Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR Á MORGUN|KIRKJUSTARF AKRANESKIRKJA: | Sunnudagskólinn kl.11. Umsjón hafa Hanna Vilhjálmsdóttir og María Rut Baldursdóttir. Fyrsta skiptið á þessu hausti. Sóknarprestur. AKUREYRARKIRKJA: | Messa kl. 11. Messuheimsókn frá Ólafsvík, sr. Magnús Magnússon sóknarprestur í Ólafsvík þjón- ar ásamt sr. Svavari A. Jónssyni og sr. Óskari H. Óskarssyni. Kórar kirknanna syngja undir stjórn Lenu og Eyþórs Inga. Veronica Osterhammer syngur einsöng. Súpa og brauð í Safnaðarheimilinu á eftir. Allir velkomnir. ÁRBÆJARKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11 sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Kriszt- ina Kalló organisti stjórnar kórnum sem leiðir safnaðarsöng. Eftir guðsþjónustuna verður formleg opnun á listsýningu í and- dyri kirkjunnar. Sýnd verða tvö verk eftir Georg Guðna Hauksson listmálara. ÁSKIRKJA: | Messa og barnastarf kl. 11. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Leiðtogarnir Elías og Hildur Björg sjá um sunnudagaskólann. Komið og njótið gefandi morgunstundar í góðum félagsskap í kirkjunni. Kaffisopi eftir messu. Sóknarprestur. BESSASTAÐAKIRKJA: | Messa kl. 11. Álftaneskórinn syngur undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar, organista. Sr Friðrik J Hjartar þjónar. Fermingarbörn lesa ritning- arlestra. Sunnudagaskóli á sama tíma í sal Álftanesskóla. Nýtt efni. Nýir leiðtogar. Fjölmennum í kirkjustarfið. Allir velkomnir! BESSASTAÐASÓKN: | Sunnudagaskóli í hátíðarsal Álftanesskóla kl. 11. Nýju leið- togarnir Matta, Snædís, Bolli og Sunna munu kenna nýja söngva. Það verður leik- rit og biblíufræðsla. Að lokinni stundinni verður hressing og áframhaldandi sam- félag. Allir velkomnir. BRAUTARHOLTSKIRKJA: | Messa í Braut- arholtskirkju sunnudaginn 23. sept. kl. 11. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur. BREIÐHOLTSKIRKJA: | Messa kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson. Organisti Juli- an Isaacs. Barnaguðsþjónusta á sama tíma í umsjá Lindu, Jóhanns og Nínu Bjargar. Hressing í safnaðarsal eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA: | Barnamessa kl. 11. Notaleg samvera fyrir alla fjölskylduna, Af- ar, ömmur, pabbar og mömmur hvött til þátttöku. Guðsþjónusta kl. 14 Sigurður Örn Einarsson yfirmaður Frímúrararegl- unnar á Íslandi flytur prédikun dagsins. Fjölnisbræður annast lestra. Molasopi eft- ir messu. Pálmi Matthíasson. DIGRANESKIRKJA: | Messa kl. 11. Prest- ur sr. Yrsa Þórðardóttir. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju B hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á sama tíma. Léttar veitingar að messu lokinni. ( www.digraneskirkja.is ) DÓMKIRKJAN: | Kl. 11 messa sr. Karl Sig- urbjörnsson biskup prédikar, prestar Dómkirkjunnar þjóna fyrir altari. Dómkór- inn syngur organisti er Marteinn Frið- riksson. Barnastarf í umsjá æskulýðsleiðtoga á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. Kl. 20 Æðruleysismessa, sr. Karl V. Matt- híasson prédikar, sr. Jakob Ágúst Hjálm- arsson leiðir. Bræðrabandið og Anna Sig- ríður Helgadóttir sjá um tónlistina. EYRARBAKKAKIRKJA: | Guðsþjónusta 23/9 kl. 11. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11 í Fella- og Hólakirkju. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Þorvaldur Hall- dórsson, tónlistarmaður syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Sigríðar Stef- ánsdóttur. Fjölbreytt og skemmtileg dag- skrá. Verið öll innilega velkomin. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: | Barna- og fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Góð og skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna. Umsjón hafa Sigríður Kristín, Skarphéðinn og Örn. