Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 39
dikar. Samkoma á Eyjólfsstöðum á Héraði kl. 20. www.kristur.is KFUM og KFUK | Vaka verður á Holtavegi 28 kl. 20. Ræðumaður er sr. Íris Kristjáns- dóttir. Lofgjörð og fyrirbæn. Allir eru vel- komnir. KÓPAVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Hjörtur Hjartarson. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safn- aðarsöng. Organisti og kórstjóri Lenka Mátéova. Barnastarf kl. 12.30. Umsjón Sigríður, Þorkell Helgi og Örn Ýmir. Kyrrð- ar- og bænastund þriðjudag kl. 12.10. Landspítali háskólasjúkrahús: Landakot | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Vigfús Bjarni Al- bertsson, organisti Ingunn Hildur Hauks- dóttir. LANGHOLTSKIRKJA: | Stóri fjölskyldudag- urinn. Fjölskyldumessa kl. 11 á kirkjudegi safnaðarins. Allir kórar kirkjunnar syngja. Fjölbreytt dagskrá fyrir börn og fullorðna frá kl. 11 - 14. Margir góðir gestir koma fram. Leiktæki úti fyrir börnin. Pylsur og kaffisopi. Kynning á safnaðar- og tónlist- arstarfi kirkjunnar. LAUGARNESKIRKJA: | Kl. 11 messa og sunnudagaskóli. Sr. Bjarni Karlsson pré- dikar. Sunnudagaskólinn er í höndum sr. Hildar Eirar Bolladóttur og hennar góða samstarfsfólks. Kl. 20 sálmar og gítar. Örn Arnarson söngvari flytur sálma og fjallar um innihald þeirra. (Sjá fréttatilk.) LÁGAFELLSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Tónlistarflutning annast Heiða Árna- dóttir, söngkona, Joachim Bandenhorst, klarinett og Ananata Roosens, fiðlu, ásamt kór Lágafellssóknar og Jónas Þórir. Prestur Ragnheiður Jónsdóttir. Sunnu- dagaskóli í kirkjunni kl. 13. Umsjón Hreiðar Örn og Jónas Þórir. LINDASÓKN í Kópavogi: | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli í Salaskóla kl. 11. Nemendur úr Kórskóla Lindakirkju syngja undir stjórn Keith Reed. Prestur er Bryndís Malla Elídóttir. MÖÐRUVALLAKIRKJA | Messa verður í Möðruvallkirkju sunnudaginn 23. sept- ember kl. 14. 140 ára afmæli kirkjunnar. Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslu- biskup á Hólum predikar og sóknarprestur þjónar fyrir altari. Afmæliskaffi í Leikhús- inu á Möðruvöllum eftir messu. Allir vel- komnir. Sóknarprestur og sóknarnefnd. NJARÐVÍKURKIRKJAk (Innri-Njarðvík): | Sunnudagskóli kl. 11. Umsjón hafa Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir, Dagmar Kunákova og Jenný Þórkatla Magnúsdóttir. Fyrsta skiptið á þessum hausti. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn- aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhalls- son. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Kaffi og spjall á Torginu að messu lokinni. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: | Tónlistarmessa í kirkju Óháða safnaðarins Kl. 14. Einsöngvarinn Einar Örn Einarsson mun flytja nokkur lög og Magnús Viðar Skúlason frá Gideonfélaginu prédikar. Maul eftir messu. REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: | Messa sunnudaginn 23. sept. kl. 14. Egill Ólafs- son flytur sálmalög við undirleik Jónasar Þóris. Börn sem ætla að taka þátt í ferm- ingarundirbúningi í vetur eru sérstaklega beðin að mæta. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur. REYNIVALLAKIRKJA í Kjós: | Messa í Reynivallakirkju sunnudaginn 23. sept. kl. 14. