Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 56
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 265. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Dæmalaust magn  Í skútunni á Fáskrúðsfirði fund- ust ríflega 60 kg af fíkniefnum. Þar af var efni sem hefði nægt í 140 þús- und e-töflur. » Miðopna Lögum verður breytt  Félagsmálaráðherra undirbýr nú breytingar á lögum um greiðslur til foreldra langveikra barna. Ráð- herrann vill víkka gildissvið laganna og rýmka greiðslur. » 4 Lögreglumenn vantar  Erfitt er að manna vaktir lögregl- unnar víða um land vegna manneklu. Lögreglumenn telja launin helstu ástæðu þess að illa gengur að manna lögreglulið. » 6 Framselja Fujimori  Hæstiréttur í Chile úrskurðaði í gær að framselja bæri Alberto Fuji- mori, fyrrverandi forseta Perú, til heimalands hans svo að hægt yrði að lögsækja hann. » 17 SKOÐANIR» Staksteinar: Enn af stríðsástandi í miðbænum Forystugreinar: Strandhögg gegn eitri | Ótti við HIV-faraldur UMRÆÐAN» Stofnstærð Hefnd bæjarstjórans í Kópavogi Að brjótast inn í sparisjóði landsm. Tært vatn út iðrum jarðar eða sull Meistaratök Höfundarnir og forlagatrúin Leitin að fullkomnun Range Rover breytir ekki sögunni LESBÓK»  3  3 3 3  3 3  4  #5 %  . " + "# 6 "! " "! $ 1 .  3 3 3 3 3 3  3   - 7 )1 %  3  3 3 3  3   89::;<= %>?<:=@6%AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@%7 7<D@; @9<%7 7<D@; %E@%7 7<D@; %2=%%@$ F<;@7= G;A;@%7> G?@ %8< ?2<; 6?@6=%2+%=>;:; Heitast 10 °C | Kaldast 3 °C Vaxandi austan- og na-átt, 18–23 m/s og rigning sunnanlands. Hægari og þurrt fyrir norðan. » 10 Þursaflokkurinn heldur tónleika með Caput-hópnum í Laugardalshöllinni þann 23. febrúar næstkomandi. » 52 TÓNLIST» Þursarnir í febrúar KVIKMYNDIR» Mr. Brooks er illa leikin segir gagnrýnandi. » 52 „Haust er komið, húmar að, og helvítis rigning víða“ er fyrriparturinn í út- varpsþættinum Orð skulu standa. » 48 ÚTVARP» Hryssings- legt haust TÓNLIST» Friðrik og Guðrún huga að jólum. » 50 FÓLK» Útgáfu Monitors fagnað með partíi. » 49 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Ísl. huldumaður í rússn. viðsk.lífi 2. Styrkleiki fíkniefnanna mikill 3. Karlmaður fannst látinn í Soginu 4. Horfðu á dreng drukkna ÁSTANDIÐ í bókmenntaheiminum er eins og ef það væru bara Kjar- valsstaðir og Listasafn Reykjavíkur – og safnstjórinn væri Jónas frá Hriflu.“ Þannig kemst Viðar Þor- steinsson hjá bókaútgáfunni og skáldahópnum Nýhil að orði en hann er afar gagnrýninn á stefnu íslenskra bókmenntaútgefenda sem hann seg- ir trénaða og metnaðarlausa. Hann kveðst ekki sjá að hinn nýi risi í ís- lenskum útgáfuheimi, Forlagið, sem verður til við sameiningu Máls og menningar og JPV-útgáfu, muni breyta miklu um ástandið á mark- aðnum. Forsvarsmenn Forlagsins segja að þeir muni halda sínu striki. | Lesbók 4 Og safn- stjórinn væri Jónas frá Hriflu HREIÐAR Ingi Þorsteinsson er ný- útskrifaður frá tónsmíðadeild Listaháskóla Íslands og verkefnin bíða eftir honum í röðum. „Þeir höfðu samband við mig nýlega frá suður- afríska kórnum TUKS Camerata og báðu mig um að semja tónverk fyrir sig í tilefni af því að kórinn verður fjörutíu ára á næsta ári. Þetta er margverðlaunaður kór og mikill heið- ur fyrir mig að semja verk fyrir hann. Ég er líka að semja tónverk fyrir finnskan kvennakór sem og bland- aðan finnskan kór,“ segir Hreiðar Ingi sem hefur í nógu að snúast auk tónsmíðanna því hann stjórnar líka Drengjakór Langholtskirkju og er að taka áttunda stig í Söngskólanum.