Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 43
dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 43 FRÉTTIR árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Breiðfirðingabúð | Fundur verður haldinn mánudaginn 1. okt. kl. 20. Gestur fundarins verður Þórhallur Guðmundsson miðill. Félag eldri borgara í Kópavogi | Félagsfundur verður í dag kl. 14, í félagsheimilinu Gullsmára 13. Félag eldri borgara Kópavogi | Skráning er hafin í félagsmiðstöðvunum í haustlitaferð 4. október nk. Brottför frá Gullsmára kl. 13.15 og Gjábakka kl. 13.30. Leið: Heiðmörk - Nesjavellir - Ýrafoss - að Þingvallavatni. Kaffihlaðborð Valhöll - síðan dansað. Ekið í Bolabás - Hakið - Kjósarskarðsveg - Kjós og Kjalarnes. Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9. Hana-nú ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga eru opnar vinnustofur með og án leiðsögn, spila- salur, o.fl. Gerðubergskór æfir á mánud. og fös- tud. kl. 14.20, nýir félagar velkomnir. Dans- æfingar byrja kl. 10 miðvikud. 3. okt. Uppl. í s. 575-7720 og www.gerduberg.is Furugerði 1, félagsstarf | Minnum á haust- fagnað Þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis á morgun sunnudag kl. 15, í Þrótt- arheimilinu Laugardal. Gjábakki, félagsstarf | Íþróttafélagið Glóð í Kópavogi verður með skemmtidagskrá í Gjá- bakka á morgun kl. 14. Söngur, harmonikku- leikur, gamanmál o. fl. Aðgangseyrir á skemmtunina kr. 1000. Innifalið er kaffiveit- ingar. Íþróttafélagið Glóð í Kópavogi verður með kökubasar í Gjábakka Fannborg 8. Húsið opnað kl. 13. Úrval af margskonar kökum og brauði. Hraunbær 105 | Haustfagnaður verður í Fé- lagsmiðstöðinni 28. sept. Fagnað verður 15 ára starfsafmæli sem hefst með borðhaldi kl. 12.30, síðan verður bingó og skemmtiatriði. Verð kr. 3.000, kráning í afgreiðslu og í síma 411-2730. Kirkjustarf Kristniboðssalurinn | Kristniboðsfélag karla heldur félagsfund mánudaginn 24. september á Háaleitisbraut 58 3. hæð kl. 20. Skúli Svav- arsson sér um Biblíulestur. 90ára afmæli. Þann 24.september nk. verður níræð Guðrún Ólafsdóttir, Hrafnistu Reykjavík, áður Eskihlíð 16. Í tilefni af því tek- ur hún á móti ættingjum og vinum að Helgafelli, 4. hæð, á Hrafnistu í Reykjavík á af- mælisdaginn milli kl. 16 og 19. Í dag er laugardagur 22. september, 265. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Tónlist Hallgrímskirkja | Orgeltónleikar Listvinafélags Hallgrímskirkju verða 23. september kl. 17 í tón- leikaröð helgaðri sálmum. Doug- las A. Brotchie organisti Háteigs- kirkju leikur. Á efnisskrá eru m.a. sálmforleikir, sálmafantasíur og tilbrigði eftir Bach, Eben, Þorkel Sigurbjörnsson, Jón Nordal, Jón Þórarinsson o.fl. Myndlist Gallerí List | Bjarni Þór Bjarna- son myndlistamaður frá Akranesi opnar sýningu í dag kl. 13. Sýn- ingin stendur til þriðjudagsins 2. október og er opin á opnunartíma gallerísins. Gerðuberg | Úr ríki náttúrunnar. Guðmunda S. Gunnarsdóttir al- þýðulistakona, sýnir málverk og myndverk úr rekaviði og steinum í Boganum. Sýningin stendur til 11. nóvember og er opin virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-16. Nánari uppl. áwww.gerduberg.is