Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Rangárþing ytra | Flugbjörgunar- sveitin á Hellu opnar á sunnudag, klukkan 12, nýja motocrossbraut á svæði sínu við Hellu. Athöfnin fer fram í tengslum við árlega torfærukeppni sveitarinnar. Nýja motocrossbrautin er lið- lega kílómetri að lengd, með tíu misstórum stökkpöllum og mörg- um hallandi beygjum sem og flöt- um. Ætti brautin því að henta flestum sem stunda þessa íþrótt, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá Flugbjörgunar- sveitinni. Brautin er lögð með það í huga að hægt verði að stækka hana um helming til vesturs ef að- sókn og viðtökur gefa tilefni til. Efninu í brautina er ýtt upp með jarðýtu. Meginhluti hennar er úr sandi, meðal annars flestir pallarnir. Í brautinni er 250 metra langur moldarkafli með stökkpöllum og þvottabrettis- kafla. Jafnframt hefur verið gerð lítil byrjendabraut. Einnig lítil spor- öskjulaga braut sem eingöngu er ætluð til kennslu og æfinga og þar er hægt að taka hringinn í báðar áttir. Brautarmiðar verða seldir á stöð Olís á Hellu. Flugbjörgunarsveitin leggur áherslu á að allur akstur utan brauta og vegslóða á svæðinu er bannaður og þeir sem staðnir eru að slíku verða beðnir um að yfir- gefa svæðið. Nýlögð moto- crossbraut opnuð við Hellu LANDIÐ Eftir Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður | Það eru allir sam- mála um að gott er að hafa heilsu- gæslu og lækni til staðar þegar sjúkdóma ber að höndum. Í starfi Heilsugæslutöðvarinnar í Grund- arfirði er í vaxandi mæli farið að huga að forvarnarstarfi, reyna að koma í veg fyrir sjúkdóma. Heilsugæslan fékk á dögunum sérstakan styrk frá heilbrigðis- ráðuneytinu til að sinna forvarn- arstörfum. Á þriðjudaginn var af- henti Hildur Sæmundsdóttir ljósmóðir tvo ljósalampa til notk- unar í Grunnskólanum bæði fyrir nemendur og starfsfólk. Það er alkunna að hinu mikla skammdegi á Íslandi fylgir hætta á depurð og þunglyndi sem hefur ómæld áhrif á líðan fólks. Að sögn Hildar eru slíkir lampar búnir að sanna ágæti sitt víða þar sem þeir hafa verið reyndir í skólum og á stofnunum en til þess að árangur náist þarf að sitja í nálægð við ljósið í 20 til 50 mínútur á dag í hálfan mánuð við fyrstu notkun og fer tímalengd eftir nálægð við ljósið. Ekki er þörf að sitja aðgerðarlaus á meðan, heldur er hægt að vinna sína vinnu með ljósið skáhallt á móti sér. Að sögn Hildar mun Heilsu- gæslustöðin einnig færa Fjölbrauta- skóla Snæfellinga slíka lampa. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Prófun Helga Hafsteinsdóttir, Hallfríður Ragnarsdóttir, Dóra Aðalsteins- dóttir, Inga Bragadóttir og Jenný Ríkharðsdóttir prófa ljósalampann. Nota ljóslampa gegn streitu og þunglyndi Eftir Jón Sigurðsson Skagaströnd | Guðrún Helgadóttir, formaður menningarráðs Norður- lands vestra, opnaði í gær skrifstofu ráðsins á Bjarmanesi á Skaga- strönd. Að sögn Guðrúnar er nú hringn- um lokað í gerð samninga milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu menn- ingarstarfs á landsbyggðinni. Samn- ingi þessum er ætlað að beina stuðn- ingi ríkisins og sveitarfélaga í einn farveg jafnframt því að tryggja sem best frumkvæði og áhrif sveitarfé- laganna við forgangsröðun verkefna. Starfssvæði menningarráðsins er sveitarfélögin í Húnavatnssýslum og Skagafirði. Hlutverk þess er meðal annars að standa fyrir þróunarstarfi í menningarmálum og úthluta fjár- magni til menningarverkefna. Fyrsta úthlutun verkefnastyrkja hefur nú verið auglýst og verða menn að hafa hraðar hendur ætli þeir sér að sækja um en nánari upp- lýsingar er að finna á vefsíðu Menn- ingarráðs á vef Samtaka sveitarfé- laga á Norðurlandi vestra. Ingibergur Guðmundsson hefur verið ráðinn menningarfulltrúi. Alexandra Chernyshova, sópran- sönkona frá Hofsósi, söng við opnun skrifstofunnar og margir litu við. Menningarráðið opnar skrifstofu Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Opnun Ingibergur Guðmundsson menningarfulltrúi og Guðrún Helgadótt- ir formaður menningarráðs við opnun skrifstofunnar á Skagaströnd. Á SJÖTTA tug andlitsmynda af Ak- ureyringum hanga í Jónasar Viðar Gallery í Listagilinu frá og með deginum í dag til 7. október. Um er að ræða kolateikningar Svisslend- ingsins Martin J. Meier á endurunn- inn pappír, en Meier hefur dvalið í gestavinnustofu Gilfélagsins í sept- ember. Á meðal fyrirsæta eru Þor- móður Einarsson, sem Akureyr- ingar kannast margir við, og Jónas Viðar sjálfur; kveðst reyndar búinn að raka sig síðan teikningin var gerð. Á myndinni er Meier með nokkrar teikninganna, t.d. Þormóð og Jónas, en andlit listamannsins sjálfs verður til sýnis við opnunina kl. 14 í dag! Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þekktir Akureyringar og óþekktir HÚSNÆÐISSAMVINNUFÉLAG- IÐ Búseti á Akureyri hefur nú feng- ið nafnið Búseti á Norðurlandi og víkkað út þjónustusvæði sitt. Félagið hefur 152 íbúðir í rekstri, 137 á Akureyri og 15 á Húsavík. Við- ræður hafa farið fram við sveitar- félög víðar á Norðurlandi og útlit er fyrir að ráðist verði í byggingu bú- seturéttaríbúða á vegum félagsins víðar í landshlutanum en til þessa, að sögn Benedikts Sigurðarsonar, framkvæmdastjóra félagsins, en þegar hefur verið fundað með fulltrúum nokkurra sveitarfélaga. Nú standa yfir framkvæmdir við byggingu 58 íbúða fjölbýlishúss í Naustahverfi á Akureyri og er gert ráð fyrir að flutt verði í allar íbúð- irnar fyrir komandi áramót. Frekari íbúðabyggingar eru í gangi í hverf- inu. Eftirspurn virðist umfram fram- boð á íbúðum hjá félaginu. Búseti færir út kvíarnar Stefnt að þjónustu víða um Norðurland ÁSTÆÐA þess að heitavatnslagnir gáfu sig í nokkrum íbúðum í Glerárhverfi í fyrradag voru mistök starfsmanna Norðurorku. „Það var verið að tengja inn á lagnir í Hlíðarbraut, sverar lagnir vegna Hjalteyrarveitu, og í þessu ani var lokað fyrir of marga loka í einu. Þetta voru bara mann- leg mistök,“ sagði Franz Árnason, forstjóri Norð- urorku, í samtali við Morgunblaðið í gær. Skemmdir urðu í fjórum íbúðum vegna þessa, langmestar í tveggja hæða raðhúsi við Steinahlíð eins og Morgunblaðið sagði frá í gær. Þar gaf sig heitavatnsvör í baðherbergi á efri hæð og ljóst er að tjónið nemur milljónum króna því þar flæddi vatn um báðar hæðir og allt parket á gólfum er ónýtt, sem og hurðir og líklega hluti veggja. Franz Árnason bendir reyndar á að á þeim stöð- um þar sem heitavatnslagnir gáfu sig hafi tengi á neysluvatnslögnum dregist í sundur vegna þrýst- ings, „og allt voru þetta tengi sömu gerðar – það segir okkur einhverja sögu.“ Einnig urðu skemmdir í fleiri íbúðum í Gler- árhverfi en þeim fjórum sem áður voru nefndar, en þar var ástæðan sú að öryggislokar opnuðust þegar þrýstingur jókst – eins og þeir eiga að gera – en lokuðust ekki aftur, eins og vera ber. Franz segir þessa loka þó hafa virkað víðast hvar eftir því sem fyrirtækið kemst næst, en þeir eru hugs- aðir til þess að verja húskerfin. Hann segist ekki vita annað en að ofnar hafi alls staðar haldið. Franz segir Norðurorku skaðabótaskylda vegna tjóna af þessu tagi, svo fremi allt sé í lagi með lagnir hjá fólki og frá þeim gengið eins og lög gera ráð fyrir. „En við vísum öllum þessu málum beint til tryggingafélaganna. Ýmsir hafa haft sam- band við okkur, en við bendum fólki á að tala beint við sitt eigið tryggingafélag eða okkar. Starfs- menn þar eru sérfræðingar í þeirri hlið málsins.“ „Þetta voru mannleg mistök“ Norðurorka skaðabótaskyld svo fremi allar lagnir séu eins og þær eiga að vera Í HNOTSKURN »Töluverðar skemmdir urðu vegnavatnstjóns í nokkrum íbúðum í fyrra- dag. Mest tjón varð í íbúð í raðhúsi við Steinahlíð; tjónið þar er metið á milljónir króna. »Þar sem heitavatnslagnir gáfu sigdrógust í sundur tengi, sömu gerðar. EFNI margmiðlunardisks sem hef- ur að geyma 120 ára sögu KEA í máli og myndum er nú aðgengilegt á Netinu. Félagið sendi diskinn á heimili allra félagsmanna KEA í sumar og afhenti Minjasafninu á Akureyri, Iðnaðarsafninu, skólum og öðrum söfnum á svæðinu eintak. Nú er hægt að sjá efnið í gegnum heimasíðu KEA, www.kea.is, þar sem hægt er ferðast um tímaás og skoða, meðal annars ljósmyndir, upplýsingar um fyrirtæki, deildir og vörur KEA, hápunkta tiltekinna tímabila og lifandi myndefni. Diskurinn er yfirgripsmikil heimild um sögu KEA og sam- félagsins sem það hefur starfað í. Saga KEA komin á Netið VILHELM Anton Jónsson, einnig þekktur sem Villi naglbítur, opnar sýningu á mál- verkum í Deigl- unni í dag kl. 14. Þetta er fjórða einkasýning Vil- helms og sú fyrsta í tvö ár. Vilhelm málar fígúratífar en um leið afstraktar myndir með olíu á striga. Verkin eru kraftmikil, hrá og lifandi og fjalla um snertingu og losta, skv. fréttatilkynningu. Ekkert verk- anna hefur verið sýnt áður. Sýn- ingin stendur í tvær vikur til 7. okt. Villi naglbítur í Deiglunni Vilhelm Anton Jónsson ÞÓRARINN Blöndal opnar sýningu í dag kl. 14 í „inn-rými“ í Gallerí + við Brekkugötu. Sýningin sam- anstendur af ljósmyndum og rým- isverkum og er vinnurými Þórarins viðfangsefni verkanna. Sýninginn stendur til 7. okt. Opið er um helgar kl. 14-17 og aðra daga eftir samkomulagi. Þórarinn Blön- dal í Gallerí +
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.