Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 35 ✝ Guðrún Þorgrímsdóttir fædd-ist á Raufarfelli, Austur- Eyjaföllum, 6.nóvember 1916. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þann 13. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þor- grímur Þorvaldsson, bóndi á Raufarfelli, f. í Brennu undir V- Eyjafjöllum 23. 11. 1886 og kona hans Guðfinna Runólfsdóttir f. í Hörgslandskoti á Síðu 26.1. 1883. Systkyni Guðrúnar eru Jónína Guðný Þorgrímsdóttir f. á Ysta- Bæli 9. 3. 1913, d. 24. 11. 2002. Kristín Lilja, f. á Raufarfelli 17. 11. 1919, d.17. 2. 1923. Þorvaldur f. á Raufarfelli 19. 11. 1925. Sonur Guðrúnar er Kristinn Heiðar Jónsson f. 25. 7. 1944. Faðir hans Jón Valdimarsson f. 25. 9. 1915 á Norðfirði, d. 7. 1. 1950 við Vestmannaeyjar. Guð- rún fór í vist til Vestmannaeyja og síðar Reykjavíkur. Fluttist til Hafnarfjarðar 1954 og stundaði þar fiskvinnslu upp frá því til 1986. Jarðarförin fer fram frá Ey- vindarhólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Ég kynntist Guðrúnu frænku minni strax á barnsaldri og alla tíð síðan áttum við gott samband. Við áttum ýmis sameiginleg áhugamál, eins og frímerkja- og myntsöfnun auk áhuga á sveitinni og því sem þar var að gerast. Guðrún var einstaklega heilsteypt og vönduð manneskja. Henni var mikið í mun að gera skyldu sína í samfélaginu og láta sitt ekki eftir liggja. Hún var stórlynd og gat verið nokkuð stjórnsöm og ákveðin en að baki lá ætíð góður hugur. Hún var raungóð og trygglynd. Guðrún var einnig mjög gestrisin og gjafmild kona og gerði sér far um að leggja ríflega af mörkum til líkn- armála, bæði til félagasamtaka og einstaklinga. Þessir eiginleikar í fari Guðrúnar gerðu það að verkum að hún eignaðist stóran og tryggan vinahóp sem heimsótti hana reglu- lega. Þó svo að Guðrún gæti verið ströng löðuðust börn að henni og fundu alltaf velvildina og hlýjuna í gegnum ákveðið viðmótið. Börnin þurftu ekkert að vera skyld henni eða tengd á nokkurn hátt til að fá hjá henni góðar viðtökur. Guðrún reyndist mér eins og svo mörgum öðrum afskaplega vel. Það var lán að fá að kynnast henni. Ég þakka henni samfylgdina. Guðni Þorvaldsson. Að eignast traustan og góðan vin er mikil gæfa og forréttindi sem seint verða fullþökkuð. Guðrún skip- aði stóran sess í okkar fjölskyldu. Gunna, eins og hún var oftast kölluð, kærði sig ekki um athygli fjöldans, en naut sín best með góðum vinum sínum og fjölskyldu. Við hjónin höf- um vart kynnst annarri eins tryggð og hún sýndi þeim, og það finnst okkur lýsa manngæsku hennar best. Heimili hennar var einstaklega hlý- legt og var hún ávallt höfðingi heim að sækja. Hún átti alltaf eitthvað gott að bjóða gestum sínum og Gunna var vinmörg og dáð. Fyrir henni var tilgangur lífsins að láta gott af sér leiða og að rétta þeim hjálparhönd sem minna máttu sín. Okkar kynni við Gunnu hafa var- að í yfir fjörutíu ár. Gunnlaugur vann hjá fiskveiðihlutafélaginu Ven- usi og þar vann Gunna einnig. Þar kynntust þau, hún varð fjölskyldu- vinur og entist sú vinátta okkar alla tíð síðan og bar aldrei skugga á. Gunna var þvílík hamhleypa til verka og vann hún mikið alla ævina við ýmiskonar störf. Hún byggði sér íbúð í Háukinn og hefur það trúlega verið átak fyrir einstæða móður með einn son. Þar hófst nýtt líf fyrir þau mæðgin, Gunnu og Heiðar, og þegar þau fluttu í nýju íbúðina breyttust aðstæður þeirra til hins betra. Síðar byggðu þau í sameiningu nýtt hús á Víðivangi 2, og þar voru tvær íbúðir þannig að hún gat dvalist þar hjá syni sínum, Heiðari, allt þar til hún