Gerðuberg | Handverkshefð í hönnun - Sýning 34 hönnuða, lista- og handverksfólks. Opið virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-16. Boðið er upp á leiðsögn fyrir hópa. Sýningin stendur til 11. nóvember. S. 575-7700. Nánari uppl. á www.gerduberg.is Kirkjuhvoll Akranesi | Ólöf Erla Bjarnadóttir og Kristín Erla Sig- urðardóttir sýna leirverk í Lista- setrinu til 7. október. Viðfangsefni sýningarinnar tengjast náttúru og þjóðsögum Vesturlands í bland við minningar úr Borg- arfirði. Opið alla daga nema mánudaga kl. 15-18. Ráðhús Reykjavíkur | Skáldað í tréhandverkshefð í hönnunn stendur yfir í Tjarnarsal. Rennd trélistaverk, þversnið af trérenni- smíði á Íslandi. Opið kl. 12-18 alla daga. Sýningin stendur til 30. september. Söfn Norræna húsið | Prjónakaffihús verður opið frá 22. sept. til 7. okt. Hægt verður að fá kennslu í grunnatriðum prjóns, kaupa garn, prjónabækur og blöð. Opið þriðju- daga, miðvikudaga og fimmtu- daga kl. 12-23, föstudaga, laug- ardaga og sunnudaga kl. 12-17. Mannfagnaður Vopnfirðingafélagið | Kaffidagur félagsins verður haldinn á morg- un 23. sept. í Félagsmiðstöðinni Aflagranda 40 kl. 15. Ævar Kjart- ansson útvarpsmaður kemur og segir frá símahúsunum á Haugs- öræfum sem búið er að endur- gera. Aðalfundur kl. 13 á sama stað. Fyrirlestrar og fundir Gamla Bókasafnið í Hafnarfirði | Fræðslusýning verður opnuð kl. 11, um sjálfbæra þróun. Sýning byggist á hugmyndafræði Jarðar- sáttmálans um hvaða forsendur þarf til að skapa heim sem bygg- ist á sjálfbærri þróun, umhverf- isvernd og félagslegu réttlæti. Aðgangur er ókeypis. Lækjarbrekka, veitingahús. | Tryggvi V. Líndal þjóðfélagsfræð- ingur og skáld, mun greina frá hugmyndum sínum um Sjö- stjörnu skáldanna. Síðan munu hann og aðrir lesa úr ljóðum sín- um, á morgun 23. september kl. 14.30. SUMIR fá eflaust illt í legg- ina við að horfa á þessa mynd en á henni má sjá rússnesku fimleikastjörn- una Olgu Kapranovu á keppnisvellinum í gær. Kapranova sýnir þarna gólffimleika með borða og gerir það augljóslega af mikilli snilld. Nú stendur yfir heims- bikarmótið í taktföstum fimleikum í Patra í Grikk- landi. Ekkert skal um það sagt hvort Kapranova hafi sigr- að í keppnisgreininni. Í loftinu Flott með borðann Reuters Rangt nafn skattstjóra RANGT var farið með nafn skattstjórans í Norðurlandsumdæmi vestra í frétt á bls. 21 í Morgunblaðinu í gær. Skattstjórinn heitir Bogi Sigurbjörnsson. Varafulltrúar Samfylkingar RANGHERMI var í frétt á bls. 20 í blaðinu í gær um fyrstu vara- menn Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur. Hið rétta er að fyrstu varaborgarfulltrúar Samfylkingarinnar í borgarstjórn eru Dofri Hermannsson og Stefán Jóhann Stefánsson. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Glatt verður á hjalla í Þróttar-heimilinu Laugardal á morg-un, sunnudag, en þá heldurÞjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis haustfagnað. Álfhildur Hallgrímsdóttir er einn af skipuleggjendum hátíðarinnar: „Alls munu sjö félagsmiðstöðvar taka þátt í skemmtuninni, sem er opin öllum íbú- um svæðisins,“ segir Álfhildur. „Við notum þetta tækifæri til að minna á okkur, og þá þjónustu sem félags- miðstöðvarnar bjóða upp á, um leið og við höldum skemmtilega uppákomu þar sem fólk á góða stund saman.