ungarnir fóru
að braggast voru þeir settir í tjöld
inni í aðstöðu þeirra þar sem fugl-
arnir gátu sjálfir náð sér í mat og
lært að fljúga.
Taka flugið til Afríku
Steindepillinn er farfugl og kemur
frá Afríku að vori og fer þangað aftur
að hausti.
Rannsóknirnar fóru fram innan-
dyra en í fyrradag var fyrstu fugl-
unum sleppt utan við Fræðasetrið.
Sumir þeirra voru svolítið áttavilltir
en Ivan segir að þeir muni taka flug-
ið til Bretlandseyja á næstu dögum
og fljúga þaðan til Afríku.
Ivan hefur í sumar fylgst með
hverjum og einum unga og rannsak-
að, sérstaklega hvenær hann áttar
sig á hvaða flugstefnu hann á að taka
til vetrarheimkynnanna.
Ivan hyggst koma aftur næsta
sumar en þessar rannsóknir eru
hluti af doktorsverkefni hans við
þýskan háskóla.
Steindeplarnir þurftu
tíma til að átta sig
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Frelsi Valdís Sigurðardóttir, starfsmaður Fræðasetursins, tók þátt í að
sleppa steindeplunum. Þeir flugu beint niður í fjöru að leita sér ætis.
Í HNOTSKURN
»Steindeplarnir fara flest-allir af landi brott í sept-
ember til vetrarstöðvanna í
Vestur-Afríku. Þeir byrja að
koma aftur í apríl en flestir
skila sér í maí.
»Þeir verpa víðast hvar umlandið, utan miðhálendis-
ins. Talið er að stofninn sé 20
til 50 þúsund pör og að auki
koma hér við steindeplar sem
verpa á Grænlandi.
»Hljóð steindepla eru sér-stæð, líkjast því að steinum
sé slegið saman.
Vængjaður Ungarnir eru tilbúnir
að taka flugið suður á bóginn.
Reykjanesbær | Krabbameinsfélag
Suðurnesja og Sunnan 5 sem er
stuðningshópur krabbameins-
greindra og aðstandenda, halda op-
ið hús að Smiðjuvöllum 8, húsi
Rauða krossins, þriðjudaginn 25.
september næstkomandi, klukkan
20.
Gestur kvöldsins verður Matti
Ósvald, heildrænn heilsufræðingur,
sem mun flytja fyrirlesturinn. And-
legt jafnvægi og mataræði, hefur
það áhrif á heilsu okkar?
Fundarboðendur hvetja þá sem
áhuga hafa á heilsutengdum mál-
efnum til að koma.
Andlegt jafnvægi
og mataræði
Keflavík | Knattspyrnudeild Kefla-
víkur og stuðningsmannafélagið
Stafnvík ehf. hafa óskað eftir því
við Reykjanesbæ að fá heimild til
að byggja fimm fjölbýlishús á
íþróttasvæði félagsins við Hring-
braut. Kemur þetta fram á vef Vík-
urfrétta.
Árni Sigfússon bæjarstjóri sagði
frá þessu erindi á fundi bæjar-
stjórnar í vikunni. Hjá honum kom
fram að í Stafnvík væru einstak-
lingar og fyrirtæki sem hefðu
þekkingu á því að byggja. Hug-
myndin er að hluti ágóðans af sölu
íbúðanna renni til knattspyrnu-
deildarinnar.
Fram kemur hjá Steinþóri Jóns-
syni, formanni umhverfis- og
skipulagsráðs Reykjanesbæjar, í
Víkurfréttum að bæjaryfirvöld eru
jákvæð fyrir hugmyndinni en hann
tekur fram að eftir sé að skoða
hana með tilliti til skipulags á
svæðinu og fleiri þátta. Ekkert hafi
því verið samþykkt eða ákveðið.
Vilja byggja
við völlinn
♦♦♦
LANDIÐ
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | „Við vildum að þekking
þessara manna næði hingað til
lands og fengum þá til að koma
hingað til að kynna þá möguleika
sem kunnátta þeirra og sambönd
gefa tilefni til,“ sagði Pétur Ró-
bertsson sem ásamt Baldri bróður
sínum hjá fyrirtækinu Bræðurnir
Róbertsson ehf. fékk tvo sérfræð-
inga í ferðaþjónustu frá Svíþjóð
hingað til lands til að kynna að-
ferðafræði við skipulagningu stór-
viðburða og bókunarkerfi á því
sviði.
Svíarnir sýndu áhuga á fjárfest-
ingum á Íslandi og sögðu að til þess
að þær virkuðu þyrftu þær að nema
um 10 milljörðum króna. Um er að
ræða fjárfestingar á sviði hótel-
rekstrar og afþreyingar, einkum
þar sem vatn og hiti kemur við sögu.
Þeir áttu fundi með fjárfestum um
uppbyggingu ferðamannastaða á
Íslandi og í Svíþjóð. Í tengslum við
heimsóknina kynntu þeir sér sér-
staklega aðstæður á Árborgar-
svæðinu.
Þarf betri tæki
Svíarnir, Ossian Stiernstrand,
sérfræðingur í þróun ferðamála, og
Magnus Emilsson, fjárfestir og
framkvæmdastjóri bókunarfyrir-
tækis í ferðamálum, fluttu nýlega
erindi á ráðstefnu íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur og Háskól-
ans í Reykjavík þar sem þeir fjöll-
uðu um skipulagningu stórviðburða
og nauðsynlegar fjárfestingar í
tengslum við slíka viðburði. „Við
teljum að auðveldlega megi tvöfalda
þann fjölda ferðamanna sem kemur
til landsins, úr 500 þúsundum í eina
milljón, en þá þarf að ná til ákveð-
inna hópa og vera með tæki til að ná
til þeirra og sýna möguleikana sem
fyrir hendi eru á landinu,“ sagði
Ossian sem starfar sem sérfræðing-
ur í verkefnishópi um að þróa
Gautaborg sem ferðamannaborg
ásamt því að starfa með fjárfestum
um allan heim að verkefnum og
möguleikum til að auka straum
ferðamanna.