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur. SALT kristið samfélag | Háaleitisbraut 58-60, 3 hæð. Saltaðar samkomur kl. 17. Ræðumaður: Hermann Bjarnason. Yfirskrift; ,,Hvers þjónar erum vér“? Mikil lofgjörð og fyrirbæn. Velkomin. SELFOSSKIRKJA: | Selfosskirkja. 16. sunnudagur eftir trinitatis. Messa kl. 11. Barnasamkoma í safnaðarheimili kl. 11.15. Léttur hádegisverður á eftir at- höfninni. Kirkjukór Selfoss undir stjórn Jörgs E. Sondermanns, organista. Sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Sr. Gunnar Björnsson. SELJAKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Söngur, saga, ný mynd í möppu! Al- menn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ást- ráðsson prédikar. Kirkjukórinn leiðir söng- inn. Organisti Jón Bjarnason. SELTJARNARNESKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11. Kammerkór kirkjunnar leiðir tónlist- arflutning undir stjórn Friðriks Vignis org- anista. Fermingarbörn lesa ritningartexta og Björn Kristinsson leikur á saxófón. Sunnudagaskólinn er á sama tíma og minnum á æskulýðsfélagið kl. 20. Verið velkomin. Sigurður Grétar Helgason. STÆRRA-Árskógskirkja | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir pró- fastur prédikar. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: | Messa kl. 11. Sóknarprestur. VEGURINN kirkja fyrir þig | Samkoma kl. 11 í Veginum að Smiðjuvegi 5. Kennsla fyrir alla aldurshópa. Bengt Wedemalm kennir, lofgjörð og fyrirbæn. Létt máltið að samkomu lokinni. Kl. 19 samkoma. Bengt Wedemalm prédikar, lofgjörð, fyrirbænir og samfélag í kaffisal á eftir. Allir vel- komnir. VÍDALÍNSKIRKJA: | Messa kl. 11. Sr.Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar leiðir lofgjörðina und- ir stjórn Jóhanns Baldvinssonar. Sunnu- dagaskóli á sama tíma í safnaðarheimili. Hressing eftir messu safnaðarheimilinu. Fermingarbörn og foreldrar hvött til þát- töku. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: | Útvarps- guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór og Stúlkna- kór syngja. Stjórnendur: Úlrik Ólason og Áslaug Bergsteinsdóttir. Einsöngur: Sig- urður Skagfjörð. Sunnudagaskólinn kl. 11. Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Sr. Skúli Ólafsson annast prestsþjónustu. Kór kirkjunnar leiðir söng undir stjórn Gunnhildar Höllu Baldursdóttur organista. Meðhjálpari Ást- ríður Helga Sigurðardóttir. Sóknarprestur. ÞORLÁKSKIRKJA: | Fjölskyldumessa þ.e. messa og barnastarf sunnudag kl. 11. Börnin fá nýjar bækur. Vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra þeirra. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 39 hjálmsson borgarstjóri flytur ávarp um kl. 13 og Ragnar Bjarnason og Þorgeir Ástvaldsson taka lagið. Leiktæki verða úti á lóð fyrir börn- in og boðið verður upp á pylsur og drykki í hádeginu. Myndarleg kynning verður á hinu fjölþætta safnaðar- og kórastarfi Langholts- kirkju, en sérstakt átak er verið að gera í því að kynna það starf sem og tónleika kóranna. Er dagskráin til vors tilbúin og verður henni dreift. Allir eru velkomnir. Sálmar og gítar í Laugarneskirkju Sunnudagskvöldið 23. september kl. 20 mun söngvarinn og tónlist- armaðurinn Örn Arnarson setjast niður í kór Laugarneskirkju með gítar og sálmabók við hönd til þess að flytja áheyrendum sínum eft- irlætis sálma sína. Mun Örn líka fjalla um sálmana, inntak þeirra og uppruna um leið og hann lýsir því gildi sem þeir hafa