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Leikmanna- guðsþjónusta og barnastarf kl. 14. Carl Möller og Anna Sigga leiða almennan safnaðarsöng, en Nanda María leiðir helgistundina og hugleiðir í kirkjunni. Pét- ur og Móeiður fara með börnunum í Sunnudagaskólann í Safnaðarheimilinu þar sem helgisagan verður sögð, sungið og leikbrúður heimsækja. FRÍKIRKJAN KEFAS | Sunnudagaskóli kl. 11. Söngur, kennsla, Biblíusögur og leikir. Allir krakkar velkomnir. Almenn samkoma kl. 14 þar sem Helga R. Ármannsdóttir prédikar. Á samkomunni verður lofgjörð, barnastarf, brauðsbrotning. Að samkomu lokinni verður kaffi og samfélag. Allir vel- komnir! FÍLADELFÍA | English service at 12:30pm. Entrance from the main door. Everyone is Welcome. Almenn samkoma kl. 16:30. Ræðum. G. Theodór Birgisson, Gömlu góðu sálmarnir sungnir. Barnakirkja fyrir 1-13 ára. Allir eru hjartanlega velkomnir. Bein úts. á Lindinni og www.gospel.is Samkoma á Omega frá Fíladelfíu kl. 20:00 filadelfia@gospel.is GLERÁRKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjón- usta kl 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og Pétur Björgvin Þorsteinsson þjóna. Barnakór Glerárkrikju syngur undir Stjórn Ástu Magnúsdóttur. Organisti Valmar Valjaots. Kvöldguðsþjónusta með léttri tónlist kl. 20.30 Krossbandið leiðir söng. Grafarholtssókn | Sunnudagaskóli kl. 11 í Ingunnarskóla, Þorgeir, María og Anna sjá um stundina. Messa kl. 11 í Þórðarsveig 3, prestur séra Sigurjón Árni Eyjólfsson, organisti Hrönn Helgadóttir, Kirkjukór Grafarholtssóknar syngur. Kirkjukaffi eftir messu í umsjá foreldra fermingarbarna. GRAFARVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árnason þjónar fyrir alt- ari. Ásta Pétursdóttir guðfræðinemi pré- dikar. Kór Grafarvogskirkju syngur. Org- anisti: Aðalheiður Þorsteinsdóttir. GRAFARVOGSKIRKJA - Borgarholtsskóli: | Sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir. Umsjón: Hjörtur og Rúna. Undirleikari: Stefán Birkisson. Sunnu- dagaskóli kl. 11 í Borgarholtsskóla. Sr. Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón: Gunnar og Díana. Undirleikari: Guðlaugur Viktorsson. GRENSÁSKIRKJA: | Morgunverður kl. 10- 10.40. Bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu, Lilju Irenu og fl. Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til Hins ísl. Biblíufélags. Messuhópur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju leiða söng. Org- anisti Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Ólaf- ur Jóhannsson. Molasopi eftir messu. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: | Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Hreinn S. Hákonarson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: | Guðsþjón- usta kl. 11. Nýstofnaður kór Hafnarfjarð- arkirkju, A Cappella, syngur. Prestur Þór- hallur Heimisson. Kantor Guðmundur Sigurðsson. Predikunarefni: Hvað viltu mér, Kristur? HALLGRÍMSKIRKJA: | Messa og barna- starf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur og messuþjónum. Drengja- kór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Org- anisti Hörður Áskelsson. HÁTEIGSKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta og messa kl. 11. Umsjón með barnaguðsþjónustu Erla Guðrún og Páll Ágúst. Organisti Douglas A. Brotchie. Prestur Tómas Sveinsson. HJALLAKIRKJA: | Messa kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkj- unnar syngja og leiða safnaðarsöng. Org- anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudaga- skóli kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 og Opið hús á fimmtudag kl. 12-14 (sjá einnig á www.hjallakirkja.is). HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: | Al- menn samkoma kl. 17. Rannvá Olsen tal- ar. Allir eru hjartanlega velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN í Reykjavík: | Sam- koma sunnudag kl. 20. Ræðumaður: Wouter van Gooswilligen. Umsjón: Harold Reinholdtsen. Heimilasamband fyrir kon- ur mánudag kl. 15. Lofgjörðarsamkoma fimmtudag kl. 20 í umsjá Birgitte Rein- holdtsen. HVERAGERÐISKIRKJA: | Sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur. ÍSLENSKA KIRKJAN Í SVÍÞJÓÐ: | Gauta- borg: Guðsþjónusta kl. 14. í V- Frölundakirkju. Íslenski kórinn í Gauta- borg syngur undir stjórn Kristins Jóhann- essonar. Organisti Tuula Jóhannesson. Hrefna Þengilsdóttir og Orri Pétursson bera nýfæddan son sinn til skírnar. Kirkju- kaffi. Prestur sr. Ágúst Einarsson. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Fjölbreytt barnastarf kl. 11. Einnig fræðsla fyrir full- orðna. Samkoma kl. 20 með mikilli lof- gjörð og fyrirbænum. Kent Langworth pre- Guðspjall dagsins: Sonur ekkjunnar í Nain. (Lúk.7) Morgunblaðið/ArnaldurGrensáskirkja. Bústaðakirkja - starf eldri borgara Miðvikudaginn 26. september verð- ur starf eldri borgara í Bústaða- kirkju, kl. 13.00-16.30. Spilað og föndrað. Gestir úr kirkjukórnum koma í heimsókn. Fullorðinsfræðsla Hafnarfjarðarkirkju Árið 2004 var sett á stofn Fullorð- insfræðsla Hafnarfjarðarkirkju með það að markmiði að halda að- gengileg námskeið fyrir almenning um trú og lífsskoðanir í samtím- anum, siðfræðileg álitamál og mál- efni fjölskyldunnar. Á þessum árum sem liðin eru hef- ur starfsemin farið vaxandi og sí- fellt fleiri nýta sér þessa þjónustu kirkjunnar. Í haust verða haldin tvö stórnámskeið á vegum Fullorð- insfræðslu Hafnarfjarðarkirkju. Annað er hjónanámskeiðið sí- vinsæla sem yfir 10.000 manns hafa sótt. Kallast það „Jákvætt nám- skeið um hjónaband og sambúð“. Þetta er ótrúlegur fjöldi enda hefur hjónanámskeiðið verið haldið leng- ur en sem nemur starfsemi Fullorð- insfræðslunnar, eða allt frá árinu 1996. Hjónanámskeiðið er haldið þrisvar í haust, í september, októ- ber og nóvember. Hitt stóra nám- skeið Fullorðinsfræðslunar ber heitið „Hvað viltu mér Kristur“? Þar verður fjallað um kristna trú og lífsskoðun í samtímanum út frá mörgum sjónarhornum og einnig varpað ljósi á kjarnahugtök trú- arinnar, sögu þeirra og mótun. Fjölmargir gestafyrirlesarar koma að því námskeiði. Hefur það verið haldið einu sinni áður og var þá mjög fjölsótt. Eftir áramót taka síð- an við námskeið um önnur trúar- brögð en kristni auk hjóna- námskeiðanna sem eru starfrækt allan veturinn. Þá verður líka hald- ið sérstakt námskeið sem kallast „Orðabók leyndardómana“ þar sem tekið verður á margskonar dul- speki og leynitáknum, leynireglum og „myrkum fræðum“. Orðsending frá Þorlákskirkju! Fjölskyldumessa á sunnudaginn Fjölskyldumessa verður nú á sunnudaginn 23. sept. í Þorláks- kirkju kl. 11 og má þá telja vetr- arstarfið hafið. Þetta verður hvor- tveggja í senn messa og sunnudagaskóli. Í upphafi mess- unnar fara börnin fram og hlýða á sögur og lita. Þau fá nýtt efni frá kirkjunni. Síðan syngja þau fyrir hina fullorðnu. Það er Sigríður Stefánsdóttir, nýr starfsmaður kirkjunnar, sem ætlar að segja börnunum sögur og hjálpa þeim að lita og ýmislegt annað. Kirkjukór- inn syngur og presturinn leggur út af guðspjallinu. Þá talar hann um vetrarstarfið og talar til vænt- anlegra fermingarbarna og for- eldra þeirra sem eru hér með boðuð til messu. Fermingarfræðsla byrjar sem sagt í messunni og þá verður kynnt bókin sem þau eiga að læra. Eftir messu verða börnin skráð og stutt- ur fundur með foreldrum þar sem m.a. verður farið yfir ferming- ardaga. Foreldramorgnar! Bókasafnið og kirkjan efna til samstarfs! Foreldramorgnar kirkjunnar verða að þessu sinni í Bókasafni Ölfuss þar sem er huggulegt um- hverfi fyrir börn og foreldra. Þeir verða á þriðjudagsmorgnum milli 10 og 12. Allir