“ Nóg verður um að vera á haustfagn- aðinum: „Hljómsveit Hjördísar Geirs ætlar að halda uppi fjörinu og fá gesti með í dans. Auk þess munu fulltrúar eldri kynslóðarinnar í hverfinu troða upp með gamanmáli og söng,“ segir Álfhildur. „Heimabakaðar rjóma- pönnukökur, kaffi og kleinur verða á boðstólum.“ Félagsmiðstöðvar velferðarsviðs Reykjavíkurborgar bjóða upp á margs- konar dægradvöl og þjónustu: „Áður voru miðstöðvarnar reknar í nafni aldr- aðra, en aldursskipting hefur nú verið afnumin og eru miðstöðvarnar opnar öllum aldurshópum,“ segir Álfhildur. „Hjá félagsmiðstöðvunum er bæði hægt að rækta sál og líkama: starf- ræktir eru bókmenntaklúbbar, haldnar lesstundir, margs konar handmenntir eru iðkaðar, farið er í leikhús og ferða- lög og ekki má gleyma tölvukennslu og annarri fræðslu. Einnig stöndum við fyrir heilsurækt, leikfimi og jóga, auk þess eru starfræktir gönguhópar. Þá er og boðið upp á hádegisverð og síðdeg- iskaffi alla virka daga.“ Ódýrt er að taka þátt í starfi félags- miðstöðvanna, sem er að stórum hluta niðurgreitt af Reykjavíkurborg: „Markmiðið er að virkja sem flesta til þátttöku, enda er maður manns gaman og eykur það bæði heilbrigði og lífs- gæði að taka þátt í félagsstarfi. Við fjárfestum í félagsauði og eru virkir og lífsglaðir íbúar okkar gróði,“ segir Álf- hildur. Haustfagnaðurinn hefst kl. 15 og eru allir velkomnir. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Finna má nánari upplýsingar á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is, og í síma 411 1500, en Þjónustumiðstöðin er í Síðumúla 39. Hátíð | Haustfagnaður þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis Góðra vina fundur  Álfhildur Hall- grímsdóttir fædd- ist í Reykjavík 1955. Hún lauk BA- gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands 1989, námi í upp- eldis- og kennslu- fræðum 1993 og meistaraprófi í stjórnun frá sama skóla 2002. Hún hef- ur starfað á sviði félagsþjónustu frá 1989, í unglingastarfi og með fötl- uðum, en frá 1993 hefur hún starfað sem forstöðumaður. Álfhildur á börnin Elís Vilberg, Óðin og Helgu Völu. STJÓRNARFUNDUR í Landssambandi sjálfstæðiskvenna sem haldinn var í Valhöll 17. september 2007 fagnar áformum heil- brigðisráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsyni, um að leita samstarfs við norræna starfsbræður sína um norrænan heilsu- og lyfjamark- að sem miði að því, meðal annars, að lækka lyfjakostnað lands- manna. Landssamband sjálfstæðiskvenna ítrekar jafnframt ályktun Landsfundar um að virðisaukaskattur á lyfseðilsskyldum lyfjum verði felldur niður til samræmis við aðra heilbrigðisþjónustu. Þá hvetur stjórnin heilbrigðisráðherra til að hrinda sem fyrst í fram- kvæmd stefnu sjálfstæðismanna um einkarekstur í heilbrigðiskerf- inu, þar sem landsmönnum öllum sé tryggður aðgangur að fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu með aðkomu einkarekstrar. Slíkt fyr- irkomulag telur Landssamband sjálfstæðiskvenna vera framfara- skref fyrir almenning allan, heilbrigðiskerfið og starfsmenn þess. Þá hvetja sjálfstæðiskonur nýkjörinn formann og stjórn SUS til að huga að stöðu kvenna innan ungliðahreyfingarinnar í samstarfi við og með stuðningi Landssambands sjálfstæðiskvenna. Fagna áformum um norrænt lyfjasamstarf SPARISJÓÐIRNIR á Íslandi, Toyota, Olís og Bónus verða bakhjarlar landssöfnunar Kiwanis-hreyfingarinnar til stuðnings geðsjúkum og að- standendum þeirra sem fram fer dagana 4.