í hans eigin lífi. Laugarnessöfnuður býður upp á tónleikana en við kirkjudyr verður tekið við framlögum frá þeim sem vilja styrkja þennan viðburð. Verið velkomin í Laugarneskirkju. Haustferð eldri borgara í Laugarnes- söfnuði á Þingvöll Á fimmtudaginn 27. september heldur starf eldri borgara í Laug- arneskirkju í haustlitaferð til Þing- valla. Farið verður með rútu frá kirkj- unni stundvíslega kl. 14. Far- arstjórar verða sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur, Sigurbjörn Þorkels- son meðhjálpari og framkvæmda- stjóri safnaðarins og Gunnhildur Einarsdóttir kirkjuvörður. Einnig verður sérstakur leiðsögumaður með í för sem mun leiða okkur um helstu sögustaði og rifja upp sögu Þingvalla. Komið verður við á hótel Valhöll þar sem rjúkandi kaffi og dýrindis meðlæti bíður hópsins. Áætluð heimkoma er á milli kl. 18 og 19. Fullt verð fyrir rútu, veitingar og fararstjórn er kr. 2.500 sem greið- ast á staðnum. Þeir sem áhuga hafa á að slást í för með okkur mæti ekki síðar en korter fyrir tvö á fimmtu- daginn við Laugarneskirkju. Einnig viljum við geta þess að samverur eldri borgara í Laug- arneskirju verða síðan annan hvern fimmtudag í safnaðarheimili kirkj- unnar kl. 14-15.30. Þar er ætíð boð- ið upp á vandaða dagskrá, kaffi og meðlæti í boði safnaðarins. 12 sporin í Kirkju Óháða safnaðarins 12 spora starfið - andlegt ferðalag er hafið í Kirkju Óháða safnaðarins að Háteigsvegi 56. Fundirnir eru á fimmtudagskvöldum klukkan 19.30-21.30. „Ferðalagið“ er ætlað öllum sem vilja skoða líf sitt í nýju og betra ljósi. Fólk þarf ekki að tengjast neinum ákveðnum vanda- málum eða fíkn til að taka þátt. Við hvetjum alla til að mæta næstkom- andi fimmtudag til að kynna sér starfið. Fundirnir eru „opnir“ til 11.októ- ber, en þá þarf fólk að taka ákvörð- un um hvort það verður með í allan vetur. Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli FRAMNESVEGUR - EINBÝLI Sérlega sjarmerandi og vel staðsett, 121 fm einbýlishús á tveimur hæðum, hæð og ris á þessum eftirsótta stað, Bráðræðisholtinu í vesturbænum. Húsið er að mestu endurbyggt árið 1982. Falleg gróin lóð og suðursólpallur. Í húsinu eru 3 svefnherbergi, stofa, borðstofa og sjónvarpshol í risi ásamt tveimur baðherbergjum sem voru endurnýjuð árið 2003. Fallegar furufjalir á gólfum og málaður panell á veggjum. Húsið er töluvert stærra en uppgefnir fermetrar vegna súðar í risi. Í heild, mikið endurnýjað hús á einum eftirsóttasta stað Reykjavíkur. Verð 49,5 millj. Allar nánari uppl. veitir Hákon í síma 898-9396. Traust þjónusta í 30 ár HÁLFLEIKUR Í Mexíborg: Vis- vanthan Anand hefur náð naumri forystu á aldursforsetann Boris Gelfand. 1. Anand (Indland) 5 v. 2. Gelfand (Ísrael ) 4 ½ v. 3. Kramnik (Rússland ) 4 v. 4. Grischuk Rúss- land) 3 ½ v. 5. – 6. Leko (Ungverja- land ) og Aronian (Armenía) 3 v. 7. – 8. Moresevich (Rússland) og Svidler (Rússland) 2 ½ v. Þetta mót fór afar rólega af stað. Keppendum er þó öllum ljóst að að- eins efsta sætið skiptir einhverju verulegu máli. Þeir komu allir tím- anlega til Mexíkó til að venjast lofts- laginu en Armenann Aronian, sem talinn var einn af sigurstranlegustu keppendunum, hafa hrjáð ýmsar pestir, mengun enda mikil í Mex- íborg og margt að varast varðandi mataræði. Aðal-aðstoðarmaður An- ands er danski stórmeistarinn Peter Heine Nielsen en jafnframt