Hann sagði meginmarkmiðið
vera að auka tekjur viðkomandi
svæðis og lands á öllum sviðum, hjá
því opinbera og hjá einkaaðilum.
Hann sagði sífellt fleiri fyrirtæki og
atburði dragast að Gautaborg sem
hefði þróast gífurlega á síðustu 15
árum og væri nú í fremstu röð
borga af sömu stærð. „Til þess að
þetta sé mögulegt þarf að vera til
stefna þar sem allir geta verið
með,“ sagði Ossian Stiernstrand.
„Við erum í sambandi við alla þá
sem þurfa að markaðssetja atburði
eða staði sem hafa aðdráttarafl fyrir
ferðamenn. Við vinnum mikið með
borgum og löndum við að markaðs-
setja þau beint og viðburði sem eru í
boði,“ sagði Magnús Emilsson sem
er eigandi að nýju bókunarkerfi,
www.citybreak.com, sem notað er
um allan heim. Hann hefur þróað
kerfi sem nýtist öllum, stórum og
smáum fyrirtækjum og opinberum
aðilum. Hann sagði að líta mætti á
bókunarkerfið sem stökkpall fyrir
ferðamenn og skipuleggjendur í
ferðamálum en 2200 aðilar tengjast
kerfinu þar sem hægt er að fá upp-
lýsingar um einstaka viðburði og
ganga frá bókunum.
Undirbúa hótel
„Okkur finnst við vera í Reykja-
vík þegar við erum hér á Selfossi
eða í Hveragerði, fjarlægðirnar eru
í sjálfu sér engar. Það eru miklir
möguleikar hér, Reykjavík hefur
sjálf aðdráttarafl en athuga þarf vel
gæði hótelanna og þjónustunnar
sem veitt er. Galdurinn í þessu efni
fyrir þetta svæði er að þróa það sem
menn eru góðir í eins og böð, golf,
veiði, hestaferðir og fleira. Þetta
þarf síðan að tengja við ráðstefnu-
markaðinn sem er mjög stór,“ sagði
Ossian Stiernstrand. Hann sagði
greinilega mikinn áhuga fyrir hendi
að efla þessa möguleika en það
þyrfti að finna stefnu sem allir væru
sáttir við og það væri oft mjög erf-
itt.
„Við höfum fengið góð viðbrögð
við því sem þeir Ossian og Magnus
hafa sagt frá. Gautaborg hefur verið
leiðandi í því að skapa aðstæður fyr-
ir ferðaþjónustu og þangað má
sækja reynslu. Þar er skipulagning
þessara þátta á einni skrifstofu þar
sem hægt er að nálgast alla mögu-
lega viðburði sem eru í gangi. Þar
eru viðburðir markaðssettir og að-
stoð veitt við að þróa þá enn frek-
ar,“ sagði Pétur Róbertsson sem
ásamt Baldri bróður sínum vinnur
að því að opna möguleika á fjárfest-
ingu erlendra aðila á sviði hótel-
rekstrar með vatnagarði og baðað-
stöðu ásamt annarri afþreyingu
sem fellur að ráðstefnuhaldi og
ferðaþjónustu almennt á Árborgar-
svæðinu og landinu öllu.
Sænskir sérfræð-
ingar í heimsókn
Miklir möguleikar í ferða-
málum á suðvesturhorninu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Heimsókn Pétur Róbertsson, Magnus Emilsson, Ossian Stiernstrand og
Baldur Róbertsson báru saman bækur sínar á Selfossi.
Flóinn | Bormenn Ræktunarsambands
Flóa og Skeiða náðu nýlega að bora niður
á 1761 metra í landi Laugardæla, við svo-
nefnda Ósabotna á bökkum Ölfusár. Holan
sem boruð var fyrir Selfossveitur gefur 50
sekúndulítra af 90 gráða heitu vatni. Segja
bormennirnir að þetta sé besti árangur
sem náðst hafi við borun í sextíu ára sögu
fyrirtækisins.
Við borunina við Ósabotna var notaður
nýr risastór jarðbor sem borað getur nið-
ur á um tvö þúsund metra dýpi. Hann hef-
ur fengið nafnið Ingólfur. Sögðu bormenn-
irnir að nokkurn tíma hefði tekið að
kynnast nýja bornum og þjálfast við að
beita honum rétt þannig að góður árangur
næðist.
„Svona hola er sannkölluð gullnáma fyr-
ir ört vaxandi byggð hérna á svæðinu og á
eftir að nýtast notendum Selfossveitna í
náinni framtíð,“ sagði Guðmundur Karl
Guðjónsson, verkefnisstjóri bordeildar
Ræktunarsambands Flóa og Skeiða, í sam-
tali við fréttaritara Morgunblaðsins, og
var að vonum ánægður með árangurinn.
Boruðu niður
í „gullnámu“
í Ósabotnum
Ljósmynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Bormenn Johnny Símonarson borverk-
stjóri, Guðmundur Karl Guðjónsson verk-
efnisstjóri og Sveinn Óðinn Ingvarsson
borstjóri á borstað á bökkum Ölfusár.