Morgunblaðið - 22.09.2007, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 25
Nýr vörulisti
Fáðu frían vörulista í verslun okkar Faxafeni 8
Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 577 1170
www.boconcept.is
andi rýmist þar allt sem þarf á einu
heimili.
Á gólfinu er „rustik“ eik og stór-
ar flísar á eldhúsinu. Þau Alda og
Haukur hlæja að því að eldhúsflís-
arnar eru frostþolnar sem varla
ætti að þurfa í hlýtt og notalegt eld-
hús. Hins vegar átti byggjandinn
víst nóg af frostþolnum flísum svo
hann notaði þær bara á eldhúsgólf-
ið! Í framtíðinni ætlar Haukur þó
að bæta við fleiri frostþolnum flís-
um en þá til að leggja á svalagólfið.
Hann langar líka að loka svölunum
og leggja hita í gólfið, fáist til þess
leyfi hönnuðanna, og bæta þar með
heilu herbergi við íbúðina. Alda
segist vera lítil blómamanneskja
þegar hún færir til eina pottablómið
á heimilinu, sem stendur á eldhús-
borðinu. Á hinn bóginn hefur hún
mjög gaman af rósum og enn má
sjá merki þess að húsráðendur
héldu fyrir skömmu upp á afmæli
sín. Kerti og falleg ljós eru hins
vegar hátt skrifuð hjá Öldu ef
dæma má af kertafjöld og ótal flott-
um lömpum. Haukur segist þó ekki
vera búinn að koma í verk að setja
upp nema eitt loftljós í stofuna, og
kannski eins gott. Það varð nefni-
lega smáslys þegar hann hengdi
ljósið yfir borðstofuborðið. Hann
mundaði borvélina og var í þann
veginn að byrja að bora fyrir fest-
ingunum þegar hann missti vélina
ofan á háglansandi, sprautulakkað
borðið. Skemmdirnar urðu þó
óverulegar sem betur fer og upp fór
ljósið, íslensk hönnun eftir Dögg
Guðmundsdóttur hönnuð sem býr í
Danmörku. Ljósið heitir Túba og er
framleitt af fyrirtækinu Ligne Ro-
set í Frakklandi sem m.a. framleiðir
hnífapör sem Dögg hefur hannað. Í
eldhúsglugganum stendur svo lampi
í stíl við loftljósið.
Í anda ungrar dömu
Heimasætan Linda má vera
ánægð með herbergið sitt. Það er
einir 12 fermetrar og það sem
meira er, Nadia Banine úr Innliti-
útliti hannaði herbergið í anda
ungrar dömu. Þetta er svo sann-
arlega ekkert barnaherbergi, enda
eigandinn fimmtán ára. Í herberg-
inu getur Linda státað af glærum
stól, Louis Ghost, sem ekki minni
maður en Philippe Starck hannaði.
Þar er líka mjög frumlegur grár
stóll sem er úr línu sem nefnist Sit
and Joy.
Raddþjálfar karlana í Þresti
Svona í lokin er ekki úr vegi að
heyra hvað Alda er að gera á sviði
sönglistarinnar. Hún hefur gefið út
diskinn Ég elska þig og auk þess
komið víða fram síðan hún kom
heim frá London; sungið í þremur
óperum á Akureyri: aðalhlutverkið í
Kátu ekkjunni, Helenu fögru í sam-
nefndri óperu og í Sígaunabarón-
inum þar nyrðra og Næturdrottn-
inguna á Egilsstöðum. Hér syðra
söng hún Dísu í Galdra-Lofti og
fyrsta andann í Töfraflautunni.
Nú er hún að kenna smávegis og
svo tók hún nýverið að sér radd-
þjálfun fyrir Karlakórinn Þresti í
Hafnarfirði. „Ég ætla að taka þá
aðeins í karphúsið,“ segir þessi litla
netta söngkona og við veltum fyrir
okkur hvort karlarnir eigi nokkuð
eftir að verða henni erfiðir. Áreið-
anlega ekki. Þegar hún er komin í
sönghaminn ræður hún við hvað
sem er.
Allt opið Eldhúsið er í enda stofunnar. Innréttingin er frá Axis. Eldavélin
er nokkru lægri en borðið svo þægilegt er að hræra í pottunum.
Draugurinn Louis Ghost heitir plaststóllinn inni hjá Lindu. Hann er hönn-
un Philippe Starcks. Grái stóllinn er síðan úr línunni Sit and Joy
Sérhannað Nadia Banine hannaði herbergið heimasætunnar hennar
Lindu sem hlýtur að vera ósköp ánægð með árangurinn.
James Bond Þessi flotti lampi varð
frægur í einni af fyrstu James Bond
myndunum. Hann heitir Pipistrello
hannaður 1965 af Gae Aulenti.
Ármúla 42 · Sími 895 8966
mánudaga - föstudaga 10-18
laugardaga og sunnudaga 12-16Opið
Feng-Shui
vörur í úrvali
• Vasar
• Diskar
• Lampar
• Pottar
• Myndir
• Gosbrunnar
o.m.fl.
Kynning á kínverskri
listmenningulaugardag og sunnudagfrá kl. 12-16