fylgir Indverjanum sægur indverskra blaða- og fréttamanna. Sigri Anand væri kominn fram glæsilegur heims- meistari. Nokkuð á óvart virðist helsti keppinautur hans vera ísraelski stórmeistarinn Boris Gelfand. Gelf- and hefur lengi verið í hópi sterkustu skákmanna heims og tefldi t.d. á 1. borði fyrir Sovétmenn á Ólympíu- mótinu í Novi Sad 1990. Kramnik sem kemur í þriðja sæti ætlar sér örugglega stóra hluti á lokasprett- inum. Aðrir hafa minni möguleika en reikna má með að mótið vinnist á 9 vinningum þ.e. +4 eins og það stund- um orðað eða meira. Það er til marks um þær breytingar sem orðið hafa í skákheiminum að árin 1959 og 1962 létu átta skákmenn sig ekki muna um að tefla fjórfalda umferð á hinum „ódauðlegu áskorendamótum“ . Margar skemmtilegar skákir hafa verið tefldar í Mexíkó t.d. var sigur Kramniks yfir Morosevich sérlega glæsilegur. Sigurskák Anands yfir Grischuk í sjöundu umferð er hinsvegar skín- andi dæmi um léttleikandi stíl „tíg- ursins frá Madras“ eins og Anand er stundum kallaður. Hann sniðgengur Marshall-árásina, sem kom upp í sig- urskák hans yfir Svidler í fimmtu umferð, og eftir fremur óvenjuleg uppskipti á drottningarvæng stóð Grishuk skyndilega eftir með lam- aðan riddara á b4 og biskup sem haldið var úti af peðum hvíts. En Grischuk gerði ýmislegt til að hrista upp í stöðunni. Eftir drottningar- uppskipti og 30. .. g5 virtist hann til alls vís en þá hristi Anand fram úr erminni nokkra bráðsnjalla peðs- leiki: 31. h4, 34. h5, 35. h6+ og 37. g5. Fertugasti leikurinn, Hf6 gerir svo í reynd út um taflið því 40. .. Hxf6 41. gxf6+ Kxf6 strandar vitaskuld á 42. Rd7+ og hrókurinn fellur: HM Mexíkó 2007, 7. umferð: Wisvanathan Anand – Alexander Grischuk Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 O-O 8. a4 b4 9. d3 d6 10. Rbd2 Ra5 11. Ba2 c5 12. c3 Rc6 13. d4 bxc3 14. bxc3 exd4 15. cxd4 Rb4 16. Bb1 Bg4 17. h3 Bh5 18. g4 Bg6 19. d5 Rd7 20. Rc4 Hb8 21. Bf4 Rb6 22. Rxb6 Hxb6 23. Rd2 Bg5 24. Bxg5 Dxg5 25. Rc4 Hbb8 26. Dd2 Dxd2 27. Rxd2 f6 28. Rc4 Hfd8 29. f4 Bf7 30. Ha3 g5 31. h4 gxf4 32. Hf3 Be8 33. Hxf4 Kg7 34. h5 Bxa4 35. h6+ Kxh6 36. Hxf6+ Kg7 37. g5 Hf8 38. Hxd6 Bc2 39. Re5 Hf4 40. Hf6 Hxh4 41. d6 Bxb1 42. Hxb1 Hxe4 43. Hf7+ Kg8 44. He7 Hd8 45. Hd1 c4 46. d7 Hf4 47. Hf1 Hff8 48. Hxf8+ Kxf8 49. Hxh7 c3 50. Rg6+ - og svartur gafst upp. Eftir 50. .. Kg8 51. Hh8 Kg7 52. Hd8 og 53. Hc8 er eftirleikurinn auðveldur. Evrópumót ungmenna í Króatíu Íslendingar eiga þrjá kependur á Evrópumóti ungmenna sem nú stendur yfir í Sbinek í Króatíu. Hjörvar Steinn Grétarsson fór af stað af miklum krafti og vann þrjár fyrstu skákir sínar. Hann var með 4 vinninga af fimm mögulegum en tap- aði slysalega í sjöttu og sjöundu um- ferð og á því ekki lengur möguleika á verðlaunasæti í flokki pilta 14 ára og yngri. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir er með þrjá vinninga af sjö mögu- legum í flokki stúlkna 16 ára og yngri og Sverrir Þorgeirsson einnig með þrjá vinninga í flokki pilta 16 ára og yngri. Evrópumótið er geysilega sterkt og mikill meirihluti keppenda frá Austur-Evrópu. Anand einn efstur SKÁK HM í Mexíkó 13. – 28. september Sigurstranglegur Wisvanatahan Anand að tafli í Mexókó. Við skákborðið blaktir sjaldséð jurt, paradísarblómið. Helgi Ólafsson helol@simnet.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.