-7. október. Kjörorð söfnunarinnar er Lykill að lífi og er hún haldin í tengslum við al- þjóðlega geðheilbrigðisdaginn, 10. október. Kiwanis-hreyfingin á Íslandi hefur allt frá árinu 1974 staðið fyrir landssöfnun þriðja hvert ár með sölu á K-lyklinum. Ágóði af landssöfnununum hefur runnið til fjölda verkefna til hjálpar geðsjúkum. Tilgangurinn er að vekja þjóðina til umhugsunar um málefni geðsjúkra og safna fé til þess að styðja við end- urhæfingu þeirra. Að þessu sinni er sjónum sérstaklega beint að ungu fólki sem glímir við geðræn vandamál. Ágóði landssöfnunarinnar að þessu sinni rennur til þriggja málefna; Geðhjálpar, BUGL og Forma. Gengið verður í hús um land allt, sölumenn verða við verslanamiðstöðvar og aðra fjöl- farna staði, auk þess sem leitað er til fyrirtækja um stuðning. K- lykillinn verður ennfremur til sölu í öllum verslunum Bónuss og á þjónustustöðvum Olís. Þá verður hægt að leggja inn á reikning söfnunarinnar; 1100- 26-55000, kennitala 640173-0179. Sparisjóðirnir á Íslandi eru fjárvörsluaðili söfnunarinnar og hægt verður að leggja málefninu lið með því að fara inn á heima- banka sparisjóðanna og milli- færa. Geðhjálp mun við ráð- stöfun síns hluta söfnunarfjárins beina sjónum sérstaklega að ungu fólki á aldrinum 12-25 ára sem á við geðraskanir að etja. Ætlunin er að efla, styrkja og samþætta þau úrræði sem víða eru í boði en eru ekki sem skyldi sýnileg eða aðgengileg, jafn- framt því sem leitast verður við að finna úrræði þar sem á skort- ir. Meðal annars verður komið á fót athvörfum fyrir þá ein- staklinga sem einangrast hafa félagslega í samfélaginu vegna geðraskana og haldið áfram að byggja upp sjálfshjálparhópa um allt land. Fyrirtæki bakhjarlar landssöfnunar Kiwanis Ljósmynd/Gunnar Kr. Sigurjónsson Samningur Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða, Sigurður K. Pálsson, markaðsstjóri Olís, Svanur Valgeirsson, starfsmannastjóri Bónus, Andrés Hjaltason, umdæmisstjóri Kiwanis, og Magnús Kristinsson, stjórnarformaður Toyota, að lokinni undirritun samstarfssamninganna. UMHVERFISSTOFNUN og Sjóvá Forvarnahús hafa gert með sér samning um gerð skoð- unarhandbókar fyrir leik- vallatæki og leiksvæði. Samningurinn felur í sér að Sjóvá Forvarnahúsið vinnur skoðunarhandbók fyrir Um- hverfisstofnun sem gegnir því hlutverki að vera vinnulýsing fyrir framkvæmd árlegrar aðal- skoðunar leiksvæða. Auk þess felst í samningnum að Sjóvá Forvarnahúsið sér um kynningu á notkun skoðunar- handbókarinnar í samvinnu við Umhverfisstofnun. Áætlað er að vinnsla handbókarinnar hefjist hinn 1. október og verði lokið eigi síðar en 14. mars 2008. Handbók um skoðun leiktækja og -svæða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.