|22 Semur tónlist fyrir suður- afrískan kór HÖGNA Sigurðardóttir arkitekt hlaut heiðursorðu Íslensku sjón- listaverðlaunanna fyrir „einstakt æviframlag til íslenskrar nútíma- byggingarlistar“, eins og dómnefnd orðaði það, við athöfn í Flugsafni Ís- lands á Akureyri í gærkvöldi. Hrafn- kell Sigurðsson hlaut sjónlistaorð- una á sviði myndlistar og Studio Granda hlaut sjónlistaorðuna á sviði hönnunar. Í niðurstöðu dómnefndar segir að þótt verk Högnu Sigurðardóttur hér á landi séu hvorki mörg né stór í fer- metrum talið mælist þau þeim mun stærri í listrænum víddum. „Bygg- ingarlist Högnu er nátengdari ís- lensku landslagi, náttúru og sögu- legum arfi en verk flestra núlifandi arkitekta og það þó að hún hafi mestan hluta ævi sinnar búið og starfað í Frakklandi.“ Högna er fædd í Vestmannaeyjum árið 1929 og hóf nám í Frakklandi tvítug að aldri við hinn virta listaskóla École des Beaux Arts, fyrst Íslendinga. Högna sagðist í gærkvöldi af- skaplega hrærð og þakklát fyrir þann heiður sem henni væri sýndur. Hún þakkaði sérstaklega þeim sem stæðu að verðlaununum vegna þess að aldrei væri nógu mikið talað um byggingarlist. Sex listamenn voru tilnefndir til sjónlistaorðunnar og fá verðlauna- hafarnir á sviði myndlistar og hönn- unar tvær milljónir króna hvor um sig. Auk Hrafnkels voru Birgir Andr- ésson og Hekla Dögg Jónsdóttir til- nefnd til Sjónlistaverðlaunanna á sviði myndlistar og Nikita og Össur á sviði hönnunar. Studio Granda, sem Margrét Harðardóttir og Steve Christer eiga og reka, var einnig tilnefnt í fyrra þegar Sjónlistaverðlaunin voru veitt í fyrsta skipti, og nú fyrir tvær ólík- ar byggingar. Annars vegar fyrir íbúðarhús í sveit, Hof á Höfðaströnd í Skagafirði, og hins vegar viðbygg- ingu við eldri byggingu, Vogaskóla í Reykjavík. „Þótt byggingar þessar eigi ekki í eðli sínu margt sameig- inlegt bera þær þó báðar sterk höf- undareinkenni – aðlögun bygginga að nánasta umhverfi og því sem fyrir er,“ segir dómnefnd. Hrafnkell Sigurðsson var til- nefndur fyrir ljósmyndaröð sína Áhöfn, ljósmyndir af sjóstökkum samtímans, og olíuverkin Athafna- svæði, verk unnin með olíu á pappír, „hvort tveggja innsetningar á mörk- um abstraktsins en með samfélags- legu ívafi.“ Sjónlistaverðlaunin afhent á Akureyri Högna fékk heiðursorðuna fyrir einstakt æviframlag Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fékk heiðursorðuna Högna Sigurðardóttir var hrærð og ánægð og sagði aldrei nóg talað um byggingarlist. SÖNGKONUNNI Katie Melua skaut upp á stjörnuhim- ininn fyrir fjórum árum og um mánaðamótin er þriðja platan hennar, Pictures, væntanleg. „Margir hafa þá ímynd af mér að ég sé feimna stelpan í næsta húsi,“ segir Melua í viðtali í Morgunblaðinu í dag og segir þá ímynd ekki alveg rétta. Melua varð 23 ára fyrir réttri viku og hefur þrátt fyrir ungan aldur selt 7,5 milljónir platna. Hún býr í London og segir breska fjölmiðla oft mála þá mynd að framleið- andi hennar og samstarfsmaður, Mike Batt, sé yfirmað- urinn og hún „bara unga, sæta stelpan sem fylgi hon- um“. Það hafi þó minnkað eftir því sem plöturnar verði fleiri. | 46 Ekki bara ung og sæt Vinsæl Katie Melua hefur notið gríðarlegrar vel- gengni undanfarin ár og kemur nú með nýja plötu. ♦♦♦ ♦♦♦ FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar gerði húsleit í húsi í Laugarneshverfi í Reykjavík í gærkvöldi og voru þrír handteknir. Samkvæmt upplýsing- um frá lögreglu er um að ræða mál er varðar innflutning fíkniefna en tengist ekki fíkniefnamálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði í fyrradag. Lögreglan vildi ekki tjá sig frekar um málið í gærkvöldi. Þrír handtekn- ir eftir húsleit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.