fór á Hrafnistu þegar aldurinn færð- ist yfir. Við höfum margs að minnast um Gunnu. Hún og Heiðar hafa allt- af verið einstaklega góð við börnin okkar og hafa gefið þeim margt. Þær eru eftirminnilegar ferðirnar sem börnin okkar fóru í sveitina að Rauf- arfelli, það var alltaf mikið ævintýri. Gunna var líka einstaklega næm. Einn morguninn þegar Gunnlaugur kom og sótti hana í vinnuna, tíu dög- um áður en dóttir okkar Kristín Fjóla fæddist, lýsti Gunna fyrir hon- um ófæddri dótturinni eins og hún hafði birst henni í draumi um nótt- ina. Kom það síðan allt nákvæmlega heim og saman þegar Kristín Fjóla fæddist. Voru þær upp frá þessu nær óaðskiljanlegar. Við fengum alltaf sendan á þessum degi kúfaðan disk af pönnukökum og fylgdi auðvitað rjómi með. Það leið ekki sá afmæl- isdagur hjá börnunum okkar öll þessi ár að hún sendi okkur ekki þær bestu pönnukökur sem við höfum nokkurn tíma fengið. Það var ótrú- legt. Síðustu fjögur ár voru líkams- kraftar Gunnu farnir að þverra og dvaldi hún því á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði. Gunna mat mikils þá umönnun sem hún fékk notið þar og eiga allir þeir sem önn- uðust hana þakkir skildar fyrir. Þeg- ar stór hluti af lífi manns hverfur er skilið eftir stórt skarð, en dagur er að kveldi kominn hjá Guðrúnu og við biðjum henni Guðs blessunar á nýrri vegferð. Við þökkum af alhug að hafa fengið að kynnast hennar gjöfulu og hlýju vináttu, og biðjum Guð að styrkja Heiðar í söknuði hans. Steinunn og Gunnlaugur Fjólar. Okkur systkinin langar til þess að kveðja Gunnu frænku okkar með nokkrum orðum. Gunnu var fátt óviðkomandi er kom að ástvinum hennar, hvort sem það var um gjörðir okkar, nafngiftir á börnum eða jafnvel okkar eigin nöfn að ræða. En íhlutun Gunnu var okkur engu síður kær, því við vissum að að baki hennar bjó mikill kær- leikur og umhyggja í okkar garð og með henni var Gunna í raun að ganga úr skugga um að við værum að fá það allra besta sem lífið gæti veitt okkur. Gunna frænka var afar hjartahlý manneskja sem bar velferð ástvina sinna fyrir brjósti, hvort sem það voru ættingjar eða vinir. Heimili Gunnu og Heiðars var öllum ávallt opið og vel var tekið á móti gestum með köldu appelsíni og Mackintosh molum. Kær minning okkar systkinanna um Gunnu er af henni sitjandi í bláa stólnum við eldhúsborðið á Víðivang- inum og oftar en ekki að kljúfa syk- urmola með naglbít. Nú er kær ástvinur farinn frá okk- ur sem er sárt saknað. Við þökkum þér, Gunna, fyrir alla góðvildina sem þú hefur sýnt okkur. Guð geymi þig. Krakkarnir í Klausturhvammi. Elsku Gunna mín góða. Ég þakka fyrir það hvað ég var heppin að fá að kynnast þér og njóta samverunnar með þér. Hjá þér vildi ég helst vera öllum stundum. Ég minnist allra góðu stundanna sem ég átti hjá ykk- ur Heiðari og hvað það var alltaf jafn notalegt að koma til þín. Ekki var ég gömul þegar við sátum saman í eld- húsinu í Háukinn, spiluðum Ólsen og fengum okkur kaffi með sykurmola. Þú bakaðir bestu pönnukökur í heimi og ekki voru heimatilbúnu flat- kökurnar síðri. Alltaf var komið með heilu staflana af ljúffengum pönnu- kökum frá þér þegar ég átti afmæli og þeim sið hélstu áfram fyrir syni mína Steinar og Loga, og það kunnu allir vel að meta. Þú varst einstök kona, sem aldrei kvartaðir og vildir öllum vel. Fjöl- skylda þín og vinir héldu ávallt mikla tryggð við þig og Heiðar, því betra fólk er vart hægt að finna. Sumarið 2003 fæddist dóttir mín, Guðrún Heiða, en ég hafði ákveðið nafnið þegar ég var lítil. Þetta var sumarið sem þú fórst á Hrafnistu, en