foreldrar með börn eru velkomnir (og reyndar óléttar mæður einnig). Fyrsti morgunninn 25. september fer í skraf og ráða- gerðir um það hvað skemmtilegt og gagnlegt sé að gera. Kirkjan býður upp á kaffi. Nú er bara að drífa sig með barnavagninn út og aftur inn að hitta aðra. Stundir einkum ætl- aðar eldri borgurum verða mán- aðarlega. Sú fyrsta miðvikudaginn 24. október kl. 16.30 í Þorláks- kirkju. Þar mun sr. Auður Eir koma og spjalla um kvenna- guðfræði og fleira. Er Guð kona? verður örugglega ein af þeim spurningum sem hún fær. Bibl- íuleshópurinn frá í fyrra kemur saman um kvöldið ásamt Auði og veltir fyrir sér konum í Nýja testa- mentinu. Þessi stund verður aug- lýst nánar. Ýmislegt annað er í bígerð og verður auglýst síðar. Biblían, stjórnmálin og staðleysur Fimmtudaginn 27.september hefj- ast í Breiðholtskirkju Biblíulest- arar á vegum Leikmannaskóla kirkjunnar og Reykjavíkuprófasts- dæmis eystra sem bera heitið Bibl- ían, stjórnmál og staðleysur. Kenn- ari á námskeiðinu er sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur dr.theol. og dr.theol. Á námskeiðinu verður farið í nokkra kjarnatexta í Nýja testa- mentinu og um tengsl trúar og stjórnmála. Í samhengi við þá um- fjöllum verða skoðaðar hugmyndir um þúsund ára ríkið sem greint er frá í Opinberunarbók Jóhannesar og. Einnig verður fjallað um tveggja ríkja kenningu Lúthers í ljósi orða Jesú. Til að varpa frekara ljósi á viðfangsefnið verða líka skoðaðar prédikanir eftir íslenska kennimenn. Kennt verður í Breiðholtskirkju kl. 20 – 22 fimmtudaga frá 27. sept- ember til 29. nóvember. Skráning fer frá í síma 535 1500 eða á vef Leikmannaskólans. Tónlistarmessa í Óháða söfnuðinum Tónlistarmessa verður í kirkju Óháða safnaðarins sunnudaginn 23. september kl. 14 Einsöngvarinn Einar Örn Einarsson mun flytja nokkur lög og mun Magnús Viðar Skúlason frá Gideonfélaginu pré- dika. Boðið upp á kaffi og meðlæti eftir messu. Allir velkomnir. Sigurbjörn biskup á kyrrðardegi í Neskirkju Kyrrðardagar eru dekurdagar fyr- ir sálina. Í vetur verða kyrrð- ardagar haldnir reglulega í Nes- kirkju. Fyrsti kyrrðardagur haustsins verður eftir eina viku, 29. sept- ember. Þá mun dr. Sigurbjörn Ein- arsson, biskup, sjá um íhuganir og fjalla um bæn og bænalíf. Dagskrá hefst kl. 10 árdegis og lýkur um 16,30. Stjórnendur eru prestarnir Halldór Reynisson og Sigurður Árni Þórðarson. Kyrrðardagur í borg er knappari en margir dagar á kyrrðardaga- setri eins og Skálholti. Dagskrá er þéttari og aðlöguð tímaramma og aðstæðum borgarkirkjunnar. En Neskirkja rammar vel andblæ og stillu, sem hæfir kyrrðardegi. Hvernig væri að bregða sér á kyrrðardag í Neskirkju 29. sept.? Sigurbjörn er engum líkur! Skrán- ing er í Neskirkju. Allir, sem hafa áhuga á rækt hins innri manns og andlegri heilbrigði, eru velkomnir. Biskupsvísitasía í Dómkirkjunni Biskup Íslands, Karl Sigurbjörns- son, prédikar við messu í Dómkirkj- unni sunnudag kl. 11. Prestar Dóm- kirkunnar sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, sr. Hjálmar Jónsson og sr. Þorvaldur Víðisson, æsku- lýðsfulltrúi þjóna við messuna ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni, prófasti. Dómkórinn syngur við stjórn Marteins H. Friðrikssonar, dómorganista. Barnastarf er á kirkjulofti á sama tíma. Stóri fjölskyldudagurinn í Langholtskirkju Fjölbreytt dagskrá verður fyrir börn sem fullorðna frá kl. 11-14 á kirkjudegi Langholtssafnaðar, 23. september. Allir kórar kirkjunnar, 8 talsins með hátt á þriðja hundrað manns, munu syngja bæði saman og sér. KK syngur einnig í fjölskyldu- guðsþjónustunni kl. 11 og Halldór Gylfason leikari segir börnunum sögu. Barnastarf verður fyrir yngsta fólkið. Vilhjálmur Vil-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.