Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Leikhúsin í landinu www.mbl.is/mm/folk/leikh/ DANSKA leikaraparið Jens Albinus og Marina Bouras hafa eignast dreng. Segir móðirin við blaðið Her og Nu að fæðingin hafi gengið vel og sonurinn sé heilbrigður og hress. Þetta er fyrsta barn Bouras. Albin- us á dóttur með listakonunni Cecilia Westerberg en þau voru gift um tíma. Þau Albinus, sem er 42 ára, og Bouras, sem er 37 ára, léku saman í þáttaröðinni Erninum. Þar lék Albinus hálfíslenska lögreglumanninn Hallgrím Örn Hallgrímsson en Bouras lék aðstoðarlögreglustjórann Mar- ie Wied. Bouras er fædd í Grikklandi en fluttist til Danmerkur sex ára gömul. Úr Erninum Nýbakaðir foreldrar í hlutverkum sínum í sjónvarpsþættinum. Skyldi hann heita Örn? GESTIR í spurningaleiknum Orð skulu standa í dag eru Jón Óskar Hallgrímsson hagfræðingur og Steinunn Hafstað fjarnámsstjóri. Á milli þess sem þau velta fyrir sér orðum á borð við blýhattur og súpu- hundur botna þau þennan fyrripart um hryssingslegt haust á Íslandi (lesendur eru náttúrlega beðnir vel- virðingar á orðbragðinu): Haust er komið, húmar að, og helvítis rigning víða. Um síðustu helgi var fyrripart- urinn þessi: Ja hérna! og Jesús minn! Júdas kann á síma. Í þættinum botnaði Davíð Þór Jónsson: Þessu bölvar biskupinn á besta sjónvarpstíma. Steinunn Bergsteinsdóttir: Lipurt þessi loddarinn laug á sínum tíma. Þóra Arnórsdóttir: Kannski er þriðja kynslóðin kolrugluð í tíma. Pósthólf þáttarins yfirfylltist og verða því aðeins birtir nokkrir af fjölmörgum góðum botnum hlust- enda. Helgi R. Einarsson: Kemur samt í kvöldmatinn á kolvitlausum tíma. og Missir flugið meistarinn við Mammon er að glíma. Björg Elín Finnsdóttir: Meistarinn kallar: maturinn! – Mættu á réttum tíma. Kristinn Hraunfjörð: Og Vodafone sem vininn sinn valdi á þessum tíma. Pálmi R. Pétursson: Sumir muna koss á kinn er kölska upphófst ríma. Anna Sigurðardóttir: Ennþá hefur andskotinn eitthvað við að glíma. Erlendur Hansen á Sauðárkróki: Gnarr mun ergja eldurinn eftir háttatíma. Magdalena Berglind Björnsdóttir á Blönduósi: Kannski nær hann næst í þinn nett yrði sú glíma. Jónas Frímannsson: Jón Gnarr, ljúfi leikarinn, létt um það vill flíma. Ólína Kristín Jónsdóttir: Salan eykst en síminn þinn syrgir fyrri tíma. Marteinn Friðriksson: Við freistingarnar frelsarinn farinn var að glíma Guðjón Baldvinsson: En léttur ekki er leikurinn, að láta það svo ríma. Orð skulu standa Orð skulu standa Þáttastjórnendur biðjast velvirðingar á orðbragði í þættinum að þessu sinni. Haustið og helvítis rigningin Hlustendur geta sent sína botna í netfangið ord@ruv.is eða bréfleið- is til Orð skulu standa, Rík- isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík. „Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl.12:30-18:00, aðra daga vikunnarfrá kl. 12:30 til 20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.