hvað þú varst ánægð þegar hún birtist, og hún var litli sólargeislinn þinn. Guð- rún Heiða kvaddi þig í kistunni og sá hvað það var mikill friður yfir þér. Hún strauk kinn þína blítt, og sagði að nú værir þú komin til englanna. Á Hrafnistu var vel hugsað um þig af yndislegu starfsfólki og það sást hversu góðan son þú áttir, því hann annaðist þig vel og heimsótti hvern einasta dag. Elsku Heiðar, ég bið Guð að styrkja þig í sorg þinni. Að lokum langar mig að þakka þér fyrir allt, elsku Gunna, og mun ég sakna þín mikið. Ég man þau ófáu skipti er ég gisti hjá þér og þú fórst með þessa bæn með mér fyrir svefninn: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Kristín Fjóla. Guðrún Þorgrímsdóttir ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför bróður okkar, mágs og frænda, HELGA SKÚLASONAR, Kleifarvegi 8, Reykjavík. Sigfús Skúlason, Barbara Ármanns, Hilmar Skúlason, Gísli Skúlason, Anna Fjalarsdóttir og bræðrabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA KOLKA ÍSBERG, Huldulandi 1, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans Landakoti aðfaranótt fimmtudagsins 20. september. Jarðarförin verður auglýst síðar. Páll Kolka Ísberg, Ásta Bárðardóttir, Baldur Ingi Ísberg, Ósk Þorsteinsdóttir, Guðbrandur Árni Ísberg, Bjarni Viðar Sigurðsson og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, LILLÝ KRISTJÁNSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést fimmtudaginn 20. september að Hrafnistu í Hafnarfirði. Jarðaförin verður auglýst síðar. Karl Harrý Sigurðsson, Hrönn Helgadóttir, Ari Guðmundsson, Fríður Sigurðardóttir, Kristjana G. Guðmundsdóttir, Jonathan Motzfeldt, Guðrún Guðmundsdótttir, Guðmundur E. Hallsteinsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, SKARPHÉÐINN NJÁLSSON frá Þingeyri, lést þriðjudaginn 18. september á öldrunardeild Heilbrigðistofnunar Ísafjarðarbæjar. Guðrún Markúsdóttir. ✝ HAUKUR GUÐMUNDSSON frá Kvígindisfelli, Austurbrún 4, Reykjavik, andaðist á Landakotsspítala miðvikudaginn 19. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. september kl. 13.00. Systkini hins látna og aðrir aðstandendur.✝ Útför okkar ástkæru SVÖVU MAGNEU ÞÓRÐARDÓTTUR, Mánatúni 2, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 13. september, verður gerð frá Háteigskirkju mánudaginn 24. september kl. 15.00. Hjartans þakkir til lækna og alls starfsfólks deildar A6 fyrir frábæra umönnun. Þökkum öllum sem hafa hjálpað okkur og stutt á erfiðum tímum. Fyrir hönd fjölskyldunnar og annarra ættingja, Magnús Stefánsson, Halla Stefánsdóttir, Þorleifur V. Stefánsson. ✝ Elsku litla dóttir okkar, systir, barnabarn, barna barnabarn og frænka, VÉDÍS EDDA PÉTURSDÓTTIR til heimilis að Öldubakka 29, Hvolsvelli, lést á Barnaspítala Hringsins 20. september. Jarðsett verður frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn 29. september kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Barnaspítala Hringsins njóta þess. Pétur Halldórsson, Birna Sigurðardóttir, Sigurður Anton Pétursson, Agnes Hlín Pétursdóttir, Halldór Óskarsson, Edda Guðlaug Antonsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Kristín Elínborg Þorsteinsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÚN KARITAS SÖLVADÓTTIR frá Sléttu í Sléttuhreppi, lést að heimili sínu að Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 20. september. Sigríður G. Sigurjónsdóttir, Gunnar Kristinsson, Sigrún Gunnarsdóttir, Sólveig K. Gunnarsdóttir, Sigurður K. Gunnarsson og barnabarnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.